Morgunblaðið - 13.06.1990, Síða 52

Morgunblaðið - 13.06.1990, Síða 52
Kringlan 5 Sími 692500 SKM LMENNAR MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Rafinagn fór af vesturbæ RAFMAGN fór af gamla vestur- bænum í Reykjavík um klukkan 18.30 í gær. Orsök rafmagnsleys- isins var bilun i spennistöð í Aðal- stræti 6, þar sem Morgunblaðið er til húsa. Vegna bilunarinnar fór Morgunblaðið ekki í prentun fyrr en snemma í morgun og berst því seinna til margra les- enda en vant er. Starfsmenn Rafmagnsveitu Reykjavíkur fundu bilunina á níunda tímanum í gærkvöldi. Þá höfðu fimm dreifistöðvar á mið- bæjarsvæðinu, sem tengdar eru spennistöðinni á Meistaravöllum, verið rafmagnslausar í allt að tvær klukkustundir. Hafist var handa við að skipta um rafspenni í húsinu við Aðalstræti og lauk viðgerð um klukkan tvö í nótt. Þungatak- mörkun- um aflétt VEGAGERÐ ríkisins hefur af- létt þungatakmörkunum á þjóð- vegum landsins, með fáeinum undantekningum. Vegir á há- lendinu eru enn lokaðir, en vegagerðarmenn búast við að þeir verði færir um sama leyti og í meðalári. Kjalvegur verður opnaður í síðustu viku mánaðar- ins, en vegurinn um Sprengi- sand og Landmannalaugar um mánaðamót júní og júlí. Þeir þjóðvegir sem enn eru lok- aðir eru Þorskafjarðarheiði, Trölla- tunguheiði, vegurinn um Þverár- fjall, Lágheiði, Axarfjarðarheiði og Hellisheiði eystri. Þá er Steinadals- heiði lokuð umferð. Gjábakkaveg- ur, eða Lyngdalsheiði, hefur nú vcrið opnaður. Þá var stefnt að því að opna veginn inn í Drekagil í dag. Sumarkvöld við Jötunheimavík Morgunblaðið/KGA Kársnessprestakall: Frímann kjör- inn prestur FRÍMANN Sigurgeirsson hlaut 9 atkvæði af 12 í kosningu til prests í Kársnesprestakalli í gær. Fimm prestar sóttust eftir kosn- ingu, þeir Guðmundur Ragnarsson, Gunnlaugur Kalmarsson, Ingólfur Guðmundsson og Ólafur Jóhanns- son, auk Frímanns. Ríkisstjómin firestar launa- hækkunum til háskólamanna Brot á kjarasamningum, segir formaður BHMR Ríkisstjórnin hefúr ákveðið að fresta framkvæmd nýs launakerfis háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna sem átti að taka gildi 1. júli næskomandi. Þessi ákvörðun er að sögn ríkisstjórnarinnar tekin á grundvelli ákvæðis í samningum Bandalags háskólamenntaðra rikis- starfsmanna [BHMR] þar sem segir að standa skuli að breytingum á launakerfínu með þeim hætti að ekki valdi röskun á hinu almenna launakerfi í landinu. Formaður BHMR segir að ríkisstjórnin sé með þessu að bijóta ákvæði kjarasamninga og erfitt muni í framtíðinni að gera samninga við ríkisvaldið verði þessari ákvörðun ekki breytt. Samkvæmt samningi BHMR við ríkið átti fyrsti áfangi launakerfis- breytingar háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna að koma til fram- kvæmda 1. júlí næstkomandi, en hann hefði þýtt 3-9% launahækkun til félagsmanna BHMR. Halldór Ásgrímsson starfandi forsætisráð- herra boðaði stjórn BHMR á fund í gær og afhenti þar bréf frá ríkis- stjórninni þar sem tilkynnt var að þessu yrði frestað um óakveðinn tíma. Á fundinum voru einnig full- trúar ríkisstjórnarflokkanna og samninganefndar ríkisins. Halldór sagði eftir fundinn, að það væri mat ríkisstjórnarinnar, að ef þessar breytingar kæmu til fram- kvæmda nú þegar, myndi það koma í veg fyrir þann árangur sem nú Rekstrarerfiðleikar Stakkholts hf.: Hugmyndir um að Olafsvík- urbær kaupi fyrirtækið Á FUNDI bæjarstjórnar Ólafsvíkur í gær var lögð fram tillaga um að bærinn kaupi fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækið Stakkholt, ef enginni annar aðili í bænum gerir tilboð í það. Tillagan var ekki afgreidd, en afstaða verður tekin til hennar að loknum viðræðum við forsvarsmenn fyrirtækisins. Stakkholt hf. hefur átt í rekstr- arerfiðleikum að undanförnu og nýlega var einn vertíðarbátur þess af þremur seldur til Hornafjarðar. Hinir tveir eru á söluskrá og segir Hermann Hjartarson, forstjóri, að tilboð séu komin í þá. Hermann segir að erfiðleikar fyrirtækisins stafí af því að skuldir þess séu miklar, auk þess sem vertíðin í vetur hafi verið léleg. Að sögn Kristjáns Pálssonar, bæjarstjóra, eru uppi hugmyndir um að bærinn kaupi Stakkholt, ef aðrir aðilar í bænum gera það ekki, og breyti því í almennings- hlutafélag. Tillaga þess efnis hafi verið lögð fram á bæjarstjórnar- fundi í gær en ekki verið rædd. Afstaða verði þó tekin til hennar fljótlega, þcgar rætt hafi verið við forráðamenn fyrirtækisins. sæist í efnahagslífinu. „Þess vegna ber ríkisstjórninni að beita sér fyrir því að þessu verði frestað um sinn, en hún ætlar sér að standa við þenn- an kjarasamning og Ijúka því verki sem þar var samið um,“ sagði Hall- dór. Páll Halldórsson formaður BHMR sagði að með þessari sam- þykkt væri ríkisstjórnin einhliða að breyta ákvæðum samningsins. „Með þessu er verið að rýja þennan mótaðila okkar öllu trausti sem samningsaðila. Og þá er samnigs- réttur okkar orðinn Iítils virði,“ sagði Páll. Páll sagði að samninganefnd BHMR kæmi saman innan skamms og þá yrði tekin ákvörðun um til hvaða aðgerða yrði gripið. Hann sagði að í samningnum væri gert ráð fyrir nefnd til að skera úr um ágreiningsmál. Einnig væri hægt að skjóta málum til dómsóia. Að- spurður um hvort til greina kæmi að boða verkfall, sagði Páll að það yrði skoðað. Halldór Ásgrímsson sagði að frestun launahækkananna væri ekki brot á samningunum, en ágreiningur væri um þá túlkun milli samningsaðila. Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra tók í sama streng og sagði þessa ákvörð- un í fullu samræmi við ákvæði samningsins. „Fyrsta grein samn- ingsins er orðuð þannig að hún skyldar ríkisstjórnina til að bregð- ast við með þeim hætti að það valdi ekki röskun á almennum vinnu- markaði,“ sagði Ólafur. Aðspurður hvort yfirleitt væri hægt að framkvæma samninginn án þess að það ylli röskun hjá öðrum launþegum, sagði Ólafur að þær kringumstæður gætu verið í landinu þar sem slíkt myndi ekki valda rösk- un. Svo væri hins vegar ekki nú. Mazda óskar viðræðna við Ræsi hf. JAPANSKI bíiaframleiðandinn Mazda Motors hefúr ákveðið að óska eftir viðræðum við Ræsi hf. um að Ræsir taki við umboði og þjónustu fyrir Mazda hér á landi, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Hjá Ræsi vörðust menn allra frétta af málinu. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa fulltrúar Mazda og íjármögn- unarfyrirtækis þess í London, C.Itoh, lokið athugunum sínum hér á landi, sem beindust að því hvern- ig hagsmunir Mazda og eigenda Mazda bíla yrðu best tryggðir í framtíðinni, eftir að rekstur Bíla- borgar hf. stöðvaðist fyrr í vetur. í framhaldi af þessum athugun- um hefur verið ákveðið að óska eftir því við Ræsi hf. að viðræður hefjist um að Ræsir taki við um- boði fyrir Mazda bíla ásamt vara- hluta- og viðgerðarþjónustu. Búist er við að samningaviðræður hefjist í næsta mánuði, en jafnframt er ekki búist við að strax verði ljóst hvort samningar náist milli aðila, þar sem um viðamikil viðskipti er að ræða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.