Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 B 3 Ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar á Bessastöðum 1974. Frá vinstri: Matthías Bjarnason, Gunnar Thoroddsen, Vilhjálmur Hjálmarsson, Matthías Á. Mathiesen, Halldór E. Sigurðsson, Einar Ágústsson, Ólafur Jóhannesson og Geir Hallgrímsson. armálum og eftir að hann varð for- maður Sjálfstæðisflokksins og for- sætisráðherra reyndi meir en nokkru sinni á mikilsverða stjórn- unarhæfileika hans. Drengskap hans og festu var viðbrugðið, hvar sem hann haslaði sér völl. Eftir að ég tók við starfi fram- kvæmdastjóra Almenna bókafé- lagsins urðu kynni okkar enn nán- ari. Hann var formaður Stuðla hf., styrktarfélags Bókafélagsins, frá upphafi og var því einn af helstu samstarfsmönnum mínum í því fé- lagi. Þar studdi hann mig og hvatti með ráðum og dáð og sýndi starfi Almenna bókafélagsins einstæðan áhuga alla tíð, enda var honum mjög umhugað að geta eflt hvers- kyns lista- og menningarstarfsemi. Það kom hvað skýrast fram eftir að hann tók við embætti borgar- stjóra 1959, þar sem hann gat beitt sér fyrir margvíslegum auknum stuðningi til styrktar þeim málum. Best eru mér kunnug afar farsæl afskipti hans af Leikfélagi Reykjavíkur. Það var á haustmánuðum 1961 að nokkrir forvígismenn Leikfélags- ins gengu á fund Geirs borgarstjóra og ræddu við hann rekstrarvanda- mál félagsins. Á þeim tímum fengu hvorki leikarar né aðrir starfsmenn félagsins nein föst laun, og höfðu þær einar tekjur, sem leiksýningar gáfu af sér, eftir að allur uppsetn- ingarkostnaður hafði verið greidd- ur. Styrkur borgarinnar var þá um 100.000 gamlar kr. á ári, eða álíka upphæð og veitt var t.d. einstökum kórum eða lúðrasveitum. Þjóðleik- húsið naut hins vegar það ríflegra íjárframlaga úr ríkissjóði, að starfs- menn þess fengu tiltölulega góð föst laun, og það sem mestu skipti, atvinnuöryggi. Geir gerði sér strax ljóst, að við slíkar aðstæður gat Leikfélagið ekki starfað áfram. Hann ákvað því að fela Einari Sveinssyni húsameistara borgar- innar að breyta sætaskipan í áhorf- endasalnum í Iðnó þannig, að gólfi var lyft aftast í salnum og sætarað- ir hækkaðar. Þannig var unnt að selja í mun fleiri sæti í salnum á hærra verði en áður, og auka þann- ig tekjur Leikfélagsins. En jafn- framt þessu var styrkur til félagsins Þpssu næst, eða á ánnu 1962, breytti Leikfélagið í samráði við Geir borgarstjóra, lögum sínum, og var þá komið á þeirri stjórnskipan, sem Leikfélagið starfar eftir enn þann dag í dag. M.a. voru þá sett samkvæmt tillögum Geirs ákvæði um fimm manna leikhúsráð, þar sem borgarstjóri skipaði aðeins einn mann í ráðið. Þar með var ákveðið að félagið hefði áfram fullt ákvörð- unarvald um leikritaval og leikhús- reksturinn í heild. Ábyrgðin á rekstrinum var því áfram í höndum félagsins að öl!u leyti. Stuðningur við Leikfélagið var nú aukinn það mikið, að á árinu 1964 voru fyrstu sjö leikararnir fastráðnir hjá félag- inu. Úm þetta leyti gekkst Geir fyrir því, að Leikfélagið fékk afnot af Fríkirkjuvegi 11 og Tjarnarbæ, m.a. fyrir leiklistarskóla félagsins. Þá komst einriig skriður á alvarleg- ar umræður um lóð fyrir væntan- lega leikhúsbyggingu fyrir félagið. Ýmsar hugmyndir voru ræddar um staðsetningu þess, sem hér verða ekki raktar. En það var Geir, sem tók af skarið með að Borgarleikhús- inu skyldi valinn staður í Kringlu- mýrinni, og þar með var ákveðið að reisa það með þeirri reisn sem raun hefur á orðið. Með þessum aðgerðum öllum og vaxandi stuðningi við Leikfélagið, tel ég að Geir Hallgrímsson hafi átt mun drýgri þátt í að koma í veg fyrir að Leikfélagið yrði að lúta í lægra haldi í samkeppninni við Þjóðleikhúsið, en margir gera sér grein fyrir í dag. Og þannig mun um ýmis önnur málefni á sviði lista- og menningar- mála sem lítill gaumur hefur verið gefinn. Ég lít svo á, að vafasamt sé að Listahátíð í Reykjavík hefði komist á laggirnar, ef Geirs hefði ekki notið við. Og víst er um það að þegar við lá að Listahátíð yrði aflögð á árinu 1975 var það Geir, sem kom í veg fyrir að svo illa færi. Ég var þá í framkvæmda- stjórn Listahátíðar og vissi gjörla hve hætt hún var komin. Öll mín kynni af Geir voni á einu og sömu bók lærð. Hann var ætíð sami grandvari og trausti hollvinur- inn, sem af hreinskilni og heiðar- leika skýrði sjónarmið sín og gaf þau ráð, sem hann kunni best. Hann var tvímælalaust einn virt- asti stjórnmálamaður síðari tíma, og naut óskertrar virðingar og trausts allra sem honum kynntust. Rómaður er að verðleikum dreng- skapur hans og trúmennska og orð hans stóðu sem stafur á bók. Það var mér mikið lán að eign- ast Geir Hallgrímsson að vini og geta ávallt notið ráðhollústu hans og trúnaðar. Og nú er hann horfinn sjónum. En ekki gleymast minning- mai hhi þennao géða m, w §m-- verustundirnar aliar, bæði á Dyngjuveginum og annars staðar. Hann var með okkur nokkrum kunningjum í gufubaðsklúbbi. Þar höfum við hist í hádeginu á laugar- dögum í áraraðir. í þeim hópi ríkti glaðværð og vinátta og þar naut frábær kímni Geirs sín einstaklega vel. Hnyttin tilsvör og gamansamar en græskulausar athugasemdir hans og frásagnir lifa í minningu okkar. Minningunni um hinn sanna og góða dreng, Geir Hallgrímsson. Ég votta eiginkonu hans, Ernu Finnsdóttur, og fjölskyldu hans allri einlæga samúð mína. Baldvin Tryggvason Leiðir manna liggja saman og sundur á leiksviði lífsins. Sviðsetn- ingar eru margbreytilegar, svo að aldrei verða endurteknar að fullu óbreyttar. Ber þó hver til leiks þá skaphöfn, er honum hefur verið gefin og hann þróað með sér, en fáir af þvílíkri festu og samkvæmni og Geir Hallgrímsson, sem kvaddur er í dag. Kynni okkar Geirs hófust áratug- um áður en við urðum samstarfs- menn í Seðlabankanum. Þótt við værum aðeins eitt ár samtíða í Menntaskólanum greyptist þá þeg- ar í huga mér mynd, sem ekki hef- ur haggast síðan, af heilsteyptum og einörðum málflytjanda skoðana sinna og hugsjóna, og rökföstum svo af bar. Til hans horfði ég fram og upp, þótt frá öðrum þjóðmála- kanti væri, og því minnisstætt, er ég færði honum frumverk mitt til prentunar í hátíðarblaði skólans, er aftur varð fyrirmynd sams konar útgáfu á 100 ára afmæli MR. Alúð- leg og prúðmannleg framkoma við lítilsigldan nýsveininn gleymist ekki, né heldur móttökuávarp hans til míns árgangs í rússagildi há- skólastúdenta. Frá stjórnmálaand- stæðingum naut hann þeirrar fá- gætu viðurkenningar, að skoðanir hans mótuðust af hugsjón, ekki hagsmunum. Meðan Geir tók út framaferil sinn í borgarmálum lágu leiðir okkar lítt saman, en af þingmennsku og ráð- herradómi, sem við tók, taldi ég mig dómbæran um afar vönduð vinnubrögð og traustan undirbún- ing og framsetningu mála. Var mál manna, að leitun væri á jafn ræki- legri og samviskusamlegri heima- vinnu stjórnmálamanns. Á vett- vangi efnahagsmála var honum þetta þeim mun auðveldara sem hann hafði í framhaldsnámi lagt stund á hagfræði, sem og af því að þjóðmálahugsun hans var samof- in rökhugsun af því tagi. Svo fór, að brautir okkar lágu saman á ný. Sem forsætisráðherra fór hann með yfirstjórn Framkvæmdastofnunar fíki§iB§i m ]ió§s að láti liana gjalda þess pólitíska anribyrs, sem þa fnr í hpnd, og það kom í hlut hans sem slíks að veita mér lausn úr starfi til að ganga til liðs við Seðlabank- ann. Grunaði mig þá lítt, að þar yrði samstarfsvettvangur okkar. Þegar Geir kom til forystustarfa við Seðlabankann fyrir réttum fjór- um árum bar hann í sjóði sínum mikla og trausta reynslu af al- mennri yfirstjórn og þjóðmálastarfi. Hann gerði sér ljósa grein fyrir eðli umskiptanna ög tók heils hugar skrefið frá stjórnmálum til embætt- islegs trúnaðar, jafnvel svo að hann skopaðist að, ef ýjað var að hinu gagnstæða. Grundvallai’viðhorf sín flutti hann að sjálfsögðu með sér, en þau féllu vel að almennum seðla- bankaviðhorfum, jafnvægis milli frjálsræðis og ábyrgðar. Því var hann ótrúlega fljótur að ná tökum á hinum nýja starfsvettvangi og sem fyrr setti hann sig afar vel inn í hvert mál, sem hann fjallaði um. Honum var lagið að leita samstöðu, en málamiðlun náði aldrei lengra en vandaðar meginreglur hans leyfðu. Gagnvart starfsmönnum var hann hlutlægur og réttsýnn, en hlífðist þó aldrei við að krefja þá um kjarna hvers máls. Því vógu virðing og vinsældir hans jafnt, þótt hann gerði ekkert sérstakt til að afla sér þeirra. Auk þess að eiga samstarf við Geir í bankastjórninni hef ég starf- að með honum sem varamaður í stjórn Fiskveiðasjóðs og við átt samaðild að hagstefnunefnd OECD. Kom þar fram tryggð hans við heil- brigðar meginreglur og andspyrna við ódýrum lausnum. Af síðara vett- vanginum minnist ég Geirs og Ernu sem afbragðs ferðafélaga, sem og gestrisni þeirra heima og heiman. Ekki mun öllum Ijóst, að alvara Geirs var milduð kímni, en hún var lágvær og vitsmunaleg og því lítt áberandi. Yrði okkur t.d. á að segj- ast líta eitthvert mál alvarlegum augum, minnti hann þegar á meint- an einkarétt sinn á því orðtæki. Við starfsfólk Seðlabankans höf- um nú á annað ár fylgst með hetju- legri baráttu hans við mein sitt og dáð kjark hans og ósérhlífni. Á fyrri hluta þessa árs virtist kraftaverk hafa orðið og sigur framundan. En enginn má sköpum renna. Skjótt hefur sól brugðið sumri og að hausti hlaut stund lausnarinnar að renna upp. Við þökkum af heilhug ágætt samstarf og samskipti og sendum Ernu og fjölskyldunni inni- legar samúðarkveðjur í raun þeirra og missi. Hið sama gildir persónu- lega um okkur hjónin og fjölskyldu. Minningin lifir um traustan og góðan dreng. Bjarni Bragi Jónsson ° Ég átti því iáni að fagna að starfa náið rneð Geir Hallgrímssyni lengst af þann tíma sem hann var borgarstjóri í Reykjavík. Geir hafði ungur verið kosinn í borgarstjórn og þegar Gunnar Thoroddsen lét af embætti borgarstjóra 1959 var Geir Hallgrímsson kjörinn til þess embættis. Fyrsta árið gegndi hann því með Auði Auðuns en tók síðan einn við stöðunni. Gegndi hann því- starfi til ársins 1972. Geir var aðeins 34 ára þegar hann tók við embætti borgarstjóra. Hann var glæsilegur fulltrúi þeirrar kynslóðar sem þá var að hasla séri völl í þjóðfélaginu. Hann tók þegar til við að undirbúa þann málefna- grundvöll sem hann hugðist byggja borgarstjórastarf sitt á og þegar til borgarstjórnarkosninga kom árið 1962 lagði hann fram óvenju heil- steypta stefnuskrá í borgarmálum. Hann einbeitti sér að þremur málaflokkum: gatnagerð, hitaveitu og skipulagsmálum. Stór hluti af gatnakerfi Reykjavíkur var þá ómalbikaður og réðst Geir strax til atlögu við það verkefni að malbika götur borgarinnar. Fékk hann til liðs við sig hörkuduglegan athafna- mann, Gústaf E. Pálsson, sem ráð- inn var borgarverkfræðingur. Þeg- ar leið að kosningunum 1962 lagði Geir fram áætlun um að ljúka við gatnakerfi borgarinnar á 10 árum. Ymsir höfðu vantrú á að staðið yrði við þá áætlun, en reyndin varð sú að hún var framkvæmd eins og til stóð. Öll ásýnd borgarinnar breyttist stórlega og var þetta upp- haf þess að önnur sveitarfélög fylgdu í kjölfarið. Annað stórverkefnið var lagning hitaveitu í öll hús borgarinnar. Þeg- ar Geir tók við embætti borgar- stjóra naut aðeins hluti Reykvíkinga þess að hafa hitaveitu. Geir setti sér það mark að láta leggja hita- veitu í öll hús borgarinnar. Til þess verkefnis réð hann dugmikinn verk- fræðing, Jóhannes Zoéga sem ráð- inn var hitaveitustjóri. Ekki þarf að orðlengja það að áætluninni um hitaveituna var hrint í framkvæmd, eins og til stóð, og allir Reykvíking- ar nutu þess innan fárra ára að hafa hitaveitu. Þriðja stórverkefnið sem Geir hafði á sinni stefnuskrá var gerð aðalskipulags fyrir Reykjavík, en ekkert slíkt skipulag lá þá fyrir. Ráðnir voru erlendir sérfræðingar sem ásamt íslenskum skipulags- mönnum unnu þetta brautryðjenda- verkefni hér og árið 1966 var skipu- lagið samþykkt í borgarstjórn. Geir Hallgrímsson var foringi sjálfstæðismanna í borgarstjórn í þremur borgarstjórnarkosningum, 1962, 1966 og 1970. Leiddi hann flokkinn til sigurs í þeim öllum. Ég var kosjnn í borgarstjórn 1962 og iiáká í kfpFFáð eg steFfaði því með Qeir uæstum dáglega þpr til huriri jét af embættinu 1972. Fyrir mig var það mikil og ómetanleg reynsla að fá tækifæri til að starfa með honum að borgarmálum. Hann var glæsilegur foringi sem gaman var að vinna með og vinna fyrir og undir hans stjórn urðu miklar breyt- ingar í Reykjavík sem allir íbúarnir nutu góðs af. Þó að hér hafi fyrst og fremst verið nefnd þau þijú stórmál sem hann beitti sér fyrir í upphafi starfs- ferils síns sem borgarstjóri, þá lét hann ekki við þau ein sitja. Mörg fleiri mál bar hann fram til sigurs. Hann breytti t.d. stjórnkerfi borgar- innar og gerði það virkara og betra. Hann stóð fyrir því að sérstök Fé- lagsmálastofnun var sett á fót og margvísleg menningarmál bar hann fyrir bijósti eins og byggingu Kjar- valsstaða og Borgarleikhúss. Úr embætti borgarstjóra hv-arf Geir til ábyrgðarmikilla starfa að landsmálum. Þeim þætti í lífi hans munu aðrir gera skil, en á þeim vettvangi vann hann einnig mikil afrek. Nú þegar Geir Hallgrímsson er allur, langt um aldur fram, er hans minnst sem áhrifamikils leiðtoga og heiðarlegs baráttumanns. Við Sonja sendum Ernu Finnsdóttur og fjölskyldunni allri innilegar samúð- arkveðjur. Birgir ísl. Gunnarsson Minningarnar hrannast upp þeg- ar Geir Hallgrímsson er kvaddur á hinstu stundu. Ungur hreifst ég af honum sem stjórnmálamanni. Hann var borgarstjórinn sem hratt í fram- kvæmd hinni stórhuga áætlun er breytti pollagötum Reykjavíkur í malbikuð stræti. Sjálfstæðismenn vissu að höfuðvígi þeirra, Reykjavík, var í góðum höndum undir hans forystu. Hann kallaði í ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.