Morgunblaðið - 07.09.1990, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 07.09.1990, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR V.ULl TEMBER 1990 Geir og Erna að morgni kjördags í borgarstjórnarkosningunum 1970. Myndina færði Eyjólfur Konráð Jónsson þeim að gjöf og ritaði á myndina: „Það var óhætt að brosa, Erna mín“, enda unnu sjálfstæð- ismenn sigur undir forystu Geirs, þrátt fyrir að margir hefðu óttazt að meirihlutinn félli. 2 B höfuðskyldu sína að hvika hvergi frá varðveislu þess vestræna sam- starfs sem Bjarni lagði allt í sölurn- ar til að við yrðum aðilar að 1949. Lætur að líkum að þetta eitt hefði nægt til gagnkvæms trúnaðar og virðingar. En þeir ræddu margt fleira sem varðaði lífshagsmuni Islands, ekki síst landhelgismál, og hvernig best yrði sætt lagi til að sækja fram og vinna lokasigra. Það féll síðar í hlut Geirs Hallgrímssonar að leiða sókn- ina, tryggja okkur 200 mílurnar og koma bresku togurunum út úr land- helginni um aldur og ævi, ef rétt verður þá á málum haldið héðan í frá eins og hingað til. Þegar Bjarni féll frá hafði hann stofnað til sam- starfs allra stjómmálaflokka til undirbúnings nýrrar sóknar og sett á laggirnar landhelgisnefnd. Hér verða þáttaskil, ekki aðeins í sögu Sjálfstæðisflokksins heldur þjóðarinnar allrar. Slysið mikla á Þingvöllum hlaut að hafa langvar- andi afleiðingar. Aðalstjórnmálaafl þjóðarinnar var lamað og enn eimir líklega eftir. Vandinn var ógnvæn- legur, það þarf vart að rekja. Sjálf- stæðismenn vom á þingflokksfundi ráðþrota. Er á fundinn leið flutti sr. Gunnar Gíslason tillögu um að fjórum mönnum yrði falið að leggja á ráðin um framvinduna. Voru þeir, auk Geirs, Jóhann Hafstein, Ingólf- ur Jónsson og Magnús Jónsson. Allir voru þessu sammála. Nú var teningunum kastað. Ef Geir hefði hugsað sér að vera utan meginátaka í íslenskri stjórnmála- baráttu var sú stund að baki. Nú sannaðist, eins og oft áður, að erfið- ara getur verið að komast út úr pólitík en leggja út á þá braut. Ekki ætla ég mér þá dul að rekja nú átök, vonbrigði og sigra síðustu tveggja áratuga, enda varla talinn hlutlaus í umfjöllun um menn og málefni, en ætti þó að leyfast að draga fram einstök atvik sem lýsa Geir Hallgrímssyni frá sjónarhóli gagnrýnins aðdáanda. Fyrst er hér gamansaga sem Asgeir Pétursson sýslumaður segir eitthvað á þennan veg: Vinir þrír voru á góðri stundu vestur á Mýrum. Nokkm austan við Akra er ákveðið að ganga til sjávar. Niður undir sjávarmáli er komið að feiknastórum þarabing sem er þvert á vegi þremenning- anna. Eykon kom fyrstur að haugn- um og snarast yfir hann með nokkr- um átökum. Asgeir steig nokkur skref í þarann og sneri síðan við og fór út fyrir tálmann. En Geir sem gekk lítið eitt á eftir hinum fór strax stóran sveig fyrir endann á þarabingnum og kom ekki nærri honum. Við komum auga á að þarna væri okkur rétt lýst og hlógum. Sú skaphöfn Geirs að láta íhygl- ina ráða og velja áhættuminni leið- ina, ef engu var með því fómað, hefur einkennt lífsstarf hans. Heyrt hef ég þeirri skoðun fleygt að Geir hafi verið betri borgarstjóri en flokksforingi og forsætisráð- herra. Ekki er ég sannfærður um það. Jafnvel þótt menn kæmu sér saman um að Geir hafi verið besti borgarstjóri Reykvíkinga, sem eng- in ástæða er auðvitað til að heimta, þá er ekki af því unnt'að gagn- álykta að hann hafi verið slakari flokksforingi en borgarstjóri. Að- stæðurnar í Sjálfstæðisflokknum voru einfaldlega allt aðrar en áður. Það er staðreynd að engir eru kröfu- harðari í garð foringja sinna en sjálfstæðismenn og gagnrýnni. Því verður ekki breytt. En þeir sem hafa verið framangreindrar skoðun- ar verða í huga sér að leita þess manns sem líklegt er að tekist hefði að stýra Sjálfstæðisflokknum áfallaminna í gegnum þann ólgusjó sem magnaður hefur verið gegn honum og í honUm. Hann er vand- fundinn, örlagaþræðirnir hefðu ver- ið spunnir þótt maðurinn hefði ver- ið annar. Þegar Geir myndaði ríkisstjórn sína 1974 eftirgóða kosningu sjálf- stæðismanna voru margir efíns um að samstarf við Framsóknarflokk- inn gæti orðið happadijúgt. Þessari stjóm tókst þó allvel að fást við verkefnin, þar á meðal verðbólgu- drauginn. Þegar leið að kosningum 1978 varð þó ljóst að staðan var slæm út af kaupgjaldsmálum eina umferðina enn og því auðvelt að beita slagorðum eins og „Kjósum ekki kaupránsflokkana". Það var svo sem ekkert merkilegt, né heldur stjómarrriyndun Ólafs Jóhannes- sonar. Ríkisstjórnar Geirs Haligríms- sonar verður hins vegar alltaf minnst og nafns hans sérstaklega fyrir það að leysa landhelgismálið farsællega. Geir Hallgrímssyni tókst það sem öðmm hafði ekki tekist og hefði líklega ekki tekist, að koma bresku togumnum endan- lega af íslandsmiðum. Þegar íslenski forsætisráðherr- ann fór utan til fundar við breska forsætisráðherrann fylgdu honum ekki fyrirbænir allra, öðru nær. Dvölin ytra dróst á langinn og þá herti á hrakspánum. Játað skal að sjálfur var ég uggandi en vissi þó innst inni að gæfan mundi fylgja Geir, eins og svo oft áður. Svo fór líka. Hann valdi þá leiðina sem ör- uggust var til lokasigurs á skemmstum tíma. Hann stóð raunar vel að vígi að því leyti að Sjáifstæð- isflokkurinn bar ekki ábyrgð á 50 mílna frumhlaupinu sem engum árangri skilaði. Viðmælendur hans vissu líka að hveiju órði hans mátti treysta og aldrei gat annað að þeim hvarflað en að þjóðarnauðsyn Islendinga réð staðfestu Geirs. Þeir vissu líka að hann gerði sér ekki síður ljóst en þeir hver nauðsyn var að styrkja Atlantshafsbandalagið en veikja það ekki. Breski forsætisráðherr- ann sannfærðist um það, ef hann hefur ekki vitað það áður, að hann ræddi við jafningja sem hvorki var haldinn minnimáttarkennd né of- metnaði, sem gjarnan fer saman, en stjórnaðist þó af miklum metn- aði fyrir hönd þjóðar sinnar. Vináttubönd okkar við Breta styrktust en veiktust ekki. Sam- skipti Islendinga og Breta eru nú betri en nokkru sinni áður sem meðal annars má marka af því að þeir hafa boðist til að senda menn hingað í þessum mánuði til að ræða sameiginleg hafsbotnsréttindi, enda ljóst að hagsmunir þjóðanna við hin nyrstu höf fara í því efni saman, eins og í svo mörgu öðru. Þegar sýnt var 1978 að Ólafi Jóhannessyni mundi takast stjórn- armyndun hringdi Geir í mig til New York, en þar vorum víð hjónin þá vegna fundar hafréttarráðstefn- unnar sem var um það bil að Ijúka. Hann sagði mér fréttirnar, var al- vörugefmn og vonsvikinn en bætti svo við í strákslegum tón: Ég er búinn að panta fyrir ykkur á Florida í næstu viku. — Ertu vitlaus mað- ur, datt upp úr mér, við erum búin að vera héma í nærri mánuð. — Það kemur mér ekkert við, ég er enn foringinn og þetta er fyrirskip- un, Gunnlaugur og Berta verða með. Erna og Geir komu síðan til New York. Hann var þreyttur og sjálf- sagt þau bæði. Nokkrum dögum síðar var svo haldið suður á bóginn. Og það var eins og við manninn mælt, Geir var eins og sautján ára strákur sem síst leit hlutina alvar- legum augum. Strax stakk fólk sér í laugina eða æddi á haf út. Síðan var leigður bíll sem enginn mátti snerta nema Geir, því að þið kunn- ið ekkert að keyra í Ameríku. Pólitík var bannorð og fólk sofnaði hlæj- andi og vaknaði með bros á vör. En áhyggjulausir tímar voru ekki framundan. Ríkisstjórn Ólafs Jó- hannessonar varð ekki langlíf, Al- þýðuflokkurinn rauf hana haustið 1979 og efnt var til erfiðra kosn- inga. Geir var falið að mynda ríkis- stjóm en tókst ekki. Ástæðan kom síðar í ljós en um það munu sagn- fræðingar sjálfsagt fjalla. Gunnar Thoroddsen myndaði stjórn sína, þrátt fyrir andstöðu þorra sjálf- stæðisþingmanna. Segir sig sjálft hvert áfall þetta var. Um það verð- ur hér ekki fjallað og allan undir- ganginn. Nú er komið árið 1983 og nýtt glæsilegt tímabil á stjómmálaferli Geirs Hallgrímssonar er runnið upp. Hann bar höfuð og herðar langt yfir hvern sem var á þingi þegar utanríkismál voru til umræðu og varnarmálin sérstaklega og verk- takastarfsemi, en um hana lagði ráðherrann fram ítarlega skýrslu fyrstur ráðherra. Utanríkisráðu- neytið var öflugt og afkastamikið, kraftar voru þar samstilltir undir stjórn Geirs, sjaldan eða aldrei hafði verið jafnmikið að gera í utanríkis- málanefnd Alþingis. Geir færðist stöðugt í aukana í þessu starfi og hefði átt að gegna því lengur. Þótt samanburður um slík efni sé ætíð erfiður má telja að enginn hafi til þessa dags haldið betur á utanríkismálunum síðan Bjami Benediktsson var ráðherra utanríkismála. Geir hafði alla tíð brennandi áhuga á alþjóðamálum og tók því vel ef honum var strítt á því að honum fyndist ísland alltof lítið og fámennt fyrir sig til þess að hann gæti haft hæfileg áhrif á gang heimsmálanna! Það komst í vana að við hjón og Erna og Geir hittumst nokkrum sinnum á ári í kvöldmat á öðru hvom heimilinu. Þorramatur var borðaður hjá okkur. Nú á þorranum sátu Ema og Geir lengi kvölds þó að hann væri sjúkur og margt var rætt, sem ekki gleymist. Stundum á þessum kvöldstund- um tókum við Geir rimmur því að auðvitað voram við ekki alltaf sam- mála. Þá kom í ljós hve geðríkur hann var. Konurnar töluðu um eitt- hvað annað á meðan en hlustuðu þó með öðra eyranu. Þær gripu stundum inn í og ekki minnist ég þess að makar stæðu saman og allir skemmtu sér konungiega um það er lauk. Þetta segir kannski einhveija sögu. Geir var gæfumaður. Hann var ríkur, átti Ernu og fjögur dásamleg börn. Guð blessi minningu góðs drengs. Eyjólfur Konráð Jónsson Við fregnina um andlát Geirs Hallgrímssonar rifjaðist upp í huga mínum margt frá þeim áram sem við störfuðum saman í bæjarstjóm Reykjavíkur, sem síðar hlaut hið virðulega heiti borgarstjórn. Verða þær minningar mér ávallt hugstæð- ar. Um leið minnist ég þess að tvö fyrstu kjörtímabil mín sem bæjar- fulltrúi í Reykjavík var faðir Geirs, Hallgrímur Benediktsson, í hópi okkar fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hallgrímur Benediktsson lést í febrúar árið 1954, en í bæjarstjóm það ár var sonurinn Geir kosinn af lista Sjálfstæðisflokksins. Ég hafði ekkert kynnst Geir þegar fundum okkar bar saman í bæjarstjórninni, en vissi eins og aðrir um ötult starf hans í samtökum ungra sjálfstæðis- manna. Mér fannst hann að sumu leyti minna á föður sinn, viðmótið hlýlegt, en fastur fyrir í því sem honum þótti skipta meginmáli. Á 20 ára ferli hans í borgarstjóm, þar af var hann borgarstjóri í 13 ár, átti ég eftir að kynnast honum og meta hann því meir sem árin liðu. Árið 1959 varð sú breyting á við myndun viðreisnarstjómarinnar, að þáverandi borgarstjóri, Gunnar Thoroddsen, varð fjármálaráðherra í ríkisstjóminni. Fékk hann leyfi frá borgarstjórastarfinu um óákveðinn tíma, en ýmsir efuðust um langlífí ríkisstjómarinnar. Voram við Geir Hallgrímsson kosin til að gegna borgarstjórastarfinu meðan svo stæði. Síðla árs 1960 var stjórnin orðin föst í sessi og var Gunnari Thoroddsen veitt lausn frá borgar- stjórastarfinu, en Geir Hallgríms- son gegndi því eftir það einn þar til í desember 1972, er hann sagði því lausu. Þau 13 ár sern hann var borgarstjóri vora tímabil mikilla framkvæmda og framfara í Reykjavíkurborg. Yrði það langur listi ef því væru gerð skil, þótt ekki sé nema í stórum dráttum. I borgar- stjórastarfínu naut Geir Hallgríms- son frábærra vinsælda. í stjómmálum hlýtur maður að hugleiða hvaða kosti maður metur mest í fari stjórnmálamanns. Verða mér þá ofarlega í huga mannkostir Geirs Hallgrímssonar, heilindi hans og heiðarleiki í öllum samskiptum og gætni, samfara miklum fram- kvæmdahug. Það er manni mikils virði að hafa starfað með slíkum drengskaparmanni. Geir Hallgrímsson var mikill lánsmaður í einkalífi sínu. Hann var kvæntur hinni ágætustu konu, Ernu Finnsdóttur. Til hennar og ástvina þeirra hjóna leitar hugurinn þessa dagana, með innilegri samúð. Auður Auðuns Kveðja frá Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Sjálfstæðismenn syrgja nú fall- inn foringja. Geir Hallgrímsson var í fylkingarbijósti í stjórnmálum í meira en aldarfjórðung. Hann gegndi á stjórnmálaferli sínum æðstu, vandasömustu og vanþakk- látustu forystustörfum sem Sjálf- stæðisflokkurinn, Reykjavíkurborg og þjóðin í heild skipa ménn til. A ferli hans skiptust svo sannarlega á skin og skúrir. Vinsældir hans sem borgarstjóra vora einstakar. Á hinn bóginn hafa sennilega fáir íslenzkir stjómmálaleiðtogar þurft að ganga í gegnum sömu eldraun og Geir Hallgrímsson, þegar hann, jafnframt því að leiða flokk sinn við erfiðar aðstæður í þjóðmálabar- áttunni, þurfti að sæta stöðugum spjótalögum í bakið, úr eigin her- búðum. En Geir Hallgrímsson stóð uppréttur í brúnni, stefnufastur, yfirvegaður og öfgalaus, á tímum þegar upphrópanir, yfirboð og sýnd- armennska áttu hvað greiðastan aðgang að stóram hópi kjósenda. Reykvíkingar minnast Geirs sem afar vinsæls og virts borgarstjóra sem lyfti Grettistaki í verklegum framkvæmdum í borginni. Þjóðin á Geir mikið að þakka fyrir farsæla forystu hans sem for- sætisráðherra, m.a. við útfærslu landhelginnar í 200 sjómílur árið 1975, þegar persónulegt og pólitískt þor þurfti til að bjóða birg- inn þeim tilfinningaþrungna og á köflum óábyrga og skammsýna málflutningi sem þá réð víða ríkjum, þ. á m. innan stjórnarflokkanna. Sjálfstæðismenn minnast Geirs Hallgrímssonar með þakklátum huga fyrir heilladijúg störf hans í þágu flokksins og fyrir þá seiglu og þann sjálfsaga sem hann sýndi sem flokksformaður á erfíðum tímum í sögu Sjálfstæðisflokksins, þegar hann lagði sig fram um að forða því að stigin væru nokkur þau skref sem brytu allar brýr á milli fylkinga, þótt hann yrði að kosta því til að vera fyrir vikið ásakaður um að sýna ekki næga hörku. Þótt Geir Hallgrímsson hafi, er hann féll frá langt um aldur fram, verið hættur beinum afskiptum af stjómmálum, þá var sjálfstæðis- mönnum áfram mikill styrkur af nálægð hans vegna þeirrar reynslu og þeirrar pólitísku yfirsýnar og innsæis sem hann bjó að. Það eykur starfandi stjórnmálamönnum ör- yggi að eiga aðgang að slíkum manni. Fráfall Geirs Hallgrímssonar markar að ýmsu leyti þáttaskil í sögu Sjálfstæðisflokksins. Þjóðar- innar vegna leyfi ég mér að vona að helztu einkenni og kostir Geirs sem stjómmálamanns og sem manns, þ.e.a.s. staðfesta, reisn, réttsýni, drenglyndi, heiðarleiki og hógværð, verði í framtíðinni í meiri hávegum höfð í íslenzkum stjórn- málum en Geir Hallgrímsson mátti reyna á stundum á sínum ferli. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík sendir fjölskyldu Geirs Hallgrímssonar samúðarkveðjur. Baldur Guðlaugsson Kynni okkar Geirs Hallgrímsson- ar hófust fyrst á námsárum mínum í Háskólanum, þegar ég tók að blanda mér í stúdentapólitík þess tíma og flokksstarf ungra sjálf- stæðismanna. Hann hafði þá verið formaður Stúdentaráðs og helsti forvígismaður Vöku, félags lýðræð- issinnaðra stúdenta. Svo mikið orð fór af forustuhæfi- leikum hans þá þegar, að menn stóðu í stífum bréfaskiptum við hann þar sem hann var við fram- haldsnám erlendis, til að fá álit hans á ýmsum þeim málum, sem mönnum þóttu ofarlega á baugi í þá daga, og eins lengi og kostur var þótti mönnum ávallt betra, þeg- ar þeir höfðu hlýtt á skoðanir Geirs og notið leiðsagnar hans. Eftir heimkomu Geirs lágu leiðir okkar saman í starfi ungra sjálf- stæðismanna og síðar í flokkspóli- tíkinni í Reykjavík, einkum á meðan ég gegndi framkvæmdastjórastarfi í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna. Alkunn eru þau margháttuðu störf, sem hann vann á sviði þjóð- mála. Á vettvangi borgarstjórnar naut hann einstæðra vinsælda og traustrar virðingar fyrir fram- kvæmdasemi sína og forystu í borg-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.