Morgunblaðið - 13.06.1990, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JUNI 1990
U nglingarnir
fara í Skálholt
Unglingarnir úr Grafarvogi fyrir framan Skálholtskirkju.
eftir Sigurð Árna
Þórðarson
Feimnislegir hljómar bárust um
Skáiholtskirkju. Ungur tónlistar-
maður úr hópi fermingarbarna úr
Grafai’vogsprestakalli náði fljótt
valdi á fingrum og hljómborði og
tónaflóðið hófst um alla kirkju.
Þetta forspil kveðjustundar ferm-
ihgarbarna yngsta safnaðar þjóð-
arinnar var táknrænt fyrir hinn
nýja þátt í fræðslustarfsemi kirkj-
unnar. Hin unga kynslóð er ekki
aðeins þiggjandi í fræðslustarf-
seminni, heldur gefandi og í sam-
vinnu við leiðbeinendur í upp-
fræðslunni í Skálholti, sem voru
samtals 25 á misserinu. Nýr tónn
hljómar í fræðslu þjóðkirkjunnar.
Nær sextán hundruð
Á síðastliðnu hausti sóttu 37
hópar, tæplega sextán hundruð
ungmenni námskeið í Skálholti,
sem fræðsludeild kirkjunnar og
Skálholtsskóli stóðu að í samvinnu
við prófastsdæmin. Öll fermingar-
börn í Rangárvalla- og Kjalarnes-
prófastsdæmi og liðlega sjö hundr-
uð ungmenni í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi tóku þátt í þessum nám-
skeiðum. Samkvæmt könnun Kjal-
arnesprófasts, sr. Braga Friðriks-
sonar, frumkvöðuls þessa nám-
skeiðahalds, voru unglingarnir sem
og foreldrar mjög ánægðir með
námskeiðahaldið.
Ný mynd aftrú,
kirkju og presti
Arnheiður Hlín Guðmundsdóttir
og Sólver Hafsteinn Sólversson úr
Grafarvogi voru á sama máli. Arn-
heiði fannst ferðin „æðisleg" og
eiginlega ættu krakkarnir, sem
voru fermdir í fyrra, að fá tæki-
færi til að fara líka. Margt hefði
verið gert, hópvinnan hefði verið
skemmtileg, skoðunarferðir um
undirganginn gamla og sögustaði
Skálholts hefðu verið skemmtileg-
ar, helgistundirnar í kirkjunni og
líka fijálsu tímarnir. Sólver taldi
að námskeiðið hefði verið mjög
jákvætt, það væri „alger stað-
reynd“. Það hefði ríkt ró í Skál-
holti. Skemmtilegast hefði verið
að fara í kirkjuna, upplifa altari-
stöfluna og kannski líka spila á
flygilinn í skólanum. Námskeiðið
hefði verið fræðandi. Sólver sagði
að amma hans hefði frætt hann
um trúarefni. Eftir þetta námskeið
taldi hann að hann vildi gjarnan
fara í kirkju af eigin hvötum. Arn-
heiður og Sólver sögðu að margir
krakkar í hópnum hefðu fengið
algerlega nýja mynd af trú og
kirkju. Margir foreldrar hefðu ekki
mikinn tíma til að tala um trú og
kirkju. Svo hefði verið skemmtilegt
að kynnast prestinum svona vel.
Gleðiboðskapur og reynslan
Sr. Vigfús Þór Árnason taldi,
að námskeiðið hefði verið vel upp-
byggt og leiðbeinendurnir hefðu
náð mjög vel til unglinganna.
Fræðslan hefði verið bæði ánægju-
leg og spennandi og sér virtist að
hún skapaði áhuga á trúariðkun
og kirkjunni. Þá minntist hann á,
að fermingarhópurinn kynntist vel
„Grafarvogshópurinn
hélt frá Skálholti út í
stuttan desemberdag-
inn. Þau lofuðu að kaf-
færa prestinn sinn ekki
í sundinu á leiðinni
heim! „Megum við ekki
koma aftur?“ voru
kveðjuorðin þeirra.“
innbyrðis og jafnfrariit yrði prest-
urinn í nánari tengslum við börnin
en ella. Fræðslan á þessu nám-
skeiði hefði höfðað til reynslu þátt-
takenda, sem væri mikilvægt. Lif-
andi og leikræn fræðsla, skemmt-
un, söngur og helgistundir hefðu
skapað samveru og sameiginlega
trúariðkun, sem næði til hjartan.
Kristinn boðskapur væri gleðiboð-
skapur og sá þáttur hefði skilað
sér vel í Skálholti. Sr. Vigfús Þór
taldi það vera stórkostlegt, að
kirkjan skuli eiga slíka aðstöðu
fyrir starfsemi sína.
Sem mér kemur við
Bjarni Karlsson, guðfræðinemi
og leiðbeinandi, sagði að þegar vel
væri vandað til námskeiðs eins og
þessa, væri hægt að búast við að
hópur ungmenna fengi betra tæki-
færi til sameiginlegrar tilbeiðslu
en í venjulegum fermingartímum.
Námskeiðin stæðu ekki yfir nema
í um sólarhring og því hefði orðið
að skipuleggja tímann vel og
mynda sterkan ramma. Það hefði
gefið góða raun því börnin þyrftu
öryggi til að blómstra. Þau hefðu
fundið að við þau væri rætt sem
ábyrga einstaklinga og til reynslu
þeirra höfðað. Það væri almenn
niðurstaða þeirra að boðskapurinn
og trúin væri eitthvað „sem mér
kemur við“.
Grafarvogshópurinn hélt frá
Skálholti út í stuttan desember-
daginn. Þau lofuðu að kaffæra
prestinn sinn ekki í sundinu á leið-
inni heim! „Megum við ekki koma
aftur?“ voru kveðjuorðin þeirra.
Höfundur er rektor Skálholtsskóla
og doktor íguöfræöi.
I sumarbústaðinn
Aíslandi förum við í sumarbústaði eða orlofshús, en ferðaskrifstofur auglýsa sæluhús suður um
Evrópu. í mínum huga er sæluhús allt annað en sumarbústaður. í ísienskri orðabók Árna Böð-
varssonar er sæluhús skilgreint sem „hús til að gista í í. óbyggðum, á öræfum". Svo rakst ég
á auglýsingu í blaði um frístundahús. Frístundahús er auðvitað ekki til í orðabók Árna Böðvars
sonar, enda er það bara léleg þýðing á danska orðinu fritidshus. Því í ósköpunum ér þetta allt ekki kallað
sínu rétta nafni, „sumarbústaður"? Vissulega er frístunda notið í þessum húsum og vonandi sælu líka, en
þetta eru sumarbústaðir og ekkert annað. Nóg um það. Þegar við förum í sumarbústaði tökum við með
okkur mat til að elda sjálf. Oft er ekki fullkomin eldunaraðstaða í þessum húsum, t.d. aðeins tvær raf-
magnshellur og enginn bökunarofn. En bökunarofnar eru notaðir í fleira en að baka og þegar við viljum
komast létt frá matreiðslunni er fátt hentugra en að setja réttinn í bökunarofn. Við förum ekki í þessi hús til
að standa í flókinni matreiðslu, en við viljum góðan mat, sem fljótlegt er að elda. Við ættum að hafa með
okkur nóg af frosnu grænmeti og mikið af ferskum tómötum til að setja í pott- og pönnurétti. í þessum þætti
er boðið upp á pönnurétt með grænmeti og hrísgrjónum, en þar er allt soðið á sömu pönnunni og fyrir þá
sem kjósa að grilla er uppskrift að laxi á útigrillið.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Allt á einni pönnu
500 g fítulítfð nautahakk (eða
annað hakk)
2 tsk. salt
'/i tsk. pipar
1 tsk. pipar
1 tsk. papríkuduft
'A tsk. hvítlauksduft
5 dl vatn eða meira
1 stór laukur
2 meðalstórar gulrætur, fer-
skar eða frosnar
1 stór græn papríka, fersk eða
frosin
4 stórir tómatar
2 stórar kartöfíur
1 msk. tómatmauk
1 dl hrísgtjón
1. Hitið pönnu þar til rýkur úr
henni, setjið helming hakksins á
hana og brúnið. Takið af pönn-
unni, skolið hana með örlitlu vatni
('A dl) og setjið það saman við
hakkið sem þið steiktuð. Hitið
pönnuna aftur vel og steikið það
sem eftir er.
2. Setjið salt, pipar, papríku-
duft, hvítlauksduft og vatn út í.
Afhýðið og saxið lauk og setjið
saman við. Takið steina úr
papríku, skerið smátt og setjið
saman við. Hreinsið gulrætur,
skerið í þunnar sneiðar og setjið
saman við.
3 Brytjið tómatana og setjið
út í. Hræi'ið síðan tómatmauk út
í. Setjið hrísgijón út í. Hrærið vel
saman.
4. Afíiýðið kartöfíur og skerið
í sneiðar og leggið ofan á. Setjið
lok á pönnuna og sjóðið þetta í
20 mínútur.
5. Bætið vatni í ef með þarf,
en þetta á ekki að vera blautt.
Berið fram á pönnunni ásamt
ristuðu brauði.
Grillaður iax
Lax, 3 kg, eitt eða tvö fíök
2 tsk. salt
safi úr 1 sítrónu
nokkuð mikið af nýmöluðum
pipar
3 msk. hreinn rjómaostur
1. Beinhreinsið fiskinn. Farið
með fingurinn niður eftir beina-
garðinum cg takið beinin úr með
flísatöng eða togið þau út með
fingrunum. Skafið roðið og klipp-
ið frá ugga.
2. Kreistið safann úr sítrón-
unni og hellið yfír holdhlið flaks-
ins. Stráið á það salti og pipar
og látið standa í 10-15 mínútur
eða lengur, t.d. meðan grillið hitn-
ar.
3. Smyijið rjómaostinum jafnt
yfír holdhlið flaksins. Leggið flök-
in saman, þannig að roðið snúi
út. Ef þið eruð með eitt fíak, er
það skorið í tvennt.
4. Setjið laxinn í grind, sem
ætluð er til að grilia fisk í. Grillið
fiskinn fyrst á annarri hliðinni,
snúið síðan við og grillið á þeirri
síðari. Það tekur um 10-15 mínút-
ur að grilla á fyrri hliðinni, en
7-10 á þeirri síðari. Þó fer tíminn
eftir fjarlægð frá glóð.
5. Borðið roðið með, harðsteikt
eða grillað roð er mjög gott, sé
fiskurinn ekki of stór og roðið þar
af leiðandi mjög gróft.
Meðlæti: Grillaðar kartöflur og
tómatsalat.
Takið smáhnaus af graslauk
upp úr garðinum og setjið í pott
og hafið með ykkur, eða kaupið
graslauk í potti í stórmarkaði eða
þlómabúð.
Tómatsalat
8-10 meðalstórir tómatar
graslaukur
2 msk. sítrónusafi
1 msk. matarolía
1 tsk. hunang, þunnt
1 skvetta úr tabaskósósuflösk-
unni
1. Setjið sítrónusafa, mata-
rolíu, hunang og tabaskósósu í
hristiglas og hristið saman.
2. Þvoið tómatana, skerið í
sneiðar eða báta, klippið graslauk-
inn og setjið saman við.
3. Hellið sósunni yfir og hrærið
lauslega saman með gaffli.