Morgunblaðið - 02.03.1990, Síða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ EÖSTUDAGUR 2, MARZ 1990
Bolli Héðins-
son ráðinn
efnahagsráð-
gjafí forsæt-
isráðherra
BOLLI Héðinsson hagfræð-
ingur hefiir verið ráðinn
efiiahagsráðgjafi forsætis-
ráðherra frá og með 1. mars.
Bolli var áður efnahagsráð-
gjafi í ríkisstjóm Steingríms
Hermannssonar árið 1987, en
hélt þá til framhaldsnáms við
háskólann í Rochester í New
York. Undanfama mánuði hef-
ur hann starfað að sérstökum
verkefnum hjá Olíufélaginu hf.
Eiginkona Bolla er Asta St.
Thoroddsen lektor við Háskóla
íslands og eiga þau ijögur böm.
Formannskjör
hjá iðnrekendum:
Allir félags-
menn í kjöri
- segir Vígiund-
ur Þorsteinsson
VÍGLUNDUR Þorsteinsson, for-
maður Félags íslenskra iðnrek-
enda, segir að enginn framboðs-
listi sé í kosningu félagsins um
formann og sljóra, en að öðru
leyti vill hann lítið segja um
hugsanlegar kosningar milli
hans og Lýðs Friðjónssonar,
framkvæmdastjóra Vífilfells.
Eins og greint var frá í viðskipta-
blaði Morgunblaðsins í gær, hefur
Lýður Friðjónsson hugleitt að bjóða
sig sérstaklega fram í formannsem-
bætti FÍI. Lýður segist taka
ákvörðun um helgina. Félag
íslenskra iðnrekenda hefur sent út
atkvæðaseðla vegna formanns- og
stjómarkosninga en aðalfundur fé-
lagsins verður haldinn 15. dag
þessa mánaðar. „Það er einfalt mál
að formaður Félags ísl. iðnrekenda
er kosinn óhlutbundinni kosningu
og til eins árs í senn en stjómin
að öðm leyti að hálfu kosin til 2ja
ára hverju sinn. Það er þannig
enginn framboðslisti heldur allir
félagsmenn í kjöri, “ sagði Víglund-
ur Þorsteinsson.
Sendibifreiðir undanþegnar virðisaukaskatti:
Auðvelt er að fara í
kringnm reglumar
- segir deildarsljóri tæknideildar Bifreiðaskoðunar
AUÐVELT er fyrir þá sem það vilja að fara í kring um reglurnar
sem gilda um skráningu sendibíla og losna þannig við að virðisauka-
skattur verði lagður á verð hans þegar bíllinn er keyptur, að sögn
Jóns Baldurs Þorbjörnssonar deildarsljóra tæknideildar Bifreiða-
skoðunar íslands hf. Samkvæmt lögum um virðisaukaskatt geta þeir
sem hafa atvinnurekstur með höndum keypt bíla til rekstrarins án
virðisaukaskatts, ef bíllinn er einkum ætlaður til atvinnureksturs,
það er sendibíla og fólksbíla fyrir fleiri en 9 farþega.
Dómsmálaráðuneytið hefur gefið
út reglur um hvaða skilyrði bílar
þurfi að uppfylla, til að hægt sé
að skilgreina hana sem sendibíl. I
bréfi ráðuneytisins til Bifreiðaskoð-
unar um þetta segir:
„Sendibifreið er skilgreind þann-
ig: Bifreið sem aðallega er ætluð
til vöruflutninga þar sem leyfð
heildarþyngd er 3.500 kg eða
minna.
Þegar virt er hvort bifreið er
aðallega ætluð til vöruflutninga ber
að hafa eftirfarandi atriði í huga:
Skráð þyngd í fólksrými skal
vera minni en helmingur af skráðri
burðargetu bifreiðar. Miða skal við
að hver maður vegi 75 kg.
Farmrými aftan við öftustu brún
sætis/milliþils skal vera a.m.k.
1.700 mm, eða ef það er styttra,
þá skal það vera lengra en fólksrý-
mið mælt frá miðri framrúðu.
Opnanlegar hleðsludyr skulu
vera á afturgafli bifreiðarinnar
og/eða hleðsludyr á hlið hennar
með auðveldum aðgangi að öllu
fannrými.
í farmrými skulu hvorki vera
sæti né annar búnaður til farþega-
flutninga.“
í undirbúningi éru reglur um
skilrúm milli farþegarýmis og farm-
rýmis og verða þær komnar í gildi
á þessu ári.
Jón Baldur segir að ein breyting
hafi verið gerð á þessum reglum
síðan bréfið var sent þann 25. jan-
úar síðastliðinn. Munnleg fyrirmæli
hefðu borist þess efnis að svonefnd-
ir „Double Cab“ bílar væru skil-
greindir sem sendibílar. Þeir eru
með palli og húsi með tveimur sæta-
röðum, og hefðu að óbreyttu ekki
náð að vera skilgreindir atvinnu-
bílar. Slíkir bílar eru dæmigerðir
fyrir bíla, sem eru í senn vinsælir
einkabílar og til atvinnurekstrar,
einkum af verktökum og sveitarfé-
lögum.
Jón Baldur segic vera auðvelt að
skrá bíla sem sendibíla samkvæmt
þessum reglum, en nota þó sem
(_b
KR.
29.130,-
Flug og gisting
í 5 nætur
Heildsölubirgöir
H. Ólafsson & Bernhöft
Vatnagöröum 18, s. 82499.
Músli frá OTA
Gullblandan
einkabíla. Til dæmis nægði að taka
sæti úr mörgum skutbílum og öðr-
um sem hafa dyr á afturgafli og
setja síðan sætið í á ný eftir að
skráningu lýkur. Það breytti engu,
þó reglur komi um skilrúm, þau sé
hægt að festa í við skráningu og
skoðun, ogtaka síðan burtu aftur.
Hann var spurður hvort hægt
væri að koma í veg fyrir að menn
geti farið á þennan hátt í kring um
reglurnar og sagði hann að til þess
þyrfti að breyta reglum þannig, að
þessir bílar hefðu skráningarmerki,
eða sem kallað er bflnúmer í dag-
legu tali, í sérstökum lit. Þá væri
hægt að þekkja úr þá bfla sem
undanþegnir eru skattinum sem
atvinnubílar og hafa eftirlit með að
þeir séu í raun og veru notaðir til
atvinnurekstrarins, en ekki sem
hveijir aðrir einkabflar.
39.450,-
Flug og gisting
í 6 nætur
Pr. gengi 20.02 '90
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
. þær duga sem besta bók.
Múlalundur I
SÍMI: 62 84 50 £
S/fS
FERDASKRIFSTOFAN
X4S
FFRDASKRIFSTOFAN
Þ.ÞORGRÍMSSON &C0
ARMA
W PLAST
ÁRMÚLA 16 OG 29, S. 38640
KR.
47.800,-
Flug og gisting
í 5 nætur
Pr. gengi 20.02 ’90
S4S
FERDASKRIFSTOFAN
scqa
Suðurgötu 7, \_ J
sími 624040.