Morgunblaðið - 02.03.1990, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Fjármálahorfumar batna í dag,
en þú verður að gera málamiðlun
varðandi peningagreiðslu við
einhvem þér nákominn. Þú get-
ur orðið pirraður út í vin þin.
Naut
(20. aprfl - 20. maQ^
Það fer eftir orðalaginu hjá þér
hvort þér tekst að vinna hug-
myndum þínum fylgi. Vertu
samvinnufús við maka þinn. Þú
færð góð ráð.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Þetta er ekki heppilegur dagur
til að gefa öðru fólki ráð. Þú
þarft að leggja þig allan fram
til að ná árangri. Fjármálaþró-
unin er þér í hag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú vinnur hörðum höndum í dag
og ættir að taka þér frí í staðinn
og slaka á. Þér getur orðið sund-
urorða við vin þinn út af pening-
um.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Því eljusamari sem þú ert við
vinnu í dag þeim mun ákafari
ertu í að halda áfram og ekkert
getur stöðvað þig. Einhver sem
þú kannast við úr félagslífmu
reynist þér hjálplegur.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú hefur allt of miklar áhyggjur
út af smávægilegum hlutum á
vinnustað. Þú ættir að ferðast
eða leggja áherslu á frístunda-
málin. Kvöldið verður ró-
mantískt.
V* ^
(23. sept. - 22. október)
Þú sinnir ýmsum hlutum heima
við. Það verður gaman hjá þér
í kvöld hvort sem þú ferð út að
skemmta þér eða verður heima
með flölskyldunni.
Sþorddreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú hefur áhyggjur af minni hátt-
ar vandamáli heima fyrir, en
dagurinn verður í heiid sinni
skemmtilegur. Hjón verða sér-
staklega samhent.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) m
Reyndu að leysa deilumál við
vinnufélaga á vinsamlegan hátt.
Þó að vinnuálagið sé mikið í dag
kemur ekkert í veg fyrir að þú
ljúkir verkefni sem þú ert með
í takinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Taktu frumkvæðið á rómantíska
sviðinu. Skemmtu þér í dag, en
forðastu fyrir alla muni óhófs-
eyðslu.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú ættir ekki að eiga í neinum
vandræðum með að ljúka verk-
um sem þú hefur ýtt á undan
þér. Þú vilt fremur fá næði með
ástvinum þínum en fara út á
lífið. Gerðu málamiðlun við ein-
hvem í flölskyldunni.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) '
Nú er lag fyrir þig að kynna
hugmyndir þínar. Þú átt góðar
stundir í hópi vina. Þiggðu heim-
boð. Láttu sem þú heyrir ekki
þótt að þér sé sneitt.
AFMÆLISBARNIÐ er sam-
vinnufúst, forvitið og lætur sér
ekki allt fyrir brjósti brenna. Það
á hugsjónir og hefur skáldlegar
æðar. Það þarf á mikilli hvatn-
ingu að halda. Þó að það hafi
ríka þörf fyrir ijárhagslegt ör-
yggi er það reiðubúið að taka
áhættu ef aðstæðumar kreflast
þess. Þar sem það er hluttekn-
ingarsamt að eðlisfari tekur það
oft þátt í áhyggjum annars fólks.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
í MATMCIX/IVDIMMI
1 VA 1 IMolVI Y KIIMfMI
SMAFOLK
Mér leikur forvitni á að vita, af hverju þú situr svona langt frá.
Ég vil hafa gott forskot, ef hann er stór, og ég verð að taka til fótanna...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Spil NS rétt þola fjögur
hjörtu, en suður var í örvænting-
arfullri sveifluleit og keyrði í
slemmu.
Suður gefur; NS á hættu.
Vestur
♦ 10765
¥ 764
♦ D
♦ K7642
Norður
♦ K43
¥ K83
♦ KG643
*G5
Austur
♦ D8
¥95
♦ 109852
♦ Á1093
Suður
♦ ÁG92
¥ ÁDG102
♦ Á7
♦ D8
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 hjarta
Pass 3 hjörtu Pass 4 lauf
Pass 4 tíglar Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: tíguldrottning.
Það er gömul lumma að fals-
melda fyrirstöður, en seig, eins
og lummur verða gjarnan með
aldrinum. Og í þetta sinn sá
vestur enga ástæðu til að tor-
tryggja suður.
“Þrátt fyrir útspilið á sagnhafi
erfitt verk fyrir höndum. Hann
getur reiknað með að tígul-
drottningin sé ein á ferð, svo
spaðinn verður að gefa eitthvað
af sér. Fyrsti slagurinn er tekinn
á tígulás, trompi spilað þrisvar,
augunum lokað og spaðagosa
svínað. Síðan er KG í tígli spilað
og laufi hent heima. Tígull
trompaður, spaði upp á kóng og
síðasti tígullinn stunginn. Þá er
staðan þessi:
Vestur Norður ♦ 4 ¥ - ♦ - ♦ G5 Austur
♦ 107 ♦ -
¥ - 111 ¥-
♦ ♦ -
♦ K ♦ Á109
Suður ♦ Á9 ¥ - ♦ - ♦ D Laufdrottningin setur í
punktinn yfir i-ið.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stórmótinu í Linares á Spáni,
sem nú stendur yfir, kom þessi
staða upp í skák þeirra Boris
Gelfand (2.615), Sovétríkjunum,
og Nigel Short (2.635), Eng-
landi, sem hafði svart og átti leik.
Short varð snemma að láta af
hendi skiptamun og vinningurinn
virtist blasa við Gelfand, en nú
gerðust undarlegir hlutir:
32. - Rxf4! (Með þessari fórn nær
svartur fullnægjandi mótspil.) 33.
gxf4 - Bc6, 34. Rd5? (Betra var
34. Rxf8 - Dxf8, þótt mótspil
svarts virðist a.m.k. duga til jafn-
teflis.) 34. - Dg6+, 35. Khl -
e3 og í þessari stöðu féll Gelfand
á tíma, en hann getur ekki varist
öllum hinum fjölmörgu hótunum
svarts. Þrátt fyrir þetta slysalega
tap var Gelfand samt í efsta sæti
ásamt Kasparov með sex vinninga
að loknum átta umferðum.