Morgunblaðið - 22.04.1990, Blaðsíða 19
C 11
FÖLR
í fjölmiðlum
JÓN ÓSKAR
■ GENGIÐ HEFUR verið frá
ráðningu þriggja sumarafleysinga-
manna á fréttastofu Ríkissjón-
varpsins. Þar ræðir um þá Jón
Óskar Sólnes, sem flyst úr íþrótta-
fréttum yfir í
erlendar frétt-
ir, Arna
Magnússon
(Bjarnfreðs-
sonar), sem
kemur á inn-
lendar fréttir
af Rás 2
Ríkisútvarps-
ins, og Jón Ól-
afsson, sem
verið hefur
fréttaritari •
stofunnar í
Moskvu í vetur,
en hann mun
sinna erlendum
fréttum líkt og
síðasta sumar.
Að sögn Boga
Agústssonar,
fréttarstjóra,
sóttu ríflega
fimmtíu manns
um sumaraf-
leysingastöður
á fréttastof- JÓN
ARNI
unni og voru
allir umsækjendur prófaðir. Kvað
Bogi flesta umsækjendanna vera
„af háu kalíberi", en því miður hefði
flesta þeirra skort reynslu og Ríkis-
sjónvarpið hefði ekki tíma eða fé
til þess að þjálfa nýtt fólk.
Bogi sagði hins vegar að öruggt
mætti telja að fleiri yrðu ráðnir
þegar nær drægi sumri, en slíkt
færi eftir því hvernig sumarleyfi
fréttamanna dreifðust. Alls þarf að
ráða í tæp tvö mannár í sumar, en
það dregur þó úr neyðinni að þing-
fréttamaður kemur í almennar
fréttir yfir sumarið.
Á fundi útvarpsráðs fyrir
skömmu iagði Bogi ennfremur til
að Unnur Ulfarsdóttir yrði ráðin
til tveggja ára í stað Jóns Valfells,
sem heldur um tveggja ára skeið
til EFTA. Unnur var upphaflega
ráðin til þess að leysa af Katrínu
Pálsdóttur, sem fór í barneignafrí.
■ DAGSKRÁ útvarpsstöðvarinn-
ar Bylgjunnar á eftir taka töluverð-
um breytingum næstu vikur og mán-
uði. Pétur Steinn Guðmundsson
hefur verið ráðinn yfirmaður sér-
stakrar tal-
málsdeildar,
sem fréttadeild-
in heyrir nú
undir. Ætlunin
er að auka vægi
talmáls í dag-
skránni og jafn-
framt breyta
áherslum í
fréttum og
fréttatengdu efni. Jón Asgeirsson,
sem verið hefur fréttastjóri í eitt ár,
hefur hætt störfum sem slíkur en
sinnir áfram sérstökum verkefnum.
Hann mun m.a. hafa umsjón með
fréttatengdu efni vegna sveitar-
stjórnakosninganna.
„Dagskrá Bylgjunnar hlýtur að taka
breytingum eins og annað í þjóðfé-
laginu. Við erum fjölmiðill sem reyn-
ir að fylgjast með, vera með puttann
á púlsinum," sagði Pétur Steinn í
samtali við Morgunblaðið.
Fréttir Bylgjunnar verða á klukku-
tíma fresti. Þær hefjast klukkan 7.00
á morgnana, á undan morgunþættin-
um sem verður með fréttatengdu
ívafi, og halda áfram til klukkan
17.00 þegar þátturinn Reykjavík
síðdegis hefst. Sá þáttur verður mjög
blandaður fréttaefni, en hann er í
umsjá Sigursteins Mássonar. Hvað
varðar áherslubreytingar í fréttum
sagði Pétur Steinn, að einkum yrði
dregið úr „hörðum fréttum“, svo sem
löngum fréttum af efnahagsástand-
inu. „Það er stundum eins og allir
séu að segja sömu fréttirnar. Okkur
langar að bijótast úr þeim viðjum
með nýjum áherslum," sagði Pétur
Steinn Guðmundsson.
PÉTUR STEINN
MORGUNBLAÐIÐ
FJOLMIÐLAR
SUNNUDAGUR 22. APRIL 1990
Alþýðublaðið
feer nýjan svip
Alþýðublaðið mun taka töluverðum stakkaskiptum í byrjun næsta
mánaðar. Ekki er þó áformað að auka síðuljölda blaðsins. Hann
verður eftir sem áður átta síður og tólf til sextán síður á laugardög-
um. Breytingarnar felast hinsvegar í útliti, áherslum, framsetningu
og fréttaöflun.
Með þessum breytingum viljum
við nýta okkur þessar átta
síður til fulls,“ segir Ingólfur Mar-
geirsson, ritstjóri Alþýðublaðsins.
„Allar fréttir verða miklu styttri
en áður og þar af leiðandi fleiri.
Alþýðublaðið hefur síðustu árin
lítið sinnt erlendum fréttum, en
hefur nýlega komist í samband við
Reuter aftur eftir margra ára hlé.
Við höfum gert tvöfaldan samning
við Reuter, annars vegar um dag-
legar fréttir og í annan stað hefur
verið gerður samningur um svo-
kallaðar grafískar myndir. Um er
að ræða teiknaðar fréttaskýringa-
myndir í fjórlit eða svarthvítu sem
Morgunblaðið hefur reyndar einnig
samið um og verður Evrópufrum-
sýning á þeim um miðjan maí. Þá
ætlar Alþýðublaðið að fara út í
mun meiri lit en áður hefur tíðkast
í blaðinu og allt umbrot verður
tölvuunnið frá og með miðjum
maímánuði," segir Ingólfur.
Alþýðublaðinu er ætlað að verða
alhliða innlent og erlent fréttablað
með fyrirhuguðum breytingum.
Síðumagn er ekki fyrir hendi til
að fara út í almenna þjónustustarf-
semi, svo sem að tíunda vaktir
lækna og apóteka, opnunartíma
safna, sundlauga og svo framveg-
is. „Aftur á móti höfum við tekið
þá ákvörðun að þjóna lesendum í
fréttum, innlendum jafnt sem er-
lendum, og hafa formúluna mjög
samanþjappaða þannig að les-
andinn geti á mjög skömmum tíma
yfir kaffibollanum á morgnana
sett sig inn í fréttadaginn. Hug-
myndin er að gera Alþýðublaðið
að mjög aðgengilegu blaði fyrir
hinn tímabundna íslending," segir
Ingólfur.
Ekki eru fyrirhugaðar neinar
breytingar á mannafla blaðsins.
Auk ritstjóra og fréttastjóra hefur
Alþýðublaðið á sínum snæram
fimm blaðamenn í föstum fréttum
auk .nokkurra lausráðinna dálka-
höfunda. Ingólfur segir að eini
kostnaðaraukinn samfara breyt-
ingunum sé fréttaþjónusta Reuter
sem nú bætist við. Utgjaldaaukinn
sé því mjög lítill miðað við þæP
brejAingar sem fyrirhugaðar eru.
í umferðinni!
Hjá Bifreiðaskoðun íslands leggjum við okk-
ar af mörkum til hreinna umhverfis.
Allar bifreiðar eru nú mengunarmældar við
skoðun, frá og með síðustu áramótum. Það þýðir
að við mælum nákvæmlega magn kolsýrlings í út-
blæstri þeirra. Sé magnið of mikið má oftast ráða
á því bót með einfaldri vélarstillingu.
Með því vinnst tvennt:
• Eldsneytissparnaður um 2% að
meðaltali
• Umhverfismengun minnkar
Stuðlum öll að hreinna lofti - í umferðinni
sem annars staðar!
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.