Morgunblaðið - 05.09.1990, Page 18

Morgunblaðið - 05.09.1990, Page 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ FRETTASKYRING MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 m TOGARAÚTGERÐ FRÁ KEFLAVÍK ATGERVISFLÓTTI OG STEFNULEYSI BAIMABITIIMN? eftir Hjört Gíslason * MEÐ sölu togarans Aðalvíkur frá Keflavík til Akur- Ve 11 vANGI eyrar er togaraútgerð frá Keflavík nú liðin undir lok, að minnsta kosti um tíma. (Einn togari, Sveinn Jóns- son, er skráður í Keflavík, en hann er í raun gerður út frá Sandgerði.) Togaraútgerð hó fst þar upp úr stríðslokum og stóð þá fram til ársins 1956. Arið 1973 keyptu Keflvíkingar togara að nýju og stóð hið síðara tímabil í 17 ár. Fiskiskipum hefur fækkað ört í Kefla- vík síðustu ár og hlutdeild bæjarins í fískafla lands- manna hefur minnkað um helming frá því fyrir um 10 árum. Skýringar á þessari þróun hafa verið ýmsar, meðal annars hefur því verið um kennt, að aðrir landshlutar njóti frekar opinbers fjár úr Byggðasjóði en Suðurnesin og þá hefur kvót- inn verður nefndur sem örlagavaldur. Hvorug þessara fullyrðinga virðist þó standast. Utgerð togara hefur á sama tíma gengið í Sand- gerði og þegar Keflvíkingar selja sína togara, kaupa Grindvíkingar þrjá. Skilyrði hvað varðar kvóta og aðgang að Byggðasjóði á þessum stöðum ættu að vera svipuð. Nærtækari skýring er sú, að í samkeppn- inni um vinnuaflið lúti sjávarútvegur í Keflavík í lægra haldi fyrir atvinnu tengdri varnarliðinu og ýmsum þjónustugreinum. Halldór Ibsen, framkvæmdastjóri Útvegsmannafélags Suðurnesja segir at- gervisflótta úr sjávarútveginum hafa valdið miklu um gang mála. Höfn fyrir togara Upp úr stríðslokum gerði Olafur E. Einarsson botnvörpunginn Haf- stein út frá Keflavík um tíma, en 1948 var Bæjarútgerð Keflavíkur stofnuð. Bærinn seldi þá ríkinu höfnina og keypti nýsköpunartog- arann Keflvíking fyrir andvirði hennar og var hún þá gerð að lands- höfn. Keflvíkingur var seldur 1956 til Eskifjarðar og hét þar Vöttur. Næsta tímabil togaraútgerðar hófst með kaupum Sjöstjörnunnar á Dag- stjörnunni árið 1973, en 5 árum síðar var hún seld Keflavík hf. og Miðnesi hf. í Sandgerði. Næsta tog- ara sinn seldu Keflvíkingar einnig til Sandgerðis og þann þriðja til Þórshafnar, eftir tveggja ára út- gerð. Þessir togarar voru seldir fyr- ir tíma kvótakerfisins. Eftir að kvótakerfíð var tekið upp, hafa fjór- / HAFINU í nánu samstarfi i/ið netagerðarmenn og sjómenn er rannsakað hvernig veiðarfæri fara í sjó og hvernig fiskur hagar sér gagnvart þeim. Við framleiðsluna beitum við háþróaðri tækni nútímans og ströngu gæðaeftirliti. Árangurinn er vara sem stenst alla samkeppni Togaraútgerð frá Keflavík 1948-90 Keflvikingur GK, keyptur 1948, seldur 1956 Til Austfjarða, Vöttur Dagstjarnan KE 9, Sveinn Jónsson KE 9: keyptur 1973, seldur 1978 Landar í Sandgerði Framtíðin KE 4, keyptur 1974, seldur 1980 Veiðiheimildir i þorskígildum Dagstjarnan KE 3, 1.634 tonn keyptur 1982, seldur 1988 Aðalvík KE 95, 1.874 tonn keyptur 1974, seldur 1989 Bergvík KE 22, 1.948 tonn keyptur 1981, seldur 1989 Til Sandgerðis, Haukur GK 25 Til Akureyrar, Sólbakur EA 305 Til Sauðárkróks, Drangey SK1 Til Sauðárkróks, Skagfirðingur SK4 keyptur 1989, seldur 1990 Nú er aðeins einn togari eftir skráður í Keflavík, Sveinn Jónsson KE9. Þaö af afla hans sem ekki er selt óunnið úr landi er unnið í Sandgerði. ir togarar verið seldir. Tveir fóru í skiptum fyrir einn til Sauðárkróks og þessi eini var síðan seldur til Akureyrar fyrir skömmu. Aður hafði ÚA keypt annan togara frá Keflavík, sem nú er Sólbakur EA. 7000 tonna þorskígildi seld með 4 togurum Séu aðeins teknir þeir togarar, sem seldir hafa verið síðan kvóta- kerfið hófst hafa Keflvíkingar misst frá sér 7.072 tonn talið í þorskígild- um miðað við aflamark, en öil skip- in eru nú gerð út á sóknarmark, og eru þijú þeirra með 1.335 tonna hámark í þorski, 550 í karfa og 400 í grálúðu en fjórða skipið er með 840 tonn hámark í þorski, 1.550 í karfa og 350 í grálúðu. Miðað við það hefur aflatapið verið 4.945 tonn af þorski, 3.200 tonn af karfa og 1.550 tonn af grálúðu auk veiða á tegundum, sem eru ótakmarkaðar innan sóknarmarksins. Veiðiheimildir Skagfirðings (Bergvíkur) á þessu ári nema í afla- marki 1.848 þorskígildum, en hún er gerð út á sóknarmarki með heim- ildir til veiða á 1.335 tonnum af þorski, 550 af karfa og 400 af grá- lúðu. Aflahámark sóknarmarks- skipa á suðursvæðinu er 940 tonn af þorski, 1.550 af karfa og 350 af grálúðu. Veiðiheimildir Drangeyjar (Að- alvíkur) eru þær sömu og Skagfirð- ings enda bæði skipin gerð út á sóknarmarki. í aflamarki hefðu heimildir Drangeyjar svarað til 1.874 tonna af þorski. Sólbakur (Dagstjarnan) er gerð- ur út á sóknarmarki með sömu heimildir og fyrrnefnd skip, en í aflamarki hefði hann fengið 1.634 þorskígildistonn. Frystitogarinn Aðalvík var gerð út á sóknarmarki með 950 tonn af þorski, 1.550 af karfa og 350 af grálúðu. Við flutning milli land- svæða breytast þessar heimildir ekki. Áunnið aflamat'k svarar til 1.615 tonna af þorski. Hlutdeild í þorskafla helmingi minni 1979 var hlutur Keflvíkinga í þorskaflanum (miðað við landanir) 14.312 tonn eða 4,48%. Síðan hefur hlutfallið farið lækkandi og var í fyrra aðeins 2,10%. Á sama tíma fellur hlutur Reykjaness úr 23,64% niður í 18,10%. Það er óvefengjan- legt að Keflvíkingar og um leið Reyknesingar hafa misst spón úr aski sínum á kostnað annarra og fiskiskipum, ekki aðeins togurum hefúr fækkað. Á Suðurnesjum voru 1984 109 skip stærri en 12 tonn, samtals 17.743 tonn alls eða 163 tonn að meðaltali. Nú eru þau 84, samtals 14.201 tonn eða að meðal- tali 171 tonn. Skipunum á þessu svæði hefur því fækkað um 26 eða nærri fjórðung á 6 árum, en hafa að meðaltali stækkað lítillega. Fullyrt hefur verið að fyrirtæki í sjávarútvegi á Suðurnesjum hafi borið skarðan hlut frá borði opin- berra fyrirgreiðslna og lánveitinga og að þeir, sem keypt hafi skipin, hafi á hinn bóginn notið betri fyrir- greiðslu. Útgerðarfélag Akur- eyringa hefur keypt tvö þessara skipa og ekki notið til þess nokkurr- ar fyrirgreiðslu af hálfu Byggða- sjóðs og er ÚA reyndar að heita má skuldlaust við sjóðinn. Þá hafa fyrirtæki eins og Skagstrendingur á Skagaströnd og útgerð Guðbjarg- arinnar á ísafirði keypt báta á Suð- urnesjum, en hvorugt þessara fyrir- tækja hefur notið vegna þess lána úr opinberum sjóðum. Hin tvö skip- in, sem seid voru eftir að kvótinn varð að veruleika, fóru í skiptum fyrir Aðalvíkina til Útgerðarfélags Skagfirðinga. Bæði Hraðfrystihús Keflavíkur og Skagfirðingarnir hafa fengið lán úr opinberum sjóð- um, enda hvíldu skuldir nálægt hálfum milljarði króna á Aðalvík- inni er hún var seld. Of greiður aðgangur að lánsfé? Hraðfrystihús Keflavíkur fékk á árinu 1981 400 milljónir gamalla króna úr Byggðasjóði og Kaupfélag Suðurnesja 200 milljónir til kaupa á hlutafé í HK. Af öllum lánveiting- um Byggðasjóðs á árunum 1977 til 1981 til fyrirtækja á Suðurnesjum fékk HK tvo þriðju hluta. Þá má gæta þess, að þegar Hraðfrystihús Keflavíkur keypti togarann Júlíus Geirmundsson frá Isafirði og gerði út sem Bergvík, var í gildi bann við fjöigun fiskiskipa, en undanþága

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.