Morgunblaðið - 27.05.1990, Side 44
SAGA CLASS
Ferðafrelsi
FLUGLEIDIR gS
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÖSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Rúmlega
tvítugur
maður ferst
í EyjafÍrði
RÚMLEGA tvítugur maður beið
bana er lítill sendiferðabíll, sem
hann ók, lenti út af veginum og
í Þorvaldsdalsá á Arsskógs-
strönd. Farþegi í bílnum, maður
á líku reki, var fluttur slasaður
á sjúkrahús á Akureyri.
Lögreglu á Dalvík var tilkynnt
um slysið laust eftir klukkan
níu á laugardagsmorgun. Öku-
maðurinn var látinn þegar að var
komið. Talið er að mennirnir hafi
verið á leið til Akureyrar þegar
slysið varð, en tildrög þess voru
óljós þegar blaðið fór í prentun.
*
Istak býður
lægst í við-
gerðirnar á
Þjóðleikhúsi
ÍSTAK býð-
ur lægst í
viðgerðir á
Þjóðleikhús-
inu, 197
milljónir
króna eða um 80% af kostn-
aðaráætlun. Tilboð þeirra
þriggja verktaka, sem valdir
voru til að taka þátt í lokuðu
útboði, voru opnuð í gær.
Tilboð Hagvirkis hljóðaði
upp á 203 milljónir króna
og tilboð Byggðaverks var 210
milljónir króna.
Kostnaðaráætlun er 246
milljónir króna,
Að sögn Skúla Guðmunds-
sonar formanns bygginga-
nefndar Þjóðleikhússins verða
tilboðin metin í næstu viku og
er þess vænst að afstaða til
þeirra verði tekin fyrir lok
næstu- viku.
A KJORSTAÐ
Morgunblaðið/RAX.
Davíð Oddsson borgarstjóri, kona hans, Ástríður Thoraren-
sen o g Þorsteinn sonur þeirra komu
á kjörstað í Melaskólanum í gærmorgun. Þorsteinn Davíðs-
son var að kjósa í fyrsta skipti.
S veitarslj órnakosningarnar;
Kjörsókn ívið betri en
í síðustu kosningum
KJÖRSÓKN var betri í
Reykjavík klukkan ellefú í gær-
morgun, en hún var í síðustu
borgarstjórnarkosningum og
munaði tæpum tveimur prós-
entum. A ísafírði var kjörsókn
Framkvæmdasj óður afskrifer
allt hlutafé sitt í Álafossi hf.
Eigið fé sjóðsins minnkar um tæplega helming
STJÓRN Framkvæmdasjóðs hefúr ákveðið að afskrifa allt hluta-
fé sjóðsins í Álafossi hf., vel á fimmta hundrað milljónir króna,
í rekstrarreikningi fyrir árið 1989. Þetta er tæplega helmingur
af bókfærðu eigin fé Framkvæmdasjóðs.
Þórður Friðjónsson stjórnar-
formaður Framkvæmda-
sjóðs sagði við Morgunblaðið að
vegna ótryggrar framtíðar Ála-
foss hefði sjóðsstjórnin tekið
. þessa ákvörðun í varúðarskyni
svo reikningar sjóðsins sýndu
ekki ofmat á eignum hans.
Þórður sagði að þetta þýddi
ekki að Framkvæmdasjóður væri
að afskrifa fyrirtækið Álafoss
hf. Nú stæði yfir tilraun til að
endurreisa fyrirtækið, og tækist
hún, yrði hlutaféð að sjálfsögðu
fært aftur inn sem tekjur. „Það
þarf hins vegar ansi mikið að
gerast til að þessar eignir skili
sér í þær fjárhæðir sem reikning-
ar, bæði Framkvæmdasjóðs og
Sambandsins, sýndu,“ sagði
Þórður.
Álafoss, sem Framkvæmda-
sjóður var aðaleigandi að, og
iðnaðardeild Sambandsins sam-
einuðust árið 1987 í Álafossi hf.
Framkvæmdasjóður átti helming
hlutaíjár og Sambandið hinn
helminginn. Þórður sagði að
ákvörðun um sameiningu Ala-
foss og iðnaðardeildarinnar hefði
verið tekin á grundvelli álits-
gerða innlendra og erlendra aðila
um að rekstur fyrirtækisins gæti
gengið. En á árunum 1988 og
1989 hefði sala Álafoss hf.
minnkað um helming miðað við
það sem fyrirtækin voru sameig-
inlega með árið 1987, og það
hefði enginn séð fyrir.
nær þremur prósentum betri
en síðast. í Hafiiarfirði og á
Akureyri var hún hins vegar
ívið lakari en í síðustu sveitar-
sljórnakosningum en á öðrum
stöðum, sem haft var samband
við, var kjörsóknin svipuð eða
heldur betri en árið 1986.
IReykjavík höfðu 6.537 greitt
atkvæði klukkan 11 eða 9,16%.
Á kjörskrá voru 71.359. í borgar-
stjórnarkosningunum 1986 höfðu
4.873 neytt atkvæðisréttar síns á
sama tíma eða 7,32%, en þá voru
65.987. I borgarstjórnarkosning-
unum árið 1982 var kjörsóknin
10% klukkan 11.
í Hafnarfirði höfðu 610 manns
greitt atkvæði klukkan 11 eða
6,12% af 9.963 sem voru á kjör-
skrá. í síðustu sveitarstjórna-
kosningum 1986 höfðu 621 greitt
atkvæði klukkan 11 eða 6,91%.
Þá voru 8.984 á kjörskrá.
í Kópavogi höfðu 856 manns
greitt atkvæði klukkan 11, eða
7,37%. Á kjörskrá voru 11.616. Á
sama tíma, í síðustu syeitar-
, stjórnakosninguru JiQÖu 7.28 kbs-
ið í Kópavogi eða 7,03%. Þá voru
10.344 á kjörskrá.
Á Akureyri höfðu 605 manns
kosið klukkan 11 í gærmorgun,
eða 6,17%. Á kjörskrá voru 9.800.
í síðustu sveitarstjórnakosning-
um höfðu 622 kosið klukkan 11,
eða 6,55%, en þá voru 9.494 á
kjörskrá.
í Vestmannaeyjum höfðu 209
kosið klukkan 11 í morgun eða
6,43%. Á kjörskrá voru 3246. Á
sama tíma í síðustu sveitar-
stjórnakosningum höfðu 187
manns kosið í Vestmannaeyjum.
Á ísafirði höfðú 204 kosið á
kjörstað á seinni tímanum í 12
eða 8,72%. 310 höfðu greitt at-
kvæði utan kjörfundar, en sam-
tals voru á kjörskrá 2.340. í sveit-
arstjórnakosningunum 1986 voru
138 búnir að kjósa á sama tíma
eða 5,94%, en þá voru 2.323 á
kjörskrá.
Á Neskaupstað höfðu 119 kos-
ið laust eftir klukkan 11.30 í
gærmorgun, eða um 9,8%, en á
kjörskrá voru 1.214. 202 utan-
kjörstaðaratkvæði höfðu borist.
Ekki lágu fyrir sambærilegar töl-
ur frá síðustu kosningum.
I {