Morgunblaðið - 13.06.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.06.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990 Sjáðu! Lækkað verð kr 1041 á framköííun 24 mynda filmu Afsiættir á framköííun 1 filma 5% 3-9 filmur 10% 10-14 filmur 15% 15 eða fleiri 20% Sendum í pósíkröfu. LjOSMYNDA HÚSID Dalshrauni 13 Hafnarfirði sími 91-53181 HEYRNAHLIFAR OG HEYRNATÓL Gæði og öryggi Skeifan 3h - Sími 82670 STÝRILIÐAR SEGULRQFAR YFIRALAGSVARNIR STJORNUÞRI- HYRNINGSROFAR TIMALIÐAR ROFAHUS gæöi Hagstættverö = HÉÐINN = VELAVERSLUN, SIMI 624260 LAGER-SÉRRANTANIR-WÓNUSTA Fjallið eina og upp- runi byggingarlistar eftir Gunnar Dal Neyðin skapaði fyrsta hreysið en trú mannsins skapaði hina fyrstu byggingarlist. Hið fyrsta hús er upphaf að nýj- um stóráfanga í sögu mannsins. Fram til þess tíma að hús eru gerð lifir maðurinn aðeins í hinum nátt- úrulega heimi. Þá er maðurinn al- gerlega háður náttúruöflunum og verður að berjast við þau eins og dýrin. Hús verður til af þörf eða öllu heldur neyð. Þegar menn héldu í norður nær jöklinum þurftu menn líka skjól til að sofa í. í kaldara loftslagi þörfnuðust menn líka stað- ar til að elda mat og nærast, skjól með veggjum og þaki og ljósopi eða vindauga. Menn byggja fyrst úr grjóti eða torfi, síðar úr timbri og tígulsteinum. Og loks úr jámi, stáli og steypu. Eftir að hús verða til fer maður- inn að lifa í tveimur heimum. Hann fer að lifa bæði í hinum náttúrulega heimi og í heimi mannsins. Hann byijar, með hinu fyrsta húsi, sjálfur að skapa umhverfi sitt. Byggingarlist hófst í Mesapót- amíu í byrjun borgarmenningar. Fyrsta musterið sem vitað er um var í Abú Shahrain, hinni fornu Erdu. Síðar voru þar mörg musteri reist. Þeir sem byggja þessi fyrstu musteri koma norðan úr fjöllunum. Þar var siður að líta á há fjöll sem helgidóma. Þau voru guðshús, bú- staðir guða. Byggingarlist á rætur í þessari ævafornu fjallatrú. Ljóðið eða goðsögnin um fjallið eina, fjall- ið Meru, gæti hugsanlega verið upphaf byggingarlistar. Þegar fólk- Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd stofiiuð SJÁLFBOÐALIÐASAMTOK um náttúruvernd voru stofiruð sl. vor. Samtökin skipuleggja vinnuferðir á friðlýst svæði og önnur svæði sem eru sérstæð að náttúrufari. Oftast er unnið í samvinnu við Náttúruverndar- ráð en einnig Ferðafélag fs- lands og fleiri aðila sem hafa umsjón með svæðum. MIKIL vakning hefur orðið á sviði umhverfismála hér á landi á síðustu mánuðum. Fólk vill gjam- an taká til hendinni, bætá um- bverfi sitt og vinna náttúrunni gagn. Tilgangur starfs sjálfboða- liðasamtakanna er sá að vemda náttúruna og auðvelda fólki að- gang að henni, einnig að veita fólki tækifæri til að vinna að nátt- úmvernd í góðum félagsskap. Ferðir og gisting er ókeypis í þessum ferðum. Bryti hópsins sér um matarinnkaup og síðan er kostnaðinum skipt á milli þátttak- enda. Umsjónaraðilar svæðanna sem unnið er á sjá oftast fyrir fríum ferðum og húsaskjóli, en Pokasjóður Landvemdar og fleiri aðilar hafa einnig styrkt þessa starfsemi. Á uppstigningardag, 24. maí, var unnið við Kerið í Grímsnesi. Þangað kemur ógrynni ferða- manna hvert sumar. Áfleiðingam- ar af því em augljósar því þar sem áður voru berjabrekkur, að sögn heimamanna, er nú gróðurlaust. Það var því mjög aðkallandi að afmarka göngustíga og hjálpa gróðrinum með áburði og þöku- lagningu. í þessari ferð unnu 20 manns og var vinnugleðin mikil. Fimm aðrar ferðir em fyrirhug- aðar í sumar. 13.-17. júní verða gerðir stígar í Valahnúk í Þórs- mörk, 13.-15. verða gerðir stígar við Skógafoss, 27.-30. júlí verður farið á Búðir á Snæfellsnési, 17.-19. ágúst verða stikaðir vega- slóðar í Hrafntinnuskeri og 29.-30. september verður farið í Alviðru. Þeir sem áhuga hafa á að kynn- ast þessari starfsemi nánar geta fengið upplýsingar á skrifstofu N áttúraverndarráðs. (Fréttatilkynning) Sjálfboðaliðar unnu við Kerið í Grímsnesi á uppstigningardag, 24. maí sl. ■ AÐALFUNDUR samtakanna Lífsvon var haldinn í safhaðar- heimili Seltjarnarneskirkju fímmtudaginn 10. maí sl. Hulda Jensdóttir ljósmóðir og fyrrum for- stöðukona Fæðingarheimilis Reykjavíkur, sem verið hefur for- maður samtakanna frá upphafi gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Stjórn samtakanna er nú skipuð á þennan veg: Gunnar Þorsteinsson for- stöðumaður er formaður. Aðrir í stjórn em sr. Guðmundur Orn Ragnarsson farprestur, Jóhann Philips sérum lýsinguna Opinber stuðningsaðili HM 1990 Pétur Sveinsson lögfræðingur, Ólafur Ólafsson húsvörður og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur. Varamenn em Hrafn Haraldsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir og Hulda Jens- dóttir. Samtökin Lífsvon eru sam- tök til vemdar ófæddum börnum vom formlega stofnuð 13. apríl 1985 og eru því fimm ára um þess- ar mundir. Eins og nafnið ber með sér er tilgangur félagsins að standa vörð um ófædd börn hér á landi. Til þess að vinna að þeim tilgangi, hafa samtökin einkum einbeitt sér að þremur þáttum í starfí sínu. í fyrsta lagi að upplýsa fólk um það hvað bam í móðurlífi er. í öðm lagi að veita þeim foreldrum aðstoð, sem eiga í erfiðleikum vegna þungunar. í þriðja lagi að vinna að því að breyta núverandi löggjöf um fóstur- eyðingar, barninu í hag. (Úr fréttatilkynningv) ið fluttist úr fjöllunum á sléttlendið í Suður-Mesapótamíu hafði það ekkert fjall lengur til að tilbiðja sem bústað guðs. Það ákvað þess vegna að byggja slíkt fjall. Niðurstaðan varð bygging Ziggurata eða stallapíramída. Og „teikningin" sem þessi mannvirki eru sennilega byggð eftir er ljóðið eða goðsagan um fjallið Meru. Áð vísu er sagan eins og hún birtist í bók miklu yngri. En það er mjög sennilegt að goðsagan um fjallið eina hafi varð- veist lengi í munnlegri geymd. Fjall- ið eina, Meru, er í þessari goðsögn eins og stallapíramídi, en efst var hvelfing. í þessu fjalli voru margir heimar guða og manna. Það var að sögn þrisvar sinnum hærra en hæstu fjöll jarðar. Það var hálft á himnum og hálft í jörðu. Hinar fjór- ar hliðar þess voru alsettar gim- steinum. Ein hliðin, sú sem sneri að mannheimi, var úr saffímm. Þess vegna er himinninn blár. Önn- ur hliðin var úr rauðum rúbínstein- um. Hinar tvær úr gulum og hvítum eðalsteinum. Elstu musterin virðast vera eftirlíkingar af þessu goðsögu- lega fjalli. Hliðar musteranna voru meira að segja gerðar úr ótöluleg- um grúa af lituðum steinum. Og áhrifm frá þessari byggingarlist hafa borist víða. Babelsturninn var ziggurati eða þrepapíramídi. Um þessi þrep gengu guðir og englar niður til manna og hinir trúuðu gátu um síðir gengið upp þrepin til himna. Jakobsstiginn sem sonar- sonur Abrahams gekk var ziggur- Gunnar Dal „Eftir að hús verða til fer maðurinn að lifa í tveimur heimum.“ ati. Hin fyrsta byggingarlist er þannig bæn mannsins um samband við guð og annan heim. Hinir fyrstu píramídar Egyptalands voru stallapíramídar, stæling á þessari fyrirmynd. Bæði indversk bænahús og kristnar dómkirkjur líkjast þessu fyrsta guðshúsi. Það kann að virð- ast mikillæti hjá manninum að hann telji sig geta byggt hús handa skap- ara alheimsins. En í raun og veru er þetta sterk og einlæg bæn um návist guðs. Og í þá bæn lagði hinn forni trúmaður aJlt hugvit sitt og alla krafta sína og færði stórar fórn- ir til þess að bæn hans yrði heyrð. Höfundur er rithöfundur. AÐ ÞORA eftir Árna Helgason Aldrei verð ég svo gamall, að ég gleymi mínum góða vini og sýslu- manni, þegar hann, er ég kom til starfa hjá honum, fékk mér lyklana að fjárhirslunni og bað mig að gæta þeirra vel. Hann vissi það og sagði að ef menn færu að taka lán til daglegs brúks úr sjóði, sem þeim Væri trúað fyrir, gæti orðið erfitt að greiða það til baka. Er þetta ekki það sem við bind- indismenn og aðrir vinir fólksins úm ailan heim höfum verið að benda á? Þeim mun nær sem freistingin er, því meiri er hættan. Þetta skilja jafnvel bömin, þótt þeir, sem þykj- ast hafa vit, skilji það ekki. Mér er nefnilega óskiljanlegt, þegar fólk, sem telur sig með fullu viti og réttu ráði, álítur það til góðs fyrir heimabæ sinn að koma brennivíni eins nálægt fólki og mögulegt er. Þá er sums staðar enn meiri samstaða en þegar nauðsyn er átaka til að koma upp atvinnu- tækjum. Ótrúlegt er, að menn telji, að stofnanir, sem selja vímuefni, geti verið bjargráð bæja. Fólk ætti að vita, að íbúar bæja, þar sem þessi ófögnuður hefur verið til önd- vegis leiddur, hafa séð. ýmislegt misjafnt og ófagrar afleiðingar, sem þeir bjuggust ekki við. En menn loka augum og sletta í góm og fjasa um ammóníak, sem engan hefur drepið undanfarin ár, en þegja um áfengi, sem veldur ótímabæmm dauða margra tuga Islendinga ár- lega. Við síðustu kosningar fengu íbú- ar fimm bæja að greiða atkvæði um, hvort þeir vildu áfengisútsölu í byggðarlag sitt eða ekki. Fjórir opnuðu dymar. Einn ekki. Ég hefi heyrt, að þar hafi sóknar- presturinn, ásamt formanni áfengisvamamefndar og öðru góðu fólki, gengið fram fyrir skjöldu. Þökk sé þeim sem þora að gefa gott fordæmi og hafa vit fyrir fjöld- anum. En hvemig skyldi það hafa verið á hinum stöðunum? Hvað skyldu Árni Helgason „Ég hefi heyrt, að þar hafi sóknarpresturinn, ásamt formanni áfengisvarnarnefiidar og öðru góðu fólki, gengið fram fyrir skjöldu. Þökk sé þeim sem þora að gefa gott fordæmi og hafa vit fyr- ir §öldanum.“ Guðs útvaldir hafa gert þar? Ég heyrði einu sinni prest segja, að þeir gerðu allt fyrir fólkið. Ég minnti hann á Krist og boð hans. Lengri varð samræðan ekki. Hvað segir kirkjan? Hvemig stendur á að þar er ekki unnið gegn þessu ægilega böli; ég meina á borði ekki bara í orði. Ég er að átta mig æ betur á því sem séra Árni sagði í ævisögu sinni: „Eitt það ljótasta, sem ég heyri sagt um prest, er það, að hann hafi verið vel liðinn af sóknarbörn- um sínum.“ Ilöfundur er fyrrv. símstöðvarstjóri í Stykkishólmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.