Morgunblaðið - 13.06.1990, Side 14

Morgunblaðið - 13.06.1990, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990 -I Listahátíð í Reykjavík: Böm em aldrei ein íslenski dansflokkurinn sýnir Palli o g Palli í íslensku óperunni ÞAÐ eru undarlegar verur á sveimi á sviði íslensku óperunnar þessa dagana. Dansandi stigar, strætisvagnar, appelsínur og peningar þyrlast um og hrífa áhorfendur með inn í draumaheim Palla, sem var eftir allt saman ekki svo einn í heiminum, þótt mannfólkið væri fjarri. Það er íslenski dansflokkurinn sem stendur að baki þessum fiirðum. Verið er að æfa barna- og fjölskylduballettinn Palli og Palli, sem hollenski danshöfundurinn Sylvia von Kospoth samdi sér- staklega fyrir Islenska dansflokkinn. Sylvia stjórnar sjálf uppfærsl- unni og Hlín Gunnarsdóttir gerir leikmynd og búninga. Frumsýning verður fimmtudagskvöldið Ijórtánda júní og síðan tvær síðdegissýn- ingar laugardaginn sextánda júní. Sylvia von Kospoth lauk dans- námi frá hollenska leiklistarháskól- anum 1984 og starfaði síðan hjá Premiére Amsterdam, þar sem hún samdi ýmis dansverk. Einnig hefur hún kennt við. Scapino Academie og Dance Expression Academie í Amsterdam. Hún kom hingað til lands síðastliðið haust í boði dans- hópsins Pars pro toto og átti tvö atriði í sýningu þeirra. Síðan hefur hún kennt við Listdansskóla Þjóð- leikhússins og í Kramhúsinu, auk þess að sjá um hreyfingar leikara í Endurbyggingu Vaclav Havels hjá Þjóðleikhúsinu. Sylvia segist lengi hafa gengið með þann draum í maganum að semja ballett um dreng sem væri einn í heiminum eftir hollenskri sögu og þegar komið hefði_ til tals að hún semdi verk fyrir íslenska dansflokkinn hefði hún viðrað þá hugmynd. Auður Bjarnadóttir hafi þá bent sér á söguna Palli var einn í heiminum og þar með hefði hug- myndin tekið á sig endanlega mynd. „Eg fylgi ekki sögunni nákvæm- lega,“ segir Sylvia, „heldur nota hana til að gefa mér hugmyndir. Eg vil ekki að börnin fari að setja það fyrir sig að einhveija hluta sögunnar vanti í ballettinn." -Af hveiju heitir verkið Palli og Palli? „Vegna þess að í því eru í raun- inni tveir Pallar. Palli vakandi með foreldrum sínum og Palli sofandi í eigin hugarheimi. Ég vildi heldur ekki láta það heita Palli var einn í heiminum, því eins og ég sagði fylgi ég ekki sögunni. Palli og Palli er líka sterkt nafn sem grípur athygl- ina.“ — Hvað er svona heillandi við einhvern sem er einn í heiminum? „Við erum öll að einhveiju leyti ein í okkar eigin heimi, sérstaklega krakkar, en þau hafa lag á að fylla heim sinn af alls konar verum. Þeg- ar ég var að semja verkið revndi ég að ná þeim hughrifum sem ég fann fyrir sem barn þegar ég var að semja hugarflugsleiki og ég fylgdist með börnum, spurði for- eldra um venjur þeirra og reyndi hvað ég gat að ná fram þeim töfrum sem búa í leikjum þeirra. Börn hafa þann hæfileika að fylla heiminn af verum sem aðrir sjá ekki og það er einmitt það sem gerist í Palli og Palli. Allir þeir hlutir sem við full- orðna fólkið álítum dauða öðlast í leikjum barna líf og hlutverk. Það er ekkert óvenjulegt að sjá barn í hrókasamræðum við öskubakka til dæmis. Þau eru aldrei ein.“ — Hvers vegna valdirðu þá leið að láta dansarana dansa Palla til skiptis? „Bæði vegna þess að hlutverk Palla er eiginlega of stórt fyrir einn dansara og líka til þess að skapa meiri hreyfingu og fjölbreytileika á sviðinu. Þegar verið er að sýna fyr- ir börn skiptir miklu máli að halda athygli þeirra og áhuga og til þess þarf sífellt að finna upp á einhveiju nýju. Það verður alltaf að vera eitt- hvað að gerast. Dansarar íslenska dansflokksins eru mjög færir og hafa sterk sérkenni hver fyrir sig og ég vildi nýta hæfileika hvers og eins sem best.“ — Að sumu leyti líkist sýningin meira leikhúsi en hefðbundnum ballett. Leikmynd og búningar skipta miklu máli og svipbrigði og tilþrif dansaranna einnig. Er þetta Morgunblaðlð/I’orkell Salif KeTta Malískir töfrar á Listahátíð 9 _______Tónlist__________ Árni Matthíasson ÞEGAR fyrst var bryddað upp á Listahátíð í Reykjavík var það sjaldséð að hingað kæmu er- lendir popptónlistarmenn. Það þótti því við hæfi að Listahátíð gengist fyrir popptónleikum fyrir unga fólkið, sem varð reyndar stundum til að vinna upp tap af metnaðarfyllri atrið- um. Nú eru breyttir tímar, þó ekki átti allir sig á því, og heim- sóknir poppsveita algengari. Það er því vafasamt að krefjast þess að Listahátíð haldi „venju- lega“ popptónleika, og má þá minnast milljónataps af síðasta Listahátíðarpoppi. Að þessu sinni ákvað Listahátíð að fara ótroðnar slóðir og fá til landsins tónlistarmenn sem trauðla hefðu annars komið. Dæmi um það voru tónleikar maiíska tón- listarmannsins Salifs Ke'ítas á mánudagskvöld í Hótel Islandi. Ekki er annað að merkja en að þetta framtak Listahátíðar mælist yel fyrir, því á tónleikunum voru um 1300 gestir, sem verður að teljast harla gott. Tónleikarnir hófust á þjóðlegu malísku lagi, sem leikið var af bandi áður en hljómsveitin kom á svið, líklega til að koma áheyrendum í rétt hugarástand. Síðan tíndust sveit- armenn á svið og léku fönklegt lag með afrískum íjölrytmum, áður en Salif kom á svið. Hljóm- sveitin var framúrskarandi og sérstaka athygli vakti bassaleik- arinn sem lék á sex strengja bassa og blásararnir sem hvað eftir ann- að áttu góða einleikskafla. Tón- listargrunnurinn var afrískur, en útfærslan vestræn á köflum og oft nærri hreinu fönki. Salif Ke'íta er mikill söngvari og þegar hann var á sviðinu gleymdist allt annað. Hann hefur sterka og sérkennilega rödd og stjórnaði sveitinni af mikilli ákveðni. Hann vann sér strax hylli viðstaddra með því að neita að spila lengur nema fólki væri hleypt upp á dansgólf, en fram að því var allur tónleikstaðurinn meira og minna hólfaður af með reipum sem illvígir dyraverðir gættu. Gólfið fylltist þegar og var öll kösin á iði þar til yfir lauk, enda tónlistin einkar vel fallin til dansæfinga. Lögin sem Salif lék voru flest af plötunni nýju, Ko Yan, en einn- ig flutu með lög af plötunni þar á undan, Soro, sem nokkuð er þekkt hér á landi. Áheyrendur virtust þó ekki þekkja lögin ýkja vel, þó margir hafi kannast við t.a.m. Primpin, en það virtist ekki koma að sök. í fyrstu virtist koma Salif í opna skjöldu hve tónlist hans féll í fijóan jarðveg og þegar á leið var greinilegt að hann kunni hið besta við sig og lagði töluvert á sig til að auka á sefjunina. Tónleikadagskránni lauk án þeirra laga sem flestir hafa líklega beðið eftir, Wamba og Nou pas bouger. Eftir kröftugt uppklapp kom Salif aftur á svið og tók þá steininn úr með hrifningu áheyr- enda þegar fyrst flutti hann Wamba og síðan langa og einkar skemmtilega útsetningu á Nou pas bouger. Eftir það hvarf hann af sviði og ,hljómsveitin öll, en áheyrendur vildu meira og klöpp- uðu og æptu Nou pas bouger. Þá kom fram á svið trymbill sveitar- innar og afkynnti sveitarmeðlimi, sem tíndust á svið einn og einn í einu við malískt þjóðlag leikið á balafón, sem flutt var af bandi. Þakkaði sveitin pent fyrir sig og tónleikunum var lokið; einum eft- irminnilegustu popptónleikum sem Listahátíð hefur haldið hing- að til.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.