Morgunblaðið - 13.06.1990, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 13.06.1990, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990 43 ' félk í fréttum Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Aflahæsti karl mótsins var Olafur Tryggvason með Stærsta fisk mótsins dró Róshildur Stefánsdóttir, Hér má sjá hiuta bátanna koma inn eftir vel heppnað mót. Heildarafli Reykjavík, 15,31 kilóa þorsk. bátanna mun hafa verið um 13 tonn. Anna Guðný Aradóttir, sölustjóri Úrvals-Útsýnar, afliendir Berg- ljótu Þorfinusdóttur og Einari Magnússyni farseðla í happaferð fyrir 100 krónur. FERÐALÖG Farþegar hljóta happaferðir Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn hvatti í vetur væntanlega sðl arlandafarþega sína til að bóka snemma þannig að þeir kæmust á hentugum tíma í óskaferðina og fengju gististaði í samræmi við óskir sinar og þarfir. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og þúsundir farþega höfðu bókað ferð og greitt staðfestingargjald áður en sumar gekk í garð. Þessir farþegar gátu allir átt von á að hreppa happaferð fyrir hundr- að krónur. Var dregið fimm sinnum úr öllum staðfestum bókunum og voru það ýmist einstaklingar eða fjölskyldur sem hlutu happaferðirn- ar. Vinningshafar voru Helgi Sig- urðsson, Einar Magnússon og Berg- ljót Þorfinnsdóttir, Þórir Haralds- söh, Una Sigurliðadóttir, Inga Þóra Þórisdóttir og Ása Vala Þórisdóttir; Tinna Stefánsdóttir og Hanna Stef- ánsdóttir. (FrcttatilkynningJ SJOSTANGAVEIÐI Góður afli á móti við Eyjar Góð þátttaka var í hvítasunnu- móti Sjóstangaveiðifélags Vestmannaeyja og afli með miklum ágætum. Mótið stóð í tvo daga. Ágætis veður var meðan mótið stóð og gekk veiðimönnunum vel enda var heildarafli mótsins rúm 13 tonn.. í lokahófi mótsins voru veitt verðlaun fyrir hin ýmsu afrek. Aflahæsti karl mótsins var Ólafur Tryggva- son, Vestmannaeyjum, með 415,10 kíló og aflahæsta konan var Guð- finna Sveinsdóttir, Vestmannaeyj- um, með 314,19 kíló. í sveitakeppn- inni var aflahæsta sveit karla með Frá vorverkadeginum í Ártúnsskóla þar sem saman komu um 500 manns sem tóku óspart til hendinni. 1.295,61 kíló og aflahæsta kvenna- sveitin bar að landi 946,98 kíló. Aflahæsti bátur á hverja stöng var Bylgja II með 325,93 kíló á stöng- ina. Stærsta l'iskinn í mótinu dró Róshildur Stefánsdóttir, Reykjavík, 15,31 kílóa þorsk. Flesta fiskana dró Einar Kristinsson, 320 talsins, og flestar tegundir dró Stefán Ein- arsson, átta talsins. Auk áður talinna verðlauna voru veitt ýmis önnur verðlaun svo sem fyrir stærsta fiskinn af hverri teg- und. Mótið þótti heppnast vel og fengu veiðimennirnir heldur betra veður til keppninnar í ár en í fyrra þegar haugabræla var mótsdagana. Mótsstjóri á sjóstangveiðimótinu í ár var Þorbjörn Pálsson. Grímur VORVERKADAGUK Fegrun við Artúnsskóla Fyrir skömmu var haldinn vor- verkadagur í Ártúnsskóla, Reykjavík, þar sem foreldrar, nem- endur og kennarar unnu í samein- ingu við að fegra umhverfi skólans og víðar. Þar komu saman a.m.k. 500 manns sem tóku óspart til hendinni við að hreinsa rusl, mála lausar stofur sem standa við skólann, mála strætisvagnaskýli í hverfinu o.s.frv. Auk þess voru sett upp skilti, sem nemendur og foreldrar höfðu unnið í sameiningu, þar sem varað er við hröðum akstri í gegnum íbúðarhverfi. Að störfum loknum var farið í leiki, sungið saman og borðaðar pylsur sem Reykjavíkurborg bauð upp á í tilefni dagsins og ríkti sann- kölluð hátíðarstemmning í yndis- legu veðri. Tölvutæki BÓKVAL, Kaupvangsstrœti 4, Akureyri, sími 96-26100 I AD FÓTUM ÞÉR AMERÍKA ASÍA Orlando kr. 57.670.- Bangkok kr. 81.510.- San Fransisco Dehli kr. 59.340.- kr. 74.630,- Chicago kr. 62.220.- Tokyo kr. 95.780,- EVROPA London kr. 28.300.- París kr. 28.720,- Búdapest kr. 44.330,- Á EIGIN VEGUM EN FARSEÐLUM FRÁ VERÖLD •••• KLM BRITISHAIRWAYS /////£'*£' Royal Dulch Airtmet TIlC WOfltls faVOUtÍtC SÍflÍIIC. Æm/w M FLmUGLmEÍIÐiR i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.