Morgunblaðið - 13.06.1990, Page 50

Morgunblaðið - 13.06.1990, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990 KNATTSPYRNA / 1. DEILD - HORPUDEILD Langþráður sigur meistaranna í KA KA náði í þrjú langþráð stig í gærkvöldi er liðið bar sigurorð af Víkingum, 2:0, á Akureyri. íslandsmeistararnir verðskuld- uðu sigurinn þar sem þeir voru mun skeinuhættari og ákveðn- ari í sóknaraðgerðum sínum. Ef ekki hefði verið fyrir stórleik Baldvins Guðmundssonar í Víkingsmarkinu hefði sigur KA getað orðið mun stærri. KA-Víkingur 2:0 Akureyrarvöllur, íslandsmótið í knatt- spymu, 1. deild — Hörpudeild — þriðjudag- inn 12. júní 1990. Mörk KA: Þórður Guðjónsson (82.), Orm- arr Örlygsson (vsp. 86.) Gult spjald: Ormarr Örlygsson, KA. Trausti Ómarsson og Einar Einarsson, Víkingi. Dómari: Guðmundur Stefán Maríusson. Áhorfendur: 895. Lið KA: Haukur Bragason, Steingrímur Birgisson, Halldór Halldórsson, Erlingur Kristjánsson (Þorður Guðjónsson 18.), Gauti Laxdal (Árni Hermannsson 87.), Bjarni Jónsson, Heimir Guðjónsson, Ormarr Örl- ygsson, Jón Grétar Jónsson, Hafsteinn Jak- obsson, Kjartan Einarsson. Lið Víkings: Baldvin Guðmundsson, Helgi Björgvinsson, Helgi Bjarnason, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Janni Zilnik, Einar Einars- son, Hörður Thódórsson, Trausti Ómarsson, Atli Helgason, Atli Einarsson, Goran Micic. FH-Þór 0:1 Kaplakrikavöllur, íslandsmótið í knatt- spyrnu, 1. deild — Hörpudeild — þriðjudag- ur 12. júní 1990. Mark Þórs: Luka Kostic (vsp. 65.) Gult spjald: Hlynur Birgisson, Siguróli Kristjánsson og Júlíus Tryggvason, Þór. Áhorfendur: Fáir, líklega ríflega 150. Dómari: Ólafur Sveinsson, dæmdi ágæt- lega. Línuverðir: Þorvarður Bjömsson og Engil- bert Runólfsson. Lið FH: Þorsteinn Bjarnason, Birgir Skúla- son, Andri Marteinsson, Pálmi Jónsson, Björn Jónsson, Guðmundur Hilmarsson, Guðmundur Valur Sigurðsson, Þórhallur Víkingsson (Kristján Hilmarsson 80.), Hörður Magnússon, Magnús Pálsson (Kristján Gíslason 80.), Ólafur Kristjánsson." Lið Þórs: Friðrik Friðriksson, Láms Orri Sigurðsson, Siguróli Kristjánsson, Nói Björnsson, Luka Kostic, Þorsteinn Jónsson, Sigurður Lárasson, Júlíus Tryggvason, Hlynur Birgisson, Sævar Árnason (Ólafur Þorbergsson 75.), Árni Þór Árnason (Bjarni Sveinbjömsson 85.). Fyrri hálfleikurinn var daufur og fátt um fína drætti. KA fékk tvö umtalsverð tækifæri en Baldvin varði vel skalla frá Kjartani Einars- liBHH syni af markteig og Reynir hann varði síðan enn Eiríksson betur er Jón Grétar skrífar Jónsson komst í gott færi og þrumaði á markið af stuttu færi. Eina umtals- verða hættan sem Víkingar sköp- uðu í fyrri hálfleik var er Trausti Ómarsson átti gott skot af 25 metra færi en rétt yfir mark KA. Skipt um gír í upphafi síðari hálfleiks héldu liðin uppteknum hætti en þegar um Guðjón Þórðarson þjálfari KA- manna fagnaði loks sigri í deildinni. fimmtán mín. lifðu af leiknum var sem KA-menn skiptu upp um gír, sóttu af miklum krafti og sköpuðu sér góð færi. Á 72. mín. skaut Jón Grétar yfir, Þórður Guðjónsson var á ferðinni einni mín. síðar en Bald- vin varði gott skot hans af stuttu færi. Litlu síðar komst Þórður einn í gegnum vörn Víkinga en skaut yfir. ísinn brotinn Markið lá sem sagt í loftinu og varð að veruleika átta mín. fyrir leikslok. Dæmd var aukaspyma á Víkinga rétt utan vítateigs, Órmarr Örlygsson þrumaði á markið, Bald- vin hélt ekki boltanum og Þórður fylgdi vel á eftir og skoraði. Fjórum mín. síðar var Heimi Guðjónssyni brugðið innan vítateigs og Guð- mundur Stefán Maríusson, góður dómari leiksins, var ekki í vafa og dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu. Ur henni skoraði Ormarr og innsiglaði góðan sigur. Baldvin markvörður var besti maður Víkinga en hjá KA má nefna Ormarr, sem lék vel í fyrri hálfleik, og kom við sögu í báðum mörkun- um. þá var Bjarni Jónsson einnig góður og Þórður skapaði mikinn usla. Þess má geta að hann kom inn á fyrir Erling Kristjánsson strax á 18. mín. er gömul meiðsli fyrirlið- ans tóku að hijá hann. IMú bekki éci mma m©nn sagði Guðjón Þórðarson þjálfari KA glaður í bragði eftir fyrsta sigur meistaranna á keppnistímabilinu Morgunblaðið/Rúnar Þór Þórður Guðjónsson, sonur þjálf- arans, skorar hér fyrra mark KA gegn Víkingi í gærkvöldi og fagnar. Bald- vin markvörður, sem liggur á vellinum, varði þrumuskot en hélt ekki knettin- um og Þórður fylgdi vel á eftir og skoraði. Til vinstri er Víkingurinn Janni Zilnik og til hægri Hafsteinn Jakobsson, KA. Baldvin Guðmundsson, Víkingi. Alexander Högnason, ÍA. Sveinbjöm Hákonarson, Stjörnunni. Guðjón Þói'ðarson þjálfari KA brosti breitt að leikslokum enda ærin ástæða til; fyrstu stig meistaranna í sumar komin í höfn. „Við komum til þess að sigra. Ekkert annað kom til greina og það gekk upp. Það sýndi sig í þessum leik að þolinmæðin er dyggð því að mörk okkar komu ekki fyrr en í lok leiksins. Með sigrinum í dag sýndi liðið hvaða „karakter" býr í þvf; nú þekki ég mina menn.“ Guðjón sagðist ekki hafa verið orðinn áhyggjufullur þrátt fyrir slæmt gengi og neikvæðan al- mannaróm. Hann sagði að græðg- ina hefði vantað í sóknarleik liðs- ins; „að einhver hafi tekið af skar- ið þegar ekkert gengur, en það kom í dag og þetta gefur mönnum byr undir báða vængi. Það er langt til loka mótsins og mikið af stigum í pottinum ennþá. Við eigum framundan einn útileik og svo sjö leiki hér á vellinum. Við getum unnið hvar sem er en heimavöllurinn er að sjálfsögðu alltaf sterkastur og við bjóðum mótheija okkar velkomna til leiks,“ sagði Guðjón og hvarf í herbúðir sínar þar sem gleðin var við vöid. Sanngjamt jafntefli á Skipaskaga ÍA - Stjarnan 0:0 Akranessvöllur, íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild - Hörpudeild - þriðjudaginn 12. júní 1990. Gult spjald: Jóhannes Guðlaugsson, ÍA. Sveinbjöm Hákonarson, Stjörnunni. Rautt spjald: Ekki gefíð. Dómari: Eyjólfur Ólafsson. Línuverðir: Gísli Guðmundsson og Kristján Guðmundsson. Áhorfendur: 530. Lið ÍA Gísli Sigurðsson, Jóhannes Guð- laugsson, Heimir Guðmundsson, Alexander Högnason, Sigurður B. Jónsson, Bjarki Pétursson, Brandur Siguijónsson, Sigur- steinn Gíslason, Arnar Gunnlaugsson, Guð- bjöm Tryggvason og Haraldur Ingólfsson. Lið Stjörnunnar: Jón Otti Jónsson, Heimir Erlingsson, Birgir Sigfússon, Bjami Bene- diktsson, Sveinbjörn Hákonarson, Láras Guðmundsson (Þór Ómar Jónsson 82.), Ing- ólfur Ingólfsson, Árni Sveinsson (Valgeir Baldursson 77.), RagnarGíslason, Valdimar Kristófersson og Magnús Bergs. KR-Fram 0:1 KR-völlur, Sslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild - Hörpudeild - þriðjudaginn 12. júní 1990. Mark Fram: Guðmundur Steinsson (6.). Gult spjald: Bjöm Rafnsson og Pétur Pét- ursson, KR. Pétur Ormslev og Pétur Arn- þórsson, Fram. Rautt spjald: Ekki gefið. Dómari: Bragi Bergmann. Línuverðir: Ari Þórðarson og Sigurður Friðjónsson. Áhorfendur: 1.281. Lið KR: Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Jóhann Kristos Lapas, Þor- móður Egiisson, Gunnar Skúlason, Ragnar Margeirsson, Hilmar Bjömsson (Sigurður Ómarsson 75.), Þorsteinn Halldórsson, Bjöm Rafnsson, Amar Amarson, Pétur Pétursson. Lið Fram: Birkir-Kristinsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Kristján Jónsson, Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson, Kristinn R. Jónsson, Jón Sveinsson, Guðmundur Steins- son, Amljótur DavSðsson (Pétur Amþórsson 70.), Ríkharður Daðason, Anton Bjöm Markússon. Nýliðar Stjörnunnar náðu í dýr- mætt stig á Akranesi í gær- kvöldi, stig, sem þeir áttu reyndar fyllilega skilið, því þeir voru síst lakari aðilinn i ann- Sigþór ars slökum leik, sem Eiríksson lauk 0:0. sknfar Stjarnan byijaði af krafti og á upp- hafsmínútunum komst Valdimar Kristófersson í gott færi, en skaut framhjá. Skömmu síðar átti Svein- björn Hákonarson þrumuskot í þverslá Skagamarksins af um 20 metra færi. Eftir þessa líflegu byrj- un nýliðanna komust heimamenn heldur meira inn í leikinn og eftir um hálftíma viðureign komst Arnar Gunnlaugsson einn inn fyrir vörn mótheijanna eftir slæm varnarmis- tök, en hann skaut framhjá fjær- stöng Stjörnumarksins úr algjöru dauðafæri. Skömmu síðar gerðist / .svipað atvik hinumegin. Ingólfur Ingólfsson komst í gegn eftir að heimamenn höfðu misst af knettin- um á hálu grasinu, en honum brást bogalistin sem Arnari og skaut framhjá. Síðasta tækifæri hálfleiksins fengu Skagamenn. Heimir Guð- mundsson tók aukaspyrnu út við hornfána vinstra megin, en Arnar skallaði yfír af markteig úr upp- lögðu færi. Skagamenn hófu síðari hálfleik- inn af krafti og fengu sitt besta færi, er sjö mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Þá átti Alexander Högnason þrumuskot frá vítapunkti í þverslá eftir fyrirgjöf frá Haraldi Ingólfssyni. Er hálftími var til leiks- loka fékk Stjarnan gott færi. Lárus Guðmundsson komst inn fyrir vörn Skagamanna, en gott skot hans fór framhjá fjærstöng. Eftir þetta dofnaði mjög yfir leiknum. Baráttan var mikil á miðj- unni, en hvorugt liðið náði að skapa sér almennileg marktækifæri. Þó fengu heimamenn tvö þokkaleg færi undir lokin. í fyrra skiptið bjargaði Jón Otti Jónsson vel eftir skalla frá Guðbirni og er tvær mínútur lifðu af leiknum átti Heim- ir þrumuskot í hliðarnetið eftir að hafa brotist upp vinstri kantinn. Sem fyrr sagði var leikurinn slak- ur og áttu aðstæður sinn þátt í því — rigning og rok gerðu það að verkum að leikmenn áttu erfitt með að hemja knöttinn. Úrslitin voru sanngjörn og hvorugt liðið sýndi burði til að blanda sér í toppbarátt- una. Bjarni Jónsson, Ormarr Örlygsson og Þórð- ur Guðjónsson, KA. Heimir Guðmundsson og Guðbjöm Tryggvason, ÍA. Ólafur Gott- skálksson, Sigurður Björgvinsson, Hilmar Björnsson og Þorsteinn Halldórsson, KR. Birkir Kristinsson, Kristján Jónsson, Jón Sveinsson og Anton Bjöm Markússon, Fram. Luka Kostic, Sigurður Lárasson og Friðrik Friðriksson, Þór. Björn Jónsson, FH. 1.DEILD Fj.leikja u j T Mörk Stig FRAM 5 4 1 0 13: 0 13 KR 5 3 0 2 7: 5 9 ÍBV 4 3 0 1 5: 5 9 VALUR 4 2 1 1 5: 3 7 STJARNAN 5 2 1 2 6: 9 7 FH 5 2 0 3 7: 6 6 VÍKINGUR 5 1 2 2 6: 7 5 ÍA 5 1 2 2 4: 8 5 ÞÓR 5 1 1 3 2: 6 4 KA 5 1 0 4 3: 9 3 Ekki flogið frá Eyjum Leik Vals og ÍBV sem fram átti að fara í gærkvöldi var frestað þar sem ekki var flogið frá Vestmannaeyjum vegna þoku. Þess í stað fer leikurinn fram á Valsvelli annað kvöld ki. 20.00 og lýkur þar með 5. um- ferð fyrstu deildar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.