Morgunblaðið - 13.06.1990, Síða 33

Morgunblaðið - 13.06.1990, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JUNI 1990 33 ísaðar gellur fá góðar móttökur LEIKHÓPUR Alþýðuleikhússins er nú í leikferð með gamanleikinn Isaðar gellur eftir Frederick Harrison. Um síðustu helgi var sýnt á Patreksfirði, Tálknafirði og í Bíldudal við góðar móttökur. Sem dæmi iná nefiia að yfir 100 manns mættu á sýninguna á Tálknafirði eða um þriðjungur ibúanna. Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Ása Hlín Svavarsdóttir í hlutverkum sínum í Isuðum gellum. Opið hús í Norræna húsinu FYRSTA opna húsið í Norræna liúsinu á þessu sumri verður fimmtu- daginn 14. júní kl. 20.30. I opnu húsi eru haldnir fyrirlestrar um land og þjóð og er þessi dagskrá einkum ætluð Norðurlandabúum. Fyrirlestrarnir eru því fluttir á einhverju Norðurlandamálanna. ___________Brids______________ Amór Ragnarsson Bikarkeppni Bridssambands Islands Þrjár sveitir hafa bæst við í Bik- arkeppni BSÍ, og voru þær dregnar á móti þeim sveitum sem áttu að eiga yfirsetu. Sveit Sigmundar Stefánssonar er nú sú eina sem sit- ur yfir fram í aðra umferð. Að öðru leyti bætast við þessir leikir: Jón Hjaltason Rvk — Trésíld Reyðarfirði Eyþór Jónsson Sandgerði — Verðbréfam. íslandsbanka Rvk Þröstur Ingimarsson Kópavogi — Karl Grétar Karlsson Sandgerði Leikjum í fyrstu umferð skal vera lokið fyrir 29. júlí. Sveitir geta leitað til Bridssambandsins til að afla sér upplýsinga um símanúmer andstæðinga sinna, svo hægt sé að koma á leikjunum í tíma. Þær sveit- ir sem eiga eftir að gera upp þátt- tökugjald (10.000 á sveit) eru beðn- ar að gera það hið fyrsta, en frest- ur til þess rann út um síðustu mán- aðamót. Hægt er að leggja inn gjaldið á ávísanareikning 2012 hjá Islandsbanka nr. 513, sem er reikn- ingur Bridssambandsins. Bridsfélag Vopnafjarðar Bridsfélag Vopnafjarðar lauk sínu vetrarstarfi formlega með verðlaunaafhendingu nú fyrir stuttu. Þetta félag var stofnað 16. janúar 1962 og hefur starfað óslitið síðan í rúm 28 ár. Helsta starfsemi félagsins er spilakvöld einu sinni í viku yfír vetr- armánuðina og stundum oftar þeg- ar keppni er í gangi. Auk þessa hefur félagið tekið þátt í bridsmót- um annarra bridsfélaga á Austur- og Norðurlandi og einnig haldið mót hér heima. Næstu sýningar verða á Bolung- arvík næstkomandi föstudag kl. 20.30, á ísafirði á laugardaginn kl. 21.15 og á Suðureyri á sunnudaginn 17. júní kl. 20.30. Leikritið Isaðar gellur segir á gam- ansaman og hispurslausan hátt frá dvöl þriggja breskra stúlkna við fisk- vinnslu í vestfirsku sjávarplássi. Höf- undurinn byggir verkið að hluta á reynslu stúlkna frá Hull sem dvalið hafa hérlendis við fiskvinnslu, en fer frjálst með efnivið sinn og gerir úr BÓKAÚTGÁFAN Skjaldborg hef- ur hafið útgáfú á nýjum bókaflokki sem nefhist „Bóltasafn eldluissins". Tvær fyrstu bækurnar í flokknum nefhast „Itölsk matreiðsla, og „Kínversk matreiðsla.“ í tilkynningu frá Skjaldborg segir m.a.: „Hátt á annað hundrað uppskriftir eru í hvorri bók, öllum réttunum fylgja litmyndir. Helgi B. Helgason, matreiðslumeistari, hefur þýtt bæk- kjarnyrtan gamanleik. Leikendur f ísuðum gellum eru þau Ása Hlín Svavarsdóttir, Halldór Björnsson, Ingrid Jónsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Leikstjóri er Hávar Siguijónsson. Eftir sýningar á Vestfjörðum er förinni heitið til Akraness þann 22. júní og leikhópurinn sýnir á Höfn í Hornafirði þann 23. kl. 21.15 og loks endar ferðin í Vestmannaeyjum þann 24. með sýningu kl. 21.15. (Frcttatilkynning) urnar og matreitt aila þá rétti er sýndir eru í þeim. Árangurinn var frábær og er óhætt að mæla með þeim við hvern seni er. Allt sem til þarf í réttina er fáanlegt í helstu matvöruverslunum. Á síðari árum hefur áhugi íslend- inga aukist á matargerð og þá sér- staklega á matargerð annarra þjóða. í þessum bókum er að finna fjölda rétta sem eiga eftir að gleðja íslenska sælkera og aðra þá er leita eftir til- breytingu í matargerð.“ Fyrirlesararnir eru allir sérfræð- ingar á sínu sviði og efnið fjöl- breytt: umhverfismál, handritin, bókmenntir, íslenski torfbærinn, leikhús- og kvikmyndir, myndlist, kvennabarátta, skógrækt, þjóðlög og alþýðulög og Reykjavík fyrr og nú. Björn Guðbrandur Jónsson, verk- efnastjóri fyrir Norrænt umhverfis- ár, ríður á vaðið með fyrirlest'ri um umhverfísmái á íslandi og flytur mál sitt á sænsku. Hann sýnir lit- skyggnur til skýringar. Að loknu kaffíhléi verður sýnd kvikmynd frá íslandi. Opið hús verður síðan á hveiju fimmtudagskvöldi fram til 23. ágúst. Fimmtudaginn 21. júní talar dr. Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, um íslensku handritin og að erindinu loknu fá gestir tækifæri til að skoða handritin undir leiðsögn Jónasar á Handritastofnun. Aðgangur er ókeypis að opnu húsi. Skjaldborg gefur út eldhúsbókasafii TILBOÐ - ÚTBOÐ JL d^ÚXboö - gangstéttir Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í gerð steyptra gangstétta sumarið 1990, um 3000 fm. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar- verkfræðings, Strandgötu 6, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudag- inn 21. júní kl. 11.00. Bæjarverkfræðingur. Höfn í Hornafirði Útboð hafnsögubáts Fyrir hönd Hornafjarðarhafnar, óskar Skipa- og vélatækni, Kefjavík, eftir tilboðum í smíði hafnsögubáts. Verkið felst í hönnun og smíði skips, tilbúnu til notkunar. Fyrir þá, sem áhuga hafa, er í útboðsgögnum listi erlendra aðila, sem tilbúnir eru að gera tilboð í ósamsett skip, til samsetningar í íslenskri skipasmíðastöð. Útboðsgögn verða afhent frá og með mið- vikudeginum 13. júní 1990 á skrifstofu Skipa- og vélatækni, Hafnargötu 37A, Keflavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Skipa- og vélatækni eigi síðar en 10. júlí kl. 14.00, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þess óska. Keflavík 12. júní 1990. 230 Keflavík, Skipa- og vélatækni, sími 92-15706, Hafnargötu 37A, fax 92-14708. Útboð Sjómannadagsráð í Reykjavík og Hafnarfirði óskar eftir tilboðum í smíði 26 verndaðra þjónustuíbúða í raðhúsum á Laugarási í Reykjavík, ásamt tilheyrandi gatnagerð og lóðarlögun. Heildarflatarmál húsa er um 2.700 m2 og heildarlengd gatna um 290 m. Tilboðsgögn verða afhent hjá Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar hf., Borgartúni 20, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 12. júní, gegn 7.000 kr. óafturkræfu gjaldi. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Sjómanna- dagsráðs þriðjudaginn 26. júní kl. 11.00 að viðstöddum bjóðendum. \UY /A VERKFRÆOISTOFA \ /V A 1 STEFÁNSOLAFSSONARHF. FBV. Y \. JL y CONSULTING ENGINEERS BORGARTÚNI20 105REYKJAVIK WélagslÍf ....SAMBAND (SLENZKRA SjSP/ KRISTNIBOOSFÉLAGA Samkoma veröur í kristniboðs- salnum, Háaleitisbraut 58, í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður: Benedikt Jasonarson. Kjellrun Langdal sér um kristniboðsþátt. Allir velkomnir. ÚTIVIST GRÓFINNI l • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606 Þórsmörk - Goðaland 8.-10. Júní. Þaö er komið sumar í Mörkinni. Góð aðstaða i Útivist- arskálunum i Básum. Göngu- ferðir við allra hæfi. Fararstjóri Anna Soffía Óskarsdóttir. Verð kr. 5.000,-/5.500,-. Eyjafjallajökull - Seljavallalaug 8.-10. júní. Gangan hefst í Þórs- mörk. Gengin Hátindaleið á jök- ulinn, niður við Seljavelli. Farið í laugina á Seljavöllum að göngu lokinni. Með rútu til baka inn ( Bása. Fararstjóri Jón Gunnar Hilmarsson. Verð kr. 5.500,- /6.000,- Miðar og uppl. á skrifstofu. í Útivistarferö eru allir velkomnir. Sjáumst. Útivist. Grunnvíkingar— Grunnvíkingar Grunnvikingafélögin í Reykjavík og á (safirði efna til móts á Var- malandi í Borgarfiröi 6.-8. jólí nk. Dvalist verður á farfugla- og gistiheimilinu Varmalandi sem býður gistingu, svefnpokapláss og tjaldstæði ásamt fæði eða eldunaraðstöðu. Gert er ráð fyr- ir sameiginlegu borðhaldi á laug- ardagskvöldið og dansleik á eft- ir. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku og pantið gistingu og fæði I síma 93-51301 sem fyrst. Efnt verður til hópferða á mótið frá isafirði og Reykjavík, ef næg þátttaka fæst. Nánari upplýsingar gefa Friðþór Eydal í síma 76949 Reykjavlk og Brynjar Ingason í síma 94-3646 Isafirði. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÓTU 3 S: 11798 19533 Kvöldferð miðvikudag 13. júní Kvöldferð i Heiðmörk miðviku- dag i 3. júní. Brottför frá Umferð- armiðstöðinni kl. 20.00. Ókeypis ferð. Hugað að gróðri í reit ferða- félagsins. Leiðbeinandi Sveinn Ólafsson. Fferðafélag Islands. FERÐAFÉLAG ÍSIANDS ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533 Helgarferðir Ferðafélagsins: 15.-17. júní: Helgarferð til Þórsmerkur. Gist I Skagfjörðsskála/Langadal eða tjöldum. Það er þess virði að verja frítima sínum með Ferðafé- laginu í Þórsmörk. 15.-17. júní: Helgarferð um Dali. Gist i svefn- pokaplássi á Laugum/Sælings- dal. Gengið i Dagverðarnes (á slóðir (ra) og víðar verður farið eftir því sem timinn endist til. Brottför kl. 18.00. 22.-24. júní - helgarferðir: 1. Jónsmessuferð til Þórsmerkur. 2. Jónsmessuferð á Eiríksjökul. 3. Hellaferð í Hallmundarhraun. ( þessari ferð verður farið í marga stærstu hella landsins. Farmiðar seldir á skrifstofu F(, Öldugötu 3. Ferðafélag (slands. Hvítasunnukirkjan Ffiadelfía Biblíulestur i kvöld kl. 20.30. „Lifandi steinar í lifandi húsi“ Ræðumaður Hafliði Kristinsson. ÚTIVIST GRÓFINNII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606 Kvöldganga Miðvikudag 13. júní Þrívörður - Vilborgarkelda. Áfangi úr gömlu þjóðleiðinni yfir Mosfellsheiði til Þingvalla. Stígvél æskileg. Brottför kl. 20.00 frá BSÍ, bensínsölu. Verð kr. 800,- Sjáumst. Útivist. Hörgshlíð 12 . Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.