Morgunblaðið - 22.04.1990, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 22.04.1990, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 22. APRÍL 1990 C 2£ Þingholtin: Hmidaskít- ur um all- arjarðir Klæðningin og einangrunin er horfin af öðrum geyminum og Grétar Sveinsson og menn hans eru að Ijúka ferð sinni umhverfis hinntankinn vopnaðir hleðsluborvélum og kúbeinum. Hitaveitugeyml- arnir tveir hafa staðið í Öskjuhlíðinni í rúm 20áren nú er hlutverki þeirra lokið. Það er mikið verk að rífa klæðning'una utan af hitaveitugeymunum í Oskjuhlíðinni. er áætlaður rúmar 52 milljónir króna. Verkið hófst í marsmánuði og er eilítið á eftir áætlun. „Það er búin að vera bölvuð ótíð. Það er varla hægt að vinna þetta verk nema í sæmilegu veðri en það má segja að við höfum aðeins getað unnið annan hvorn dag,“ segir Grétar og hefur greinilega lög að mæla. Alltjent virðist það aðeins á færi ofurhuga að vera uppi í vinnupallinum taki vindar að blása og vistin hlýtur að vera óskemmti- leg í ofanbyl eða rigningu. Þetta er mikið verk og seinlegt. Geymarnir eru um tólf metrar á hæð og ummál þeirra á að giska eitt hundrað metrar. Losa þarf ógrynni bolta sem héldu klæðning- unni á sínum stað og síðan þarf að fjarlægja einangrunina. Helstu verkfærin eru hleðsluborvélar og kúbein. „Já, við erum stöðugt með borvélamar í bakkgírnum,“ segir Björgvin Sigurðsson. Grétar segir það rétt vera að þetta sé mikið verk og bætir við að erfiðast hafi verið að rífa ofan af geymunum einkum pappann sem lagður var á fyrir nokkrum árum er endur- bætur voru gerðar á þeim eftir að hluti klæðningarinnar hafði fokið af í miklu illviðri. Vinnu Grétars og félaga við hinn geyminn er lokið. Klæðningin og einangrunin er horfin og menn vinna kappsamlega að því að brenna sundur stálið. Neistaflug berst út um mjóa rifu sem hægt og sígandi er að myndast um geyminn miðjan en burðarásinn í miðjunni, sem sperrurnar í þakinu hvildu á, stendur enn uppi. Það hillir undir verklok hjá vinnuflokknum og ekki verður betur séð en það sé rífandi gangur í niðurrifinu. Félagar Gunnars Jós- epssonar fylgjast með því er hann færir ökutækið rustalega úr stað og það stefnir óðum í það að hring- ferð Grétars og undirsáta hans umhverfis hitaveitugeyminn Ijúki. Reynist veðurguðirnir þeim piltun- um hliðhollir heyrir klæðningin sögunni til á morgun, mánudag, Geymarnir sjálfir verða horfnir úr Öskjuhlíðinni í júnímánuði, stand- ist áætlanir en stefnt er að því að fyrri geymirinn á Reynisvatns- heiðinni verði kominn í notkun í lok ágúst. að skyldi engan undra þótt maður velti því fyrir sér hvað um er að vera í heilabúum ein- hverra hundaeigenda í Þingholtun- um. Við garðhreinsun hjá mér í síðustu viku voru nærri tuttugu sátur af hundaskít hreinsaðar upp og er ljóst að einhver eða einhverj- ir sem eru að viðra hunda sína beinlínis sleppa dýrunum inn í garðinn sem er að mestu afgirtur, en opinn inn af bílainnkeyrslu. Þá er hundaskítur um állar gangstétt- ar, síðustu daga hefur maður gengið fram á þessar ógeðslegu klessur á Bergstaðastræti, Laufás- vegi, Grundarstíg og í Þingholts- stræti. Einn lorturinn var útflattur og mátti þar merkja far eftir strig- askó barns. Já, ljót er nú þessi saga og hundaeigendum til van- sæmdar. Trúlegt er, að eins og oft áður þá er það lítill hópur sem svertir allann þorrann. Ég hef haft sam- band við lögregluna og hundaeftir- litið vegna þessa og sagt er á þeim bæjum að erfitt sé um vik nema að standa hund og eiganda að at- hæfinu. Það hefur ekki tekist enn, en hinir seku mega vita það að eftirlit er hafið og mál til komið að taka sér tak. Um kemst um síðir og er það ferfætlingurinn sem þá fær að líða fyrir slóðaskap eig- anda síns. Tekið skal fram, að undirritaðutr er mikill hundavinur og mér finnst það út í hött að halda hund í svo þröngu umhverfi sem miðbærinn er. Þykir mér að lágmark sé að hundeigandi hafi stóra lóð og auðveldan aðgang að opnum svæðum þar sem hundar eru ekki bannaðir. Helst ætti þó hvergi að halda hunda nema í sveit því þar líður þeim virkilega vel. Og úr því að ég er kominn á skrið á annað borð þá finnst mér það út í hött að kettir gangi lausir margf- alt liðfleiri en hundar á sama tíma og hundar skuli tjóðraðir. Ekki gera kettir minni usla, þvert á móti, mígandi og skítandi í sand- kassa barna og blómabeð, drep- andi smáfugla, þvagmerkjandi barnavagna og spillandi friði með ömurlegu spangóli. Svo ekki sé minnst á slysahættuna er þessi dýr eru að skjótast yfir götur. G. Flugleiðir — skaðsemi einokunar Til Velvakanda. Ég leita til skrifstofu Flugleiða með sams konar kvíðatilfínningu og fólk finnur fyrir þegar það heimsæk- ir tannlækninn sinn. Ég, eins og þetta fólk, er hræddur við sársauka — sársauka af fjárhagslegum toga. Það má færa rök fyrir því að fjár- hagslegur sársauki sé algengur kvilli á Islandi; að maður sé raunar aldrei alveg einkennalaus. Stórmarkaðir, bakarí, bókaverslanir — allt getur þetta valdið sársauka. Að sjálfsögðu er hægt að réttlæta hátt verð í sumum tilvikum. Enginn býst við því að bananar kosti það sama á 64. breiddargráðu og á Jama- ica. Það er einnig eðlilegt, býst ég við, að í landi, þar sem fáir einstakl- ingar og fyrirtæki bera skattbyrðina, séu hlutir eins og tóbak og áfengi i háaum skattflokki og þ.a.l. dýrir. Sama trúi ég ekki að það sé nokkuð til sem réttlætir uppsprengt verð og ótrúlegar hækkanir á flugfarseðlum. Fyrir einungis fjórum mánuðum, í byijun desember, keypti ég Apex- miða KEF-NY-KEF fyrir u.þ.b. 38.000 kr. Það er í sjálfu sér ekki ódýrt, þar sem sami miði í gagn- .IJÍH3 ftll f)9Cll í-,íU',Ú -út/í BDÍám stæða átt (NY-KEF-NY) er a.m.k. 8.000 kr. ódýrari. Samt er ekki ósanngjarnt að greiða þetta verð ef tekið er mið af því ástandi sem ríkir í efnahagsmálum hér á landi. Svo ég komi mér að efninu: Hversu langt getur einokunaraðili eins og Flugleið- ir gengið í að sprengja upp verð? Hversu hátt verð er nógu hátt? Þeg- ar þetta er skrifað kostar Apex-miði til New York og til baka 60.000 kr. Þetta er greitt fyrir flugfar til New York utan háannatíma (í apríl) og til baka á háannatíma (í júlí). Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að allar venjulegar Apex-reglur eru í fullu gildi, þrátt fyrir þetta; ekki lengri tími en þrír mánuðir, verður að ferðast á fyrirfram ákveðnum dögum, takmarkaðar endurgreiðslur. Getur nokkuð fyrirtæki réttlætt næstum 60% hækkun á fjórum mán- uðum þegar verðbólga er sögð vera 18% á ársgrundvelli? Svarið er nei. Hvað varðar flugleiðina til New York, sýna Flugleiðir ófrýnilegustu hlið kapítalismans: Einokun. Það þjónar markaði sem er í böndum. Ef ég óska eftir að ferðast frá Chicago til Boston, eða frá París til Frankfurt, eða frá Tókýó til Osaka, get ég valið til þess margar leiðir: það eru lestarferðir, rútuferðir og fjöldi flugfélaga sem hægt er að velja um. Flugfélögin — a.m.k. á stærstu mörkuðunum — þurfa að keppa um viðskipti. Ef ég kemst að því að ekki er mikill munur á verði hjá þeim get ég samt valið með hlið- sjón af þægindum, þjónustu eða stundvísi. Hér hef ég aðeins tvo kosti: að fljúga með Flugleiðum eða vera bara heima. Það er sama þó ég mótmæli þar til ég er bólginn og blár: ef ég snara ekki fram 60.000 kr. verð ég að eyða sumrinu hér á íslandi. ísland er vissulega góður staður til að eyða sumrinu — en ekki ef þú ert neyddur til þess vegna viðskiptahátta flugfé- lags þjóðarinnar. Kannski ættum við öll að eyða sumrunum okkar (og vetrunum) hér á landi og láta þá fljúga nýju skínandi þotunum sínum tómum í nokkra mánuði. Verðið myndi lækka með meiri drunum en hlutust af jarð- skjálftanum sem nýlega reið yfir landið. George Grosman Gömlu, góðu dagamir Við dönsum í Glymi í kvöld frá kl. 21.00-23.30. ÍU manna danshljómssveit Karls Jónatanssonar og Neistar leika. Söngkona Mjöll Hólm. Kaffihúsastemmning áranna 1940-1960. Dansfólk; nú er tœkifœrið. Mœtið snemma eins og íþd gömlu, góðu daga. KAFFIHLAÐBORÐ í DAG FRÁ KL. 15.00 eftir Willy Russell Þýðandi: Þrándur Thoroddsen. Leikstjóri: Hanna María Karlsdóttir. Leikmynd: Steinþór Sigurðsson. Lýsing: Ögmundur Þór Jóhannesson. FRUMSÝNiNG: Fimmtud. 26. apríi kl. 20.00. 2. sýning: Föstudag 27. apríl kl. 20.00. 3. sýning: Laugardag 28. apríl kl. 20.00. 4. sýning: Sunnudag 29. apríl kl. 20.00. Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14-20 auk þess miðapantanir í síma 680680 alla virka daga frá kl. 10-12 og mánudaga frá kl. 13-17. Greiðslukortaþjónusta. reykiavÍkljr •pi BORGARLEIKHÚSIfl Metsölublodá hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.