Morgunblaðið - 02.03.1990, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990
27
Embætti umboðsmanns Alþingis óvirt og
hunzað af ráðuneytum og ríkisstofhunum
eftirFriðrik
Haraldsson
Allt frá því að embætti umboðs-
manns Alþingis var stofnað 1988,
til að hafa eftirlit með stjórnsýslu
ríkisins og tryggja rétt borgaranna
gagnvart stjórnvöldum landsins, höf-
um við heyrt, séð og lesið um tregðu,
seinagang og útúrsnúninga í svörum
stjórnvalda við fyrirspurnum hins
nýja embættis. Þar að auki er ljóst
að ýmsir úrskurðir þess hafa vægast
sagt verið metnir léttvægir af sumum
ráðherrum og embættismönnum,
þegar þeir hafa verið bornir undir þá
í fjölmiðlum.
Það er oft rætt um þann „skap-
gerðarbrest" íslendinga sem veldur
því, að þeir sigla hver sinn sjó og
láta Iög og reglur sem vind um eyru
þjóta, ef það hentar betur í það skip-
tið. Þótt það séu engar málsbætur
fyrir hinn almenna borgara, sem
Vilhjálmur
Einarsson
sýnir í Mokka
VILHJÁLMUR Einarsson skóla-
stjóri og myndlistarmaður hefur
opnað sýningu á 18 tölusettum
myndum og íjölda ótölusettra
mynda í Mokka á Skólavörðustíg.
Sýningin stendur í þrjár vikur.
Þetta er fjórða einkasýning Vil-
hjálms en hann hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga. Myndefni sækir
hann í íslenskt landslag, einkum af
Austurlandi. Hann leggur sig eftir
ljósaskiptum og þeirri mjúku birtu
hefur hrakið af hinum dyggðum
prýdda vegi og glatað virðingu fyrir
lögunum og þeim, sem smíða þau,
að hann hafi fyrirmyndir meðal ráð-
herra og embættismanna á öðru
hveiju strái, verður að viðurkenna
að hegðun of margra forystumanna
okkar er í þessum efnum mikið álag
á siðferðisþrek þjóðarinnar.
Undanfarna mánuði og misseri
hefur álitsgerða og úrskurða um-
boðsmanns Alþingis æ oftar verið
getið í fjölmiðlum, þannig að ljóst
er, að unnið er af beztu getu að
málum á þeim vettvangi. Hafi ein-
hveijir hinna kjörnu fulltrúa okkar á
Alþingi og embættismenn ætlazt til
þess, að þetta nýja embætti yrði að
grafreit fyrir mál, sem voru og eru
óþægileg fyrir stjórnvöld, og skálka-
skjól fyrir þau til að traðka óáreitt
á rétti einstaklinga eða hópa, hefur
þeim skjátlazt hrapallega. Samt
þreyja margir þeirra þorrann og beita
málþófi til að draga sem mest úr
Morgunblaðið/Sverrir
Vilhjálmur Einarsson.
sem sem þá slær á landið. Tækinin
er blönduð, akryl og gouashe á svart-
an grunn.
eðlilegum vinnuhraða hjá umboðs-
manninum. Sem betur fer tekst það
ekki á sama hátt og áður, m.a. vegna
breyttra vinnubragða, aukins áræðis
og athygli fjölmiðla.
Annáll eins nýlegs máls hjá
u.A.
Til þess að lesendur megi gera sér
betri grein fyrir gangi eins máls, sem
u.A. hefur haft til meðferðar fyrir
undirritaðan, verða rakin hér við-
skipti við tvö ráðuneyti:
Hinn 20. janúar 1989 var erindi
sent til umboðsmanns Alþingis.
Hinn 2. marz 1989 sendi u.A. fyr-
irspurn til félagsmálaráðuneytis
vegna. erindisins.
Hinn 2. marz 1989 sendi u.A. fyr-
irspurn til samgönguráðuneytis
vegna erindisins.
Hinn 13. marz 1989 svarar félags-
málaráðuneyti u.A. Skjót viðbrögð,
en svarið var út í hött og ekkert á
því að byggja.
Hinn 18. maí 1989 ítrekaði u.A.
fyrirspurn sína til samgönguráðu-
neytis.
Hinn 15. ágúst 1989 sendir u.A.
aðra ítrekun til samgönguráðuneytis.
Þessi dráttur tafði ítrekun fyrir-
spurnar til félagsmálaráðuneytis og
beiðni um skýr svör.
Hinn 28. sept. 1989 svarar sam-
gönguráðuneyti u.A. út í hött.
Hinn 24. okt. 1989 sendi u.A. fé-
lagsmálaráðuneyti fyrirmæli um skýr
svör við fyrstu fyrirspum frá 2.
marz 1989.
Hinn 24. okt. 1989 sendi u.A.
samgönguráðuneyti fyrirmæli um
skýr svör við fýrstu fyrirspum frá
2. marz 1989.
Hinn 9. janúar 1990 svarar félags-
málaráðuneyti u.A. aftur út í hött.
Hinn 24. janúar 1990 sendi u.A.
félagsmálaráðuneyti önnur fyrirmæli
um skýr svör við fyrirspurnum frá
2. marz 1989 og 24. okt. 1989.
Þegar þetta er ritað er ekki vitað
til að svör frá samgönguráðuneyti
hafi borizt.
Að lesnum þessum annál og af-
rekaskrám ráðuneyta félags- og
samgöngumála dylst vonandi engum
hvers konar vinnubrögð og hrá-
skinnaleik við skattgreiðendur verð-
um að greiða fyrir, a.m.k. í þessum
tveimur ráðuneytum. Efni svarbréfa
ráðuneytanna, sem verða birt, ef
óskað verður eða þörf krefur, er
þannig samansoðið, að venjulegu
vitibornu fólki er ókleift að skilja
það. Annaðhvort virðist hér um að
ræða yfirskiivitlegar véfréttir eða
verk fólks, sem oft er útvegað hæli
á öðruvísi ríkisstofnunum.
Hvað er til ráða?
Svo virðist sem fundin hafi verið
upp ný aðferð til að viðhalda og
auka Parkinsons-lögmálið, sem hefur
verið ærið þungur baggi á vinnandi
fólki þessa lands. Ef til vill dugar
þessi aðferð, verði henni beitt í aukn-
um mæli, til þess að fækka enn þeim
höndum, sem stunda arðbær störf í
þjóðfélagi okkar, því að greinilega
þarf fleiri hendur til að stokka og
raða pappír í ráðuneytum og ríkis-
stofnunum með þessu áframhaldi.
Þá er tryggt, að enginn hefur tíma
til að standa í því að leita til stjórn-
sýslustöðvanna. Ef þetta dugar ekki
til, væri hægt að lækka verðið á
áfengi til að deyfa mannskapinn enn
frekar. Þá ætti markmiðinu að vera
náð.
Finnist okkur of langt gengið og
bijóti eitthvað í bága við réttlætisvit-
Friðrik Haraldsson
„Efiii svarbréfa ráðu-
neytanna, sem verða
birt, ef óskað verður
eðaþörfkrefur, er
þannig samansoðið, að
venjulegu vitibornu
fólki er ókleift að skilja
það.“
und okkar, eigum við ekki að hika
við að leita réttar okkar. Til þess er
embætti umboðsmanns Alþingis
meðal annarra. Það kann að taka
sinn tíma og stundum verðum við
fyrir vonbrigðum með fyrstu niður-
stöður, bölvum öllu í sand og ösku,
segjum að ekki tjái að kljást við
kerfið og gefumst upp. Slíkt má helzi
ekki gerast, því að það virkar eins á
þá, sem við erum að reyna að leita
réttar okkar gegn, og fjósapúkana,
sem magnast og tútna út við ljótan
munnsöfnuð.
Höfundur er leiðsögumaður.
'L YSINGAR
Akranes
Fundur verður í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akranesi í Sjálf-
stæðishúsinu, Heiðargerði 20, föstudaginn 2. mars kl. 20.30.
Fundarefni:
Tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista Sjálfstæðisflokksins
við bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi á vori komanda.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akranesi.
Skagfirðingar -
Sauðárkróksbúar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Safnahúsinu, Sauðár-
króki, mánudaginn 5. mars kl. 20.30. Frummælandi verður Davíð
Oddsson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Einnig verða á fundin-
um Pálmi Jónsson, alþingismaður, og Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri. Fyrirspurnir. Almennar umræður.
Sjálfstæðisfélag Sauðárkróks.
Stjórnmálaskóli
Sjálfstæðisflokksins
Kvöld- og helgarskóli
Helgarnámskeið fyrir sjálfstæðis-
konur í Vestmannaeyjum
Dagskrá:
Laugardagur 3.
mars:
Kl. 11.00-12.00-
Ræðumennska og
fundarsköp:
Bjarndís Lárusdóttir.
Kl. 12.00-12.30-
Matarhlé.
Kl. 12.30-15.00-
Ræðumennska -
framhald.
Kl. 15.00 Ka
Kl. 15.30-18.00 Gr
Þó
Sunnudagur 4. mars:
Kl. 10.00-12.30 Ræðumennska og fundarsköp:
Bjarndís Lárusdóttir.
Kl. 12.30 Matarhlé.
Kl. 13.00-16.00 Greinaskrif:
Þórunn Gestsdóttir.
Kl. 16.00 Kaffihlé.
Kl. 16.30-18.00 Bæjarstjórnarkosningar:
Sigurður Jónsson, bæjarfulltrúi.
Landssamband sjálfstæðiskvenna
Konurog þjóðmál
Ráðstefna haldin laugardaginn 3. mars
1990 á 1. hæð Valhallar við Háaleitisbraut,
Reykjavík, kl. 10.30-14.30.
Kl. 10.30 Setning ráðstefnu:
Sigríður A. Þórðardóttir,
formaður Landssambands sjálf-
stæðiskvenna.
Kl. 10.40 Konur í sveitarstjórnum:
Bryndís Brynjólfsdóttir,
bæjarfulltrúi, Selfossi,
Petrea I. Jónsdóttir,
varabæjarfulltrúi, Seltjarnarnesi.
Kl. 11.10 Konur í atvinnulífi:
Hjördís Gissurardóttir, gullsmiður,
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, varaformaður VR.
Kl. 11.50 Hádegisverður.
Kl. 12.40 Konur í fjölmiðlum:
Agnes Bragadóttir, blaðamaður, Elin Hirst, fréttamaður.
Kl. 13.10 Panelumræður - Þátttakendur ásamt frummælendum.
Katrín Fjeldsted, borgarfulltrúi, og Anna K. Jónsdóttir, vara-
borgarfulltrúi.
Umræöustjóri Margrét S. Einardóttir, forstöðumaður.
Kl. 14.30 Ráðstefnuslit.
Ráðstefnustjóri verður Salóme Þorkelsdóttir, alþingismaður.
Ráðstefnan er öllum opin.
Wélagslíf
I.O.O.F. 1 = 171328V2 = 9.I.*
I.O.O.F. 12 = 171328'/2 =
HEIMSÓKN
Biblíulestur í Grensáskirkju á
morgun laugardag kl. 10.00.
Efni: „Þarf fyllingu heilags anda
og handayfirlagningu til þess að
náðargjafirnar virki?" Kennari
Friðrik Schram. Bænastund kl.
11.30. Allir velkomnir.
§Hjálpræðis-
herinn
y Kirkjustræti 2
í kvöld kl. 20.30 Bíblía og bæn
(fyrir karla) í umsjá majórs Conr-
aðs Örsnes fagnaðarboða. Einn-
ig talar majór Björg Örsnes á
sameiginlegri samkomu á sama
tíma í Hallgrímskirkju í tilefni al-
þjóðlegs bænadags kvenna.
Laugardag kl. 20.30 vakninga-
samkoma. Majórarnir Björg og
Conraö Örsnes tala. Ungt fólk i
fararbroddi. Allir velkomnir.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ingólfsstrntl 22.
Askrlftarsfml
Ganglera ar
39673.
I kvöld kl. 21.00 hefst erinda-
flokkur um búddhisma með er-
indi um „tómið og hugleiðingu
um það“. Fyrirlesari er Alexand-
er Berzin, túlkur Dalai Lama.
Erindunum verður framhaldið
laugardag kl. 15.00 og 21.00 og
á sunnudag kl. 21.00. Þau eru
haldin í húsi félagsins í Ingólfs-
stræti 22 og eru á ensku en
föstudagserindið verður túlkað á
íslensku. Erindin eru öllum opin
og aðgangur ókeypis.
JÓÐLEGUR BÆNA-
DAGUR KVENNA
Samkoma alþjóðlegs
bænadags kvenna er í
Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20.30.
Samskot til Hins íslenska biblíu-
félags verða tekin í lok samkom-
unnar.
Samstarfsnefndin.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Dagsferðir
sunnudaginn 4. mars
1. Kl. 10.30 Skíðaganga: Þing-
vallavegur - Borgarhólar - Litla
kaffistofan. Gott gönguskíða-
færi. Skemmtileg skíðaleið þvert
yfir Mosfellsheiðina. Verð 800,-
kr. Fararstjóri: Ásgeir Pálsson.
2. Kl. 13.00 Lögberg - Selfjall
- Lækjarbotnar. Gönguferð fyrir
alla. Gamlir, þekktir áningarstað-
ir heimsóttir. Selfjall er auðvelt
uppgöngu. Verð 600,- kr.
3. Kl. 13 Skíðaganga í Heið-
mörk. Létt og gott skíðagöngu-
land. M.a. gengið um skóg-
arstiga í skógarreit Fl’. Verð
600,- kr., frítt í ferðirnar f. börn
með foreldrum sínum. Farar-
stjóri: Sigurður Kristjánsson.
Brottför í ferðirnar frá BSÍ (Um-
ferðarmiðstöðinni), austanmeg-
in. Ferðafélagsferðir eru við allra
hæfi. Þriðja og síðasta skíða-
göngunámskeiðið verður 11.
mars. Munið vetrarfagnaðinn
laugardaginn 17. mars.
Skólahópar og aðrir hópar.
Kynnið ykkur gistimöguleika í
Skagfjörðsskála, Þórsmörk.
Tilboð marsmánaðar á eldri
Árbókum FÍ. 1. Allt settið (62
Árbækur) með 50% stað-
greiðsluafslætti, þ.e. kr.
18.800,-istað 37.600,-. 2. Með
raögreiðslum í 2-12 mánuði og
25% afslætti, aðeins kr. 2.350,-
á mánuði. 3. Snæfellsnes -
Breiðafjarðareyjapakkinn (3
Árbækur) á aðeins 3.000,- kr.
Ferðafélag íslands.