Morgunblaðið - 13.06.1990, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 13.06.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990 51 KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD - HORPUDEILD Framarar að stinga af Komnir með fjögurra stiga for- skot. Hafa 13 stig og markatala þeirraer13:0! FRAMARAR eru nú komnir með fjögurra stiga forskot í 1. deildinni íknattspyrnu eftir aðeins fimm umferðir. ÍBV og Vaiur eiga að vísu eftir að leika og gæti forskot Fram minnkað þegar þau eigast við. Fram vann KR1:0 í gærkvöldi í mikl- um baráttuleik. Framarar fengu óskabyrjun í gærkvöldi því leikurinn hafði aðeins staðið í fímm mínútur þegar Guðmundur Steinsson skoraði eina mark leiksins. Pétur SkúliUnnar Ormslev tók auka- Sveinsson spyrnu á hægri skrífar kantinum, gaf langa sendingu yfir þvög- una í vítateignum og við endalínu náði Amljótur Davíðsson að renna knettinum út á Guðmund Steinsson sem afgreiddi hann með vinstra fæti í þverslánna, niður á marklín- una og þaðan í þaknetið. Glæsilegt mark hjá honum. Framarar vom mun ákveðnari framan af leiknum og Ríkharður Daðason komst í ákjósanlegt færi á 23. mínútu en hitti knöttinn ekki. Eftir þetta virtust KR-ingar ná undirtökunum en þeim gekk mjög erfiðlega að skapa sér einhver marktækifæri. Ragnar Margeirsson náði þó skoti skömmu fyrir leikhlé en Birkir var öryggið uppmálað í marki Fram eins og endranær. Síðari hálfieikur einkenndist af baráttu leikmanna um yfirráðin á miðjunni. í þeirri baráttu höfðu KR-ingar heldur betur en færin létu standa á sér. Framarar fengu þau færi sem sköpuðust en þeim tókst þó ekki að nýta þau. Hjá KR var Ólafur markvörður traustur. Þorsteinn Halldórsson var geysilega sterkur á miðjunni, Sig- urður Björgvinsson barðist vel eins og venjulega og Hilmar Björnsson var mjög drífandi. Hjá Fram var Birkir mjög örugg- ur. Anton Björn Markússon var sterkur og í vöminni voru Jón Sveinsson og Kristján Jónsson öflugir. Pétur Amþórsson kom inná í síðari hálfleik og virðist hann vera að ná sér eftir meiðsli sem hann hlaut í fyrsta leik Fram í deildinni. Sanngjamt - sagði Pétur Ormsiev, fyrirliði Fram MorgunblaöiS/RAX Anton B. Markússon, Framari, í baráttu um knöttinn við Hilmar Bjömsson á KR-vellinum í gær. A innfelldu myndinni er Birkir Kristinsson, en nú er liðin 541 mínúta síðan hann hefur fengið á sig mark í 1. deildinni! „ÉG er ekki mjög ánægður með leikinn knattpyrnulega séð, en úrslitin voru sanngjörn. Við fengum óskabyrjun og einnig nokkur mjög góð marktækifæri sem ekki nýttust," sagði Pétur Ormslev, fyrirliði Fram. Pétur sagði að leikurinn hefði verið erfiður þar sem völlurinn var blautur og þungur. „Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og KR-ingar pressuðu stíft. Ungu stákarnir í liðinu hafa staðið undir þeim væntingum sem við þá hafa verið bundnar. Ég held að við höfum verið með okkar besta lið í þessum leik.“ Um framhaldið sagði Pétur: „Við reynum að sjálfsögðu að halda okk- ar striki í næstu leikjum, en það verður erfitt því hin liðin elta okkur og leggja allt kapp á að vinna. Ég er bjartsýnn, það þýðir ekkert ann- að í þessari stöðu,“ sagði fyrirliðinn. v ?rlæja gamli, ég kyssa þig!“ - sagði Luka Kostic þjálfari Þórs við Sigurð Lárusson eftir sigurinn á FH „ÞAÐ hefur verið góður stígandi f þessu hjá okkur og áður en þessi sigur kom hefðum við átt að vera búnir að vinna tvo síðustu leiki,“ sagði Sigurður Lárusson, miðvörður Þórsara, eftir sigurinn á FH (1:0) í gærkvöldi. Að þessum orðum sögðum kom Luka Kostic aðvífandi og fagnaði sigrinum með orðum sem voru yfir- skrift þessarar greinar. Þeir höfðu ástæðu til að gleðjast kapparn- ir því stigin voru kærkomin þó ekki hefði knattsyrnan verið upp á marka fiska í Firðinum og reyndar FH-ingar öllu sterkari aðilinn. Istuttu máli voru það FH-ingar sem voru aðgangsharðari í leikn- um bæði í fyrri hálfleik og þeim seinni. Þeir sýndu þó ekki burðuga euuftiflffpmam knattspyrnu og eiga Þórmundur nokkuð í land í að Bergsson ná upp styrkleika skrifar síðasta árs. Báðum liðum var reyndar vorkunn í Firðinum. Grenjandi rign- úi gg. npkkjið. kvAsk-. Lítiðjvar um marktækifæri og þau bestu féllu Þórsurum í skaut. Markið að sjálf- sögðu og skalli Kostic í seinni hluta síðari hálfleiks sem Þorsteinn bjarg- aði meistaralega. Færi FH-inga voru meira hálf-færi. Hörður og Pálmi áttu þokkaleg færi í upphafi leiks og Björn Jónsson gerði vel inni í vítateig á 35. mín. en Friðrik varði skot hans meistaralega út við stöng. Á fyrstu mín. síðari hálfl^ij^ komst Ólafur Kristjánsson í mjög gott færi en í stað þess að skjóta strax tók hann boltann á sig innan vítapunkts og Þórsari kom fæti á milli. Markið sem réði úrslitum kom á 65. mín. Eftir nokkuð þunga sókn heimamanna barst boltinn í öftustu ' varnarlínu FH. Guðmundur Hilm- arsson missti af honum og Árni Þór Árnason skaust í átt að markinu. Þorsteinn kom út á móti, Árni komst framhjá honum og Þorsteinn felldi hann — víti. Luka var örygg- ið uppmálað, sendi Þorstein í vit- laust horn og renndi boltanum í netið. 0:1 og þetta réði úrslitum. Þórsliðið lék þennan leik af nokk- urri skynsemi. Varðist vel undir öruggri stjórn Sigurðar Lárussonar 9g fgqðrip?flrkY^slu[IJ þðriks, £ei$ síðan skyndisóknum sem byggðust meira og minna á lipurð Luka og hraða Arna Þórs. FH-ingar voru eins og áður er sagt mun meira með boltann. Þeim gekk hins vegar illa að bijóta vörn Þórsara og áttu í basli með að finna auðu svæðin á vellinum. Fyrir bragðið varð leikur- inn oftast þröngt miðjuþóf sem auðvelt var að veijast. Vissulega hefðu þeir átt skilið jafntefli eða jafnvel sigur en svona er knatt- spyrnan — þeir sem skora fleiri mörk vinna! Luka og Sigurður voru bestu menn Þórsara ásamt Friðrik markverði sem var öryggið upp- málað allan leikinn. Hjá FH spilaði Björn Jónsson sinn vanalega leik og stóð fyrir sínu og Ólafur Kristj- i'fnijmöþg gnöla Luka Kostic, Júgóslavinn sem þjálf- “ ar og leikur með Þór, var besti maður vallarins i Hafnarfirði. ...... ...:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.