Morgunblaðið - 22.04.1990, Blaðsíða 32
32 C
MORGUNBLAÐIÐ É. 'APRÍL
í 1990
Læknaskráin 1990
er komin út.
Skráin er til sölu á skrifstofu landlæknis-
embættisins, Laugavegi 116, II. hæð.
LANDLÆKNIR.
Lögmenn
Þórður S. Gunnarsson hrl.
Sigurbjörn Magnússon hdl.
Ármúla 17, s. 68 15 88,fax68 11 51
Nyting náttúruauðlinda
ísátt við umhverfið
Fáar aðrar þjóðir geta fullnœgt rafmagnsþörf
sinni án þess að valda ómœldum umhverfis-
sþjöllum með brennslu á kolum og olíu og ekki
bœta kjarnorkuknúin orkuver úr skák með þeirri
ógn, sem þeim fylgir.
Ef vel er á haldið þarf nýting orkulinda okkar
íslendinga ekki að brjóta í bága við umhverfis-
verndarsjónarmið og getur hún því verið
undirstaða ah/innuvega okkar og góðra
lífsskilyrða um ófyrirsjáanlega framtíð. í dag
höfum við aðeins beislað um 8% afþeim hluta
vatnsafls okkar og jarðhita, sem virkja má á
hagkvœman hátt til rafmagnsframleiðslu að
teknu tilliti til náttúruverndarsjónarmiða.
Rafmagn er undirstaða góðra lífskjara
og framfara á sviði iðnaðar og tœkni í
nútímaþjóðféiagi. íslendingar fá sitt
rafmagn nœr eingöngu með virkjun vatns-
afls og jarðhita, en nýting slíkra orkugjafa
er mengunarlaus með öllu.
Öllum virkjanaframkvœmdum fylgir óhjákvœmi-
lega eitthvert rask á gróðurlendi og umhverfi
virkjunarstaða. Landsvirkjun hefur um árin lagt
áhersiu á að halda slíku raski og náttúrusþjöll-
um í lágmarki og bœta allt tjón af völdum
framkvœmda sinna með uppgrœðslu og
gróðurvernd. Hefur þetta verið drjúgur þáttur í
starfsemi fyrirtœkisins.
Á 25 ára starfsferli sínum hefur Landsvirkjun
grœtt upp rúmlega 3000 hektara lands, sem
áður voru að mestu örfoka sandar og auðnir.
Auk stórfelldrar uppgrœðslu hefur fyrirtœkið
kostað umfangsmiklar rannsóknir á gróðurfari
og lífríki víða um landið.
Landsvirkjun framleiðir meir en 93% af öllu rafmagni,
sem notað er á íslandi og mun áfram kappkosta að leggja sitt afmörkum til betri lífskjara
með nýtingu náttúruauðlinda þjóðarinnar í sem bestri sátt við umhverfið.
E immmm
BAIiÞANKAR
Hasarblaða-
sýklar
Það er lítill sjarmi orðinn
yfir því að fara í bíó nú á
dögum. Svona var það 1959;
Sunnudagsmorgun. Ég vakna
við hamarshögg. Það er móðir
hhbhb mín að berja til
lærissneiðar og
strax eftir mat-
inn neyðist
pabbi til að opna
budduna sína og
draga upp
.1«, ÓI.I splunki-aan
Gunnarsson Hvaða gotti-_
namm skal sjá í dag? i
Stjörnubíó er Johnny Weis-
muller að leika Tarzan. í Gamla
Bíó, Andrés Önd og félagar. í
Austurbæjarbíó; Roy og Trig-
ger. Það eru slíkar dásemdir að
skoða að maður stendur ráðala-
us.
Þá er kallað að það sé síminn
til mín. Það er frændi minn.
Hann býr við Lokastig, við
mætumst á horninu á Lauga-
vegi og Frakkastíg, strikum yfir
Andrés og ungana við slæmar
undirtektir systur hans og tök-
um stefnuna á Stjörnubíó og
Tarzan. Við höldum á sitt hvor-
um hasarblaðabunkanum og
hann leiðir litlu systur. Hún
heldur um tikallinn sinn af
slikri festu að engu gripi verður
saman jafnað, utan taki Þor-
geirs Hávarssonar á hvönninni
forðum, sjá Gerplu, blaðsíðu
157, önnur prentun.
í anddyrinu á Stjörnubíó
byrja blaðaskiptin. Það er
handagangur í öskjunni, ég er
að safna Súpermann, fæ tvö
blöð, annað frekar skítugt svo
ég slepp með að láta eitt Andrés
í staðinn. Þá fréttist af ein-
hverjum óðum Tarzanblaða-
safnara sem mun standa úti-
fyrir Austurbæjarbíó og láta þar
tvö Súpermann í skiptum fyrir
eitt Tarzan. Við hlaupum af
stað. Litla stúlkan segir: Ef þið
farið með mig að sjá Roy einu
sinni enn þá kveiki ég í bíóinu.
Við lítum hver á annan félag-
arnir og glottum hneykslaðir.
Hún hefur ekki annað upp úr
þessu uppsteiti en að vera
skikkuð til að kaupa handa
okkur gotterí fyrir tíkallinn
sinn og sitja svo á milli sæ-
tanna og sjá ekki neitt.
Þegar við erum á útleið
spyrst hræðileg og fáránleg
frétt um anddyrið; löggan er
fyrir utan og hirðir hasarblöð,
það er sagt þau séu útötuð i
sýklum, þetta er skipun frá ein-
hveiju skelfilegu yfirvaldi sem
löggan kallar landlækni . . .
Þegar löggan hirti af okkur
hasarblöðin hafði hún enda-
skipti á heiminum. Við tókum
hamskiptum og allt í einu kom
skeggló á vangann. Við byrjuð-
um að hanga inn á Austurbar
og tala dimmraddaðir við stelp-
ur og allt í einu vorum við
komnir með íbúð, tilbúna undir
tréverk.
Svo tókum við krakkana
okkar með á þrjúbíó, við skög-
uðum upp úr hér og hvar í saln-
um, hamingjusömustu guttarn-
ir á svæðinu.
En hasarblöðin komu aldrei
aftur. Þess vegna vil ég nú
mælast til þess að landlæknir
geri hreint fyrir sínum dyrum
og hafi um það forgöngu að nýr
stöpull verði steyptur framan
við stjórnarráðið. Síðan má það
opinbera embætti efna til sam-
keppni um bestu höggmyndina
af hasarblaðastráknum og láta
steypa hana í eir. Mín tillaga
er sú að hann standi útskeifur
með aðra hönd á lofti og stabba
af Dell-blöðum í fanginu. Ef
þeim sem stjórnarráðinu
stjórnar þykir ekki styttu á
bætandi þarna fyrir framan, þá
legg ég til að snör umskipti
verði höfð og Hannes Hafstein
verði slakað niður af stöpli
sínum. Reikninginn má síðan
senda embætti landlæknis, það
er kominn tími til að þeir borgi
fyrir þau hortugheit, að láta
hirða hasarblöðin forðum.