Morgunblaðið - 22.04.1990, Síða 31

Morgunblaðið - 22.04.1990, Síða 31
MORGÖNBLAЮ SAMSAWVHÐ^lMUR ,22. AP-RÍL 1990 € 31 Við opnun sýningarinnar, frá vinstri: Viihjálmur Þ. Gíslason formaður sýning- arnefndar, frú Vala Thor- oddsen, Gunnar Thorodds- en borgarstjóri og forseti íslands, herra Sveinn Björnsson. Þrjár tískusýning- arstúlkur standa við fyrsta umferð- arljósið í Reykjavík. SlMTALID... ER VIÐ GUÐMUND HAFSTEINSSON, VEÐURFRÆÐING Skulum vona að það sumrí bráðum 600600 Veðurstofa íslands, góðan dag. — Góðan dag, þetta er á Morgun- blaðinu. Hver gæti upplýst mig um þessa nýju símþjónustu ykkar? Ég gef þér samband við Guð- mund Hafsteinsson, augnablik. Guðmundur. — Góðan dag, Andrés heiti ég Magnússon, blaðamaður á Morg- unblaðinu. Hvers vegna voruð þið að skipta um símsvaranúmer? Við vorum nú að skipta um fleira en númer, því þjónustan er miklu fjölbreytilegri en áður. í gamla símanaum var aðeins lýst veðurhorfum á höfuðborgarsvæð- inu. Núna sinnum við hins vegar öllum landsmönnum með tölvuv- æddri talvél. Ef við hefðum reynt að gera það með gamla símsvaran- um er ég hrædddur um að mörgum hefði þótt lesturinn langur. — Og hvað hefur þá breyst? í fyrsta lagi númerið eins og þú nefndir. Nýja númerið, 990600, er í stafræna símkerfinu, en núm- er, sem byrja á 99 hafa þann eigin- leika að sama er hvaðan af landinu hringt er í þau, gjaldið er alltaf það sama. Auk þess geta þeir, sem hringja í þetta númer geta valið um fimm upplýs- ingaflokka. — Hvaða flokkar eru þetta? Flokkarnir eru valdir með því að þrýsta á tölurnar 1, 2, 3, 4 og 5 eft- ir að sambandi er náð. 1. flokkur eru almennar upplýs- ingar um veður og veðurhorfur á landinu í heild. 2. flokkur gefur fulla veðurspá eins og hún er lesin upp í útvarpi. Þetta er aðallega hugsað fýrir þá, sem beinlínis eru háðir veðrinu, eins og bændur og sjó- menn. Við höfum orðið varir við að menn hafa átt til að missa af spánni eftir tilkomu nýrra útvarps- stöðva, svo þetta er að hluta til svar við því. — Er greitt sama gjald fyrir símtalið þó hringt sé úr farsíma? Jájá, farsíminn er inni í mynd- inni. Hvað um það, 3. flokkur gefur upplýsingar um veður og veðurhorfur í höfuðborginni auk stuttrar veðurlýsingar á landinu í heild, þannig að það er eins og gamli síminn var. 4. flokkur eru veðurfregnir frá um 20 erlendum borgum. Þetta eru höfuðborgir Norðurlandanna og annarra helstu grannlanda okkar vestan hafs og austan. 5. og síðasti flokkurinn er varla fyrir almenning, því í honum eru upplýsingar um flug- skilyrði. Þær eru aðallega hugsað- ar fyrir einkaflugmenn. — Það var og. En svona að lokum, fer veðrið ekki að skána bráðum? Tja, ekki vil ég nú spá afdráttar- •laust um það, en við vitum nú að sól fer hækkandi, svo við skulum vona að það bregð- ist ekki í ár frekar en hingað til að það komi sumar. En ég huga að það eigi eftir að vera um- hleypingasamt á næstu vikum. — Einmitt það. Ég þakka þér kærlega íyrir spjallið. Sömuleiðis, blessaður. Jarð-og skógrækt má vinna í þegnskylduvinnu, í ÞEGNSKYLDUVINNU má vinna að hverju því verkefni, sem til framfara horfir eða almenn- ingsheilla, svo sem hvers konar jarðrækt, vegagerð, skógrækt, sundlauga- og leikvallagerð, skólahúsbyggingum o.fl.“ Ofangreind tilvitnun er í frum- varp sem landbúnaðarnefnd lagði fram á Alþingi á vordögum 1941. Þarstóð ennfremur: „Þegn- skylduvinna nær tii ailra heimilis- fastra vinnufærra karlmanna á aldrinum 16-25 ára, eftir því sem ákveðið er í reglugerd. Enginn er þó þegnskyldur lengur en þijú ár samtals. Þegnskylduvinna má vara allt að hálfum mánuði fyrir hvern einstakling árlega, og eigi lengur samtals en 6 vikur.“ Sígilt málefni Frumvarp landbúnaðarnefndar 1941 hefur heldur horfið í skugg- ann af eldri umræðum um þegn- skylduvinnu á fyrstu ártugum ald- arinnar, þá orti Páll Árdal: Ó, hve margur yrði sæll og elska myndi landið heitt mætti hann vera í mánuð þræll og moka skít fyrir ekki neitt. Margir telja að þessi vísa hafi átt stóran hlut — eða sök — í því að þjóðin felldi þetta rnál í þjóðarat- kvæði. Á fjói'ða áratugnum var þegnskylduvinnan nokkuð til um- ræðu einkum með hliðsjón af lang- varandi atvinnuleysi æskufólks. FRÉTTALJÓS ÚR FORTÍÐ Sæll þræU? Þegnskylduvinna 1941 Hinn 22. apríl 1940 mælti þing- maður Borgfirðinga, Pétur Ottes- en, fyrir þingsályktunartillögu til ríkisstjórnar um samningu frum- varps um þegnskylduvinnu og þjóð- aratkvæðagreiðsíu um málið við næstu alþingiskosningar árið 1941, tillagan var samþykkt. í maí 1940 var Island hemumið og allar aðstæður breyttust veru- lega; atvinnuleysi hvarf og Alþing- iskosningarnar frestuðust um ár. — En það gerði þegnskylduvinnan hins vegar ekki. Hinn 7. maí 1941 mælti Asgeir Ásgeirsson þingmað- ur Vestur-ísafjarðarsýslu fyrir frumvarpi um „Heimild fyrir kaup- staði og hreppsfélög til að koma á þegnskylduvinnu." Frumvarpsdrög í nokkuð annarri mynd höfðu feng- ið jákvæða umsögn búnaðarþings. í meðförum landbúnaðarnefndar Alþingis var gert ráð fyrir að bæj- arstjórnir gætu komið á þegn- skylduvinnu ef Á hlutar bæjarfull- trúa væni því fylgandi en í hrepp- um þyrfti sama meirihluta á al- mennum hreppsfundi. í meðförum þingsins breytust þessi ákvæði á þá leið að samþykki 3A hluta kosn- ingabærra manna þyrfti til. Til at- kvæðagreiðslu skyldi boðað ef 'A hluti kjósenda færi fram á slíkt. Margir fylgismenn þegnskyldunnar töldu líklegt að ungir menn fögn- uðu því að vinna landi og þjóð gagn en þó stendur í 7. gr: „Nú kemur þegnskyldur maður ekki til vinnu eftir fyrirlagi þegnskyldu- vinnunefndar, og sætir hann þá sektum, er nema tvöföldu dagkaupi við sams konar störf fyrir þau dags- verk, er tapast.“ Nokkrar umræður urðu á Al- þingi, málið var ekki flokkspólitískt en e.t.v. má segja að frumvarpið hafi aðallega notið fylgis framsókn- armanna og þingmanna Sjálfstæð- isflokksins af dreifbýlinu. And- stæðingar frumvarpsins bentu á að óánægja gæti hlotist af því ef að í einu sveitarfélagi væru æsku- menn þegnskyldir en ekki í öðru. Einnig töldu nokkrir að þegn- skylduvinnan væri ranglátur skatt- ur sem kæmi fram í töpuðum Þegnskylduvinnu- frumvarpiö rætt í Nd. vinnutekjum eða sektargreiðslum. Ennfremur var haft á orði að frum- varpið væri tilraun til að koma á allsheijar þegnskyldu. — Forsætis- ráðherrann Hermann Jónasson dró heldur ekki dul á þá skoðun að hann teldi að þegnskylduvinnan ætti að vera almenn, þótt hann vænti þess ekki að hún nyti enn sem komið væri meirihlutafylgis í mörgum kaupstöðum. Nútímalausn? Þegnskylduvinnufrumvarpið var samþykkt í efri deild 21. maí og í neðri deild 23 maí sem lög frá Al- þingi. Lögin eru enn í gildi. — E.t.v. er það er til marks um þjóðar- einingu og gæði laganna — og/eða ættjarðarást og þegnskap íslenskra karlmanna að fáir eða enginn hafa andmælt þegnskylduvinnunni í 49 ár. — Aðrir telja að orsökin liggi í því að heimildir laganna virðast ekki hafa verið notaðar. Undanfarin ár hefur verið rætt um þjóðarátak í að yrkja landið og mörg sveitarfélög eru þess fýsandi að bygga íþróttahallir. Lög nr. 63 frá 1941 geta greitt fyrir þessum framfaramálum. Karlmenn á þegn- skyldualdri eru u.þ.b. 22-23 þús- undir. Eflaust er hægt að „byggja og bæta landið" með sex vikna vinnuframlagi þessara þegna. Einnig hlýtur það að vera fjárþurf- andi sveitarfélögum íhugunarefni hvort „skortur á þegnskap" geti orðið álitleg tekjulind.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.