Morgunblaðið - 13.06.1990, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR
MIÐVIKUDAGUR 13. JUNI 1990
49
KNATTSPYRNA / HM A ITALIU
Reuter
■ ÞJÓÐVERJAR og fleiri deila
um hver gerði fjórða markið gegn
Júgóslövum. Völler segist hafa
ýtt boltanum yfir línuna og FIFA
er á sama máli, en
Brehme er harður á
því að hann hafi
skorað og yfirmenn
HM á Ítalíu taka í
FráJóni
Halldóri
Garöarssyni
ÍV-Þýskalandi
sama streng. '
■ MARADONA hefur allt á horn-
um sér eftir tap Argentínu gegn
Kamerún. Hann kennir ungu leik-
mönnunum fyrst og fremst um tap-
ið, en er ekki síður argur vegna
þess að í leiknum týndi hann eyrna-
lokk, sem eiginkonan gaf honum
eftir HM 1986.
■ ÞJÓÐVERJAR eru af mörgum
taldir sigurstranglegastir í keppn-
inni eftir frábæran fyrsta leik. Hjá
Intertops veðmöngurunum í Lon-
don eru möguleikar Þjóðveija
sagðir vera 35:10, ítalir eru næstir
(40:10) og síðan Brasilíumenn
(50:10).
■ ÞJÓÐVERJUM var hælt á
hvert reipi eftir leikinn. Daily Te-
legraph sagði að þeir væru ekki
þekktir fyrir að byija svona vel og
væru sigurstranglegastir ásamt
ítölum. Times var sammála og
Gazelta dello Sport líkti Matthfius
við Beethoven.
toúm
FOLX
■ ENSKJ spjótkastarinn Steven
Backley náði um síðustu helgi öðni
lengsta kasti sögunnar með núgild-
andi spjótum. I keppni á enska
meistaramótinu í fijálsum íþróttum
kastaði Backley 88,46 metra. Það
er 64 sentimetrum styttra en Svíinn
Patrik Boden náði í heimsmetsk-
asti sínu í mars síðastliðnum. „Ég
vissi að kastið var langt, en ég var
alls ekki með heimsmetið í huga,“
sagði Backlay eftir mótið.
■ ÞAÐ voru fleiri fijálsíþrótta-
menn sem náðu góðum árangri á
enska meistaramótinu. Colin Jack-
son fékk bestan tíma í 110 metra
grindahlaupi sem náðst hefur á
enskri grund. Hann hijóp á 13,10
sekúndum. „Heimsmet Rogers
Kongdoms sem er 12,92 sekúndur
er í hættu,“ sagði Jacksen.
Vestur-Þjóöverjarnir Rudi Völler og Andreas Brehme deila nú um það
hvor þeirra hafi skorað fjórða markið gegn Júgóslövum. Hér að ofan er mynd
af hinu umdeilda marki.
Metsalaen
fáir áhorfendur
45 amkvæmt upplýsingum frá
mótshöldurum HM áítaliu er
búið að selja 92% aðgöngumiða á
leiki keppninnar. Engu að siður
hefur verið tómlegt um að litast
á áhorfendabekkjum nokkurra
ieikja eins og á viðureign Kól-
umbíu og Sameinuðu ai'abísku
furstadæmanna, á leik Banda-
ríkjanna og Júgóslavíu og leik
Suður-Kóreu og Belgíu.
Skipuleggjendur segja að 10
styrktaraðiiar keppninnar hafi
keypt marga miða, sem hafi ekki
skiiað sér. Eins hafi mörg ítölsk
fyrirtæki keypt miða til að gefa
viðskiptamönnum sínum og þeir
liafi heldur ekki látið sjá sig. í
þriðja lagi benda þeir á að miðar
hafi verið seldir saman á aila leiki
í sömu borg og fólk hafi ekki
endilega áhuga á að sjá fyrstu
leikina, þó það hafi keypt miða á
þá.
Fastir leikdagar
skipta miklu
- segir Franz Beckenbauer og
hrósar ítölsku deildarkeppninni
FRANZ Beckenbauer, lands-
liðsþjálfari Vestur-Þýskalands,
hrósaði í gær fyrirkomulaginu
á ítölsku deildakeppninni og
sagði það allt annað og betra
en menn eigaað venjast í
Þýskalandi. „ítalir eru okkur
fremri á öllum sviðum. Upp-
byggingin er betur skipuiögð,
vellirnir eru betri og leikirnir
fara allir fram á sunnudögum
en dreifast ekki á marga daga
eins og hjá okkur.“
Þjálfarinn sagði að þýska lands-
liðið nyti góðs af þessu kerfi
vegna þess að þýskir landsliðsmenn
léku með ítölskum liðum og tækju
þar framförum. „Pað er kostur, sem
bitnar á þýsku deildinni, því bestu
mennirnir vilja leika á Ítalíu. Þýsku
liðin hafa ekki eins mikla peninga
og ítölsku félögin."
Beckenbauer gaf leikmönnum
sínum frí til að vera með sínum
nánustu frá mánudagskvöldi til
hádegis í gær. Hann sagði að kæm-
ist liðið í 8 liða úrslit kæmi vel til
greina að leikmenn fengju að fara
heim í tvo daga áður en baráttan
hæfist á ný. Ef Vestur-Þjóðveijar
sigra í D-riðli, leika þeir 24. júní í
16 liða úrslitum. Fari þeir þá með
SLEGGJUKAST
Guðmundur bætti
íslandsmetið
Guðmundur Karlsson, FH, bætti íslandsmet sitt í sleggjukasti um
tæpan meter á kastmóti FH í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Guðmund-
ur kastaði 62,58 metra, en eldra metið sem hann átti sjálfur var 61,74
metrar og sett í Dublin í fyrra.
Eggert Bogason náði besta árangri íslendings í ár er hann kastaði
kringlu 61,64 metra á sama móti.
ÍPRÓm
FOLK
■ ÞORFINNUR Hjaltason, sem
var í marki KR-inga í 1. deild í
fyrra, hefur gengið til liðs við Víði
úr Garði sem leikur 2. deild. Gísli
Heiðarsson, markvörður Víðis,
gengst undir undir uppskurð vegna
bijóskloss í baki og leikur þvi ekki
meira með Víði á þessu keppn-
istímabili.
■ BERGUR Ágústsson, leikmað-
ur ÍBV, þurfti að skreppa til Nor-
egs, þar sem hann stundaði nám í
vetur, og er ekki væntanlegur
heima aftur fyrr en um næstu helgi.
Hann missir því af leiknum við Val
annað kvöld. Olafur Arnason, sem
meiddist í leiknum gegn KR, er enn
meiddur og verður því heldur ekki
með ÍBV .
■ HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í
víðavangshlaupi 1992 fer fram í
Boston í Bandaríkjunum sam-
kvæmt ákvörðun alþjóða fijálsí-
þróttasambandins. Heimsmeistara-
mót unglinga, sem haldið er sama
ár, verður hins vegar í Seoul.
■ MATEJA Svet, júgóslavneska
skíðastjarnan sem er núverandi
heimsmeistari kvenna í svigi, hefur
ákveðið að hætta allri skíðaiðkun.
Svet, sem verður 22 ára í ágúst,
er orðin leið á skíðaíþróttinni og
segist ætla að einbeita sér að því
að ná frama í viðskiptum hér eftir.
Framkvæmdastjóri jugóslavneska
skíðasambandsins, Tone Vogr-
inec, sagði að ákvörðun Svet væri
mikið áfall, en ekki virtist ganga
að fá hana ofan af þessari ákvörðun
sinni.
■ HOSSAM Hassan,knatt-
spyrnumaður frá Egyptalandi hef-
ur skrifað undir samning við gríska
fyrstu deildar liðið Paok. Hassan
skoraði mark Eygpta í 1:0 sigri á
Algeríu á síðasta ári, en sá sigur
tryggði Egyptum þátttökurétt á
HM á Ítalíu og er það í fyrsta
skipti í 56 ár sem Egyptar komast
í úrslitakeppnina. Hassan verður
þar með fjórði Egyptinn til þess
að leika knattspyrnu í með evr-
ópsku félagsliði.
FLORIDANA
HVAn9
Mateja Svet.
■ ALÞJÓÐA fijálsíþróttasam-
bandið hefur ákveðið að næsta
heimsmeistarakeppni í fijálsum
íþróttum sem fram fer 1993 verð
haldin á Havana, en Kúbverjai
verða einnig gestgjafar á Ameríku-
leikunum 1991. Aþena, Singap-
ore og Birmingham sóttu líka uir
að fá að halda heimsmeistaramótið.
en Kúbverjar urðu hlutskarpastir.
FELAGSLIF
Knattspyrnu-
deild ÍR 20 ára
Idag, miðvikudag, er knatt
spyrnudeild ÍR 20 ára og í tilefn
dagsins býður knattspyrnudeildii
öllum ÍR-ingum og velunnurum ti
kaffisamsætis í félagsheimili ÍR
Mjódd. Húsið opnar kl. 17.00.
Fyrsti formaður knattspyrnu-
deildar ÍR var Sveinn Scheving
Fyrst í stað hafði knattspyrnudeild
in aðstöðu í Bakkahverfi í Breið
holti, en 31. maí 1983 vígði félagií
eigin malarvöll á framtíðarsvæð
sínu. Einng var tekið í notkun fé-
lagsheimili á sama tíma.
í ár, á 20 ára afmæli knatt
pyrnudeildar ÍR, mun glæsileg
grassvæði vera tekið í notkun
Svæðið er 23 þúsund fermetrar o;
er hægt að leika á þremur grasvöll
um samtími.
(Úr fréttatilkynningu frá lR)
Franz Beckenbauer.
sigur af hólmi spila þeir 1. júlí í
8-liða úrslitum. „Það er leiðinlegt
að bíða svo lengi,“ sagði Becken-
bauer.
Aðeins 100% hreinan
Floridana safa í
(-
umbúðum!
Munið orðaleitina!
)
HÓSHJÁLP
DAHMÖRK
Húshjálp óskast á heimili,
staðsettu 10 km norður af
Kaupmannahöfn við Bellevue
ströndina. Viðkomandi þarf
að sjá um þrif og matseld
að einhverju leyti, vera 18
ára eða eldri og reykja ekki.
Fjölskyldumeðlimir eru tveir.
Við bjóðum fallega innréttaða
stofu, svefnherbergi, sérbað-
herbergi og sérinngang með
litsjónvarpi. Góð laun í boði
fyrir réttan starfskraft.
Annie (hristensen,
Kongehojen 3,
DK-2930, Klampenborg
Sími: 9045-3164 3366
eftirkl. 16.