Morgunblaðið - 09.06.1990, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990
M DIEGO Maradona var á
fimmtudaginn gerður að „íþrótta-
legum“ sendiherra Argentínu.
Carlos Saul Menem, forseti Arg-
■■■i entínu, er staddur í
Brynja Mílanó um þessar
Tómer mundir þar sem arg-
skrifar entíska landsliðið
leikur, og á fimmtu-
daginn tilkynnti hann Maradona
formlega að hann hefði verið til-
nefndur sendiherra. „Þetta er mik-
ill heiður fyrir mig, sérstaklega fyr-
ir mömmu,“ sagði gulldrengurinn,
„nino de oro“, eins og landar hans
kalla hann. „Ég mun gera mitt
besta til að sýna forseta okkar og
öðrum löndum hversu sterkt lands-
lið Argentínu er.“
■ MARADONA hafðifundið fyrir
verk í hægra fæti viku fyrir leikinn
gegn Kamerún í gær. Daginn fyrir
leik fór hann til læknis og lét líta
á „silfurfótinn“ (vinstri fótur kapp-
ans gengur undir nafninu „gullfót-
urinn“). I ljós kom að tánögl á stóru
tá var inngróin og var þar með
fundin orsökin fyrir verknum. I
sjónvarpsþætti í gær lýsti læknirinn
því í smáatriðum hvernig hann hefði
búið um stóru tána á Maradona
og var sú lýsing allt að því fyndin,
dæmigerð fyrir öfgarnar í íþrótta-
fréttamennskunni á Ítalíu fyrir
þessa heimsmeistarakeppni. Les-
endum til fróðleiks voru settar sér-
stakar spelkur um tána á Mara-
dona og sagði læknirinn að speik-
urnar væru úr sama efni og kapp-
akstursbílarnir í Formula 1. „Þó
sparkað verði í tána á Maradona
mun hann ekkert finna til því þetta
er sterkasta efni sem völ er á,“
sagði læknirinn.
H LANDSLIÐ Kamerúm ar í
sviðsljósinu á HM ’82 á Spáni þeg-
ar það lék á móti Itölum. Leikar
fóru 1:1 og var afríska landsliðið
grunað um að hafa þegið mútur.
Ekkert var þó sannað í því máli og
voru Kamerún-menn leystir undan
ásökununum. ítalskir íþróttafrétta-
menn hafa nú dustað rykið af þessu
leiðindamáli og tekið það aftur til
umræðu í fjölmiðlum.
H / Opnunarleiknum í gær héldu
menn á lofti stórum borða sem á
var skrifað: „Ég er Santina Renda,
mér var rænt, hjálpaðu mér og
hafðu samband við lögregluna ef
þú veist eitthvað um það hvemig
mér var rænt.“ Hinni tveggja ára
gömlu Santinu var rænt í mars sl.
og hefur ekkert til hennar spurst
síðan. Fjölskylda hennar ákvað að
reyna að auglýsa eftir stúlkunni á
vellinum í gær á þennan nýstárlega
hátt í von um að fá a.m.k. fréttir
af henni.
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN A ITALIU
Diego Maradona og félagar hans í argentíska landsliðinu fengu oft óblíðar móttökur hjá leikmönnum Kamerún. Hér er það Roberto Sansini sem brýtur á
Maradona.
Kamerún sló heims- .
meistarana út af laginu
KAMERUN sló heimsmeistara
Argentínu heldur betur út af
laginu með því að sigra 1:0 í
opnunarleik heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu í
Mílanó. Kamerún lék tveimur
leikmönnum færri síðustu
mínútur leiksins og kom það
ekki að sök, sigurinn var örugg-
ur. Það var Omam Biyik sem
gerði sigurmarkið á 66. mínútu
leiksins. „Ég er mjög ánægður
með að hafa skorað fyrsta
mark heimsmeistarakeppninn-
ar. Það var draumur minn að
gera fyrsta markið áður en ég
kom til ítaliu. Ég tileinka forset-
anum okkar þetta mark, sem
ég vona að sé aðeins það
fyrsta af mörgum í þessari
heimsmeistarakeppni," sagði
Omam Biyik, hinn 24 ára gamli
sóknarmaður Kamerún, eftir
leikinn í gær.
Sigurmarkið kom eftir auka-
spyrnu frá vinstri beint á koll-
inn á Omam Biyik, sem þakkaði
fyrir sig með því að skalla niður
framhjá markverði Argentínu og í
netið. Markið kom eftir að Andre
Kana-Biyik var rekinn út af þannig
að leikmenn Kamerún voru þá ein-
um leikmanni færri. Skömmu síðar
fékk Benjamin Massing einnig að
líta rauða spjaldið. Sigur Kamerún
verður að teljast verðskuldaður.
Leikmenn liðsins voru mun frískari
en heimsmeistararnir og gáfu þeim
aldrei frið til að byggja upp spil.
Argentíska liðið virkaði þungt og
vafalaust hafa leikmenn þess van-
metið andstæðinginn.
Þjálfari Kamerún, Sovétmaður-
inn Valery Nepomniachi, var að
vonum ánægður með úrslitin. „Við
vorum heppnir og hefðum ekki unn-
ið þennan leik nema vegna þess að
heppnin var með okkur, Ég var
ósáttur við ákvörðun dómarans um
að reka leikmennina rnína út af
velli. Brotin voru ekki þess eðlis og
það alvarleg að mínu mati,“ sagði
AGANEFND KSI
Leikbann Baldurs Bjarnsonar:
Verður úrskurði aga-
nefndar KSÍ breytt?
Framarar hafa farið fram á það
við aganefnd KSÍ að hún end-
urskoði úrskurð sinn um að Bald-
ur Bjarnason fái tveggja leikja
bann. Framarar segja að Baldur
hafi ekki sparkað eða slegið til
Sævars Árnasonar í leik Þórs og
Fram á Akureyri á laugardaginn
og því ætti hann ekki að fá svo
þunga refsingu. Þeir leggja fram
myndband af leiknum máli sínu
til staðfestingar.
Aganefnd KSÍ byggði úrskurð
sinn á skýrslu dómarans, Guð-
mundar Haraldssonar. í reglum
KSÍ segir, að úrskurði aganefndar
er hægt að breyta ef það liggur
fyrir að hann er byggður á röng-
um upplýsingum. Aganefnd mun
koma saman um helgina og skoða
málið.
þjálfari Kamerún, Valerij Nepomn-
iacij, sem er Sovétmaður. Kana
Biyik og Massing fara báðir sjálf-
krafa í tveggja leikja bann. „Þetta
er vandamál sem þarf að leysa fyr-
ir næsta leik. Við erum með 22 leik-
menn og það er enn tími til að finna
leikmenn í þeirra stöður,“ sagði
Nepomniachi, sem var áður aðstoð-
arþjálfari Valery Lobanovsky þjálf-
ara sovéska landsliðsins.
Carlos Bilardo, þjálfari Arg-
entínu, sagði að þetta væri mesti
ósigur argentíska landsliðsins undir
hans stjórn frá upphafi. „Við leikum
alltaf til sigurs og gerðum það einn-
ig gegn Kamerún, en það sló okkur
útaf laginu með grófum leik, sem
ég vill ekki ræða frekar um á þessu
stigi,“ sagði Bilardo.
Maradona sagði að markið hafi
sett allt úr skorðum í argentíska
liðinu. „Það átti enginn von á þessu.
Við getum aðeins kennt okkur sjálf-
um um hvernig fór,“ sagði Mara-
dona.
1.DEILD KV
Jafntá
Akureyri
Þór og Valur skildu jöfn, 1:1, í
1. deild kvenna á íslandsmót-
inu í knattspyrnu á Akureyri í
gærkvöldi. Hera Ármannsdóttir
kom Valsstúlkum yfir í upphafi
síðari hálfleik, en Ellen Óskars-
dóttir jafnaði fyrir Þór þegar tíu
mínútur voru til leiksloka.
Bikarkeppnin
Tindastóll sigraði Neista 6:0 í 2.
umferð bikarkeppni KSÍ í meistar-
flokki karla í gær og er því komið
í 3. umferð. Sverrir Sverrisson gerði
þijú marka Tindastóls.
■ HRÆÐSLAN um ólæti aðdá-
enda hinna ýmsu landsliða er alveg
að fara með Itali. Borgaryfirvöld
hafa bannað sölu á áfengum drykkj-
um í Mílanó þá daga sem landsleik-
ir verða leiknir. Sama ákvörðun var
tekin á Sardiníu þar sem Englend-
ingar leika. Hvorki barir né búðir
mega selja eða veita áfengi þessa
daga og vægast sagt þykir ítöium,
þeirri miklu víndrykkjuþjóð, þessi
ákvörðun fádæma ósvífni og eru
hóteleigendur öskureiðir: „Stór
hluti af veitingarekstrinum er ein-
mitt áfengissala og við fengutn
ekki að vita neitt um þessa ákvörð-
un fyrr en núna,“ sagði einn þeii'ra. _
í viðtali við fréttamenn.
■ ÞESS má getaað á öllum
ítölskum völlum eru barir sem hing-
að til hafa selt áfenga og óáfenga
drykki, auk þess sem í áraraðir
hefur það tilheyrt því að fara á
völlinn að kaupa sér drykk hjá sölu-
mönnum sem ganga um stúkurnar
með ýmsan varning.
■ BIRKIR Kristinsson, tnark-
vörður Fram, hefur varið víta-
spyrnu í tveimur leikjum í röð.
Hann er reyndar ekki fyrsti mark-
vörðurinn sem gerir slfkt í 1. deil
Halldór Halldórsson, markvörður
FH, hafði áður varið tvær í röð, i*
egn ÍA og ÍBK árið 1985.
VALSMENN hafa gengið frá
ráðningu Mikaíls Abkasjevs og
mun hann sjá um þjálfun yngri
flokka félagsins. Mikaíl er sonur
Boris Abkasjev, fyrrum þjálfara
Vals, sem nú þjálfar lið Breiðar-
bliks í 2. deild.
fi