Morgunblaðið - 13.06.1990, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JUNI 1990
Minning:
Pála Björnsdóttir,
Vestmannaeyjum
Fædd 12. maí 1918
Dáin 4. júní 1990
Ég var á skrifstofu minni í
Reykjavík, þegar konan mín hringdi
í mig frá Vestmannaeyjum og sagði
mér að mamma hennar hefði veikst
skyndilega og verið flutt á Sjúkrahús
Vestmannaeyja. „Mamma er mikið
veik og mjög kvalin," sagði hún.
Þetta kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Ingólfur og Pála
tengdaforeldrar mínir höfðu rétt ný-
verið dvalið nokkra daga í sumarbú-
stað sínum og áformuðu að dvelja
þar saman á næstunni og njóta
kyrrðar og útiveru.
Það var í fyrstu vissa mín að
tengdamamma, þessi lífsglaða og
tápmikla kona, kæmist gegnum þessi
veikindi eins og allt annað, sem hún
hafði gengið í gegnum á langri ævi,
en hún varð 72 ára 12. maí sl. En
þegar ég kom að sjúkrabeði hennar
daginn eftir, sá ég að mikil alvara
var á ferðum. Siöngur, vélar, tæki,
blikkandi ljós og línurit, læknar og
hjúkrunarfólk á staðnum. Ég gekk
að rúmi hennar, en hún varð mjög
g!öð að sjá mig og sagðist ætla að
taka af sér súrefnisgrímuna andar-
tak, svo að hún gæti kysst mig, en
um það voru skýr fyrirmæli, að
grímuna mátti ekki hreyfa, og kyssti
ég hana því á ennið og hún brosti
til mín. Síðan fóru nokkur hlýleg orð
milli okkar. Fljótlega eftir þetta sofn-
aði hún og vaknaði ekki aftur. Við
sátum klukkustundum saman við
rúmið hennar, þögul og sáum hvern-
ig þrótturinn þvarr smám saman frá
þessari glæsilegu konu. Á hugann
sóttu minningar frá liðinni tíð, um
samskipti okkar þau liðlega tuttugu
ár, sem við áttum samleið. Ég minn-
ist þess þegar fyrsta barn okkar
Kolbrúnar konu minnar fæddist, og
ákveðið var að hún skyldi bera nafn
Björns föður tengdamömmu og heita
Birna. Tengdamamma kom nær dag-
Haraldur Olafs-
son - Kveðjuorð
Fæddur 10. mars 1924
Dáinn 5. júní 1990
Haraldur Ólafsson móðurbróðir
minn lést af slysförum þann 5. júní
sl. Hann fæddist að Kvígindisfelli
í Tálknafirði 10. mars 1924, sonur
hjónanna Sesselju Ólafsdóttur og
Ólafs Jósúa Guðmundssonar, Sess-
elja lést fyrir tveimur árum, en
Ólafur býr á Hrafnistu í Hafnar-
firði.
Ólafur og Sesselja eignuðust tíu
börn og var 'Haraldur sá þriðji í
röðinni. Öll náðu þau systkinin full-
orðinsaldri nema einn bróðir, Aðal-
steinn, sem lést fimmtán ára gam-
all.
Haraldur ólst upp hjá foreldrum
sínum og systkinum í Litla-Laug-
ardal í Tálknafirði. Um 1950 fluttu
þau til Patreksfjarðar í stórt og
fallegt hús, sem kallað var Krókur.
Fljótlega eftir að þau fluttu kynnt-
ist Haraldur eiginkonu sinni, Birnu
Jóhönnu Jónsdóttur, og ólu þau upp
eina dóttur, Kristínu. Kristín eign-
aðist þijú börn, Harald sjö ára,
Bárð tæpra þriggja ára og stúlku-
barn sem fæddist 25. maí á þessu
ári.
Kynni mín af Halla frænda ná
jafn langt aftur og ég man eftir
mér. Ég kom í Krókshúsið til ömmu
og afa aðeins sex mánaða gömul.
Þá bjó Halli frændi uppi á lofti, þá
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HELGU HJARTARDÓTTUR,
Lambeyrarbraut 10,
Eskifirði.
Erla Charlesdóttir, Magnús Bjarnason,
Anna Charlesdóttir, Reynir Hjálmtýsson,
Reimar Charlesson, Björg Hjálmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
HERMANIMS GUÐJÓNSSONAR,
Óðinsgötu 15,
Reykjavík.
Aðalbjörg Skæringsdóttir,
Sigurður Sveinsson, Theodóra Sveinsdóttir,
Hildur Kristín Hermannsdóttir, Haraldur Eggertsson,
Erling Þór Hermannsson, Þórlaug Erla Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
39 ^
lega í heimsókn til okkar fyrstu hjú-
skaparárin, og oft hafði hún eitthvað
meðferðis handa börnunum, eða okk-
ur. Á þessum árum vann ég um tíma
við smíðar á heimili tengdaforeldra
minna og áttum við þá oft góðar
stundir við eldhúsborðið og ræddum
um lífið og tilveruna, eins og geng-
ur. Mér fannst Pála skilja mig svo
vel, vera svo einlæg. Við gátum talað
um allt. Við áttum margt sameigin-
legt. Hún sagði mér frá því, þegar
hún fluttist 18 ára gömul frá Skaga-
firði til Vestmannaeyja, var ráðin
sem vinnukona að Arnarstapa hér í
bæ, lærði síðan saumaskap hjá
Kristínu í Merkisteini, en við sauma-
skapinn nýttust henni vel listrænir
hæfileikar hennár og vandvirkni.
Síðan hitti hún lífsförunautinn, Ing-
ólf Matthíasson, dugmikinn sjómann,
og sagði hún mér frá lífshlaupi
þeirra, byggingu hússins á Hólagötu
20 _og fleira og fleira.
Ég finn nú þegar komið er að leið-
arlokum, hversu margt við áttum
órætt. En ég er jafnframt þakklátur
fyrir þann tíma, sem við áttum sam-
an.
Á árum áður, þegar ég gekk í
gegnum miklar þrengingar, þá stóð
tengdamamma með mér eins og
klettur á hveiju sem gekk, og mat
ég hana mikils fyrir það.
Við íjölskyidan á Breiðabliki þökk-
urn ijúfa samferð og vináttu og biðj-
um Drottin að blessa minningu
mömmu, tengdamömmu og ömmu.
Við biðjum þess jafnframt að Ingólf-
ur og börn þeirra hjóna, barnabörn
og vinir fái huggun og styrk frá Guði.
Þessar línur eru aðeins slitrótt
minningabrot, sem komu í huga mér
við dánarbeð tengdamóður minnar,
örlítill þakklætisvottur og virðing frá
mér og fjölskyldu minni.
Óíaftir Gránz, Breiðabliki,
Vestmannaeyjuni.
einhleypur, en síðar með konu sinni
Birnu. Þegar ég fór að komast upp
stigann til Halla og Birnu var ég
tíður gestur hjá þeim.
Það var ekki að ástæðulausu að
lítil stúlka sækti á brattan stigann
þó það kostaði stundum hrap niður,
því alltaf var jafn gott að koma til
þeirra. Halli frændi var einstaklega
barngóður maður_ og við urðum
mjög góðir vinir. Ég man eftir því
hvað hann hló mikið þegar ég, lítil
stúika nýbúin að læra að tala, sagði
við hann að hann væri stórvinur
minn. Margar af bestu bernsku-
minningum mínum eru tengdar
honum og betri frænda og vin er
ekki hægt að eignast.
Eftir að ég fullorðnaðist og flutti
burt frá Patreksfirði kom ég stund-
um í heimsókn til Halla og Birnu í
Krók. Þar fann maður alltaf fyrir
gömlu, góðu hlýjunni og gleðin sat
í fyrirrúmi hvað sem á gekk.
Elskú Birna, Kristín, börnin þrjú,
afi á Hrafnistu og systkinin öll, ég
votta ykkur öllum mína dýpstu sam-
Úð.
Sesselja Arthúrsdóttir
Leiðrétting
Þau leiðinlegu mistök urðu hér í
blaðinu í gær að í fyrirsögn á minn-
ingarorðum um Ragnhildi S. Guð-
jónsdóttur húsfreyju í Kaldrana-
nesi í Mýrdal misritaðist nafn henn-
ar, en þá stóð Ragnheiður. Er beð-
ist afsökunar á þessu um leið og
mistökin eru leiðrétt.
GARÐASTÁL
Afgreitt eftir máli.
Allir fylgihlutir.
i
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000
Útgerðarmenn og eigendur smábáta
minni en 10brl.
athugið!
í samræmi við nýsett lög nr. 38, 15. maí 1990
um stjórn fiskveiða, er koma til framkvæmda um
næstu áramót, vinnursjávarútvegsráðuneytið nú
að undirbúningi að úthlutun veiðiheimilda til báta
minni en 10 brl. í því sambandi vill ráðuneytið
vekja athygli á eftirfarandi.
1. Skráning báta.
Samkvæmt nýju lögunum þurfa nú eigendur allra
báta 10 brl. og minni, sem sækja um leyfi til veiða
í atvinnuskyni, að vera skráðir í skipaskrá eða sér-
staka skrá Siglingamálastofnunar ríkisins fyrir báta
styttri en 6 m. Þá þurfa eigendur þeirra báta, sem
ekki hafa veiðileyfi frá ráðuneytinu samkvæmt ijúi,
gildandi lögum um stjórn fiskveiða (nr. 3 1988) eðá
eru ekki á skrá Siglingamálastofnunar, að óska eft-
ir skráningu báta sinna hjá Siglingamálastofnun fyr-
ir 18. júní 1990. Beiðni um skráningu þarf að fylgja
eignarheimild, smíðalýsing og teikningaraf viðkom-
andi bát.
2. Nýirbátarísmíðum.
Eigendur ófullgerðra báta, sem smíði hefur verið
hafin á (skipsbolur uppbyggður) fyrir gildistöku lag-
anna 18. maí 1990, þurfa að óska eftir skráningu
þeirra hjá Siglingamálastofnun fyrir 18. júní 1990.
Þessir bátar þurfa að vera fullbúnir og öðlast full-
gilt haffærisskírteini fyrir 18. ágúst 1990 til að koma
til greina við úthlutun veiðiheimilda. Sérstakir skoð-
unarmenn sjávarútvegsráðuneytisins og Siglinga-
málastofnunar munu á næstu dögum meta hvaða
bátar teljast í smíðum samkvæmt framansögðu.
Eigendur báta, sem eru í smíðum erlendis, þurfa
að framvísa vottorði frá þartilbærum yfirvöldum um
að smíði báta þeirra hafi verið hafin (skipsþolur
uppbyggður) fyrir 18. maí 1990.
3. Upplýsingarogforsaga báta.
Eigendur og útgerðarmenn þeirra báta, sem ekki
hafa fengið sérstakt eyðublað sjávarútvegsráðu-
neytisins til útfyllingar um forsögu báta sinna, þurfa
að verða sér úti um slík eyðublöð hjá ráðuneytinu
eða Landssambandi smábátaeigenda, fylla þau út
og senda sjávarútvegsráðuneytinu, Skúlagötu 4,
150 Reykjavík, við fyrsta tækifæri.
Nánari upplýsingar um ofansagt fást hjá sjávarút-
vegsráðuneytinu og veiðieftirlitsmönnum þess.
Sjávarútvegsráðuneytið, 13. júní 1990.
1 i ínrgMinl bl
co n in co Metsölublad á hvetjum degi!
Macintosh námskeið
Grunnnámskeiö hefst 18. júní
Stýrikerfi Macintosh og fjölverkaforritið Works
Tölvu- og verkfræðiþjónustan - Grensásvegi 16 - 68 80 90