Alþýðublaðið - 13.01.1959, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 13.01.1959, Blaðsíða 3
 Búist við að sjóði uppúr þá og þegar Jóhannesarborg og Brussel, 12. jan. (Reuter). — FRÉTTARIT- ARAR í Jóhannesarborg telja að allmiklu meira mannfall hafi orðið í óeirðunum í Leo-; poldville í Belgíska Kongó en | opinberar heimildir hafa gefið upp. Samkvæmt fréttum frá Belgíu var talið að 42 menn hefðu látið lífið en fullyrt er að um 500 manns hafi fallið. RÍKISÚTVARPIÐ mun hefja flutning á sjö hálítíma þáttum, næstkomandi miðvikudag. Er það geimferðasaga í leikformi, sem nefnist Milljón mílur heim. Höfundar sögunnar eru Sig- urður Þorsteinsson, bankamað- ur 0g Knútur Skeggjason, magnaravörður. Leikstjóri er Helgi Skúlason og leikendur eru Róbert Arn- finnsson, Baldvin Halldórsson, Bessi Bjarnason og Helga Bach mann. Þættirnir verða fluttir á mið- vikudögum næstu sjö vikurn- ar kl. 22.10. Efni þáttanna fjallar um för til tunglsins og heim aftur og allt það, sem þar getur komið fyrir, svo sem laumufarþega í skipinu og hliðarstökk, þ. e. a.s. skipsins. Allar framkvæmdir eru stað settar á íslandi og áhöfnin ís- lenzk. Stúdentafélags- Enda þótt friður ríki nú á yf- irborðinu í Leopoldville er miikil ólga undir niðri. Fjöldi landnema af evrópískum ætt- um hafa yfirgefið Kongó og portúgalskir kaupmenn í Leo- poldville hafa óskað eftir að fara til Angóla, sem er portú- galskt land. Gífurlegt eignatjón varð í ó- eirðunum í Kongó, fjöldi verzlana, vöruhúsa og annarra bygginga var eyðilagður. Er tjónið metið á fimm og hálfa milljón sterlingspunda. Lögregla og herlið Belgíu- manna hefur mikinn viðbúnað þar eð búizt er við að óeirðir hefjist aftur þá og þegar. Það var opinberlega tilkynnt í Brussel í dag að 1060 fallblíf- arhermenn væru á leið til Kongó. Tveir innfæddir borg- arstjórar í Leopoldville hafa verið handteknir, sakaðir um að hafa hvatt til hermdarverka. Foringi Akabaflokksins, sem berst fyrir pólitísku sjálfstæði Kongó hefur einnig verið fang- elsaður. Belgíska stjórnin hef- ur ákveðið að banna alla starf- semi Akabaflokksins, og flest- ir foringjar hans hafa verið handteknir. MATUR ER MANNS INS MEGIN. Af þeirri ástæðu liafa allir matsveinar í brezka flotanum sótt ellefu vikna námskeið nýlega, til þess að bæta um mat inn á fleytunum. — Hér sjáið þið sjólliðsforingja dænta um árangur í mats eld ungra sveina. mwwHwwwwwmwvw fundur FUNDIJR verður haldinn í Stúdentatfélagi Reykjsvíkur. — Fundarefnið er kjördæmamálið. Framisögumenn eru Jóhann Hafstein og Gísli Guðmunxls- son. A eftir framsögum verða frjálsar umræður. Fundurinn verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu og hefst kl. 8,45. II. norræna blaðamennsku námskeiðið við Arésaháské ANNAÐ norræna blaða- mennskunámskeiðið við blaða- mennskudeildina við Árósar- háskóla hefst þann 1. febrúar n.k. og stendur yfir í þrjá mán- uði. — Til þessa námskeiðs var stofnað af Norræna ráðinu og standa öll Norðurlöndin fimm að því fjárhagslega. Stjórn námskeiðsins skipa fulltrúar frá blaðamannafélögum á Norð urlöndum. Fyrsta námskeiðið var hald- ið £ fyrravetur. Þar var meðal stjóri námskeiðsins annars farið yfir samtíðarsögu Fink prófessor lætur reynslu í blaðamennsku og vera starfandi blaðamenn. Rúm í heimavist blaðamennsku deildarinnar takmarkar þátt- takendur við 15. Að þessu sinni verða þátttakendur 6 frá Nor- egi, 4 frá Danmörku, 4 frá Sví- þjóð og 1 frá Finnlandi. Engin umsókn barst frá íslandi frek- ar en í fyrra. Kennaralið verður næstum hið sama og í fyrravetur. Þó hefur sú breyting orðið, að for- Troels af störf- Kæri S.O.S.! Norðurlandanna, því einn höf- uðtilgangur með námskeiðum þessum er einmitt að starfandi blaðamemi fái tækifæri til þess að kvnna sér hvað er að ger- ast í bræðralöndunum. Þátttakendur í námskeiðun- um verða að hafa haft nokkra um, en við tekur Jörgen Dich prófessor. ívar Guðmundsson ritstjóri og blaðafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum verður aftur í vetur kennari á nám- skeiðinu. Hann er einnig full- trúi Blaðamannafélags íslands í stjórn námskeiðsins. Herðið söluna í Happdræiti úlþýðuflokksins. STÖÐUGT er verið að senda út happdrættismiða Alþýðuflokksins. Enx flokksmenn um land allt beðnir að herða söluna. Skrifstofa hanpdrættisins er í Reykja- vík, sími 16724, en starfsm.aður liapndrættisins er Albert Magnússon. Eru menn beðnir að hafa samband við skrif- stofuna. Myndin hér fyrir ofan er af hinni glæsilegu happdrættisbifreið. Agæt færð á vegum Fregn tij Alþýðublaðsins. Selfossi í gær. ÁGÆT færð er nú urn þjóð vegi hér austur um allar sveitir, vegir auðir og samgöngur með eðlilegum hætti. Frost fer minnkandi í dag. — G. J. MINAR beztu þakkir fyrir tilskrifið í „Alþýðub:aðinu“, og það traust, sem þú þar auðsýn- ir mér. Sannarlega væri mér kært að geta léð þér liðsemd .mína, þar sem ég sé, að þú átt í hörðu sálarstríði. Mér er það ljóst, að verndun hugverka (eins og það mun nú almennt kallað) hefur ekki haft sömu verkanir á sál þína og Jóns Leifs. Leitt er til þess að vita, að línur ykkar skuli ekki falla þar saman. Annar hvor ykkar virðist misskilja fi’amkvæmd þessarar verndar. Jón Leifs hefur tekið að sér vemdun. hugverlca, það er staðreynd. Óljósara virðist, hversu víð- áttumikið þetta verndarsvæði i tónskáldsins er, og eins það, hvort hér er um hættusvæði að ræða. Þessi undirstöðuatriði virðist þú ekki hafa kynnt þér til hlítar. Ekki má þaö gleym- ast, að barátta tónskáldsins hefur verið hörð og ströng til sigurs STEFs, hefur jafnvel kostað átök við hugverkasmiði. Þá hefur hin öra framþróun á sviði geymslu- og flutnings- tækja hugverka gert baráttuna langdregnari, en þar hafa seg- ulbandstækin reynst hvað erf- iðust. í baráttunni við veldi og viðgang þeirra varð jafnvel að fletta upp í stórum bunka Stjórnartíðinda, þar til loks fannst lagagrein, sem nota mætti til varnar og sóknar (mig minnir, að þessa iagagrein yrði að sækja allt aftur til 1905). Fleira skal ekki talið að þessu sinni. En að þessu athuguðu, skulum við snúa okkur að þinni hlið á málinu. Þú heiur nú á- töiulaust og án hindrunar feng ið að njóta frá öðrum og sjálf- ur fengið að flytja tónverk og Ijóð jafnvel hinna mestu meistara, frá því að þú fyrst manst eftir þér. Amma þín sagði þér sögur, kenndi þér kvæði og raulaði fyrir þig í rökkrinu, meðan hún þeytti rokkinn sinn. Hún lét þér skilj ast það, að sögurnar, kvæðin og sönglögin þyrftir þú ekki að gjalda með öðru en því að vera þægur. Og fyrir bragðið varzt þú þægðarbarn. Nú ert þú orð- inn sjálfum þér ráðandi og ekki neitt ömmu-barn, að því er mér skilst. Þá hittist ein- mitt svo á, að Jón Leifs kem- ur fram. Sannarlega vill hann veita þér gnægð sagna, kvæða og sönglaga. En krafa hans til þín er sú, að í stað þægðarinn- ar, sem amma þín krafðist af þér, þegar þér var hættast við að vera óþægur, er sú, að þú borgir smávegis upphæð til STEFs. En þar sem „heimur líka versnandi fer,“ hefur þú ekki batnað með aldrinum, og ,í stað þess að greiða fúslega fáeinar krónur fyrir alla fræðsl una og frjáls afnot hugverk- anna, færð þú höfuðverk og þrjózkuþanka. Hvernig held- urðu nú að amma þín hefði snú ist við slíku? Þú þai’ft að fara gætilega. Hollt væri fyrir þig að athuga það, sem mig minnir að skáldið segði svona: „Ferskeytlan er Frónbúans íyrsta barnaglingur, en verður seinna í höndum hana hvöss sem byssustingur.“ Þannig getur jafnvel fer- skeytlan orðið hættuleg. Ég tel, að er yið nú höfum þannig at- hugað afstöðu þína, muni ör- uggast fyrir þig að gjalda mögl unarlaust fyrir flutning allra hugverka, sem þú flytur, hvort sem þú gerir það fyrir son þinn ,eða fugla himinsins. Og þetta sama ættir þú að kenna syni þínum. Að öðrum kosti getið þið átt á hættu að lenda inn á hættusvæði. Með kærri kveðju. , Jón. Molotov tekinn í sátti MoskVa, 12. janúar. í MOSKVU er talið líklegt að Molotov sem um langt skeið var utanríkisráðherra Sovét ríkjanna verði innan skamms skipaður sendiherra í Hollandi. Ekki hefur fengist staðfesting á þessum orðrómi. Talsmaður hollenzku stjórnarinnar kveðst ekki geta neitt um< málið sagt þar það sé gagnstætt venjum í samskiptum þjóða að láta neitt uppi um sMk mál, einhliða. Ef úr því verður að Molotov vevði sendiherra í Hollandi þýð ir það, að hann liafi verið tek inn í sátt í Moskvu, en hann féll í ónáð þar fyrir nokkrum árum og settur sendiherra í Úlan Bator, höfuðborg Ytri Mongólíu. Alþýðuhlaðið — 13. jan. 1959 i't'f ) i J 1 r i i's ■ ht, < I. ! ! ■ j' j

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.