Morgunblaðið - 05.09.1990, Side 13

Morgunblaðið - 05.09.1990, Side 13
B 13 ___________________________MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 AIÞJÓÐLEGA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN 19.-23. SEPTEMBER: 460 fyrirtæki frá 20 löndum MJÖL- OG LÝSIS- FRAMLEIÐENDUR: Yfir 200 eriendir gestirá ársfundi ÁRLEGUR haustfundur Al- þjóðasaintaka fiskimjöls- og lýsisframleiðenda verður að þessu sinni haldinn hér á landi dagana 10.-14. septem- ber næstkomandi. Er við- fangsefni fundarins að venju staðan í greininni og horf- urnar framundan en formaður samtakanna er Haraldur Gíslason, forstjóri Fiskimjölsverksmiðjunnar í Vestmannaeyjum. í samtali við Morgunblaðið sagði Haraldur, að á fundinum, sem umboðsmenn og kaupend- ur sækja einnig, myndu fram- leiðendur bera saman bækur sínar, rifja upp það, sém verið hefur að gerast og fara yfir stöðuna almennt. Nefndi hann sem dæmi, að á síðasta fundi hefði mikið verið rætt um vax- andi fiskeldi í Asíu og líklega þörf þessfyrir fiskimjöl og fóðuren nú aftur á móti yrðu trygg- ingamálin fyr- irferðarmeiri, til dæmis tiyggingará förmum. Þá munu starfsmenn 'í verksmiðjunum greina frá nýmælum í rekstrinum ogvís- indamenn flytja erindi um það, sem er að gerast í fóðurtilraun- um. Verð skráð í dollurum Haraldur sagði, að ástandið á heimsmark'aði værí ekki gott um þessar mundir. Kæmi þar til mikil kornuppskera víða um heim auk þess sem veiði hefði verið góð á síðasta ári. Það, sem af væri þessu ári, hefði þó orðið töluverður samdráttur i fiskimjölsframleiðslu tveggja stærstu framleiðendanna, Chile og Perú, en áhrifa lians væri þó ekki farið að gæta í verðinu. Auk þess sagði Har- aldur, að allt verð væri skráð ~ í doilurum og þótt það væri ekki tölulega slæmt í sjálfu sér væri þess að gæta, að dollara- gengið væri mjög lágt. í sgmbandi við ársfundinn, sem hajdinn verður á Hótel Sðgu, mun um 30 manna hóp- ur tæknimanna kynna sér starfsemina í verksmiðjum víða um land en skráðir þátt- takendur á fundinum eru rúm- lega 200 og um 300 ef makar eru taldir með. Haraldur Gíslason ÞRIÐJA alþjóðlega sjávarút- vegssýningin í Reykjavík verð- ur haldin 19,—23. september nk. og munu um 460 fyrirtæki frá 20 löndum, þar af um 60 íslensk, kynna þar vörur sínar og þjónustu. Er búist við mik- illi aðsókn og er allt hótelrými í borginni upppantað sýningar- dagana. Verða reistir tveir sýn- ingarskálar, 100 metra langir og 25 metra breiðir, austan við Laugardalshöllina og þrefald- ast við það sýningarsvæði hall- arinnar. Sjávarútvegssýningin var fyrst haldin 1984 og síðan aftur þremur árum síðar. Bjarni Þór Jónsson, skrifstofustjóri Félags íslenskra iðnrekenda, sem annast hefur und- irbúninginn af hálfu FII í samvinnu við Félag dráttarbrauta og skipa- smiðja, Félag málmiðnaðarfyrir- tækja og Utflutningsráð íslands, segir að á þeim tíma sem liðinn er hafi sýningin öðlast viðurkenn- ingu sem ein af áhugaverðustu sjávarútvegssýningum í heimi. Eins og fyrr segir eru íslensku fyrirtækin nú um 60 og hefur fjölg- að nokkuð frá 1987. Sagði Bjarni, að nýliðarnir væru einkum lítil fyr- irtæki, sem hygðu á útflutning, enda miklum mun ódýrara að þreifa fyrst fyrir sér á sýningu hér heima en að taka strax þátt í sýn- ingu erlendis. Hótelpláss upppantað Auk íslensku deildanna verða þjóðarstandar frá Bretlandi, Hol- landi, Danmörku, Noregi og Sví- þjóð en alls er sýningarplássið 8.000m Hefur Iðnlánasjóður sam- þykkt að styðja þátttöku íslenskra iðnfyrirtækja í sýningunni með sama hætti og gert er með erlend- ar sýningar. Fyrir þremur árum voru sýning- argestir töluvert á 16. þúsundið og hafði þá fjölgað um 50% frá sýningunni 1984. Er búist við góðri aðsókn að þessu sinni og er allt hótelpláss í Reykjavík upppant- að meðan á sýningunni stendur. Munu einhveijir gista fyrir austan Fjall en ekki er gert ráð fyrir að sérstakt skip þurfi að leigja eins og síðast þegar grænlensku gest- irnir komu fylktu liði á elleftu stundu. Á sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll 19. september nk. sýnumviðm.a. NÝJU BEITINGAVÉLINA FRÁ SVÍÞJÓÐ. EIGUM FYRIRLIGGJANDI: / • Ýsu, ufsa og þorkanet. • Kaðla • Síldar- hausskurðar og flökunarvél • Roðflettivélar fyrir allan fisk. 6 stærðir og gerðir Framleiðum fiotteina fyrir kola,- grásleppu,- ufsa og þorskanet NEPTUNUS HF. Nýlendugötu l 0, Reykjavík s. 21380-22018 Fax: 27720

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.