Morgunblaðið - 13.06.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JUNI 1990
18
Yfirgangsklúður í skipulags-
málum hjá Reykjavíkurborg
eftir Krisiján
Loftsson
Að óska eftir breytingu á stað-
festu aðalskipulagi er varla daglegt
brauð hjá sveitarfélögum. Ef til
þess þarf að koma þá hljóta rökin
fyrir nauðsyn breytingarinnar að
vera mjög sannfærandi, þannig að
Skipulagsstjórn ríkisins og félags-
málaráðherra fallist á þær.
I því tilviki sem hér verður fjallað
um er farið fram á að breyta Aðal-
skipulagi Reykjavíkur svo koma
megi fyrir húsi er hýsa skuli versl-
anir og íbúðir á lóðunum Hátún 6a
og 6b. Þessi bygging er fyrirhuguð
sem sjálfstætt hús ogjtekkert sam-
eiginlegt með þeim byggingum sem
fyrir eru á reitnum og mætti því
eins reisa hana hvar sem er í borg-
inni. Rök stjórnenda Reykjavíkur-
borgar fyrir því að fara fram á
breytingu á Aðalskipulagi
Reykjavíkur vegna þessarar fyrir-
huguðu byggingar’ hef ég engin
séð. Hér um að ræða hinn mesta
yfirgang þeirra er voru í forsvari
fyrir skipulagsnefnd Reykjavíkur-
borgar og byggingarnefnd
Reykjavíkurborgar síðasta
kjörtímabil. Þeir er þar stjórnuðu
ferðinni hafa komið þessu tiltekna
máli í algert klúður. Þeir hafa virt
að vettugi ítrekaðar athugasemdir
frá þeim er búa í næsta nágrenni
við þessa fyrirhuguðu framkvæmd.
■ Skipulagslög eru sett til að hafa
einhveija stjórn á byggingarmálum
í sveitarfélögum landsins, en ekki
síður til þess að vernda einstakling-
inn fyrir yfirgangi kjörinna stjórn-
valda borga og bæja. Er fólk kaup-
ir eða byggir fasteignir á tilteknum
stöðum gerir það það í góðri trú
og reiknar með að eitthvað sé að
marka staðfest aðalskipulag og
hvað þar stendur um næsta ná-
grenni.
Það tilvik sem er tilefni þessara
skrifa er áreiðanlega skólarbókar-
dæmi um hvernig ekki skuli staðið
að úthlutun lóða og um hringlanda
með nýtingu lóða. Hér er ekki
mögulegt að rekja þá sögu, en hvað
varðar byggingu þá sem hér er til
umræðu hafa byggingarfram-
kvæmdir hafist með alveg furðuleg-
um hætti. Byggingarleyfi er úthlut-
að á reit sem hvergi nærri hafði
nýtingarhlutfall til að rýma bygg-
inguna. Þetta gerist þrátt fyrir
ábendingar íbúa í næsta nágrenni
að undangenginni grenndarkynn-
ingu, sem íbúar urðu að þvinga
fram. Var blásið á allar ábendingar
og framkvæmdir leyfðar af bygg-
ingarnefnd Reykjavíkurborgar.
Hófst þá strax bygging umrædds 5
hæða húss og hélt áfram þar til
félagsmálaráðherra felldi bygging-
arleyfið úr gildi sbr. bréf dags. 16.
janúar 1990, vegna mótmæla íbúa
í næsta nágrenni. Með tilkomu þess-
arar nýbyggingar hefði aukning á
nýtingu á þessum reit orðið um 76%
umfram það sem Aðalskipulag
Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir.
Til að bæta úr þessu reyndi
Reykjavíkurborg skemmri skírn,
sem skipulagslög heimila, til að fá
Aðalskipulagi Reykjavíkur breytt.
Því hafnaði Skipulagsstjórn ríkis-
ins.
Því næst er auglýst breyting á
Aðalskipulagi Reykjavíkur hvað
varðar nýtingu á þessum tiltekna
reit. Enn mótmæla íbúar í næsta
nágrenni því aukna byggingar-
magni sem auglýst reitanýting
gæti haft í för með sér. Meirihluti
skipulagsnefndar Reykjavíkurborg-
ar gerir lítið úr þessu væli íbúanna
og leggur til við borgarráð að aug-
lýst breyting á nýtingu reitsins
verði samþykkt.
Borgarráð samþykkti þessa til-
lögu skipulagsnefndar en samþykk-
ir jafnframt að lækka umrædda
byggingu um eina hæð.
Þannig verður málið sent til
Skipulagsstjórnar ríkisins og fé-
lagsmálaráðherra til samþykktar.
Hápunktur ósvífhinnar
Kem ég nú að hápunkti ósvífn-
innar eins og ég sé fyrir mér fram-
haldið. Verði þessi nýting á reitnum
samþykkt eins og Reykjavíkurborg
leggur til gefur hún möguleika á
byggingarmagni sem er margfalt
meira en upphafleg bygging átti
að vera. Þannig er auðsjáanlega
verið að slá ryki í augu fólks með
því að samþykkja að lækka bygg-
inguna um eina hæð nú.
Það er vegna þess að samþykki
Skipulagsstjórn ríkisins og félags-
málaráðherra breytingu þá á Aðal-
„Það tilvik sem er tilefni
þessara skrifa er áreiðan-
lega skólabókardæmi um
hvernig ekki skuli staðið
að úthlutun lóða og um
hringlanda með nýtingu
lóða.“
skipulagi Reykjavíkur sem borgar-
stjórn leggur til, þá er það spá mín
að skipulagsnefnd Reykjavíkur-
borgar muni að ekki mörgum miss-
erum liðnum samþykkja hækkun
umræddrar byggingar um eina hæð
eða guð má vita hvað margar hæðir.
Til hvers er verið að hafa skipu-
lagslög?
Þau eru ekki til að tryggja hinn
almenna borgara ef svona yfirgang-
ur nær fram að ganga, það er alveg
klárt.
Skora ég á Skipulagsstjórn ríkis-
ins og félagsmálaráðherra að hafna
alfarið þessari breytingu á aðal-
skipulagi Reykjavíkur. Með því
móti gætu íbúar Reykjavíkurborgar
átt von á að einhver skikkur kæm-
ist á þessi mál en þetta tiltekna
Kristján Loftsson
mál mun, að því er mér er tjáð,
ekki vera neitt einsdæmi.
liöfundur er frumkvæmdastjóri og
býrenn íHátúni 35.
V:
mt
Daihatsu Charade Sedan er rúmgóður 5 manna fjölskyldubíll með sérstaklega
«
^ stóra farangurssevmslu (288 lítra) sem mjög auðvelt er
Nýr,
stærri
°g
kraftmeiri
að hlaða. Hann er búinn nýrri kraftmikilli 4ra
strokka, 1 6 ventla 1.3 lítra, 90 hestafla vél með
beinni innspýtingu. Þessi vél gerir bílinn bæði
auðveldan og skemmtilegan í akstri hvort sem
hann er með beinskiptingu eða sjálfskiptingu. Sparneytni or haRkvæmni í
rekstri undirstrika svo kosti Charade Sedan sem hins fullkomna fjölskyldubíls.
Ótrúlega hagstætt verð
Daihatsu Charade Sedan SG
5 gíra kr. 767.000 stgr. á götuna.
Sjálfskiptur kr. 829.000 stgr. á götuna.
Komið og reynsluakið kraftmiklum Charade Sedan
Brimborg hf.
Faxafeni 8 • Sími 685870