Morgunblaðið - 27.05.1990, Síða 4

Morgunblaðið - 27.05.1990, Síða 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAI 1990 ERLEIMT INNLENT Bandarísk rannsókn: Kosið til sveitar- stjórna á laugardag Kosið var til 149 sveitarstjórna á laugardag, þar af í 30 kaupstöð- um og 119 hreppum. Á kjörskrá voru 180.235 manns, flestir í Reykjavík eða 71.338. Sjö fram- boðslistar komu fram í Reykjavík. í samtölum við kosningastjóra og oddvita listanna kom fram að kosningabaráttan hefði verið í daufara lagi í þetta skiptið. Mæðrum heitið greiðslu fyrir að vera heima Eitt kosningaloforða Sjálf- stæðisflokksins fyrir borgar- stjómarkosningamar í Reykjavík var um að ákveða fyrirkomulag á greiðslu til foreldra sem kjósi að annast börn sín á dagvistunar- aldri heima. Siguijón framleiddi verðlaunamynd Kvikmyndin Wild at Hearts í leikstjóm David Lynch vann Gullpálm- ann á kvik- myndahátíðinni í Cannes. íslend- ingar geta eign- að sér nokkuð í þeirri mynd, því hún er framleidd af fyrirtækinu Propaganda Films sem Sigur- jón Sighvatsson á í Los Angeles. Kók hækkar Vífilfell hf. hækkaði verð á gosdrykkjum um 7% að meðal- tali. Verðlagsstofnun gerði ekki athugasemdir við þessa hækkun, sem forsvarsmenn Vífilfells sögðu m.a. stafa af hækkun á hráefni og ýmsum öðrum kostnaðarhækk- unum sem orðið hefðu frá því verð á gosdrykkjum hækkaði síðast í nóvember. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar brást illa við verð- hækkuninni og sagðist ætla að hvetja almenning til að hætta að kaupa kók. Hæstiréttur ógildir fjárnám Hæstiréttur hefur fellt út gildi fjárnám sem gert var hjá fyrrum stjórnarmanni Kaupfélags Sval- barðseyrar, en stjómarmaðurinn hafði tekist á hendur sjálfskuldar- ábyrgð á tveimur skuldabréfum til kaupfélagsins. Verð á saltfiski hækkar Portúgalar hafa samþykkt að taka á sig 7% toll á íslenskum saltfiski sem tók gildi í apríl. Eftir- spurn eftir saltfiski er nú mikil og fyrirsjáanlegt að næstu mán- uði verði hún meiri en Sölusam- band íslenskra fiskframleið- enda geti annað. 102 kílóa lúða áfæri Kristmundur Halldórsson skipstjóri í Ólafsvík veiddi 102 kílóa lúðu á handfæri í vikunni. Kristmundur, sem er kominn yfír sextugt, var í hálftíma að inn- byrða stórfískinn. ERLENT Fjölda- morð vekja heift Araba Hörð átök brutust út á Gaza- svæðinu, Vesturbakka Jórdanar og í ýmsum borgum ísraels á mánudag eftir að fjórtán Pa- lestínumenn höfðu verið drepnir á sunnudag. Sjö þeirra myrti ísra- eli, sem talinn er geðveikur, í bænum Rishon le Zion skammt frá Tel Aviv. Kröfur um hefnd heyrðust víða í nágrannaríkjum ísraels. Bandaríkjastjórn og al- þjóðanefnd Rauða krossins í Sviss fordæmdu morðin. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna korri saman á þriðjudag til að ræða ástandið á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu. Sakaðir um gróf kosningasvik Endurreisnar- ráðinu í Rúm- eníu og lon IIi- escu, forseta- frambjóðanda þess, sem unnu stórsigur í fyrstu fijálsu kosning- unum í landinu í rúm 50 ár, hefur verið borið á brýn að hafa staðið á bak við stór- felld kosningasvik. Ráðamenn fullyrtu á hinn bóginn að kosning- amar hefðu verið lýðræðislegar og hétu þjóðinni framfömm og frelsi. Engin ógn að austan Vigleik Eide hershó'fðingi, for- maður hermálanefndar Atlants- hafsbandalagsins, NATO, sagði á blaðamannafundi í Bmssel á þriðjudag að Vestur-Evrópu stæði ekki lengur ógn af Varsjárbanda- laginu, en þó væri ljóst að sovéski herinn yrði um langa hríð mjög öflugur þrátt fyrir einhliða niður- skurð Sovétríkjanna á vígbúnaði sínum. Á fundi hermálanefndar NATO sem lauk á þriðjudag var samþykkt að mæla með því við varnarmálaráðherra bandalagsins að hemaðaráætlanir þess yrðu endurskoðaðar í ljósi breyttra að- stæðna í Evrópu. Bauð Litháum málamiðlun á þremur árum Míkhaíl S. Gorbatsjov, for- seti Sovétríkj- anna, lýsti yfir því í Moskvu á föstudag að Lit- háen gæti öðlast fullt sjálfstæði á tveimur til þrem- ur áram ef það gengi að þeim kröfum Sovét- stjómarinnar að fresta gildistöku sjálfstæðisyfirlýsingar sinnar. Ge- orge Bush Bandaríkjaforseti sagði í Washington sama dag að ólík- legt væri að unnt reyndist að sætta ólíkar skoðanir risaveld- anna á Litháenmálinu og samein- ingu Þýskalands á leiðtogafundin- um sem haldinn verður í Washing- ton nú í vikunni. Reiðmennska hættu- legri en vélhjólaakstur Atlanta. Reuter. REIÐMÖNNUM, einkum þeim sem ungir eru að aldri, er hættara við að slasast alvarlega en vélhjóla- eða kappakstursmönnum, að því er fram kemur í rannsóknarskýrslu sem bandaríska heilbrigði- seftirlitsstofnunin CDC sendi frá sér á fimmtudag. Stofiiunin mælir með að allir reiðmenn noti öryggishjálma til að verjast heilahristingi og höfuðmeiðslum. Niðurstöður okkar benda til að hjálmamir bæði dragi úr al varlegum slysum á hjólreiða- og vélhjólamönnum og fækki slysum á þeim einnig,“ segir dr. David Nelson, sem stjórnaði rannsókn- inni, „og við teljum ríka ástæðu til að ætla að það mundi einnig gerast hjá reiðmönnum." í skýrslunni kemur fram að á áranum 1987 og 88 var komið með nærri 93.000 manns á slysa- varðstofur í Bandaríkjunum vegna meiðsla sem hlotist höfðu í reið- mennsku. Mesta slysatíðnin var hjá aldursflokknum 5-24 ára. Um 60% hinna slösuðu í þeim hópi vora stúlkur. í skýrslunni kemur enn fremur fram að enskir vísindamenn hafa komist að raun um að gera megi ráð fyrir einu slysi að meðaltali á hveijar 350 klukkustundir reið- mennsku. Sambærileg tala fyrir vélhjólaakstur er eitt slys á hveij- ar 7.000 klukkustundir. Ekki var greint frá tölum varð- andi slysatíðni í kappakstri, en í skýrslunni sagði að slysatíðni hjá reiðmönnum væri meiri en hjá kappakstursmönnum. Vestur-þýskir jafíiaðarmenn og samningur þýsku ríkjanna: Áhættusöm leikflétta hjá Oskar Lafontaine Oskar Lafontaine (t.v.) og Hans-Jochen Vogel, tveir helstu forystu- menn jafnaðarmanna i Vestur-Þýskalandi. Lafontaine vill ekki samþykkja samning þýssku ríkjanna um efiiahagssamruna óbreyttan. „ÞAÐ fer ekki á milli mála að við viljum halda i kanslaraefnið okkar,“ voru viðbrögð eins for- ystumanna vestur-þýska Jafii- aðarmannaflokksins (SPD) að loknum miðstjórnarfundi flokksins í upphafi vikunnar. Á fundinum var til umræðu samn- ingurinn um efiiahagssamruna sem ríkisstjórnir beggja þýsku ríkjanna undirrituðu 18. maí sl. Eftir fimm klukkutíma fúndar- höld var ákveðið að samþykkja ekki samninginn í „núverandi mynd“. Þótt kanslaraefiii flokksins, Oskar Lafontaine, sem enn er að jafiia sig eftir banatilræðið sem honum var sýnt fyrr í mánuðinum, hafi ekki verið viðstaddur sveif andi hans yfir vötnunum. Hann hafði látið þau boð út ganga að sam- þykkti flokkurinn samninginn óbreyttan yrði hann að leita sér að nýju kanslaraefiii fyrir kosn- ingarnar í desember nk. Þessi afstaða Lafontaines er mjög umdeild innan flokks hans. Deilurnar um þennan samning eru einungis hluti af þeim mikla vanda sem vestur-þýskir jafnaðarmenn standa nú frammi fyrir er sameining Þýskalands er að verða að veru- leika. SPD hefur á síðustu áratugum ekki lagt mikið kapp á samein- ingu Þýskaland og glímir nú við þann fortíðarvanda. Flokkurinn hafði tekið upp náið samstarf við austur-þýska Komm- únistaflokkinn og vildi jafnvel við- urkenna sjálfstæði Austur-Þýska- lands. Ekki er nema um eitt ár síðan að Willy Brandt, fyrram kanslari, hélt því fram að samein- ing þýsku ríkjanna væri mesta sjálfsblekking (Lebensluge) þýsku þjóðarinnar. Nú hefur hins vegar komið á daginn að engir hafa blekkt sjálfa sig eins herfílega og einmitt talsmenn slíkra sjónar- miða. Brandt hefur skipt um skoð- un og segir nú að það grói saman sem eigi saman. Jafnaðarmenn voru strax eftir byltinguna í A-Þýskalandi tals- menn þess að efnahagssamrani þýsku ríkjanna gengi sem hraðast fyrir sig. Þetta breyttist þó eftir að Oskar Lafontaine hafði gefið kost á sér sem kanslaraefni flokksins. Þá var lögð áhersla á að huga þyrfti vel að hverju skrefí og flýta sér hægt. Sem flokkur í stjórnarandstöðu og með kosningar fram undan verður SPD einhvern veginn að marka sér sérstöðu. Að leggjast gegn sameiningunni kemur auðvitað ekki til greina en í staðinn hefur verið gripið tii þess ráðs, aðal- lega af hálfu Lafontaines, að reyna að vekja upp ótta á meðal vestur-þýskra kjósenda um kostnaðinn vegna sameiningar- innar og þær byrðar sem almenn- ingur myndi hugsanlega þurfa að leggja á sig tímabundið vegna hennar. Var kosningabarátta flokksins í Neðra-Saxlandi og Nordrhein-Westfalen á þeim nót- um. Flokkurinn vann sigur í kosn- ingunum í þessum ríkjum fyrr í mánuðinum enda sýna skoðana- kannanir að Vestur-Þjóðveijar vilja ekki skert lífskjör vegna „bræðra" sinna í austri. Það vinnur enginn stjórnarand- stöðuflokkur sigur í kosningum með því að leggja blessun sína yfír gjörðir ríkisstjórnarinnar. Þess vegna er farið fram á breyt- ingar á samningnum. SPD krefst þess meðal annars að stutt verði efnahagslega við bakið á austur- þýskum fyrirtækjum og að einnig komi til samruni í umhverfismál- um (slíkur umhverfissamrani myndi aftur á móti verða bana- biti óteljandi austur-þýskra fyrir- tækja og því í nokkurri andstöðu við fyrri kröfuna). Ríkisstjórn Kohls ætlar hins vegar ekki að breyta samningnum og gæti því SPD staðið frammi fyrir því að þurfa annað hvort að kyngja samningnum óbreyttum eða að hafna honum. Er flokkur- inn í lykilstöðu til þess eftir að hafa unnið meirihluta í Sam- bandsráðinu, efri deild þýska sam- bandsþingsins, fyrr í mánuðinum. Talsmenn stjórnarinnar leggja áherslu á að það væri mikill ábyrgðarhluti að hafna samningn- um. Það myndi skjóta sameining- unni á frest um óákveðinn tíma. Þá gæti frestun haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér vegna áhrifa á andrúmsloftið í Austur- Þýskalandi. Það gæti þýtt að milljónir Austur-Þjóðveija myndu flytjast vestur og væri þann straum einungis hægt að stöðva með nýjum „múr“. Það eykur líka á vanda SPD að systurflokkur þeirra fyrir austan á aðild að ríkis- stjórninni sem undirritaði samn- inginn og styður hann heilshugar. Það era því miklar líkur á því að SPD muni ekki láta hart mæta hörðu hvað samning þýsku ríkj- anna varðar, hvað svo sem La- fontaine segir. Telja margir for- ystumenn flokksins málið vera alvarlegra en svo að gera eigi það að flokkspólitísku þrætumáli. BAKSVID Steingrímur Sigurgeirsson skrifar frá Trier

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.