Morgunblaðið - 13.06.1990, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.06.1990, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990 Hilmar Guðlaugsson: Bygfgmg Ráðhúss eít irminnilegasta málið HILMAR Guðlaugsson, Sjalfstæðisflokki, hefur venð aðalfulltrui í borgarstjórn frá 1982 en verður varafulltrúi á kjörtímabilinu sem nú er að hefjast. Hann segir, að bygging Ráðhúss sé eittlivert eftir- minnilegasta málið, sem fjallað hafi verið um á síðasta kjörtímabili. Hilmar hefur gegnt formann- sembætti í byggingarnefnd Reykjavíkurborgar og segir hann að bygging Ráðhúss Reykjavíkur sé sér hvað eftirminnilegust af þeim málum, sem fjallað hafi verið um á síðasta kjörtímabili, en §öl- mörg önnur mál megi nefna. „Eft- ir að við sjálfstæðismenn tókum við völdum af vinstri mönnum 1982,“ segir hann, „þurfti tíma ti! að koma ýmsu hjá borginni á rétt- an kjöl. Frá 1986 höfum við hins vegar haft betra tækifæri til að koma ýmsum stefnumálum okkar í framkvæmd og má þar nefna lóðamálin. Þar hefur sú breyting orðið, að nú er nægt framboð af lóðum.“ Hann nefnir einnig að fækkun borgarfulltnia úr 21 í 15 hafi verið af hinu góða; það hefði þurft átak til, en kerfið hafi orðið miklu skil- virkara að því loknu. Hilmar sat í 12. sæti framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins við borg- arstjórnarkosningamar í vor og verður því varamaður á komandi Bjaroi P. Magnússon, fráfarandi borgarfúlltrúi Alþýðuflokks, seg- ist ekkert geta um það sagt hvort hann taki áfram þátt í borgar- málapólitíkinni. Hér kveður hann Árna Sigfússon, borgaríúlltrúa Sjálfstæðisflokksins að loknum síðasta fnndi fráfarandi borgar- stjórnar í gær. Hilmar Guðlaugsson. kjörtímabili. Hann mun því sitja áfram í borgarstjómarflokki sjálf- stæðismanna og segist vona, að kraftar sínir nýtist þar áfram. Jóna Gróa Sigurðardóttir: Samstarf borg'arimiar við Háskólann minnisstætt JÓNA Gróa Sigurðardóttir, Sjálfstæðisflokki, lét af störfum sem aðalmaður í borgarstjórn á fimmtudaginn. Hún sat í ellefta sæti framboðslista Sjáifstæðisflokksins við kosningarnar og verður því fyrsti varamaður flokksins á því kjört ímabili, sem nú er að liefjast. Jóna Gróá var formaður atvinnu- málanefndar Reykjavíkur á síðasta kjörtímabili. Hún segir að við lok þess sé sér efst í huga það sam- starf sem tekist hafí milli borgar- innar og Háskóla Islands, til dæm- is varðandi byggingu Tæknigarðs og Líftæknihúss. Borgin hafi verið afar opin fyrir þróunarstarfi í at- vinnumálum. Jafnframt hafi orðið mikil umskipti í þjónustu við aldr- aðra með uppbyggingu þjónustu- miðstöðva. Ólíklegt að ég verði virkur varamaður MEÐAL þeirra borgarfúlltrúa sem hættu sem aðalmenn í borgar- stjórn nú á fimmtudag er Bjarni P. Magnússon, Alþýðuflokki. Bjarni sat í þriðja sæti framboðslista Nýs vettvangs við kosningarnar i vor en segir nú að ólíklegt sé að hann verði virkur varamaður á kom- andi kjörtímabili. Bjarni P. Magnússon segir að hann muni sakna þess tíma, sem hann hafí setið í borgarstjórn. Hann hafi haft gaman af því og seta hans þar hafi vonandi orðið einhveijum að gagni. Bjarni segist sakna þess að Al- þýðuflokkurinn eigi nú ekki lengur sem slíkur fulltrúa í borgarstjórn en segir að tilraunin, sem gerð hafi verið með framboði Nýs vett- vangs, hafí verið nauðsynleg og reynslan af henni muni gagnast Alþýðuflokknum á næstu árum. Aðspurður sagðist Bjami telja ólíklegt að hann verði virkur vara- maður á komandi kjörtímabili. „Eins og stendur er ég atvinnulaus stjórnmálamaður og get ekkert > sagt um það hvort ég verð áfram í borgarmálapólitíkinni," segir hann. Jóna Gróa Sigurðardóttir. Hún segir að á kjörtímabilinu hafi mikil gróska einkennt störf meirihluta borgarstjórnar og í þeim hópi hafi ríkt mikill einhugur og samstarf verið gott. „Auðvitað hefði ég gjarnan viljað að Sjálf- stæðisflokkurinn fengi 11 fulltrúa í kosningunum en við því var varla hægt að búast. Þó að svo hafi ekki farið reikna ég með því að halda áfram í borgarmálunum enda er ég fyrsti varamaður flokksins," segir Jóna Gróa Sigurðardóttir. EINDAGI STAÐGREIÐSLUFJÁR ER 15. HVERS MÁNAÐAR e»6-SE0'^ — 0910M- GOOVft'. 700 Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar. Munið að gera skil tímanlega! RSK RÍKISSKATTSTJÓRI —-rr-- ■—r Brussel; Sendiráði íslands skipt Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. UM síðustu mánaðamót var greint á milli fastanefndar íslands hjá Atlantshafsbandalaginu (NATO) og sendinefndarinnar hjá Evrópu- bandalaginu (EB), sem jalúframt er sendiráð íslands í Belgíu og Lúxemborg. Sverrir Haukur Gunnlaugsson tók við sendiherraemb- ætti hjá NATO en Einar Benediktsson verður sendiherra við Evrópu- bandalagið og í Belgíu og Lúxemborg. Fram að árslokpm 1986 var aðsetur sendinefndar Islands við EB og sendiráðsins í Belgíu og Lúxemborg í höfuðstöðvum NATO. Það fyrir- komulag olli margvíslegum óþæg- indum, m.a. vegna þess að sendiráð- ið var inni á öryggissvæði NATO sem torveldaði aðgang almennings að sendiráðinu. í desember 1986 opnaði þáveraiidi utanríkisráðherra, Matthías Á. Mathiesen, sérstaka skrifstofu fyrir sendiráð íslands í Lúxemborg og Belgíu og sendi- nefnd' íslands við EB í nágrenni við höfuðstöðvar EB í Brussel. Eftir sem áður gegndi einn sendiherra ' bæði NATO og EB. Vaxandi sam- skipti íslendinga við Evrópubanda- < lagið og samningaviðræður fríversl- unarbandalags Evrópu (EFTA) við EB þykja hafa gert það að verkum að einum manni sé ekki_ ætlað að sinna báðum embættum. í sendiráði Islands við EB starfa sex manns, auk sendiherra eru þrír embættis- menn og tveir ritarar. Við sendiráð- ið er nýráðinn viðskiptafulitrúi, Tómas Oli Jónsson, sem áður gegndi sama embætti í Frankfurt í Þýskalandi. I fastanefndinni í NATO verðut' fyrst um sinn fækkað um einn starfsmann. Þar verður auk sendi- herra einn embættismaður. Róbert Trausti Árnason sem þar hefur starfað verður skrifstofustjóri varn- armálaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins. Eðlilegl að afiiema láns- kjaravísitöluna í áfóngnm * - segir Olafur Ragnar Grímsson ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fjárrnálaráðlierra, segisl telja eðlilegt að afnema lánskjaravísitöluna í áfóngum. Fyrsta skrefið yrði að af- nema lánskjarabindingu ijárskuldbindinga til skemmri tíma en þriggja eða þriggja og hálfs árs, en viðhalda henni á lengri lánum. Ráðherrann telur, að til þessa geti komið síðar á þessu ári. „Ég hef talið eðlilegt að afnema lánskjapvísitöluna i áföngum," segir Ólafur Ragnar. Hann segir að samhliða aukinni aðlögun Islend- inga að alþjóðlegum fjármagns- mörkuðum sé eðlilegt að afnema vísitöluna en forsenda slíkrar breyt- ingar sé sá stöðugleiki í efnahagslíf- - inu; -sem ha.fi verið- að- skaþast-að undaníörnu. Hann segist sannfærður um að stöðugleikinn haldist ef rétt verði haldið á málum og seinna á þessu ári geti verið eðlilegt að afnema lánskjarabindingu fjárskuldbind- inga til skemmri tíma en þriggja eða þriggja og hálfs árs. i i * í í * iiil Íiíi i'iiií i í i i ii i i i i í i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.