Morgunblaðið - 13.06.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990
17
Ruslatína úr end-
urunnu plasti
PLASTPRENT hf. hefur að frumkvæði Náttúruverndarfélags Suð-
vesturlands hafið framleiðslu á svokallaðri ruslatínu. Ruslatínan
samanstendur af tveimur sorppokum, fjóruin minni ruslapokum
með handfangi og einu pari af einnotahönskum og er hönnuð með
það fyrir augum að auðvelda fólki að tína rusl fyrirvaralítið, eink-
um úti í náttúrunni.
Að sögn Einars Egilssonar,
formanns Náttúruverndarfélags
Suðvesturlands, hafa göngumenn
í ferðum félagsins oft saknað þess
að hafa ekki við hendina hentugan
útbúnað til að tína upp það rusl
sem á vegi þeirra hefur orðið.
Stjórn félagsins hafi því komið
þeirri hugmynd á framfæri við
Plastprent hf. að fyrirtækið fram-
leiddi plastpoka í hentugum um-
búðum til þessara nota.
Plastprent hefur nú hafið fram-
leiðslu ruslatínunnar og er hún
gerð úr plastefni sem unnið er úr
svonefndu pólýethylíni, sem eyðist
fyrr i náttúrunni en önnur plast-
efni og er ekki skaðlegt umhverf-
inu. Plastið sem notað er í ruslatín-
una er endurunnið.
KAUPLAGSNEFND hefur
reiknað vísitölu framfærslu-
kostnaðar miðað við verðlag í
júníbyrjun 1990. Vísitalan í júní
reyndist vera 145,4 stig eða
0,7% hærri en í maí.
Af einstökum verðhækkunum má
nefna að 4,2% hækkun á bensín-
verði 1. júní sl. olli um 0,2% hækk-
un og 5,2% verðhækkun á utan-
landsferðum olli um 0,2% hækkun
á vísitölunni. Verðhækkun ýmissa
annarra vöru- og þjónustuliða olli
alls um 0,3% hækkun á vísitölu
framfærslukostnaðar en verð á
matvöru hélst óbreytt.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 15,5%. Undanfarna
þijá mánuði hefur vísitalan hækk-
að um 1,9% og jafngildir sú hækk-
un um 7,8% verðbólgu á heilu ári.
Samningavið-
ræður um
neftidarkjör
Fulltrúar minnihlutaflokk-
anna í borgarstjórn Reykjavík-
ur áttu fund á mánudaginn um
samstarf í neíhdarkjöri. Engin
niðurstaða fékkst og heftir ann-
ar fundur verið boðaður í dag,
miðvikudag.
Á fyrsta fundi nýrrar borgar-
stjórnar þann 21. júní verður ko-
sið í nefndir. Flestar málaflokka-
nefndirnar eru 5 manna og þar á
Sjálfstæðisflokkurinn örugga 3
fulltrúa en minnihlutaflokkarnir
1. Semjist ekki um annað milli
fylkinga mun hlutkesti ráða hvort
meirihluti eða minnihluti borgar:
stjórnar fær fimmta fulltrúann. I
þeim nefndum sem borgin skipar
2 fulltrúa í, á Sjálfstæðisflokkur-
inn öruggan annan fulltrúann en
hlutkesti gæti ráðið hinum.
Bensín og
utanlands-
ferðir hækka
vísitöluna
fyrir þig og þína
Leiðrétting'
Heiti Hálshrepps í Suður-Þing-
eyjarsýslu misritaðist í frásögn af
úrslitum hreppsnefndakosninganna
í Morgunblaðinu í gær. Hreppurinn
var ranglega skrifaður Hólshrepp-
ur. Þá misritaðist nafn Þorsteins
Rútssonar sem hlaut kosningu í
Öxnadalshreppi í Eyjafjarðarsýslu.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinu*m!
Morgunblaðið/Sverrir
Ruslatína Plastprents var kynnt fyrir fjölmiðlum á mánudaginn.
Sýndu þeir Júlíus Sólnes umhverfisráðherra og Steingrímur J. Sigfús-
son landbúnaðarráðherra hvernig nota ætti hana og hreinsuðu hluta
fjörunnar í Helguvík á Álftanesi. Á bak við ráðherrana stendur
Eggert Hauksson stjórnarformaður Plastprents.
■ HELGI Agústsson sendiherra
afhenti hinn 1. júní þ.m. Ibrahim
Babangida forseta Nígeríu trúnað-
arbréf sitt sem sendiherra íslands
í Nígeríu með aðsetri í Lundúnum.
Stig af stigi
settu marki með
Trompbók
Fyrir þá sem stig af stigi, en ákveðið, keppa að
settu marki, með því td. að leggja eitthvað
fyrir mánaðarlega, er Trompbókin einn besti
sparnaðarkostur sem völ er á.
Sparisjóðirnir hafa ávallt að leiðarljósi að hags-
munir viðskiptavinanna og sparisjóðanna fari
saman. Trompbókin er ávöxtur þessarar stefnu.
SPARISJÓÐIRNIR
Trompbókin er óbundin og jafnan opin til
úttektar. Hægt er að fara með hana í hvaða
sparisjóð á landinu sem er og leggja inn eða
út eftir þörfum.
IffiP