Morgunblaðið - 22.04.1990, Síða 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ
MANNLIFSSTRAUMAR
SUNNUDAGUR 22. APRIL 1990
Stór — í kvik-
myndinni „Big“
fór Tom Hanks
með hlutverk
bams í fullorðn-
um líkama.
SÁLARFRÆDI/Er bemska í hugsun
merki um vanþroska?
Að vera fullorðinn
MARGIR, jafnvel þeir sem eiga mörg ár að baki, velta því stundum
fyrir sér hvort þeir séu í raun orðnir fullorðnir. Þeir telja sig reka sig á
of margt í fari sínu sem bendir til hins gagnstæða: barnsleg viðbrögð,
draumóra, órökrænar skyndiákvarðanir, skoðanaleysi, tilfinningasveifl-
ur, vangaveltur um sjálfan sig og sér í lagi ónotalega tilfínningu um
að vita ekki almennilega hver maður er.
Hvað er þá að vera fullorðinn?
Naumast er hægt að meta það
út frá öðru en einhvers konar ytri
kennimerkjum. Venjulegast er að
miða við að fullorðinn sé sá sem tek-
ið hefur líf sitt í
sínar eigin hendur,
ef svo má segja.
Hann sér fyrir
lífsviðurværi sínu,
tekur ákvarðanir
um líf sitt, persónu-
leg málefni, í smáu
eftir Sigurjón sem stóru, en lætur
Björnsson ekki stjórnast af
öðrum. Og hann er ábyrgur gerða
sinna. Mismunandi er hversu langan
tíma það tekur fólk að ná þessu
marki. Sumir eru orðnir fullorðnir í
þessum skilningi um tvítugsaldur,
aðrir ekki fyrr en áratug síðar. Þarf
ekkert að vera athugavert, við það.
Aðstæður ráða þar nokkru. Sömu-
leiðis má ekki taka þessa skýrgrein-
ingu mjög bókstaflega.
Margif sem fullnægja öllum þess-
um skilyrðum efast engu að síður
um að þeir séu orðnir fullorðnir. Það
byggist þá á þeirri huglægu tilfinn-
ingu sem nefnd var fremst í þessum
pistli. Að öðrum þræði kann sú til-
finning að vera raunhæf, þ.e. við-
komandi gerir sér grein fyrir því að
hann á ólokið ýmsum verkefnum sem
að jafnaði tilheyra síðasta hluta ungl-
ingsáranna, svo sem það að móta
og festa sjálfsímynd sína betur, inn-
limast til fullnustu í samfélag fullorð-
inna og taka afstöðu til margvíslegra
málefna í stað þess að láta sér nægja
að vera áhorfandi. Að hinu leytinu
getur þetta svo byggst á því að við-
komandi leggur óþarflega þröngan
skilning í það að vera fullorðinn.
Viss bemska í hugsun og háttum
þarf síður en svo að vera merki Um
vanþroska. Öllu fremur gefur hún
lífi manns meiri lit og gerir það fersk-
ara og blæbrigðaríkara. Leikur hug-
arflugsins og spurn unglingsáranna
er fremur kostur en löstur á hveijum
fullorðnum manni. Og þess skyldi
minnst að það er engin stöðluð form-
úla til fyrir því hvemig fullorðið fólk
eigi að vera. Þeir sem búa sér til
slíka formúlu — og þeir eru nokkrir
— og fara eftir henni, eiga á hættu
að staðna fyrir tímann. Alitamál er
vissulega hvort æskilegra er að verða
seint fullorðinn eða gamall snemma.
TÆKNI/Verba geimflutningar ódýrari
meö einfaldri rafbyssu?
Hugmynd Jules
Veme endurvakin
OFT KEMUR í ljós að gamla einfalda eðlisfræðin, sú sem var ein
til fram til aldamóta, kemur að notum í æ víðara samhengi. Nú
hefur verið þróuð rafbyssa, sem virðist geta dugað til flutninga
út fyrir gufúhvolfið. Segja má að nokkru leyti að endurvakin sé
hin gamla hugmynd Jules Verne úr sögunni Ferðin til tunglsins
frá því á síðustu öld. Þar lét Verne skjóta tunglfaranum úr byssu-
hlaupi, og notaði púður. í rafbyssu nútímans er notuð sígild eðlis-
fræði, sem í raun var að verða til á þeim tíma er sagan var rituð.
Aðeins vantaði menn hugkvæmnina. Hún dugar þó til að koma
hlutum út fyrir gufuhvolfíð. Hugmynd Verne um venjulega fall-
byssu var vitaskuld óraunhæf. Þannig er rafmagnið yfirsterkara
púðrinu.
Hugmyndin er orðin til einkum
fyrir tilverknað manns að
nafni Henry Kolm. Arftakar "hans
við Texas-háskóla eru að vinna að
rafbyssu sem á að geta skotið hlut-
um á loft með
35.000 km byij-
unarhraða á klst.
Nú þegar hefur
verið hægt að
skjóta hlutum af
stað með hraðan-
eftir Egil um 16.000
Egilsson km/klst.
Hugmyndin er
svo einföld að menn verða gáttaðir
á að hún hafi ekki verið notuð
fyrr. Straumgjafinn er ekki annað
en málmhjól sem snýst mjög hratt
í segulsviði frá sterkum seglum.
Við það ýtast t.d. jákvæðar hleðsl-
ur út að rönd hjólsins, en hleðslur
af gagnstæðu formerki safnast í
miðju. Þegar hjólið hefur náð full-
um hraða, er hleðslunum safnað
af hjólinu með því að færa stál-
bursta upp að því. Á örskammri
stundu nást þær af og gefa straum
upp á tvær milljónir ampera, sem
er tvítugfaldur straumurinn sem
álver ÍSALs notar. Aflið sem
straumgjafinn gefur frá sér á því
augabragði nemur hálfu afli Sig-
ölduvirkjunar.
Þessi straumur er leiddur eftir
spólu meðfram tvöföldu teinakerfi,
þar sem hvílir sá hlutur sem á að
skjóta. Straumurinn fer inn í tein-
ana af spólunni, þvert milli þeirra
eftir hlutnum, og til baka eftir
sams konar spólu og áður. Saman
mynda spólurnar tvær sterkt seg-
ulsvið. Þverstraumurinn í gegnum
hlutinn og þar með hluturinn sjálf-
ur verður fyrir sterkum segul
krafti, sem veldur hröðuninni.
Hröðunin er vitaskuld margföld
á við það sem lífverur þola, svo
að fyrst og fremst er hér um að
ræða aðferð til flutninga dauðs
efnis út í geiminn. Annar vandi
sem upp kemur felst í að hluturinn
sem skotið er hitnar vegna núnings
við andrúmsloftið. Þetta má losna
við með tvennu móti: í fyrsta lagi
með því að skjóta af háum fjöllum,
en þá losnar hluturinn við að ryðja
sér braut um hátt í helming loft-
hjúpsins, en í öðru lagi meá' því
að gera „framhlið" hans úr hita-
þolnum efnum eða að kæla hlutinn
fyrir skotið. Náist hraði upp á
35.000 km/klst. er hluturinn ekki
nema örstutta stund upp gegnum
lofthjúpinn, og vandinn er yfirstíg-
anlegur tæknilega.
Þó svo að lífverur þoli ekki þá
hröðun sem fylgir þessu (þær
myndu hvíla á undirlagi sínu með
þúsundföldum þunga sínum) er
auðvelt að gera flest það annað
sem senda þarf, t.d. til byggingar
geimstöðva, þannig úr garði að það
þoli hröðunina. Umfram allt er
aðferðin svo einföld að það eitt
gerir það ódýrara að koma öllu
dauðu efni út fyrir gufuhvolfið en
hægt hefur verið til þessa með eld-
flaugum.
Rafbyssan—
Hluturinn rennur
eftirteinum.
Straumurinn eftir
spólunum veldur
segulkrafti út.
MYNDAMÓT
ÍSAL OG UMHVERFIÐ
Framkvæmdastjórn ÍSAL leggur á þaö áherslu, að umhverfismál njóti að minnsta
kosti sama forgangs og önnur markmið fyrirtækisins. íþví skyni höfum við mótað
víðtæka stefnu í umhverfismálum. Helstu markmið eru:
□ Minnkun útsleppis með þvi að setja upp
nýjan þekjubúnað í kerskálum. Fjárfesting í
þessum búnaði verður yjir 1000 milljónir
króna á árunum 1989-1992. Um 20% þessa
verkefnis er nú þegar lokið.
□ Ný skolplögn út fyrir hafnargarðinn í
Straumsvík. Kostnaður við verkið er 20 millj-
ónir króna. Verkinu lýkur í sumar og frá
þeim tíma verður engu skolpi veitt í
Straumsvíkurhöfn.
□ Nýjar leiöir í endurvinnslu úrgangs-
ej'na.
□ Samvinna við Líffrœðistofnun Ilá-
skóla Islands og Náttúrufrœðistofnun
íslands og stuðningur við verkefni,
sem eru mikilvœg fyrir náttúruvernd
í landinu.
□ AÖ ejla umhverjisvitund á öllum svið-
um.
£
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
YY
innréttingar.
Dugguvogi 23, sími 35609,
gæðanna vegna
Framleióum eldhúsinnréttmgar,
fataskápa, baöinnréttingar
og solbekki.
Leítíð tilboða.
Eigum baðinnréttingar á lager.