Morgunblaðið - 13.06.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990
Landsvirkjun:
fflutur Akureyrar
um 1.260 milljónir
Fjármálaráðherra tilbúinn til við-
ræðna um að kaupa hlutinn
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, segist reiðubúinn til
viðræðna um kaup ríkisins á hlut Akureyrarbæjar í Landsvirkjun.
Hlutur bæjarins í fyrirtækinu er 5,475%, Reykjavíkurborg á rúm 44%
og ríkið 50%. Um síðustu áramót var höfuðstóll Landsvirkjunar
tæplega 23 milljarðar og er hlutur Akureyrar þar af um 1.260 millj-
ónir króna.
Talsmenn meirihluta sjálfstæðis-
manna og alþýðubandalagsmanna
á Akureyri hafa lýst áhuga á að
selja hlut bæjarins í Landsvirkjun
og lýsti Davíð Oddsson, borgar-
stjóri í Reykjavík, því yfir í Morgun-
blaðinu að borgaryfirvöld væru til-
búin að ganga til viðræðna um
kaup á þéssum hlut.
Fjármálaráðherra segist einnig
reiðubúinn til viðræðna við Akur-
eyrarbæ um að ríkið kaupi eignar-
hlutinn og að hann muni beita sér
fyrir slíkum viðræðum innan ríkis-
stjómarinnar. Hins vegar séu auð-
vitað aðrir möguleikar líka inn í
myndinni, svo sem að Landsvirkjun
sjálf, Reykjavíkurborg eða samtök
annarra sveitarfélaga í landinu
kaupi hlutinn.
Eignarhlutur Akureyrarbæjar í
Landsvirkjun er samkvæmt sam-
eignarsamningi 5,475%. Sam-
kvæmt ársskýrslu Landsvirkjunar
var höfuðstóll fyrirtækisins tæpir
23 milljarðar um síðustu áramót
og er hlutur Akureyrar þar af því
um 1.260 milljónir króna.
Villtar kanínur í Öskjuhlíð
Skarpskyggnir útivistarmenn hafa orðið varir við villt-
ar kanínur í Öskjuhlíð og tókst einum þeirra að ná
myndinni að ofan af kanínu áður en hún skaust í
skjól við kjarrið. Að sögn Páls Hersteinssonar veiði-
stjóra hefur það komið upp áður að villtar kanínur
hafí fundist hér á landi og vissi hann til þess dæmi
að kanínur hefðu lifað í nokkur ár á eyju einni í
Breiðafirði og taldi hann að fæðu hefðu þær sótt í
fjöruna. Hann sagði að kanínur þrifust ágætlega hér
á sumrin en að mikill fellir yrði á hörðum vetrum.
Þar skipti fæðan mestu máli en ekki kuldinn. Fæða
kanína er alls kyns gróður og einkum grænar plönt-
ur. Taldi hann að einhver hlyti að fóðra kanínurnar
í Öskjuhlíð sem virðast hafa lifað af síðasta vetur í
óblíðri náttúrunni. Páll sagði að í Öskjuhlíð væri fjöl-
skrúðugt fuglalíf og þar væri einnig fjöldi villtra katta.
Brittanía, snekkja Bretadrottningar.
Opinber heimsókn Bretadrottningar:
Gistir um borð í Brittaníu
á meðan heimsókn stendur
Vegna stærðar skipsins verður að
dýpka höftiina um hálfan metra
UNDIRBÚNINGUR vegna opinberrar heimsóknar Bretadrotting-
ar er nú langt kominn en hann hefúr staðið í tæpt ár. Drottning
er væntanleg til Reykjavíkur hinn 25. júní og héðan fer hún 27.
júní. Hún kemur hingað með einkaþotu sinni en mun gista um
borð í snekkju konungsfjölskyldunnar, Brittaníu, ásamt eigin-
manni sinum og fímmtán manna fylgdarliði. Vegna stærðar skips-
ins hefúr reynst nauðsynlegt að styrkja Ægisgarð sem það mun
liggja við. Þá er nauðsynlegt að dýpka höfnina við enda garðsins
svo Brittanía fljóti þegar fjara er.
Reyðarfjörður:
*
Osamþykktír bátar seld-
ir á opinberu uppboði
SEX plastbátar, sem fluttir voru til landsins haustið 1987, og ekki
höfðu verið tollafgreiddir þar sem þeir uppfylltu ekki reglur Siglinga-
málastofíiunar, voru seldir á opinberu uppboði á Reyðarfírði síðastlið-
inn laugardag að kröfú Eimskipafélagsins.
Einkaþota Elísabetar Eng-
landsdrottningar lendir á
Reykjavíkurflugvelli mánudaginn
25. júní. Þaðan leggur drottningin
leið sína í Listasafn íslands og
stofnun Árna Magnússonar. Að
því loknu verður móttaka breska
sendiherrans um borð í Brittaníu
en hann telst með í fylgdarliði
drottningar. Um kvöldið situr
drottning kvöldverð í boði forseta
íslands.
Þriðjudaginn 26. júní fer
drottning í skoðunarferð. Hún
mun sjá íslenska hesta, koma við
á Nesjavöllum og snæða hádegis-
verð á Þingvöllum í boði forsætis-
ráðherra. Síðdegis sækir hún svo
boð Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra. Um kvöldið heldur Breta-
drottning veislu til að endurgjalda
boð forsetans.
Á miðvikudegi fer drottning að
hermannagrafreitnum í Fossvogs-
Vinnuherbergi hertogans' af
Edinborg um borð í Brittaníu.
kirkjugarði og í skoðunarferð í
Krísuvík áður en hún fer af landi
brott á hádegi.
Brittanía, snekkja drottningar
kemur tii landsins sunnudaginn
24. júnf kl. 7 um morguninn og
mun lóðs fara um borð og sigla
henni að Ægisgarði um kl. 7.30.
28 manna lúðrasveit, sem er hluti
250 manna áhafnar skipsins, mun
leika við komu þess og brottför,
auk þess sem hún mun halda tón-
leika við höfnina á meðan heim-
sókninni stendur.
Gert verður hreinsunarátak í
Reykjavíkurhöfn vegna komu
Brittaníu. „Við erum náttúrulega
ákaflega ánægðir með að drottn-
ingin skuli búa um borð í Britt-
aníu hér í höfninni og munum
mála og dytta að fyrir komu henn-
ar. Þá þurfum við að setja sérstök
fríholt við Ægisgarð þar sem
lakkið á snekkjunni er svo fínt
að hún má ekki snerta hafnar-
garðinn," segir Jóhannes Ingólfs-
son rekstrarstjóri í Reykjavíkur-
höfn.
Brittanía er 6000 tonn og 125
metra löng en vegna lögunar
skipsins liggja ekki nema þijátíu
metrar við hafnargarðinn. íbúð
drottningarinnar er stjórnborðs-
megin í skipinu og það snýr því
bakborðshliðinni að hafnargarðin-
um. Á meðan heimsókn drottning-
ar stendur, verður hluti
Reykjavíkurhafnar lokaður um-
ferð, líkt og þegar leiðtogafundur-
inn stóð yfir.
Skipið er smíðað árið 1952 og
hefur þjónað bresku konungsfjöl-
skyldunni frá 1954. Það tilheyrir
breska flotanum og hægt er að
breyta því í sjúkraskip á
stríðstímum. Með Brittaníu í för
er breska freigátan Penelope og
verður hún í Sundahöfn á meðan
heimsókn drottningar stendur.
Páll Hjartarson, yfirmaður
tæknideildar Siglingamálastofnun-
ar, sagði að umræddir bátar hefðu
ekki verið samþykktir af Siglinga-
málastofnun vegna þess að efni í
byrðingnum á þeim væri of þunnt,
auk þess sem upplýsingar hefðu
ekki legið fyrir um hvaða efni væri
í þeim. Hann sagði að Siglingamála-
stofnun ætti að árita tollpappíra
vegna innfluttra báta, en það gætu
þeir ekki gert nema þeir væru sam-
þykktir og í lagi, og sér þætti því
furðulegt að þeir skyldu seldir á
uppboðinu ótollafgreiddir. „Það
getur vel verið að það megi gera
við þessa báta þannig að þeir verði
í lagi, en eins og þeir eru þá eru
þeir ólöglegir og því ekki nein
happakaup fyrir menn.“
Inger Linda Jónsdóttir, fulltrúi
sýslumannsins í Suður-Múlasýslu,
sagði að skýrt hefði verið tekið fram
í uppboðsskilmálum að ákveðnar
endúrbætur þyrfti að gera á bátun-
um til þess að þeir yrðu viðurkennd-
Heraðsbúar snæddu í gær mat
sinn utandyra og voru léttklædd-
ir við þá athöfn. Almennt höfðu
þeir kalda rétti á matseðlinum.
Astæða þessa var að nú eru mikl-
ir hitar á Austurlandi og einstök
veðurblíða.
í hádeginu í gær var hitinn á
Egilsstöðum 21 stig* samkvæmt
MENNTAMÁLARÁÐHERRA,
Svavar Gestsson, hefúr ekki enn
skipað í embætti fræðslustjóra á
Suðurlandi. Embættið var auglýst
laust til umsóknar í vor og átti
nýr maður að taka við 1. júní
síðastliðinn.
Jón R. Hjálmarsson hefur verið
fræðslustjóri á Suðurlandi í 25 ár
og sótti hann um lausn frá störfum
frá og með 1. júní síðastliðnum.
Embættið var því auglýst iaust til
umsóknar í vor og voru umsækjend-
Að sögn Þorvalds Aðalsteinsson-
ar, umboðsmanns Eimskipafélags-
ins, er um að ræða um það bil
þriggja metra langa plastbáta, sem
fluttir voru til Reyðarfjarðar frá
Danmörku. Hann sagði að venjan
væri sú að fara fram á uppboð á
vörum ef lengri tími en eitt ár liði
án þess að þær væru tollafgreidd-
ar, og þar sem rúmlega tvö og
hálft ár væru liðin frá því bátarnir
voru fluttir til landsins hefði verið
farið fram á uppboð á þeim. Allir
bátamir seldust á uppboðinu, og
sagði Þorvaldur að meðalverð þeirra
hefði verið um 30 þúsund krónur.
Sjónvarpsdag-
skrá í tvígang
ÞAU mistök urðu í Morgunblað-
inu í gær, þriðjudag, að blaðið
endurbirti sjónvarpsdagskrár
mánudagsins. Morgunblaðið
biðst afsökunar á þessum mistök-
mælum Veðurstofunnar, logn og
sterkt sólskin. Fólk notaði því mat-
artímann til að liggja suður undir
vegg og innbyrða eitthvað svalandi
en þar var hitinn jafnvel enn meiri
en mælar Veðurstofunnar gáfu upp.
Af þessum sökum fór fólk sér hægt
við vinnu og skrifstofufólk talaði
um skrifstofufárviðri.
ur tólf.
Fræðsluráð Suðurlands mælti
með Jóni Hjartarsyni skólastjóra á
Kirkjubæjarklaustri í embættið en
menntamálaráðherra hefur ekki enn
skipað í stöðuna. Situr Jón R. Hjálm-
arsson áfram um stundarsakir að
ósk ráðherra.
Menntamálaráðherra hefur verið
erlendis frá mánaðamótum en er
væntanlegur til landsins síðar í vik-
unni. Er þá búist við að hann skipi
í embættið.
ir. um.
Skrifstofiifárviðrið á Austurlandi
Egilsstfiðum.
- Björn
Suðurland:
Skipun firæðslustjóra hefur dregist