Morgunblaðið - 13.06.1990, Page 27
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JUNI 1990
27
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Abyrgð og öryggi
í umferðinni
að lætur nærri að tveir ein-
staklingar missi lífið í mán-
uði hveijum í umferðinni hér á
landi. Skýrslur um umferðarslys
sýna að 25 manns hafa að með-
altali látið lífið á ári hvetju í
umferðinni síðustu tíu árin.
Næstliðið ár tók umferðin 28
mannslíf í 22 umferðarslysum.
Á líðandi ári, sem er tæplega
hálfnað, hafa 13 einstaklingar
þegar látist í umferðinni.
Frá árinu 1972 talið hafa
samtals 458 íslendingar látist í
umferðinni hér á landi. Þetta
er mikið mannfall sem skilur
eftir sig ómældan sársauka og
hefur raskað högum fjölmargra
fjölskyldna.
Skýrslur greina og frá mörg-
um hundruðum umferðarslysa á
ári þveiju, sem leiða til meiri
eða minni meiðsla á einstakling-
um, stundum til ævilangra ör-
kumla. Eignatjón í umferðar-
slysum bliknar í samanburði við
slíkar afleiðingar. Það er engu
að síður mjög mikið og hlutfalls-
lega meira hér en í grannríkjum.
Mikilvægt er að efla fyrir-
byggjandi slysavarnir í umferð-
inni og halda uppi viðvarandi
umferðarfræðslu, bæði í skólum
og fjölmiðlum, ekki sízt í hljóð-
og sjónvarpi. Staðreynd er að
vel skipulagðar upplýsinga- og
áróðursherferðir og viðvaranir
hafa ríkuleg áhrif á vegfarend-
ur, fá þá til að gæta varúðar
og sýna tillitssemi í umferðinni,
sem er máske árangursríkasta
slysavörnin. Síðari tíma löggjöf,
m.a. um notkun bílbelta og
ljósa, hefur og reynzt mikilvæg-
ur varnarþáttur.
Orsakir umferðarslysa eru
margs konar. Þrátt fyrir stór-
átök í vegagerð síðustu áratugi
er trúlegt að vegakerfið hafi
ekki að öllu leyti svarað kröfum
stóraukins bílaflota lands-
manna. Bifreiðaeign Islendinga
jókst verulega næst liðinn ára-
tug. Hún var langleiðina í 138
þúsund ökutæki, það er ein bif-
reið á tæplega tvo einstaklinga,
um síðastliðin áramót. Þó var
síðastliðið ár samdráttarár í
bílaeign okkar. Nýskráning
fólks- og hópferðabifreiða 1989
náði til 6.600 ökutækja saman-
borið við 14.400 árið áður.
Kaupmáttarþróun og skattar á
nýjar bifreiðir höfðu með öðru
þau áhrif að bifreiðaeign lands-
manna minnkaði um rúm 3% á
árinu. Engu að síður stendur
bifreiðaeign landsmanna til þess
að hvergi megi slaka á í nauð-
.synlegri vegagerð og nauðsyn-
legu vegaviðhaldi á næstu
árum. Þetta á ekki sízt við um
þá vegi, sem bera mesta um-
ferðarþungann, eins og veginn
frá höfuðborgarsvæðinu að
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Efla verður viðvarandi rann-
sóknir á orsökum umferðarslysa
hér á landi. Að þeim hefur ver-
ið nokkuð unnið, en betur má
ef duga skal. Rannsóknir af
þessu tagi gera fyrirbyggjandi
slysavarnir markvissari og ár-
angursríkari. Með hliðsjón af
fjölda umferðarslysa, mikilvægi
fyrirbyggjandi varna og hárra
umferðarskatta er meir en rétt-
lætanlegt að gera kröfu á hend-
ur ríkisvaldinu um fjármögnun
nauðsynlegra rannsókna af
þessu tagi.
Á sl. ári nam innheimta
benzíngjalds og ‘ þungaskatts
rúmlega fjórum milljörðum
króna og hækkar skattheimtan,
samkvæmt fjárlögum, enn á
þessu ári. Skýrsla samgöngu-
ráðherra um framkvæmd vega-
áætlunar 1989 sýnir að benzín-
gjald skilaði 2.945 m.kr. og
þungaskattur 1.135 m.kr. í
vegasjóð. Af þessari fjárhæð tók
ríkissjóður til sín 530 m.kr. Að
auki hefur ríkið drjúgar tekjur,
tengdar umferðinni, í aðflutn-
ings-, virðisauka-, eigna- og
tekjusköttum. Það er því eðli-
legt að til þess séu gerðar
nokkrar kröfur um vegakerfið
og umferðaröryggi í landinu.
En fyrst og síðast verðum við
öll að gera kröfur til sjálfra
okkar um fyrirbyggjamh slysa-
varnir í umferðinni. Ábyrgð
ökumanna og raunar allra ann-
arra, sem leið eiga um vegi
þéttbýlis og stijálbýlis, er mikil.
Þar um tala slysin skýru máli,
þótt orsakir þeirra séu á stund-
um óviðráðanlegar. Sú ábyrgð
snýr meðal annars að ásig-
komulagi eigin bifreiðar og bún-
aðar hennar. Hún varðar ekki
síður umferðarreglur og akstur
miðað við aðstæður hveiju sinni.
Mikilvægt er t.d. að aka aldrei
hraðar en reglur standa til. Það
liggur engum svo mikið á í
umferðinni að hann megi ekki
vera að því að lifa. Ef lil vill
er árangursríkasta slysavörnin
í umferðinni sú að sýna öðrum
vegfarendum fyllstu háttvísi og
tillitssemi. í umferðinni sem
annars staðar - og jafnvel þar
fremur en annars staðar - gild-
ir sú meginregla, að breyta
ávallt svo við aðra sem við vilj-
um að þeir breyti við okkur.
Kynning á yfir 300 verkum sem send voru í listasamkeppni ungs fólks var opnuð í gær. Stjórn Listahát-
íðar í Reykjavík stendur fyrir samkeppninni og viðurkenningar verða veittar á laugardag.
Tíu hross tekin
úr vörslu eiganda
vegna vanrækslu
Verða seld á uppboði á fimmtudaginn
BÆJARFÓGETINN í Hafiiarfirði tók tíu hross úr vörslu ungrar konu
í siðustu viku vegna þess hve þau voru vanhirt og vanfóðruð. Tvíveg-
is áður hefúr komið til kasta lögregluyfirvalda vegna illrar meðferð-
ar konunnar á hrossum frá því í haust, en þá þurfti að aflífa tvö
hross sem voru í hennar umsjá vegna þess að þau voru aðfram komin
af hungri. Hrossin tíu verða seld á uppboði næstkomandi fimmtudag.
Listasamkeppni ungs fólks;
Myndin á stærstan hlut
Sögur, ljóð og sálmar fylgja fast á eftir
KYNNING á listaverkum ungs fólks opnaði í Miðbæjarskólanum í
gær. Þar eru á §órða hundrað verk af mörgu tagi; ljóð og lög,
myndir og skúlptúrar, sögur og vídeómyndir. Verkin voru send til
samkeppni sem stjóm Listahátíðar auglýsti í haust fyrir fólk yngra
en 19 ára. Verðlaun og viðurkenningar verða veitt á laugardaginn.
„Myndverkið á drýgstan hlut á
kynningunni,“ segir Valgarður Eg-
ilsson, formaður framkvæmda-
stjórnar Listahátíðar og dómnefnd-
armaður í samkeppninni. „I Mið-
bæjarskólanum er líka talsvert af
Listahátíð:
rituðu máli, sögum og ljóðum. Við
fengum meira að segja sálm norðan
úr landi. Þá gefur að líta högg-
myndir og vídeómyndir og svolítið
af músík var sent til keppninnar.
Stjórn Listahátíðar vildi forvitn-
Listahátíð í dag
Á tólfta degi Listahátíðar í
Reykjavík, miðvikudegi 13.
júní, er um neðangreind atriði
að velja, auk átján myndlistar-
sýninga víðs vegar um bæinn.
Yfirlit yfir þær gefúr að líta í
dagskrárblaði Listahátíðar.
Kl. 17 Austurstræti
Lúðrasveit Reykjavíkur, Svein-
björn Beinteinsson, Dansskólar
Heiðars Ástvaldssonar og Her-
manns Ragnars.
Kl. 17 Miðbæjarskólinn
Kynning hefst á listaverkum fólks
undir 19 ára aldri. Á fjórða hundr-
að verk í myndum, tónum og orð-
um voru send til samkeppni sem
Listahátíð efndi til meðal ungs
fólks. Kynningin er opin milli 14
og 18 næstu 2 vikur.
Kl. 20.30 Borgarleikhús
Dansarar frá San Fransisco baí-
lettinum undir stjórn. Helga Tóm-
assonar.
Kl. 21 íslenska óperan
Kammersveit leikur verk eftir 6
erlend nútímatónskáld. Stjórnandi
er Guðmundur Hafsteinsson og
einleikari á fíðlu Sigrún Eðvalds-
dóttir.
Kl. 21 Hressó
Borgarskáld; Hlín Agnarsdóttir
og Sigríður M. Guðmundsdóttir
stýra dagskrá sem helguð er
Reykjavíkurskáldum, sér í. lagi
þeim sem komu á Hressingarskál-
ann.
Tónlist í flutningi Norðanpilta,
Limbós og Lísu, og Eyþórs Arn-
alds.
ast um hvernig list ungt fólk iðk-
aði, hvaða lífssýn það hefði. Vel-
megun, erlend áhrif, kjarnorkuvá
og mengunarhætta eru orð sem
ungt fólk núna þekkir miklu betur
en við sem eldri erum gerðum á
þessum aldri. Þetta endurspeglast
í sumum verkunum á kynningunni.
Þótt efnið hafi verið opið lýstum
við sem að þessu stóðum áhuga á
úrvinnslu hugmyndarinnar „íslend-
ingurinn og hafið.“
Kynningin í Miðbæjarskóla
stendur í hálfan mánuð og verður
ppin daglega frá 14 til 18. Forseti
íslands afhendir á laugardaginn
verðlaun og viðurkenningar fyrir
þau verk á kynningunni sem skara
fram úr.
Að sögn Más Péturssonar bæjar-
fógeta barst honum tilkynning frá
forðagæslumanninum í Hafnarfirði
í byijun apríl um að konan hefði
tekið tíu hross á hús í Hafnarfirði.
Hún átti ekkert hey en kom með
einn poka af graskögglum. Annað
fóður fengu hrossin ekki í 12 daga,
en þá fékk hún hey. Mjög þröngt
var á hrossunum og fór forðagæslu-
maður fram á að konan útvegaði
aukið pláss fyrir þau, sem hún
gerði. Um miðjan maí var hún aftur
orðin heylaus en þá fór forðagæslu-
maðurinn með kerru af heyi til
hennar og gaf hestunum. Hún kom
einnig með hey, en 2. júní var hlað-
an orðin tóm á ný.
Hrossin voru tekin úr vörslu kon-
unnar í síðustu viku og hefur forða-
gæslumaður séð um að fóðra þau
eftir ráði dýralæknis.
Már sagði að hrossin hefðu verið
í mjög slæmu ástandi þegar þau
voru tekin á hús í byijun apríl. Þá
höfðu þau gengið úti í Bessastaða-
nesi á Álftanesi í algjöru skjólleysi
í harðindunum sem voru eftir ára-
mót. Meðal annars hefði komið
kvörtun frá Forseta íslands um
slæma meðferð á þessum hrossum
og fleirum sem þarna voru.
Hann sagði að vegna þess hve
horuð þau voru í upphafi hafi þau
ekki þolað þessa misfóðrun. Fjögur
þeirra eru þó ekki talin í hættu, en
það er taminn hestur, annar ótam-
inn og tvær geldar hryssur. Aftur
á móti er verra ástand á hryssu sem
er ný köstuð. Hún mjólkar ekki og
þarf því að gefa folaldinu mjólk á
pela. Önnur hryssa er óköstuð og
sagði Már að ekki væri útséð með
Háskóli íslands:
Fall í almennri lög-
fræði tæp 83%
FALL á prófi í almennri lögfræði við Háskóla íslands í maí síðastliðnum
er 83%. Flestir þeirra sem tóku prófið þreyttu það nú í annað sinn. í
janúar var fallið minna, eða 70%. „Ég held að við séum nú almennt
heldur linir við nemendur í lagadeild," segir Sigurður Líndal prófessor
aðspurður um þetta mikla fall. Hann bendir þó á að krafist sé fyrstu
einkunnar, sjö, til að nemandi teljist hafa staðist prófið. í öðrum deildum
er lágmarkseinkunn fiinm eða fjórir.
Fallið er miðað við þá sem mættu
í prófíð, en ávallt heykjast nokkrir á
Menningarsamtök Sunn-
lendinga stofiiuð í Skálholti
Selfossi.
Menningarsamtök Sunnlendinga voru stofúuð í Skálholti síðastliðinn
laugardag, 9. júní. Fyrsta verkefiii samtakanna verður að sjá um og
skipuleggja M-hátíð á Suðurlandi á næsta ári, samkvæmt ósk frá
menntamálaráðherra.
Áður en formlegur stofnfundur
var haldinn fór fram hátíðardag-
skrá í Skálholtskirkju. Þar flutti
Þórður Tómasson frá Skógum
ávarp, skólakór Hveragerðis söng
undir stjórn Margrétar Gunnars-
dóttur. Helga Ingólfsdóttir og Elín
Guðmundsdóttir léku á tvo semb-
ala, Árneskórinn söng, Eyvindur
Erlendsson las ljóð og Jónas Gísla-
son flutti ávarp.
Á stofnfundi samtakanna var
Hanna María Pétursdóttir, Skál-
holti, kosin formaður. Aðrir í stjórn
voru kosnir Ásmundur Sverrir Páls-
son, Selfossi, Rannveig Pálsdóttir,
Laugarvatni, Ingunn Jensdóttir,
Hvolsvelli, og Guðmundur Óli Sig-
urgeirsson, Kirkjubæjarklaustri. í
varastjórn voru kosin Margrét
Gunnarsdóttir, Hveragerði, Gyða
Guðmundsdóttir, Holti, Stokks-
eyrarhreppi, Vilhjálmur Eyjólfsson,
Hnausum, Meðallandi, Drífa Hjart-
ardóttir, Keldum, og Þórður G.
Árnason, Selfossi.
Á stofnfundinum var eftirfarandi
stöku kastað fram í tilefni dagsins:
Menningarsamtök Sunnlendinga
sigla brátt úr vör.
í Skálholti voru þau að þinga
þeirra blessist för.
— Sig. Jóns.
því að mæta þótt þeir séu skráðir til
prófs. í vor þreyttu 64 próf í al-
mennri lögfræði og stóðust 11. í jan-
úar mættu 99 í prófið og 30 náðu
því. Væru þeir sem ekki mættu tald-
ir fallnir, eins og reglur Iláskólans
kveða á um, væri fallið í vor 85%
en 73% í janúar. Meðaleinkunn í vor
var 5,41 en 5,5 á miðsvetrarprófinu.
Að sögn Brynhildar Biynjólfsdótt-
ur deildarstjóra í nemendaskrá Há-
skólans er almenn lögfræði það próf
skólans sem flestir falla í að jafnaði.
Þó virtist stærri hluti nemenda hafa
fallið í vorprófinu en venja væri. Á
hinn bóginn hefðu heldur færri fallið
en venjulega í janúar.
Sigurður Líndal sagði í samtali við
blaðamann að réttast væri að bera
fall í almennri lögfræði saman við
þann hluta nemenda í menntaskólum
sem næðu fyrstu einkunn, sem telst
einkunn yfir 7,25. Ef skoðað væri
hversu margir sýndu þann árangur
á prófi yrði niðurstaðan að líkindum
sú að fall í almennri lögfræði væri
ekki óeðlilega mikið.
hvernig henni reiðir af. Auk þeirra
eru tveggja vetra óvanaður foli og
þijú veturgömul tryppi mjög horuð.
Sturla Þórðarson fulltrúi lög-
reglustjóra í Reykjavík sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að í fyrra
haust hefði þurft að aflífa tvö hross
sem voru í vörslu konunnar í Mos-
fellssveit. Dýralæknir úrskurðaði
að þau væru það langt leidd af
næringarskorti að ekki yrði hægt
að bjarga þeim. Umrædd kona hafði
hross í þessari girðingu ásamt ann-
arri konu og ber þeim ekki saman
um hvor þeirra átti að hafa umsjón
með þeim. Mál þetta var sent lög-
reglunni í Reykjavík sem sendi það
til Ríkissaksóknara. Þaðan var
málið aftur sent lögreglunnftil frek-
ari rannsóknar.
Sturla sagði að kvörtun hefði
einnig borist frá Sambandi dýra-
verndunarfélaga til lögrelgunnar á
Selfossi vegna þess að 16 eða 17
hross sem konan var með í Þorláks-
höfn voru illa haldin. Þetta mál
hefði einnig verið sent lögreglunni
í Reykjavík eftir að konan flutti
þangað.
Hann segir að mál þetta sé ekki
fullrannsakað og einnig eigi eftir
að ljúka málinu vegna hrossanna í
Mosfellssveit. Þetta hafi dregist úr
hófi, en nú verði lagt kapp á að
. ljúka þeim svo fljótt sem auðið er
og senda þau til Ríkissaksóknara.
Þess má geta að yfirvöld í Hafn-
arfirði þurftu í vetur að láta aflífa
16 kindur. Eigandi þeirra var orðinn
heylaus og hafði látið þær standa
inni hátt á aðra viku án fóðurs eða
vatns.
Hilmar Jónsson, fráfarandi stórtemplar veitir Páli Daníelssyni nafúbótina heiðursfélagi Stórstúku ís-
lands. Til hliðar við Pál standa (frá vinstri) Ingimar Eydal hljómlistarmaður og Styrmir Gunnarsson
ritsljóri sem voru einnig heiðraðir. Helga Jónsdóttir eiginkona Omars Ragnarssonar fréttamanns veitti
heiðursmerkinu viðtöku fyrir hans hönd. Á myndina vantar Pétur Pétursson þul sem einnig var kjörinn
heiðursfélagi Stórstúkunnar.
Þing Stórstúku Islands:
Björn Jónsson kjör-
inn stórtemplar
Fimm kjörnir heiðursfélagar
SÉRA Björn Jónsson, prestur á
Akranesi, tók við embætti stór-
templars á þingi Stórstúku ís-
lands fór fram LTemplarahöllinni
dagana 6.-9. júní. Hann tók við
af Hilmari Jónssyni sem gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Mjöll
Matthíasdóttir frá Akureyri var
kjörin stórgæslumaður Ungl-
ingareglunnar, Kristinn Vil-
hjálmsson óskaði ekki eftir end-
urkjöri í embættið.
Fimm voru gerðir að heiðursfé-
lögum Stórstúkunnar á þinginu og
sæmdir æðsta heiðursmerki regl-
unnar. Þeir eru Ómar Ragnarsson,
fréttamaður, Styrmir Gunnarsson
ritstjóri, Páll Daníelsson fyrrverandi
formaður Landssambands gegn
áfengisbölinu, Ingimar Eydal
hljómlistarmaður og Pétur Péturs-
son fyrrverandi þulur.
Um 90 fulltrúar sóttu þingið, en
félagar í stúkum landsins eru nú
um 4000 talsins. Á þinginu kom
fram að viðræður standa yfir við
fræðsluyfirvöld um að félagar í
Unglingareglu Stórstúku Islands
taki að sér félagsmálafræðslu fyrir
nemendur grunnskóla.
Björn Jónsson stórtemplar
Helstu verkefni í vegagerð 1990 og áætlun um bundið slitlag í árslok
Vestljarðagöng: Rannsókn og |
undirbúningur. Fjárheimild: 58 mkr. |
Siglufjarðarvegur í Fljótum: Brýr á
Fljótaá Brúnastaðaá og vegur að þeim
Fjárheimild: 62 mkr.
Dýrafjörður: Fylling og b tjörðinn milli Ketilseyrar dalsodda. Lokið verðurv brú á árinu og neðri hlut Fjárheimild: 97 mkr. rú yfir | og Lamba-1 ið 120 m I afyllingar. 1
Norðuriandsvegur i Hörgár- og Oxnadal:
Lögð verður klæðning á 8 km kafla norðan
Bægisár, og byrjað á nýjum vegi á milli
Bægisár og Þverár. Fjárheimild: 79 mkr.
irauoir vegir)
Norðljarðarvegur um
Oddskarð: Lokið verður við
rúmlega 6 km kgfla frá
Eskifirði að Háhliðarhorni
sem unnið hefur verið að
undanfarin ár. Klæðning
verður þó aðeins lögð a 1,5
km næst Eskifirði.
Fjárheimild: 76 mkr.
Sætún í Reykjavík: vestan Kringlu
mýrarbrautar. Fjárheimild: 73 mkr.
Ólalsvíkurvegur á Mýrum: Lokið verður
við rúmlega 3 km kafla milli Borgar og
Langár sem byrjað var á í fyrra, byggð
ný brú yfir Álttá og byijað á nýjum vegi
við hana. Fjárheimild: 51 mkr.
Hafnarljarðarvegur; um Arnarneshæð
og eystri akbraut norðurtyrir Kópavogs-
læk. Dælbrú á Arnarnesvegi og brú á
Kópavogslæk. Fjárheimild: 179 mkr.
Morgunblaðið/KG