Morgunblaðið - 13.06.1990, Page 46

Morgunblaðið - 13.06.1990, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990 mmtm . .. að koma fram við hana eins og konung- borna. TM Rog U.S. Pat Off.—all rights resarved © 1990 Los Angeles Times Syndicate Þú hefðir ekkert átt að segja honum sögima um biskupinn og smalastúlkuna ... Jæja drengir. Nú losnum við alveg við að naga sjálfir. HÖGNI HREKKVtSI . .. kCOSTUPAF HOKPA/UAT- X Margt getur undarlegt gerst Til Velvakanda. Nú berast þær fréttir frá hveiju landinu á fætur öðru fyrir „austan tjald“ að í fijálsum kosningum vinni borgaralegu öflin hvern sigurinn á fætur öðrum, en kommarnir lúti allstaðar í lægra haldi, séu jafnvel smæstir. Þeir sem höfðu þarna skapað himnaríki á jörð, vinir verkalýðsins þar sem velmegun var hærri en allstaðar annarstaðar. Maður nefnir nú ekki öll ljóðin sem kommarnir héldu á lofti og allar dýrðarsagnirnar sem áttu að sann- færa okkur „íhaldsmenn" um sól- skinið fyrir austan, og verkalýður- inn dáði þessar stjórnir svo að hann lét þær oftast fá 99,9% atkvæða í kosningum, sem sagt heimsmet. Ég man félaga Stalín, þennan góð- vin mannsins, sem brosti framan í fólkið til að votta því þakklæti fyr- Víkverji Nýlega hlýddi Víkveiji á viðtal í einhverri útvarpsstöðvanna, þar sem rætt var við hótelstýru utan Reykjavíkur. Minnisstætt úr þessu viðtali er spurning útvarps- mannsins, en hún var þannig: Hvað inniheldur hótelið morg herbergi? Þegar spurt er á þennan veg á opinni útvarpsrás fyrir framan tugi þúsunda áheyrenda, hljóta fleiri en Víkveiji að velta því fyrir sér, hvort jafn mikill ambögusmiður eigi að veija kröftum sínum til þess að tala óundirbúið í útvarp. Hinn mikli áhugamaður um ■'slenskt mál og verndun tungunnar Helgi Hálfdanarson ritaði grein hér í blaðið á föstudag, sem lýkur á þessum orðum: „Hér er einungis minnzt á örfá málfarsatriði sem farið hafa úr lagi í útvarpi og blöð- um. Þar er því miður af of miklu að taka. En flest er samt af því tagi að mjög auðvelt væri að kippa í liðinn, ef vilji væri til.“ Af því dæmi sem Víkverji tók í upphafi sést, að æfing og vilji til að tala vandað mál hefði átt að leiða til þessarar spurningar: Hvað eru mörg gistiherbergi í hótelinu? XXX * Islensk málnefnd efndi í kosninga- vikunni til námskeiðs í íslensku ir góða meðferð. Og hversu margir hér á landi voru þeir sem hrifust og tóku þessa fyrirliða í dýrlinga- tölu. Hvernig víkur þessu við? Er þetta ekki áttavitinn sem átti að leiða velmegunina til allra íbúa jarð- arinnar, Internationalinn mun tengja strönd við strönd, sungu þeir í kröfugöngu með hamar og sigð í broddi fylkingar. Já, saklaus- ir einstaklingar lofuðu „guð“ sinn Stalín og sungu fullum hálsi: Sjá roðann í austri. Ég man nú allar skrúðgöngurnar og sönginn þar sem íhaldinu var aldeilis sagt til syndanna. Hvað er þetta eiginlega? Nú er söngurinn hljóður og horfinn, aðeins hljómur frá bjöllunnar klið. Og þegar tjaldið opnast þá blasa rústirnar við, meira að segja hafa valdhafarnir þar séð fyrir því að peningarnir sem áttu að fara fyrir skrífar fyrir norrænt málræktarfólk. Var þetta þarft framtak og ætti að auka veg íslenskunnar á norrænum vett- vangi. Er ekki vanþörf á því. Þegar blaðamaður Morgunblaðs- ins ræddi við Danann Allan Kark- er, stjórnarformann Norrænnar málstöðvar og lektor við Árósarhá- skóla, og Norðmanninn Stále Lo- land, forstöðumann Norrænnar málstöðvar í Ósló, komu fram við- horf, sem stangast að mati Víkveija á við hugmyndir margra um þróun tungunnar í evrópsku samstarfi. Allan Karker sagði meðal ann- ars: „Sameiningarþróunin í Evrópu mun ekki hafa í för með sér sigur einnar þjóðtungu; það er eins líklegt að smáþjóðir og þjóðabrot færist fremur í aukana við að verja menn- ingarlegt sjálfstæði sitt um leið og því er fórnað á öðrum sviðum til að tryggja friðinn.“ Stále Loland komst þannig að orði: „Þetta verður ekki [í Evrópu] eins og í Banda- ríkjunum, engin ein tunga mun ná yfirhöndinni. Reynum að ímynda okkur hvort t.d. Frakkar myndu nokkurn tíma sætta sig við að enska eða þýska yrðu „Evrópumálið.““ Benti Loland á, að Norðurlandaráð reyndi stöðugt að bæta hlut Sama, Grænlendinga og annarra þjóðar- brota í samstarfinu. Þetta væri dæmigerð þróun í alþjóðasamskipt- föt og fæði fóru í herdeildir og morðvopn. Og svo segja kommarnir hér: Þetta vissum við og vorum ósammála (en héldu bara blekking- unum áfram). Og nú kemur skýr- ingin á þvi hversu oft hefir þurft að skipta um nafn og meira að segja dugir alþýðubandalagsnafnið ábyggilega ekki lengur. Og nú gengur það svo langt að allt er í sjálfsvígum. Ekki efnilegt. Þeir hæða vorn rétt til að rísa frá þraut og rétt til að lifa eins og menn. En hvað það stemmir við austan- tjaldslöndin þegar þau voru upp á sitt besta og gátu jafnvel fengið skáld og heimspekinga hér uppi á íslandi til að útbreiða og dásama þessi sæluríki. Æ, það er stundum ónotalegt að vakna upp við blákald- an sannleikann. Árni Helgason um og sama yrði uppi á teningnum í Evrópubandalaginu. xxx etta mat málræktarmannanna er íhugunarvert og víst er að sá áhugi sem þeir sýndu með því að koma hingað til að læra íslensku staðfestir vilja til að bæta hlut smáþjóða. Vegna viðræðna íslenskra stjórnvalda við forráða- menn Evrópubandalagsins um evr- ópskt efnahagssvæði hefur nú verið ráðist í mesta opinbera þýðingar- starf í sögu landsins. Á vegum Orðabókar háskólans munu tugir manna vinna að því næstu misseri að snúa á íslensku tugum þúsunda blaðsíðna er geyma lagabálk Evrópubandalagsins. Á sínum tíma varð þýðing einnar bók- ar, Biblíunnar, til þess að styrkja íslenskuna í sessi og tryggja framtíð hennar. Þar var um stórvirki eins manns að ræða. Hinn mikli evr- ópski bálkur sem nú er í þýðingu spannar mörg svið og er ekki að efa að íslensk tunga á eftir að auðg- ast vegna hans, þótt því skuli ekki spáð hér að áhrifin verði jafn mikil og þegar Biblían var þýdd á sínum tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.