Morgunblaðið - 02.08.1990, Page 6

Morgunblaðið - 02.08.1990, Page 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1990 Bretland Verður raforkufyrirtækið Power- Gen seltán hlutabréfaútboðs? St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SEINT í síðustu viku upplýsti John Wakeham, orkumálaráð- herra Bretlands, að til greina kæmi að selja raforkufyrir- tækið PowerGen í einu lagi hæstbjóðanda. Fyrirtækið Hanson Industries hefur átt viðræður við orkumálaráðuney- tið um málið. Orkumálaráðherrann sagði á laugardag að Hanson Industries kynni að verða greidd þóknun fyrir kaupin. Mikil ólga er í stjórnmálum um þetta mál. Undirbúningur einkavæðingar bresku raforkufyrirtækjanna hef- ur gengið skrykkjótt. Fyrst átti að bjóða hlutabréf í þeim föl á markaði í haust, en því varð að fresta um sex mánuði. Síðan varð að draga kjarnorkuverin út úr sölunni vegna þess, að talið var að þau væru óseljanleg, enda væri kostnaður við framleiðslu raforku úr þeim mun hærri en nokkurn mann óraði fyrir. Einnig hafa samningar nýstofnaðra raforku- framleiðslufyrirtækja og dreifíng- arfyrirtækisins gengið stirðlega. Verulegt tap og uppsagnir starfsfólks Síðasti þátturinn í þessum und- irbúningi, sem hefur vakið at- hygli, er yfirlýsing orkumálaráð- herrans frá því í síðustu viku. Raforkuframleiðslufyrirtækjunum í Englandi og Wales hefur verið skipt í tvennt. PowerGen er minna fyrirtækið. í síðustu viku tilkynnti það, að verulegt rekstrartap hefði orðið sl. ár og þriðjungi af 15 þúsund starfsmönnum yrði sagt upp. Hanson, lávarður, aðaleigandi Hanson Industries, er eindreginn stuðningsmaður Margaret That- cher forsætisráðherra og hefur greitt umtalsverðar fjárhæðir til Ihaldsflokksins undanfarin ár. Áhugi hans á að kaupa PowerGen í heilu lagi hefur komið mönnum í opna skjöldu, en venjan hefur verið sú við sölu ríkisfyrirtækja, að hlutabréf í þeim hafa verið boðin almenningi á hagstæðum kjörum. Kostnaður við slíkt hlut- afjárútboð er talinn verða um 15 milljónir sterlingspunda (ríflega einn og hálfur milljarður ISK). Hann myndi sparast við sölu til Hanson Industries. Talsmenn Verkamannaflokks- ins í orkumálum hafa sakað stjórn Thatcher um að reyna að fara á bak við almenning með slíkri sölu og hygla vildarvini sínum. Þeir hafa einnig sakað orkumálaráð- herrann um að ætla að greiða verð fyrirtækisins niður með óleyf- ilegum hætti og fara á bak við framkvæmdanefnd EB. Vitað er um önnur fyrirtæki, sem áhuga hafa á að kaupa Pow- erGen. Bresku fyrirtækin RTZ og GEC, þýska fyrirtækið Veba og japanska fyrirtækið Mitsubishi hafa verið nefnd. Einnig hefur Samband lýðræðislegra námu- manna, sem klauf sig út úr breska námumannasambandinu í verk- fallinu 1984-85, boðið einn millj- arð sterlingspunda (ríflega 100 milljarða ISK) í fyrirtækið með stuðningi blaðajöfursins Roberts Maxwells. John Wakeham, orkumálaráð- herra, lýsti því yfir á sunnudag, að öllum yrði heimilt að bjóða í fyrirtækið á jafnréttisgrundvelli. KAUP ■— Áhugi Hansons lávarðar á að kaupa PowerGen í heilu lagi hefur komið mönnum í opna skjöldu. Evrópubandalagið Fyrirtæki og einstakling- ar kæra ríkissijórnir Brussel. Reuter EINSTAKLINGAR og fyrirtæki gegna sífellt stærra hlutverki í því að fylgjast með því hvernig ríkisstjórnir EB-landanna framfylgja lögum Evrópubandalagsins. Þetta kemur fram í skýrslu sem tekin var saman fyrir bandalagið um það hvernig lögum EB væri fylgt eftir og birt var í siðustu viku. Fjöldi kvartana vegna brota á lögum EB fer vaxandi ár frá ári. Á síðasta ári bárust 1.195 kvartanir til stjórnkerfis EB í Brussel frá ein- stakíingum og fyrirtækjum borið saman við 1.137 árið áður. Bretar voru aðfínnslusamastir og kvörtuðu 247 sinnum, þá Frakkar 185 sinn- A OMRON Afgreiðslukassar, afgreiðslukerfi DIGI Tölvuvogir, strikamerkj aprentarar RANK XEROX Ljósritunarvélar, faxtæki Velkomin í verslanir okkar. SKRiFSTOFUVELAR SUNJDWF HVERRSGÖTU 33 - SlMI 623737 • NÝBÝLAVEGI 16 - SlMI 641222 -tækni og þjónusta á traustum grunni um og Spánveijar 184 sinnum. Það hefur reynst EB erfitt að framfylgja þeim lögum sem eiga að ríkja innan bandalagsins. Evr- ópudómstóllinn hefur engin tök á að beita þau aðildarríki refsingum sem bijóta lög EB. Á síðasta ári höfðaði framkvæmdastjórn EB 312 sinnum mál ábhendur aðildarríkjun- um tólf fyrir meint brot á lögum Bandalagsins. Á sama tíma voru höfðuð 352 mái á hendur aðild- arríkjunum fyrir að hafa dregið um of að gera lög EB að landslögum þar sem það á við eða að hafa ekki staðið rétt að því. Mörg málanna koma aldrei fyrir Evrópudómstólinn því að málsaðilar semja um lyktir þeirra. Fjöldi kvartana frá Bretum virð- ist lýsa áhyggjum þeirra af mengun og umhverfismálum að nokkru leyti. Eru margar kvartana þeirra tilkomnar vegna slælegs eftirlits með því að lögum um mengunvarn- ir sé framfylgt. MEIMGUIM —-■ Fjöldi kvartana vegna brota á lögum EB fer vaxandi ár frá ári. Eru margir þeirra til komnar vegna lélegs eftirlits með því að lögum um mengunarvarnir sé framfylgt. IMoregur Versnandi afkoma hjá Norsk Hydro Osló, Reuter NORSK Hydro, stærsta iðnfyrirtæki Noregs, hagnaðist um 1,27 milljarða norskra króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs sem er talsvert minna en á sama tíma í fyrra er hagnaður þess varð 1,7 milþ'arðar norskra króna. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að þetta megi rekja til lækkandi verðs á afurðum fyrirtækisins sem eru allt frá olíu til áls. Samdrátturinn varð allur fyrstu þijá rnánuði ársins en síðan komst bann í svipað horf og í fyrra. Aukin framleiðsla á borpöllum fyr- irtækisins í Norðursjó gerði þá meira en að bæta upp lægra olíu- verð. Norska ríkið á 51% í Norsk Hydro. Tilkynningin um verri af- komu hafði lítil áhrif á gengi hlutabréfa í fyrirtækinu á veðr- bréfamarkaðinum S Osló.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.