Morgunblaðið - 13.06.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.06.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JUNl 1990 15 dansleikhús frekar en ballett? „Ég reyni að sameina alla þætti góðs leikhúss í þessu verki, nema auðvitað texta. Þetta er ekki klassískur ballett og heldur ekki nútímaballett, heldur sambland af hvoru tveggja. Við Hlín Gunnars- dóttir, sem gerði leikmynd og bún- inga, áttum mjög gott samstarf og hún vann frábærlega vel að mínu mati. Þetta var mjög spennandi verkefni á mörgum sviðum og sam- vinna mín við dansflokkinn tókst mjög vel. Við skemmtum okkur vel við vinnuna og það er nokkuð sem ég legg ríka áherslu á. Það er ekki hægt að gera lifandi og góða sýn- ingu nema þeir sem taka þátt í henni hafi virkilega ánægju af því sem þeir eru að gera. Eg vil að dansarar mæti á æfingar ólmir af löngun til að takast á við verkefnin og það gerðu dansararnir í þessari sýningu svo sannarlega. Það er virkileg synd að dansflokkurinn skuli fá svona fá tækifæri til að sýna, því í honum eru góðir dansar- ar sem eiga svo sannarlega skilið meiri athygli.“ — Hvers vegna barnaballett? „Hvers vegna ekki? Ég held að í hugum margra sé ballett listgrein sem einungis höfði til fárra út- valdra, en það er mikill misskilning- ur. Því fyrr sem börnin læra að meta dansinn því betra. Og ég veit ekki hvar ætti frekar að setja upp barnaballett en á íslandi? Þetta er algjört barnasamfélag. Ég held ég hafi aldrei á ævinni séð eins mikið af börnum og síðan ég kom hingað. Ég reyndi í þessari sýningu að færa dansinn nær börnunum og vona að þau sjái í því hluti frá sjálfum sér. Og í heild má segja að sýningin sé tilraun til að færa ballettinn nær áhorfendum, svipta hann þessari hulu sem hann er sveipaður í hugum svo margra. Þetta er skemmtileg sýning og fyndin og ég held að fólk muni skemmta sér virkilega vel ekki síst börnin." Er ekki erfitt að hugsa til þess að eftir alla þá vinnu sem lögð hef- ur verið í sýninguna verði hún að- eins sýnd þrisvar sinnum? „Jú, það er dálítið erfitt. Sérstak- lega vegna þess að þá hefur sýning- in svo fá tækifæri til að spyijast út. Ef fólk verður hrifið á frumsýn- ingu hefur það aðeins einn dag til að koma þeirri hrifningu á fram- færi við aðra sem fengju þá áhuga á að sjá sýninguna. En ég vona að verkið verði tekið upp aftur á næsta vetri.“ FB ■ GRÆN hátíð verður haldin í Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3, 19.-23. júní nk. Þar gefst innflytj- endum og framleiðendum kostur á að kynna fyrir neytendum vörur sem framleiddar eru úr skaðlausum efnum. Mikil umræða hefur átt sér stað um umhverfismál að undanf- örnu og athygli fólks hefur verið vakin á brýnni nauðsyn þess að breyta umgengni okkar við móður jörð og draga úr mengun. Við vitum að mörg þau efna, sem við notum dags daglega, m.a. til heimilisnota, skaða umhverfið. Samfara þeirri vitundarvakningu í utnhverfismál- um sem átt hefur sér stað í heimin- um er nú farið að framleiða ýmsar þær vörur úr skaðlausum efnum. Efnt er til grænnar hátíðar í Hlað- varpanum í þeirri vissu að fólk sé tilbúið að snúa sér að þeim vörum sem skaðlausar eru og gefst fram- leiðendum og innflytjendum þar kostur á að kynna þessar vörur framtíðarinnar sem fáanlegar eru hér á landi og almenningur getur beint kaupum sínum að í fram- tíðinni. Aðaláhersla verður lögð á vörur til daglegra nota sem skað- lausar eru umhverfinu. Mætti nefna alls konar vörur til hreingerninga, þvottaefni, sápur og ýmsar endur- unnar vörur. Aðstandendur hátíðarinnar vænta þess að þeir sem framleiða eða flytja inn umhverfishollar vörur noti þetta tækifæri til að koma þeim á framfæri. (Úr fréttatilkyimingu) Sparileiðir íslandsbanka eru fyrir fólk sem fer sínar eigin leiðir í sparnaði! Þú velur þá Sparileiö sem er sniöin aö þörfum þínum og aöstœöum. Sparileiö 1,2 og 3, hvaöa leiö velur þú? o Leiöarvísir liggur frammi á öllum afgreiöslustööum bankans. ISLANDSBANKI -í takt við nýja tíma! Sparileiðir íslandsbanka - fyrir fólk sem fer sínar eigin leiðir í spamaði! .< (/) g r T “ - • 5 K TT s.a c -r 'g'g 'E S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.