Morgunblaðið - 13.06.1990, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990
Væntum þess að
ríkisstjómin hefði
ekki írumkvæði
að hækkunum
EINAR Oddur Krisljánsson, for-
tnaður Vinnuveitendasambands
íslands segir um verðhækkanir
þær sem ákveðnar voru á áfengi
og tóbaki í gær, að VSÍ hefði
vænst þess að ríkisstjórnin hefði
ekki frumkvæði að neinum verð-
hækkunum á meðan aðilar vinnu-
markaðarins og ríkisstjórnin
leita í sameiningu leiða til þess
að koma í veg fyrir að verðbólg-
an fari yfir rauða strikið í sept-
ember. “Okkur finnst þetta nýög
óþægilegt," sagði Einar Oddur í
samtali við Morgunblaðið í gær.
“Það er alveg rétt að við gerð
kjarasamhinganna þá fengum við
minnisblað frá ríkisstjórninni þar
sem hún hét því að efna ekki til
frekari verðhækkana, en var gerð
grein fyrir þar og þar var meðal
annars gert ráð fyrir hækkun á
áfengi og tóbaki. Hins vegar hefur
ríkisstjórnin nú nýverið boðið aðil-
um vinnumarkaðarins til fundar
vegna þess að spár segja að vísital-
an fyrir september verði að öllum
líkindum eitthvað hærri en mark-
mið kjarasamninganna settu,“
sagði Einar Oddur.
“Við hefðum vænst þess og talið
gæfulegra að á meðan á þeim við-
ræðum stendur hefði ríkistjórnin
ekki frumkvæði að neinum verð-
hækkunum," sagði Einar Oddur
Kristjánsson, formaður VSÍ.
Ok inn í göngugötuna
LITLU munaði að illa færi er sautján ára piltur missti stjórn á
bifreið á mótum Bankastrætis, Lækjargötu og Austurstrætis
síðdegis i gær og ók rakleitt inn í göngugötuna. Tvær rússnesk-
ar ferðakonur urðu fyrir bifreiðinni, en slösuðust aðeins lítillega.
Ökumaður bifreiðarinnar er
sautján ára og nýkominn með
bílpróf. í gær fékk hann nýlega,
sjálfskipta Mitsubishi-bifreið
móður sinnar iánaða og eyddi fyrri
hluta dags í að bóna bílinn. Síðan
settist hann undir stýri og fór á
rúntinn. Hann ók niður Laugaveg
og Bankastræti og ætlaði að
beygja suður Lækjargötu, en
missti stjóm á bifreiðinni, senni-
lega af því að hann var með bón
á höndunum og rann á stýrinu,
að sögn lögreglunnar.
Bifreiðin tók stefnuna inn í
mannfjöldann á Austurstræti.
Pilturinn sá hvað verða vildi og
ætlaði að hemla, en er allsendis
óvanur því að aka sjálfskiptri bif-
reið og steig á benzíngjöfina í
stað bremsunnar. Bifreiðin snar-
jók því hraðann og tókst piltinum
ekki að stöðva hana fyrr en hann
hafði ekið um 20 metra inn í
göngugötuna og keyrt rússnesku
ferðakonurnar tvær um koll.
Framrúða bifreiðarinnar brotnaði
er önnur konan lenti á henni.
Rússnesku konumar slösuðust
lítillega, önnur fékk þó skinn-
sprettu á höfuðið, sem blæddi tals-
vert úr. Lögregla hafði mikinn
viðbúnað til að koma sjúkrabíl í
gegn um þvöguna, sem myndazt
hafði um slysstaðinn, en Rússam-
ir harðneituðu að fara upp í
sjúkrabílinn. Skemmtiferðaskip
þeirra, Maxim Gorkíj, átti að
leggja úr höfn hálfri annarri
klukkustund síðar og loks ók lög-
reglan konunum að skipshlið, þar
sem hópur skipslækna tók á móti
þeim.
Hlaðin blómabeð úr steini, sem
lengi vel lokuðu austurenda Aust-
urstrætis fyrir bílaumferð, vom
fjarlægð fyrir nokkm og eiga
bílar, sem koma niður Bakara-
brekkuna, því greiða leið inn í
göngugötuna ef eitthvað fer úr-
skeiðis, bremsa bilar eða hált er
á götunni. Að sögn lögreglunnar
er nauðsynlegt að koma upp
grindverki eða annarri hindmn
fyrir enda götunnar. Lögreglu-
maður kallaði það hreina guðs-
mildi að fleiri hefðu ekki orðið
fyrir bifreiðinni.
Morgunblaðið/Júlíus
Önnur rússneska konan andmælir aðhlynningn lögreglumanna, sjúkrafiutningamanna og vegfarenda. Til vinstri er bifreið ökumanns-
ins, sem slysinu olli.
Hækkun ÁTVR
Breytingar á aflamiðlun;
Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á úthlutun útflutningsleyfa
á ferskum fiski. Þær felast einkum í að skip sem oftar en einu sinni
hafa fengið lágt verð fyrir afla á erlendum mörkuðum fá ekki úthlut-
un næstu vikuna. Þá hefur frestur frá umsókn til úthlutunar verið
styttur aftur. Loks er þess nú æskt að í umsóknum sé magn þorsks
og ýsu, ufsa og karfa, tiltekið sérstaklega en ekki í samtölu eins og
verið hefiir. Sigurbjörn Svavarsson, formaður stjórnar aflaiiiiðlunar,
segir breytingarnar beinast að því að gera umsóknir raunhæfari og
veita útflytjendum gæðaaðhald.
Sigurbjörn segir að þótt nú fáist
mjög góð verð á erlendum mörkuð-
um og talið sé að Bretlandsmarkað-
ur þoli meira, ráði tillit til innlendra
vinnslustöðva því að úthlutun verði
Styttri umsóknarfrest-
ur og útflutningsbönn
ekki aukin að ráði á næstunni. „Það
er nokkuð ljóst að verðið lækkar
eftir því sem framboð á fiski eykst.
Við viljum halda verði í horfinu og
förum þess vegna varlega."
Óheppileg ráð-
stöfim ríkisvalds-
ins einmitt nú
ÁSMUNDUR Stefánsson, forseti
Alþýðusambands íslands, segir
að með þeirri hækkun, sem
ákveðin hefiir verið á áfengi og
tóbaki, hafi ekki verið farið fram
úr almennum verðbreytingum á
þeim tíma, sem liðinn er frá
síðustu hækkun. „Hins vegar er
afar óheppilegt, að ríkisstjórnin
gp-ípi til svona aðgerða einmitt
nú,“ sagði Ásmundur í samtali
við Morgunblaðið í gær.
„Nú ríður mikið á að allt sé gert
til að halda aftur af hækkunum og
nauðsynlegt er að allir lifi sam-
kvæmt því kjörorði, sem við erum
nú að auglýsa: Að hætta sjálfkrafa
verðhækkunum og meta hveiju
sinni, hvort tilefni sé til að láta
verða af hækkuninni,“ sagði Ás-
mundur.
Ásmundur sagði ennfremur, að
allar hækkanir, sem nú yrðu, ykju
líkumar á því að farið yrði yfir
rauða strikið í september.
Sjá ummæli fjármálaráðherra
á bls 20.
Per Olof Aronsson, forstjóri Granges:
Sigurbjörn segir að lengi hafi
staðið til að veita aðhald hvað gæði
útflutnings varðar með því að heim-
ila þeim skipum ekki útflutning sem
fengið hafa lág verð. „Slíkt bendir
til að aflinn sé slakur og við viljum
frekar úthluta meiru til þeirra sem
náð hafa betri árangri. Þeir sem
hafa staðið sig slælega fá þá hvíld
eins lengi og flutt var út á lágum
verðum. Bönnin munu þó ekki vara
lengur en þijár til fjórar vikur og
síðan geta menn sótt um aftur.
Nú eru um 10 skip í þeirri stöðu
að geta ekki sótt um útflutnings-
leyfí. Stjóm aflamiðlunar lítur svo
á þetta sé eina raunhæfa leiðin til
að veita gæðaaðhald í útflutningi á
ferskum fiski og um leið ætti hærra
meðalverð að fást fyrir heildarafl-
ann,“ segir Sigurbjöm.
Frestur frá umsókn til úthlutunar
útflutningsleyfa var lengdur þegar
^flamiðlun var komið á um miðjan
ftnrs: 'í “þvf ■'skynr'afr'tnniendTim'
vinnslustöðvum gæfist ráðrúm til
að bjóða í fiskinn áður en hann
færi úr landi. Sigurbjörn segir menn
lítið hafa nýtt sér þetta svigrúm
og fresturinn verði styttur aftur í
þessari viku til þess að umsóknir
geti orðið raunhæfari en verið hef-
ur.
„Frá og með þessari viku rennur
umsóknarfrestur út á hádegi á
fimmtudögum. Við tökum afstöðu
til umsókna eftir hádegið og látum
vita um úthlutun daginn eftir.
Þannig teljum við okkur eínnig
koma nokkuð til móts við fiskvinnsl-
ur hér, þeim gefst kostur á að at-
huga hvað býðst fram á miðvikudag
í vikunni eftir þegar skipin sigla
utan.“
Liðlega 1.000 tonnum var í
síðustu viku úthlutað fyrir Bret-
landsmarkað og Sigurbjörn segist
gera ráð fyrir að magnið verði svip-
að áfram. Fyrir síðustu úthlutun
- var sótt uitv 2&00 tonn.--------
Atlantsál er íysilegur kost-
ur fyrir álfi*anileiðendur
PER Olof Aronsson, forstjóri Gr&nges segir að þótt Electrolux
eigfi í viðræðum við aðra aðila í áliðnaðinum um samstarf, eða
sölu á Gránges, teyi hann ekki að það hafi nein áhrif á þátt-
töku Gr&nges í Atlantsálverkefninu hér á landi. Hann segir
útilokað að segja til um það á þessu stigi hvort þessar viðræð-
ur leiði til samstarfs eða sölu til bandaríska álhringsins Alcoa.
Vel sé til í dæminu að sá samstarfsaðili verði allt annar.
„Það er i rauninni ekkert
hægt að segja um þessar viðræð-
ur enn sem komið er, eða hvað
út úr þeim kemur,“ sagði Arons-
son í samtali við Morgunblaðið
í gær. „Gránges er að leita eftir
samstarfí við önnur álframleiðslu
og svo kann að fara að út úr
þeim viðræðum komi það að
Gránges og Alcoa renni saman,
en það getur allt eins farið svo
að um slíkt samstarf verði að
ræða við einhvem annan aðila.“
„Eins og málin horfa við mér,
hafa þessar viðræður engin áhrif
á áhuga Gránges á þátttöku í
Atlantsálverkefninu. Ég get
náttúrlega ekki fullyrt að svo
verði um ókomna framtíð, en það
sem ræður úrslitum hvað varðar
Atlantsálverkefnið, er að á al-
þjóðlega vísu vekur það athygli
og er eftirsóknarverður kostur
fyrir álframleiðendur í fram-
tíðinni. Áhugi okkar er enn sá
sami og ég fæ ekki séð að nokk-
uð geti breytt því,“ sagði Arons-
son.