Morgunblaðið - 13.06.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990
21
Morgunblaðið/Emilía
Aðstandendur Rokkskógarátaksins kynna fyrirhugaða söfnun á
blaðamannafundi i Laxfossi.
Tónleikar um allt land
til styrktar skógrækt
ÞETTA ár hefur verið helgað skógræktarátakinu Landgræðsluskógar
1990 og leggja þar raargir hönd á plóg. Meðal þeirra eru rokk- og
poppsöngvarar og hljómsveitir og 15. til 16. júní verða tónleikar víða
um land þar sem safnað verður fé til kaupa á tijáplöntum, sem gróður-
settar verða í sérstökum skógarreit sem nefndur verður Rokkskógurinn.
Norræn hönnunarsýning:
Islenskt raðhús
vekur athygli
RAÐHUS eltir Guðmund Jónsson, arkitekt, hefur vakið mikla athygli
á norrænni hönnunarsýningu sem nú stendur yftr í Malmö. Sýningunni
er ætlað að kynna það besta í norrænni hönnun á allra síðustu árum.
Hún stendur yfir til 2. september.
Skipulag Rokkskógarátaksins er í
höndum Kristins Sæmundssonar, en
aðilar að því eru Landgræðsluskóg-
ar, Norrænt umhverfisár, Iþrótta og
tómstundaráð, sjálfboðaliðar frá
Vinnskólanum og Ungmennafélag
Islands, og sagði Kristinn að þetta
væri bara byijunin, til stæði að koma
upp rokkskógi í hveijum landshluta
fram til aldamóta.
„í þessu átaki, sem ætlað er að
efla græna hugsun fólks, gera það
meðvitaðra um umhverfi sitt, taka
þátt flestir popp- og rokktónlistar-
menn landsins og munu renna 150
kr. af hveijum seldum miða á ijölda
tón- og dansleikja um land allt 15.
og 16. júní til söfnunarinnar, en há-
punktur hennar verður tónleikar í
Laugardalshöll, þar sem fram munu
koma átta hljómsveitir og söngvarar,
sem gefa sína vinnu að mestu; Sykur-
molamir, Bubbi Morthens, Sálin hans
Jóns míns, Síðan skein sól, Megas
með hljómsveit, Risaeðlan, Bootlegs
og Todmobile. Allur hagnaður af
þeim tónleikum mun renna til söfn-
unarinnar. Til að gera tónleikana í
Laugardalshöll sem veglegasta flytj-
um við inn hljóð- og ljósakerfi frá
Bretlandi. Hljóðkerfið verður 25 kW
og ljósakerfið er gríðarstórt og kem-
ur með því maður að utan til að stýra
því. Höllin verður opnuð kl. 19.30,
og við hana verður sett upp port til
„Ég tek heilshugar undir þá
ákvörðun SÍA að taka ekki þátt
í lesendakönnun á þeim blöðum
og tímaritum sem ekki taka þátt
í upplagseftirliti,“ segir Herdís
Þorgeirsdóttir ritstjóri Heims-
myndar. Eins og blaðið greindi
frá í síðustu viku hefur SÍA, Sam-
band íslenskra auglýsingastofa
og samstarfshópur auglýsenda
neitað þátttöku i lesendakönnun
tímarita sem farið hefur fram
árlega. Vilja auglýsendur með
því knýja forráðamenn blaða og
tímarita sem ekki taka þátt i
upplagseftirliti til að endurskoða
ákvörðun sína.
Heimsmynd og Þjóðlíf eru einu
tímaritin sem þátt taka í upplags-
eftirlitinu, ef undanskilin eru sex
landsmálablöð. Að sögn Herdísar
kaus hún taka þátt í eftirlitinu til
þess að sýna auglýsendum svart á
hvítu að upplagstölur Heimsmyndar
væru réttar.
„Við gagnrýndum það þegar
byijað var að gera lesendakannanir
að aðilar sem ekki taka þátt í upp-
lagseftirfiti skyldu vera með fing-
uma í framkvæmd könnunarinnar,"
segir Herdís. „Að mínu mati eru
þetta tvö óaðskiljanleg tæki, upp-
lagseftirlit og lesendakönnun. Því
verður ekki neitað að auglýsinga-
stofur nýta þessi tæki ekki sem
að gefa gestum kost á að fá sér
ferskt loft, en tónleikarnir hefjast
kl. 20.30 stundvíslega og standa til
2.30,“ sagði Kristinn.
Til að auðvelda unglingum heim-
ferðina verða sex strætisvagnar í
förum eftir tónleikana í öll hverfí
borgarinnar, en einnig verður boðið
uppá ókeypis sætaferðir eftir tónleik-
ana uppá Akranes/Borgarnes, um
Mosfellssveit og austur á Hellu/
Hvolsvöll, en þær ferðir verða tón-
leikagestir að skrá sig í í símum
626451/52.
Forsala aðgöngumiða, en miða-
verðið er valið í tilefni af átakinu,
kr. 1990, hefst í Kringlunni og í
Austurstræti í dag og munu ýmsir
tónlistarmenn troða upp við sölubás-
ana. Til viðbótar við þessa söfnun
verða seld barmmerki, póstkort á
íslensku og ensku og bolir fyrir tón-
leikana og á þeim og í allt sumar.
Ymis fyrirtæki styrkja átakið;
Gott fólk, Eimskip, Flugleiðir, Prent-
húsið, Silkiprent, Geimsteinn,
Smekkleysa, Sanitas, Kringlan,
Kraftlyftingasamband Islands og
PR-búðin.
Markmiðið er að safna fé til kaupa
á 2—300.000 plöntum, til að gera
skóginn veglegan. „Rokkskógurinn
kemur,“ sagði Kristinn Sæmundsson
að lokum.
skyldi.
Það er þó nokkur vísbending að
Heimsmynd er með bróðurpartinn
af þeim auglýsingum sem birtast í
þekktustu tímaritunum. Við þökk-
um það upplagseftirlitinu og vin-
sældum blaðsins," segir Herdís Þor-
geirsdóttir.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Guðmundur að raðhúsið hefði fengið
góðar viðtökur hjá sænskum almenn-
ingi, blaðamönnum og arkitektum
sem skoðað hafa sýninguna. Hann
sagði að hugmyndafræði húsins
byggði á samtali sínu við Snorra
Sturluson. „Snorri kemur í húsið og
spyr hvað hafi orðið um íslenska
byggingarlist frá því hann var
uppi.Ég svara honum með tilvitnun-
um í húsið og smám saman skilur
hann stöðu þess miðað við þróun í
íslenskri byggingarlist. Svo dæmi sé
tekið spyr Snorri af hveiju burstirnar
séu horfnar og ég svara honum því
til að þær hafi orðið til vegna skorts
á löngum tijástofnum en í dag búum
við yfir annarri tækni þ.e.a.s. stáli
sem við getum beygt til að rýmið sé
hæst í miðjunni og lægst á hliðunum
eins og það var í gamla daga.“ Þess
má geta að í húsinu er baðstofa, sem
er að hluta til vetrargarður, og tvö-
faldir veggir í stað gömlu vegghleðsl-
anna. Á milli veggjanna er komið
fyrir lokrekkju, skápum, sturtu og
klósetti,
Að sögn Guðmundar eru allar
fastar tréinnréttingar í húsinu íslen-
skar. Skápar, bókahillur og skrifborð
eru frá GKS og eldhúsinnréttingin
er frá Brúnási. „Fólki finnst innrétt-
ingarnar mjög skemmtilegar," segir
Guðmundur og bætir við að tveir
.skúlptúrar eftir Þórdísi Öldu Sigurð-
ardóttur hafi vakið athygli sýningar-
gesta. Auk þess má nefna þijár rúm-
breiður eftir Helgu Pálínu Brynjólfs-
dóttur, Ingiríði Oðinsdóttur og Björk
Magnúsdóttir. Hlutirnir eru allir sér-
staklega gerðir fyrir húsið.
Af fleiri íslendingum sem eiga
verk á sýningunni í Malmö má nefna
Ásgerði Búadóttur, Jens Guðjónsson,
Leif Breiðfjörð og Jón Snorrason.
Að lokum má geta þess að raðhúsið
er eina húsið, af húsunum fimm á
sýningarsvæðinu, sem birst hafa
myndir af í sænsku tímaritunum
Skön Hem og Form. Sýningarsvæðið
er á fyrrum athafnasvæði Kockums
skipasmíðastöðvarinnar, svokallaðir
Hjálmsbryggju, sem er 400 metra
löng og liggur samsíða lægi „flugbá-
tanna“ sem fara milli Malmö og
Kaupmannahafnar. Auk mannvirkja
á bryggjunni, sem nýtt verða fyrir
sýningar, hafa verið reistir nýir skál-
ar, byggð útisvæði, leiksvið og garð-
ar, götur og torg á svæðinu.
Hún er
metsöíustöngin
ár eftir ár.
Þetta eru
ástæðumar:
Efst er gyllt plexiglerskúla. Gyll-
Ingln er að innan svo hún veðrast
sfður.
\
Ryðfrf snúningsfestlng kemur í
veg fyrir að fáninn vefjist upp á
stöngina.
Stöngin er framieidd af For-
menta í Svfþjóð úr fisléttu trefja-
gleri og er sérstaklega styrkt
fyrir okkar veðurfar.
Frágangur er til fyrirmyndar.
Flagglínufestingin er úr varan-
Iegu nælonefni. Krómaðar kop-
arskrúfur.
Allar festingar eru úr sinkhúðuðu
stáll (galvaniseruðu). Stöngln er
feitanleg.
ísienski fáninn í öllum stærðum á
lager. Einnig þjóðfánar margra
rikja. Aðrir fánar eru sérpantað-
ir. Útvegum augiýsinga- og fyrir-
tækjafána úr spun-poiyester.
Það fer ekki mlkið fyrir fána-
stöng f gjafabréfi.
Skemmtileg gjöf sem fer lítlð
fyrir.
6 metra stðng kr. 26.950- stgr.
7 metra stöng kr. 28.900- stgr.
8 metra stöng kr. 31.500- stgr.
Grandagarðl 2, sfmi 28855, Rvfk.
Framhlið raðhússins.
OPIÐHÚS
I V/ULHO LL
Laugardaginn 16. júní milli kl. 17.00 og 19.00 verð-
ur móttaka í Valhöll, Háaleitisbraut 1, fyrir þá, sem
störfuðu fyrir Sjálfstæðisflokkinn á kjördag í borgar-
stjórnarkosningunum í Reykjavík 26. maí sl.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Lesendakönnun fer ekki fram:
Styð auglýsend-
ur heilshugar
- segir Herdís Þorgeirsdóttir,
ritstjóri Heimsmyndar