Morgunblaðið - 27.05.1990, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1990
Magnús E. Guð-
jónsson fram-
kvæmdasljóri
Fæddur 13. september
Dáinn 17. maí 1990
Starfsemi Sambands ísl. sveitar-
félaga spannar ótrúlega víðfeðmt
svið, en einn mikilsverðasti þáttur-
inn er að efla samstarf ólíkra sveit-
arfélaga og vinna að sameiginleg-
um hagsmunamálum þeirra og þá
fyrst og fremst gagnvart ríkisvald-
inu. Þetta á m.a. við um stefnumót-
um og undirbúning að setningu laga
og reglugerða sem á einhvern hátt
snerta sveitarfélögin og málefni
þeirra. Er þá oft um viðamikla og
mjög þýðingarmikla málaflokka að
ræða, mál sem varða íbúana miklu.
Starf framkvæmdastjóra Sam-
bands ísl. sveitarfélag er um margt
sérstakt og vandasamt og oft mjög
erilsamt. Verksviðið tengist öllum
þáttum sveitarstjórnarmála og
framkvæmdastjórinn þarf að kunna
á þeim góð skil.
Framkvæmdastjóri S.ambandsins
hefur jafnframt haft á hendi fram-
kvæmdastjórn fyrir Lánasjóð sveit-
arfélaga og Bjargráðasjóð, en þess-
ar stofnanir hafa staðið sameigin-
lega að skrifstofuhaldi. Sjóðirnir
báðir hafa töluverð umsvif og um-
sjón með þeim krefst oft mikillar
vinnu.
Samband ísl. sveitarfélaga og
samstarfsaðilar þess hafa notið
starfskrafta Magnúsar E. Guðjóns-
sonar samfellt í rúmlega 23 ár eða
frá 1. febrúar 1967, þegar Magnús
tók við framkvæmdastjórastarfinu,
en áður hafði hann verið bæjar-
t
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
SVERRIR GUÐMUNDSSOIM
frá Hólmavík,
andaðist í sjúkrahúsi Siglufjarðar miðvikudaginn 23. maí.
Hallfríður Njálsdóttir,
börn og tengdabörn.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
HREFNA BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Frostafold 1,
áðurtil heimilis í Skeiðarvogi 147,
sem andaðist 18. maí í Landspítalanum, verður jarðsungin frá
Langholtskirkju miðvikudaginn 30. maí kl. 10.30.
Gísli Ólafsson og börn.
t
Móðir okkar,
HALLDÓRA TORFADÓTTIR,
Skúlagötu 72,
lést í Borgarspítalanum 22. maí.
Hrönn Baldursdóttir,
Sigríður Baldursdóttir.
+
Móðir mín, tengdamóöir og amma,
ANAÍS N. ÁRNADÓTTIR,
Kárastíg 2,
andaðist í Landspítalanum 22. maí.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 29. maí kl.
15.00.
Árný Crane og fjölskylda.
+
Elskuleg systir' okkar og móðursystir,
HÓLMFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Skagnesi,
Norðurbrún 1,
er látin.
Ólöf Jónsdóttir,
Aðalheiður Jónsdóttir,
Sigríður Jóna Clausen.
stjóri á Akureyri í 9 ár. Þekking
hans á málefnum sveitarfélaga varð
víðtæk og yfirgripsmikil á svo löng-
um starfsdegi í þágu sveitarfélag-
anna. Magnús varð náinn sam-
starfsmaður þeirra, sem völdust til
forystu í samtökum sveitarfélaga
og var afstaða hans í öllum þeim
mikilsverðu málum, sem til úrlausn-
ar komu einatt málefnaleg og vel
grunduð og tillögur hans og ráð
jafnan mikils metin. Traust þeirra
sem hann átti samvinnu við um
málefni sveitarfélaga átti hann
óskorað.
Allt frá árinu 1967 hef ég átt
mikið samstarf við Magnús E. Guð-
jónsson mest þó á árunum 1978-
1982 þegar ég gegndi starfí for-
manns Sambands ísl. sveitarfélaga
og samskipti okkar voru næsta
dagleg. Með Magnúsi var gott að
vinna og þekking hans á högum
sveitarfélaga og öllum reglum sem
um þau gilda var hreint með ólíkind-
um. Tæpast hafa aðrir verið fróðari
um sveitarstjórnarmál. Þeir eru fjöl-
margir sveitarstjórnarmennirnir
hvaðanæva af landinu, sem um
langt árabil hafa leitað til Magnús-
ar um upplýsingar og ábendingar
og þegið ráð hans um úrlausnir.
Magnúsi var sérstaklega umhug-
að að treysta samstarf sveitarfélaga
og að þau kæmu sameinuð fram
gagnvart ríkisvaldinu. Oft benti
hann á að sveitarfélögin eiga miklu
fleira sameiginlegt en hitt er, sem
skilur þau að. Hafði hann litlar
mætur á þeim sem vilja fremur ala
á öfund og úlfúð milli byggða og
landshluta. Magnús var að eðlisfari
hlédrægur og barst lítt á, en skap-
gerðin var traust og viðhorf hans
til manna og málefna athugul og
einlæg. Hagur sveitarfélaganna var
honum efst í huga og var hann
fastur fyrir, þegar honum fannst á
hagsmuni þeirra hallað. Umhyggja
fyrir velferð sveitarfélaganna réð
afstöðu hans í farsælu starfí.
Öll störf sín í þágu Sambands
ísl. sveitarfélaga, Lánasjóðs sveitar-
félaga og Bjargráðasjóðs leysti
Magnús E. Guðjónsson af hendi
með virðuleika, skyldurækni og trú-
mennsku. Að leiðarlokum erú hon-
um þökkuð störf hans, vinátta og
samfylgd.
Eiginkonu Magnúsar, Öldu
Bjarnadóttur, dætrum og fjölskyld-
um þeirra vottum við samúð okkar.
Jón G. Tómasson
Magnús Ellert Guðjónsson hét
hann fullu nafni. Hann fæddist á
Hólmavík 13. september 1926, son-
ur hjónanna Guðjóns Jónssonar tré-
smiðs og síðar kaupmanns þar og
Kolfinnu Snæbjargar Jonsdóttur.
Börn þeirra voru sjö en nú eru fímm
á lífi. Ég sendi þeim innilegar sam-
úðarkveðjur.
Fyrstu kynni okkar Magnúsar
hófust er við fiuttum um svipað
leyti á Hlíðarveginn í Kópavogi, en
lóðir okkar lágu saman. Ég minnist
þess er þessi prúði maður kom til
mín og sagðist vilja ræða við mig
um landamerki, lóðin hans var þá
þakin gróðri en mín í umróti bygg-
ingar. Landamerki milli lóðanna
voru svo óhagstæð eins og þau
voru. Munnlegt samkomulag var
gert á stundinni. Girðing hefur aldr-
ei verið sett á milli lóðanna, enda
jukust samskipti milli heimilanna
því dætur okkar léku s
an þegar þær voru yngri og í vetur
hafa Helga dóttir mín og Helga
stjúpdóttir Magnúsar búið saman í
herbergi í Samvinnuskólanum á
Bifröst og sýnir það enn betur hve
gott samkomulag hefur verið á
milli heimila okkar.
Magnús var mikill unnandi gróð-
urs og notaði hverja stund sem
gafst til að hlúa að honum. Garður-
inn við húsið sem þau keyptu,
Magnús og hans ágæta kona, Alda
Bjarnadóttir, var með fegurstu
görðum í Kópavogi á þeim tima,
en þau gerðu hann enn fegurri og
fjölskrúðugri. Þau hjónin voru mjög
+
SNORRI MAGNUSSON
rafvirkjameistari,
Furugerði 11,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 28. maí kl.
13.30.
Svava Snorradóttir,
Magnús Snorrason,
Elínbjörg Snorradóttir
og fjölskyldur.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
SIGURBJÖRN A. HARALDSSON,
Garðabraut 24,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju mánudaginn 28. maí kl.
14.00.
Lilja Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
MAGNÚS E. GUÐJÓNSSON,
framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 28. maí
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélagiö eða aðrar líknar-
stofnanir.
Alda Bjarnadóttir,
Kolfinna S. Magnúsdóttir, Alda S. Magnúsdóttir,
Hauður Helga Stefánsdóttir.
+ Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinarhug vegna + Ástkær eiginkona mín og móðir,
andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og KRISTÍN GUÐJOHNSEN,
langömmu, . Skeiðarvogi 63,
SIGURBJARGAR ÞORLÁKSDÓTTUR, Reykjavík,
hjúkrunarheimilinu Skjóli. sem andaðist þann 19. maí, verður jarðsungin frá Langholts-
Sigríður Kristinsdóttir, Sigurður E. Sigurðsson, Helga Kristinsdóttir, Jón Sigurvin Sigmundsson, kirkju mánudaginn 28. maí kl. 13.30. Bolli Ólason,
barnabörn og barnabarnabörn. Gunnar Bollason.
samhent og ber heimili þeirra og
garðurinn þess glöggt vitni.
í byijun þessa árs lagðist Magn-
ús á spítala og gekkst síðar undir
aðgerðir og var hann mikið veikur.
I byijun þessa mánaðar kom ég til
hans á Landspítalann og hitti svo
vel á að hann var óvenju hress. Nú
er hann allur, góður drengur er
genginn á fund sinna feðra.
Við hjónin og Helga þökkum
Magnúsi hlýleg og góð samskipti
9g biðjum góðan Guð að styrkja
Öldu, Helgu og Eddu Maríu, Kol-
fínnu, Tómas og dætur og Öldu
Sigrúnu í þeirra miklu sorg.
Blessuð sé minning Magnúsar
E. Guðjónssonar.
Árni Örnólfsson
Við fráfall Magnúsar E. Guðjóns-
sonar hafa sveitarfélögin í landinu
misst einn ötulasta talsmann sinn.
Hann hafði starfað að sveitarstjórn-
armálum um 35 ára skeið og gegnt
framkvæmdastjórastarfí hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga í lið-
lega 10 ár. Á þessum tíma átti
Magnús mikil og góð samskipti við
félagsmálaráðuneytið. Hann átti
sæti í Ijölmörgum stjórnskipuðum
nefndum og átti þátt í að semja
frumvörp og reglur er varða sveitar-
stjórnarmálefni. Verkefni og hlut-
verk Sambands íslenskra sveitarfé-
laga efldist mjög í tíð Magnúsar
sem framkvæmdastjóra og mun það
ekki síst að þakka því mikla starfi
er hann innti af höndum. Magnús
var tíður gestur í félagsmálaráðu-
neytinu. Hressileiki og glaðværð
hans gerði það að verkum að starfs-
fólk ráðuneytisins fagnaði ávallt
komu hans. Magnús var mikill
áhugamaður um aukna sjálfsstjórn
sveitarfélaga en brýndi jafnframt
nauðsyn ábyrgðar og festu. Hann
fylgdi málum Sambandsins eftir af
festu og ákveðni en var jafnframt
einstaklega réttsýnn og sanngjarn
maður.
Það var áberandi í fari Magnúsar
hversu ríka áherslu hann lagði á
að leysa vandamál þeirra er til hans
leituðu. Lipurð hans í öllum mann-
legum samskiptum kom fram hvort
heldur hann var að eiga við stjórn-
völd um hagsmunamál sveitarfé-
laga eða að leitast við að greiða
úr einstaklingsbundnum vandamál-
um.
Vegna starfs síns hafði Magnús
yfírburðaþekkingu á öllum þeim
mörgu og flóknu viðfangsefnum
sem sveitarfélögin fást við. Sem
framkvæmdastjóri Bjargráðasjóðs
var Magnús einnig gjörkunnugur
málefnum landbúnaðarins. Hið
þrotlausa starf Magnúsar í þágu
íslenskra sveitarfélaga hefur því
birst á margvíslegan hátt. Það mun
vera vandfundinn sá maður sem
hafði aðra eins innsýn í hvað var
að gerast í þjóðfélaginu og Magnús.
Allt til hinstu stundar var hugur
hans bundinn við hag sveitarfélag-
anna og þrátt fyrir veikindin fylgd-
ist hann grannt með framgangi
mála, enda var allt til hins síðasta
leitað ráða hjá honum varðandi erf-
ið mál er snertu sveitarfélögin og
sýnir það best hve mikils trausts
hann naut.
En enda þótt verk séu talandi
tákn um elju Magnúsar þá er hitt
ekki síður um vert að hann með
sínu jákvæða hugarfari leitaðist
ævinlega við að leysa mál og á
starfsfólk félagsmálaráðuneytisins
honum mikið að þakka fyrir hversu
úrræðagóður hann var. Magnúsar
verður minnst sem manns sem leit
á björtu hliðar tilverunnar og flutti
með sér jákvæðan anda til allra
verka enda hjálpsemin ríkur þáttur
í fari hans. Blessuð sé minning
hans.
Starfsfólk félagsmálaráðuneytis-
ins flytur konu Magnúsar, Öldu
Bjarnadóttur og dætrum, innilegar
samúðarkveðjur.
Jóhanna Sigurðardóttir
Látinn er í Reykjavík Magnús
E. Guðjónsson framkvæmdastjóri,
langt um aldur fram, aðeins 63 ára
að aldri. Þegar náið samstarf okkar
Magnúsar hófst fyrir þremur árum
í tengslum við starfsemi Lánasjóðs
sveitarfélga hvarflaði síst að manni
að svo stutt væri til hinstu stund-
ar. Aldrei ræddi hann einkahagi