Morgunblaðið - 22.04.1990, Page 2

Morgunblaðið - 22.04.1990, Page 2
MOUGUNBLAÐÍÐ SUNNUDAGUR' 22,'APRIL 1990' 2 C 20 árum og eru enn við lýði, enda hafa þau ekki misst gildi sitt. A sama hátt og hreyfingar græningja hófust fyrir 20 árum handa í gras- rótinni, en ekki hjá ríki og stjórn- völdum, þá gerir fólk sér grein fyr- ir því núna, að einstaklingarnir verða að mynda framvarðarsveit í verndun umhverfisins. Ekki ágirnast og ekki eyða Til að gefa svolitla hugmynd um þetta skulum við líta á tölur, sem Bandaríkjamenn hafa sett upp til að þarlendir geti á þessum tímamót- um betur áttað sig á hvað er að gerast. Og raunar aðrir líka. Líklegt er að bíllinn þinn spúi um fimm tonnum af koltvísýringi út í loftið árlega. Útblástur frá bílum sem ekið er í Bandaríkjunum á sök á um 50% af gróðurhúsaáhrifunum, enda bílarnir stórir. Og talið er að eyðing frumskóganna eigi sök á fjórðungnum af heildar-koltvísýr- ingi loftsins. Bruni á einni ekru regnskóga sendir frá sér 400 þús- und pund af koltvísýringi. Og AÐ HUGSA A HEIMSVISU OG FRAMKVÆMA HEIMA Dagurinn 22. apríl hefur sér- staka merkingu í hugum umhverfissinnaðs fólks, því þá eru 20 ár liðin frá því að fyrst var efnt til Dags jarðar og áskorun- in frá umhverfisráðstefnu Samein- uðu þjóðanna í Stokkhólmi hafði í för með sér merkilegt átak víða um lönd með lagasetningum, sbr. hreinsunarlögin „The Clean Act Bill“ og umhverfisverndarstofnun- ina í Bandaríkjunum, svo eitthvað sé nefnt. Nú er öllum jarðarbúum að verða ljóst að um er að tefla að lifa eða farast og er það von þeirra sem að þessu mikla átaki standa að Dagur jarðar 1990 muni sýna að almenningi er alls ekki sama um plánetuna sína. Og að forgangs- verkefni næsta áratugar verði að beina þeirri umhyggju í einn þung- an, stöðugan straum framkvæmda til þess að bjarga jörðinni úr þeirri hættu, sem hún er í. Á þúsundum byggðra bóla um allan heim munu íbúarnir nú í morg- unsárið setja á svið hina margvís- legustu atburði: skrúðgörigur, mót- mæli, yfirlýsingar, fræðslumið- stöðvar, ruslasöfnunarstöðvar og lífríkishátíðir. Umhverfísverndar- fólk í Vestur-Bengal á Indlandi ætlar að hjóla í skrúðgöngu, skóla- böm á litlu eyjunni Máritíus í Ind- landshafi ætla að planta trjám, fjall- göngumenn frá Sovétríkjunum og Kína ætla að klífa á tind Mount Everest til að þrífa upp ruslið sem fyrri leiðangrar hafa skilið þar eftir og í Seattle í Bandaríkjunum ætlar fólk í mótmælagöngu gegn mengun Puget-flóa. Þar í landi hefur fræga fólkið, kvikmyndaleikarar og mú- síkantar, mikinn viðbúnað til þess að leggja lið í áróðri og fjáröflun. í löndum Vestur-Evrópu reka neyt- endur fyrir áhrif frá græningjum fyrirtækin til þess að framleiða „umhverfisvinsamlegan" varning með því að auglýsa og kaupa í vax- andi mæli þá vöru, svo að stórfyrir- tækin verða nú með og veita pund- um, frönkum og þýskum mörkum í umhverfisvinsamlega framleiðslu. Og þannig mætti lengi telja. Um- hverfísmál virðast þannig ætla að verða mikilvægasta viðskiptamálið á þessum áratug. Það er erfítt fyrir jarðarbúa, sem eru umkringdir byggingum og vél- um, eins og stór hluti þeirra er nú orðið, að gleyma því að hvert korn og öll matvæli eru fijóvguð í náttúr- unni. AÍlt súrefnið sem við öndum að okkur kemur frá grænum plönt- um. Allt það vatn sem við drekkum fellur úr loftinu. Við erum hluti af hinu ofur viðkvæma millifrumuefni lífsins. Það látum við sem vind um eyrun þjóta og hættum þar með lífi okkar. Ixiksins er okkur þó að skilj- ast þetta. Um leið og skógarnir og lífríkið, hreina loftið og vatnið hverfa, þá er okkur að lærast að meta öll þau verðmæti sem við eig- um. I því' liggur auðvitað vonin. Að næsti áratugur muni bjarga og frelsa jörðina okkar. En til þess verður að ná til allra manna, ekki bara ráðamanna. Og það er einmitt það sem ætlunin er að gera núna, á Degi jarðar 1990. Til þess að all- ir menn leggist á~ eitt, hver eftir sinni getu. Það byggist auðvitað á því að hver og einn viti hvað hann sjálfur er að aðhafast. Hugsið á heimsvísu — gerið eitthvað heima, eru einkunnarorð sem til urðu fýrir unum deyja 25 milljónir manna ár- lega af völdum mengaðs vatns, þar áf átta milljón börn. Annar stórvandi er ruslið, sem hver maður hendir frá sér. Bruðlar- ar velmegunarþjóðanna fleygja einu tonni af sorpi á ári, sem híeðst upp og landfyllingar duga ekki til. Tök- um nokkrar tölur frá Bandaríkjun- um, af því að þær eru tiltækar, en ljóst er að þjóðir eins og Islending- ar standa þar lítt að baki. Árlega eru meira en 220 milljón tré höggv- in til þess eins að nýta í dagblöð þar í landi og megnið af þeim hafn- ar í sorpinu daginn eftir. Banda- ríkjamenn fleygja árlega í sorpið áldósum, sem nægja mundu til þess að endurnýja allan flugflota flugfé- laganna, og nota á hverjum klukku- tíma 2,5 milljón plastflöskur, auk 18 milljarða af pappírsbleyjum á ári, með þeim afleiðingum að 45% af skipafrakt frá New York höfn er pappírsrusl. Það liggur ljóst fyr- ir, segir formaður Dags jarðar 1990, Denis Hays, að svarið við sorpvandamálinu er ekki að finna einhveija leið til að pressa sorpið eða brenna því. Það verður að draga úr magni þess. Til þess eru líka ótal leiðir, m.a. með endurvinnslu á pappír, áli, tini, gleri, smurolíu og rafhlöðum. Þannig mætti lengi telja til að gera fólki grein fyrir stærð vand- ans. Nokkrar tölur í viðbót. Nælon- og plastveiðarfæri, plastpokar og frauðplastumbúðir drepa árlega allt að milljón sjófugla og 100 þúsund önnur dýr. Olíulekinn af völdum Exxon V aldez-slyssins mengaði nýlega 700 mílur af strönd Norður- Ameríku og drap þar fugla, og svo er árlega víða um heim vegna olíu- leka. Loks má ekki gleyma því að daglega svelta hundrað þúsund manns, 40 þúsund þeirra börn, til bana. Ekki að furða þótt mannkyn- ið sé loks að vakna til meðvitundar um, að svo til geti ekki lengur geng- Á hverri sekúndu hverfur um þaó • bil ígildi eins knattspyrnuvallar af regnskógi, land sem aldrei aó eilífu er hægt aó endurvinna í sömu mynd. • Talið er að eyóing frumskóganna eigi sök ó fjórðungnum af heildar-koltvísýringi lofts- ins. hverri sekúndu hverfur um það bil ígildi eins knattspyrnuvallar af regnskógi, land sem aldrei að eilífu er hægt að endurvinna í sömu mynd. Til að framleiða rúm hundrað grömm af nautakjöti í hamborgara þarf að hreinsa 1,6 fermetra af regn- skógi. Og 25% af lyfjum sem eru á skrá í Bandaríkjunum eiga uppruna sinn í plöntum, sem eingöngu finnast í regnskógunum. Það kostar heilan skóg, þ.e. 500 þúsund tré, að leggja Bandaríkjamönnum til sunnudagsútgáfur dagblaða sinna í hverri viku. Og loks ein tala enn, 50-80% tegunda í lífríki jarðar lifa í regnskógum hitabeltislandanna. Votlendi er að víkja af jörðinni fyrir ræktunarlöndum og byggð. A íslandi er líka sáralítið að verða eftir af fiestum gerðum votlendis. í Bandaríkjunum hverfa árlega 300-500 þúsund ekrur undir ræktað land, vegi, byggð o.fl. Sama er að segja um víða veröld. Nú er svo komið að áhrifa mannsins gætir svo að segja hvarvetna á jörðinni og upprunaleg vistkerfí eru víða horfín í þéttbýlum löndum. Þóra Ellen Þórhallsdóttir líffræðingur gerði grein fyrir þessu í erindi á ráð- stefnu íslenskra náttúrufræðinga nýlega. Sagði að tæplega 40% jarð- ar teljist nú vera óbyggð víðerni og vegi þar þyngst heimskauta- svæðin, Alaska, Kanada og Síbería. Óbyggð víðerni eru aðeins talin þekja um 4% flatarmáls Evrópu og Til aó framleióa rúm hundraó grömm af nautakjöti í hamborgara þarf aó hreinsa l,ó fermetra af regnskógi. JARÐAR Bandaríkjanna og í flestum iöndum Vestur-Evrópu er ekkert slíkt eftir. Annars staðar er jarðvegur að hverfa með uppblæstri. Eitt stærsta dæmið er Sahara-eyðimörkin, sem teygir sig hratt suður yfír Afríku. Og á íslandi er um helmingur af grónu landi horfinn og enn að blása burt jarðvegur, sem grænar plöntur til viðhalds andrúmslofti jarðarbúa ættu að gróa á. Og í tilbót útrýma jarðarbúar 100 plöntutegundum eða dýrategundum á dag. Verndun vatnsins er eitt mikil- vægasta viðfangsefnið í framt- íðinni. Einungis 3% af vatni heims- ins er ferskt vatn, og 75% er geymt í heljargreipum jökla og í heim- skautaísnum. Samkeppnin um það sem enn er eftir fer vaxandi og harðnar, samhliða því að grunnvatn lækkar og mengun af völdum eitur- efna gera hluta þess ónothæfan. Og enginn skyldi ímynda sér að mengað vatn komi einungis frá hin- um vonda stóriðnaði, þótt hann eigi þar sinn hlut. Venjulegt fólk í ein- býlishúsum notar víða um heim meira af skordýraeitri og tilbúnum áburði á hvern ferkílómetra lands en bændur á jafnstóra bletti. Þó á þetta fólk þess kost að nýta rotn- andi lauf og gras af blettinum í áburð í stað tilbúna áburðarins og draga úr menguninni með því að minnka notkun þeirra efna sem ekki brotna niður, svo sem þvotta- efna, hreinsiefna og leysiefna, sem enda úti í vötnum. Alvöru málsins má marka af því að í þróunarlönd- I *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.