Morgunblaðið - 22.04.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22,- APRIL 1990
C 3
DAGUR JARDAR 22. APRÍL
ENGIN MiNGUN
er markmið okkar
Dagur jarðar er haldinn til að minna okkur á að hvert og eitt berum við
ábyrgð á móður jörð. Mengun láðs, lagar og lofts, og eyðing náttúru-
gæða, varðar alla því áhrifanna verður vart um allan hnöttinn. Hver ein-
asta manneskja getur haft áhrif til góðs. Fyrirtæki Reykjavíkurborgar
hafa það að markmiði að af starfsemi þeirra sé engin mengun.
HITAVilTA RiYKJAVÍKUR
Hitaveita Reykjavíkur hitar allt höfuðborgarsvæðið frá Kjalarnesi til Hafnarfjarðar.
Ef höfuðborgarsvæðið væri kynt t.d. með olíu færu í það 500 þúsund rúmmetrar á
ári, brennsla í húskötlum mundi skila út í andrúmsioftið 3500 tonnum af brenni-
stéinsdioxiði, 2300 tonnum af köfnunarefni og 600 tonnum af ösku og sóti. Af starf-
semi Hitaveitunnarer hinsvegar engin mengun.
RAFMAGNSVilTA RiYKIAVÍKUR
Orka frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur útrýmdi á sínum tíma notkun kola, olíu og
gastækja á heimilum borgarinnar. Rafmagnsorkan er ósýnileg, hljóðlaus og lyktar-
laus. Rafmagnsveitan hefur alla tíð kappkostað að fella gerð mannvirkja sinna sem
best að umhverfinu og halda því grónu og í góðri unthirðu.
VATNSVilTA RiYKIAVÍKUR
Vatnsveitan sér nú um 120 þúsund íbúum á höfuðborgarsvæðinu fyrir hreinu og góðu
neysluvatni, sem tekið er úr neðanjarðarbrunnum í Heiðmörk. Forsenda þess að
mögulegt sé að tryggja gæði vatnsins um alla framtíð er að komið sé í veg fyrir meng-
un grunnvatnsins á vinnslusvæðunum í Heiðmörk. Vatnsveitan hefur lagt á það
áherslu að virkjunarmannvirkin væru að mestu leiti neðanjarðar, þannig að sem
minnst umhverfisröskun eigi sér stað í Heiðmörkinni.
GARÐYRKJUDIILD REYKIAVÍKURB0RGAR
Garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar og Skógræktarfélag Reykjavíkur vinna saman
að því að klæða borgarlandið skógi og skapa sem víðast skjólsælt umhverfi til leikja
og útiveru. Á vegum þessara aðila er um hálfri milljón trjáa plantað árlega af æsku
borgarinnar.
GATNAMÁLASTIÓRINN f REYKJAVfK
Á vegum Gatnamálastjórans í Reykjavík er unnið að því að hreinsa fjörur borgar-
innar með það að markmiði að þær verði mengunarlausar af völdum skólps. Öflugur
búnaður hefur nú þegar verið settur upp að norðanverðu, við Skúlagötu og Sætún og
samsvarandi aðgerðir við Ægissíðu að sunnan eru hafnar.
REYKIAVfKURHÖFN
Um Reykjavíkurhöfn er mikil umferð og þar eru lestuð og losuð úrgangsefni jafnt
sem viðkvæm matvara. Reykjavíkurhöfn rekur umfangsmikla hreinsiþjónustu og
mengunarvarnastarfsemi á eigin vegum og í samstarfi við notendur á hafnarsvæðinu.
Markmiðið er: Engin mengun.
SORPIYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
Gríðarleg breyting er að verða á sorpeyðingarmálum höfuðborgarsvæðisins. Nú þeg-
ar hafa tekið til starfa móttökustöðvar fyrir einnota drykkjarílát, notaðar rafhlöður
og fyrir umhverfismengandi úrgang. Á næsta ári tekur svo til starfa móttöku- og
flokkunarstöð fyrir almennt sorp og þá verður urðun óflokkaðs sorps hætt og tekin
upp önnur vinnubrögð - meðal annars endurvinnsla í stórum stíl.