Morgunblaðið - 13.06.1990, Page 47

Morgunblaðið - 13.06.1990, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990 47 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FQSTUDAGS tél U. ' 1) \l Þessir hringdu ... Endursýnið Yngismær? Kona hringdi: „Mig langaði til að vita hvort Sjónvarpið gæti ekki endursýnt þáttinn um Yngismær sem var á dagskrá á mánudaginn. Ég hélt að þátturinn væri sýndur á sama tíma og venjulega, en það var annar sýningartími vegna fótbolt- ans og missti ég því af honum. Þetta eru skemmtilegir þættir og þykir raér leiðinlegt að hafa misst af honum. Ef þeir hjá sjónvarpinu vildu vera svo vinsamlegir að sýna þáttinn aftur.“ Grá og hvít læða Læða, grá á baki og hvít á kvið, er týnd. Læðan sem er ómerkt er með hvítt trýni og gráa doppu á nefinu. Þeir sem vita um köttinn vinsamlega hringi í síma 37396. Á sama stað er í óskilum barnaúlpa, rósótt með bleiku fóðri. Eigandi getur vitjað úlpunn- ar í Efstasundi 4. Týndi smásögum Um miðjan maímánuð sl. gleymdist glært plasthylki í stræt- isvagnabiðskýlinu á Brúnavegi fyrir framan Hrafnistu í Reykjavík. í plasthylkinu voru þrjár barnasmásögur sem áttu að fara í prentun. Auk þess var í plasthylkinu mynd af litlum dreng. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 24265 eftir kl. 18.00. Öryggi í myrkri eða birtu Kona hringdi: „Kvikmyndin „Óvinur á ratsjá“ sem sýnd var í sjónvarpinu á laug- ardagskvöldið síðasta vakti upp spurningar. Þar var gefið í skyn að öryggi væri lítið þegar flogið væri í myrkri, flugmennimir sjá takmarkað út og gæti slíkt skapað hættu fyrir farþega og áhöfn. Er ekki einhver sem gæti svarað því hvort sé öruggara, að fljúga í birtu eða myrkri. Nú eru margar sólar- landaferðimar farnar að nóttu til, eru farþegar í meiri hættu þá en þegar flogið er að deginum?“ Lyklakippa Lyklakippa sem er eins og kex í laginu með fimm lyklum tapað- ist. Finnandi hafi samband í síma 611795. Brot úr veraldar- sögii Til Velvakanda. Jóhannes Straumland mun í föð- urættina kominn af gamalgróinni hagyrðinga- og skáldaætt í Breiða- firði. Móðurættina þekki ég minna. Þótt lítið hafi hann lagt til kveð- skaparíþróttarinnar fram að þessu. Sjósóknin mun hafa tekið tíma hans allan. En nú hefur hann á efri árum látið fara frá sér lítið kver í hefð- bundnum stíl nútímaljóða og nefnt Brot úr-Veraldarsögu. Varla gat það brot minna verið — og þó. Skáld yrkir iof um átthaga sína. „Þegar morgundaprinn kemur á undan gærdeginum, þá verða allar klukkur vitlausar, nema bláklukkur í hvamminum í Búlkey.“ Búlkey hefur þá eignast sitt skáld. Það var ekki vonum fyrr. Breiðfirðingar ættu að taka þessu kveri vel, í von um meira seinna — og kannski betra. B.Sk. Pennavinir Óskar eftir pennavinum: Pétur Johnson, Sambýlið, Auðarstræti 15, 105 Reykjavík. S TOR GLÆSILE GIR FRANSKIR STÁLPOTTAR Efþú ert að leita að úrvalspottum, sem sóma sér á hvaða veisluborði sem er, þá eru frönsku Aubeco pottarnir fyrir þig Hagstætt verð. Greiðslukjör á þremur eðafleiri pottum. Einar Farestveát&Co.hf BORGARTÚNI28, SÍMI622901. L«ið 4 stoppar v\6 dymar MIKIÐ ÚRVAL AF: Barnasloppum Dömu- og herrasloppum Strandhandklæðum Handklæðasettum Faxafeni 12, Reykjavík, sími 673830 Svona einfalt er að gerast áskrifandi að spariskírteinum ríkissjóðs ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Þjónustumlðstöð ríldsverðbréfa, Hverflsgötu 6,2. hæð. Sími 91-62 60 40 Já, ég vil hefja reglulegan spamaö og gerast áskrifandi að spariskírteinum ríksissjóðs Nafn_______________________________________ Heimili. Staður_ Sími — Póstnr.. Kennitala I I I I I I I I TTT (Tilgieindu hér fyrir neðan þá grunnfjártiæB sem þú vilt fjárfesta fyrir í hverjujn mánuði og lánstíma sicfrteinanna.) Fjárhæð □ 5.000 □ 10.000 □ 15.000 □ 20.000 □ 25.000 □ 50.000 eða aðra fjárhæð að eigin valikr. (sem hleypur á kr. 5.000) Binditími og vextir □ 5 ár með 6,2 % vöxtum □ 10 ár með 6,2% vöxtum Ég óska eftir að greiða spariskírteinin með □ greiðslukorti □ heimsendum gíróseðli Greiðslukort mitt er: □ VISA □ EUROCARD □ SAMKORT Númer greiðslukorts: 1 1 1 1 1 1 1 II 1 1 II 1 1 1 1 II 1 Gildistími greiðslukortsins er til loka (mán. og ár): dags. undirskrift Vfsitala og vexdr bætast við grunnfjárhæð hverju sinni, sem reiknast frá og með útgáfudegi skfrteinanna tii 20. dags hvers mánaðar á undan greiðslu. Settu áskriftarseðilinn í póst fyrir 15. þess mánaðar sem þú ákveður að hefja áskrift, og sendu til: Þjónustumiðstöðvar eBa Seðlabanka íslands ríkisverðbréfa Kalkofnsvegi 1 Hverfisgötu 6 150 Reykjavík 101 Reykjavík Þú getur einnig hringt í sfma 91-626040 eða 91-699600 og pantað áskrift.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.