Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 Geir og Erna með Carrington lávarði, framkvæmdastjora Atlantshatsbandalagsms, ogkonu hans lonu. senn fram sigurvissu og baráttu- hug. í foreldrahúsum kynntist ég því, hve miklar vonir voru bundnar við forystu hans í Sjálfstæðisflokkn- um. Þegar lífíð tók allt aðra stefnu en við höfðum ætlað sumarið 1970 var Geir skyndilega kallaður til meiri ábyrgðar en hann hafði vænst á þeirri stundu og enn urðu óvænt atvik til þess að hann varð fyrr en menn grunaði formaður Sjálfstæð- isflokksins 1973. Öfundarmenn átti hann, bæði vegna velgengni í stjórnmálum og af því að hann hafði hiotið í arf öflug fyrirtæki sem faðir hans hafði komið á legg af miklum dugnaði og forsjálni. Innan Sjálfstæðisflokksins voru til menn sem sáu ofsjónum yfir frama Geirs og vildu veg hans sem minnstan og hjuggu á stundum úr launsátri gegn hinum heiðvirða drengskapar- manni. Undir forystu Geirs vann Sjálf- stæðisflokkurinn glæsilegan sigur í þingkosningum 1974. Hann varð forsætisráðherra og þá tókust með okkur persónuleg kynni sem hafa verið mér ákaflega dýrmæt. Síðustu ár Geirs í stjómmálunum urðu hon- um erfið vegna mótbyrs sem hann hlaut, ekki síst' hjá ýmsum innan Sjálfstæðisflokksins. Honum var ekki að skapi hvemig hann varð að segja skilið við stjórnmálin haustið 1985. Hann vildi að brott- för sína af stjórnmálavettvangi bæri að með öðrum hætti, en hafði mikinn áhuga á að taka við starfi seðlabankastjóra. Þar ætlaði hann að láta gott af sér leiða á síðustu ámm starfsævi sinnar, sem urðu alltof fá. í rúmt ár barðist hann við erfiðan sjúkdóm og sýndi þá enn sama hetjuskapinn og áður og sterkan vilja til að gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Af sjúkra- beði nú í sumar hafði hann símleið- is samband við mig til að vinna að framgangi máls sem var honum kært. Viljastyrkurinn var óbugaður þótt líkamlega þrekið dvínaði jafnt og þétt. í maí átti ég þess kost einu sinni sem oftar að sitja með Geir fund í samtökum þeim sem kennd eru við Bilderberg. Á vegum þeirra hittast vestrænir forystumenn úr stjórn- málum, viðskiptum, atvinnurekstri, háskólum og fjölmiðlum. Var Geir virkur þátttakandi í starfi þessara samtaka í tuttugu ár og naut þar vináttu og virðingar. Við fráfall hans hefur formaður samtakanna, Carrington lávarður, fyrrum ut- anríkisráðherra Breta og fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins, minnst Geirs sem frábærs samstarfsmanns ekki aðeins á þess- um vettvangi heldur í öllum öðrum störfum, sem Carrington kynntist. Er ekki vafi á því að þátttaka Geirs í Bilderberg-fundunum varð honum ekki aðeins til gagns og ánægju heldur jók hún einnig traust fjöl- margra erlendra áhrifamanna í garð Iands og þjóðar. Nú þegar samskipti ríkja verða æ nánari en áður er fámennri þjóð fátt mikil- vægara en eiga að forystumenn sem skapa slíkt traust hjá öðrum. Geir Hallgrímsson hældist aldrei um vegna þessara starfa sinna og kaus að þola rógburð og öfund vegna þeirra í hljóði. Á þessum vorfundi sem var hald- inn skammt fyrir utan New York var mikið rætt um hrun kommún- ismans og framgang lýðræðis og fijálsræðis í alræðisríkjum hans. Geir lét veikindi sín ekki aftra sér heldur var í fundarsalnum frá morgni til kvölds og fylgdist með ræðum manna. í lokin rifjaði hann upp, að um þær mundir sem hann var að hefja stjómmálaafskipti fyr- ir 45 árum, hefði hann strax snúist gegn kommúnisma og sósíalisma. Þá hefði verið haft á orði við sig, hvort hann ætlaði ekki frekar að búa sig undir sigur kommúnismans en snúast gegn honum. Þótti honum gleðilegt að fá að sannreyna að hann hefði haft rétt fyrir sér þegar hann haslaði sér ungur völl í stjórn- málum. Á .skólaárum stóð hann ásamt fleiri að útgáfu ýmissa bóka gegn kommúnisma og má þar nefna ritgerðasafnið Guðinn sem brást og hina frægu bók George Orwells 1984. Geir var alla tíð áhugasamur um starfsemi Almenna bókafélags- ins og átti sæti í stjórn styrktarfé- lags þess, Stuðla hf. í stjómmálastörfum sínum vildi Geir sýna sanngimi og forðast óbil- girni. Heiðarleiki hans var aldrei dreginn í efa. Mér hefur stundum fundist að andstæðingar Geirs hafi gengið á lagið gagnvart honum og leitast við að misnota þessa dýr- mætu eiginleika hans. í daglegum störfum sem ráðherra var hann ákaflega vandvirkur og vildi gæta þess til hins ýtrasta að allar hliðar hvers máls væru skoðaðar. Erindum einstaklinga er til hans leituðu sinnti hann af kostgæfni og fylgd- ist með niðurstöðu hvers máls. Hann vildi að allir sætu við sama borð og lét eigin geðþótta ekki ráða ferðinni. Vinnudagurinn var oft langur og frídagar ekki margir. Fáir íslenskir stjórnmálamenn hafa staðið í jafn ströngu fyrir þjóð- ina alla og Geir, þegar hann var forsætisráðherra í lokabaráttunni í landhelgismálinu með útfærslunni í 200 sjómílur haustið 1975. Við- brögð Breta við útfærslunni voru óvenjulega snörp og hörð. Andstæð- ingar aðildar Islands að Atlants- hafsbandalaginu ætluðu að nota ástandið til hins ýtrasta í von um að geta spillt varnarsamstarfinu við Bandaríkin og grafið undan þátt- töku í bandalaginu. Geir vildi með öllum ráðum koma í veg fyrir að öryggi þjóðarinnar yrði fómað vegna landhelgisdeilunnar, sem hann vissi að væri tímabundin og myndi leysast. Varð hann að standa vörð um aðild íslands að Atlants- hafsbandalaginu jafnt innan Sjálf- stæðisflokksins sem utan. Sýndi hann þar dýpri skilning á því sem mestu skipti en hinir er vildu bijóta allar brýr að baki sér. Hann vissi að málstaður íslands myndi sigra, þótt síðar yrði, og hafði rétt fyrir sér. Þegar Geir var utanríkisráðherra beitti hann sér fyrir breytingum á skipulagi utanríkisráðunejdisins með því að stofna þar varnarmála- skrifstofu og auka þátttöku íslands í hernaðarlega samstarfinu innan Atlantshafsbandalagsins. Hann hvikaði aldrei í stuðningi sínum við meginstefnuna í varnar- og örygg- ismálum og taldi Atlantshafsbanda- lagið öflugustu friðarhreyfinguna í sögu mannkyns. Undir forystu hans sem forsætisráðherra var haustið 1974 bundinn endi á óvissuna, sem hafði skapast í varnarmálunum í t.íð vinstri stjórnarinnar 1971 til 1974. Innan Sjálfstæðisflokksins sætti hann árásum fyrir að neita að fallast á sjónarmið þeirra, er vilja einvörðungu leggja fjárhags- lega mælistiku á varnarsamstarfið og breyta vamarliðinu í féþúfu. Geir vildi að öryggishagsmunir þjóðarinnar réðu afstöðunni til varnarsamstarfsins við Bandaríkin og taldi annað niðurlægjandi. Geir var ekki talsmaður ríkisaf- skipta. Hann vildi að fijálsræði ríkti í atvinnu- og efnahagsmálum. Segja má, að skoðanir hans í þess- um efnurn hafi verið róttækari en honum var fært .að framkvæma í stjórnmálastarfi sínu, þar sem hann lagði ríka áherslu á að ná samkomu- lagi og jafna ágreining með mála- miðlun. Hann fagnaði því til dæmis innilega, að Davíð Oddssyni borgar- stjóra skyldi takast að breyta Bæj- arútgerð Reykjavíkur í einkafyrir- tæki og hefði viljað standa að slíkri breytingu sjálfur sem borgarstjóri. Á þeim tíma var hins vegar ekki stuðningur við svo róttæka aðgerð. í ársbyijun 1978 varð hann að grípa til lagasetningar til að breyta kjara- samningum í von um að með því tækist að koma böndum á verðbólg- una. Þá hófst einhver hatrammasta árás verkalýðshreyfingarinnar á ríkisvaldið í seinni tíð með þátttöku Alþýðubandalags og Alþýðuflokks undir kjörorðinu: Samningana í gildi. Kosningarnar sumarið 1978 fóru illa fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Samstarfsmennirnir í Framsóknar- flokknum fengu einnig slæma út- reið en sneru við blaðinu og hófu samstarf við Alþýðubandalag og Alþýðuflokk í skammlífri stjórn, sem ætlaði að setja samninga í gildi. Þar varð til vísirinn að þeirri stjórn sem nú situr og hefur gripið til harkalegrar lagasetningar til að afnema kjarasamning, sem hún sjálf gerði. Nýtur hún til þess ein- dregins stuðnings þeirra manna sem hæst hrópuðu um samningana í gildi 1978. Geir Hallgrímsson var stjórn- málamaður sem bognaði hvorki í mótlæti né ofmetnaðist við vel- gengni. Hann hafði einhveiju sinni á orði við mig, að þegar hann liti yfir ævi sína þætti sér sem hann hefði fremur tekið við því, sem hon- um var trúað fyrir en að hafa sóst eftir völdum og vegtyllum. Hann sýndi frábæra trúmennsku í störf- um sínum og brást aldrei. Við hlið hans stóð eiginkona hans, Erna Finnsdóttir, eins og klettur og áttu þau miklu barnaláni að fagna. Blessuð sé minning drengskapar- mannsins Geirs Hallgrímssonar. Björn Bjarnason Geir Hallgrímsson var allra manna kurteisastur bæði í hinum gamla og nýja skilningi orðsins og höfðinglegur svo af bar. Vöggugjöf og veganesti var ríkulegt og hvor- ugu spillti hann. Stjórnmálin runnu honum fljótt í líf og blóð og mál skipuðust þannig, að þau urðu bæði hans áhugamál og atvinnuvett- vangur. Þeir, sem þekktu lítið til Geirs Hallgrímssonar, höfðu stund- um á orði, að hann væri líkari emb- ættismanni en stjórnmálamanni. Vissulega var hann vandvirkur og vildi gæta þess að meginreglur væru í heiðri hafðar og jafnræðis gætt í viðskiptum hins opinbera við einstaklingana og að því leyti til bjó hann yfir eiginleikum hins rétt- sýna og gætna embættismanns. En fyrst og síðast var hann stjómmála- maður. Ég held að ég hafi engan mann þekkt, sem hugsaði jafn mik- Geir Hallgrímsson nýsetztur í stól forsætisráðherra í Stjórnarráðs- húsinu 1974, eftir stórsigur Sjálfstæðisflokksins í þingkosningum. ið um stjórnmál bæði erlend og inn- lend og ijallaði um þau af jafn yfir- gripsmikilli þekkingu og víðsýni. Á síðustu misserum áttum við mörg og góð samtöl ekki síst í síma. Hann stóð þá ekki lengur í hringrás stjórnmálanna miðri og því undrað- ist ég meira en ella glöggskyggni hans og hæfileika til að sundur- greina flóknar stjórnmálastöður og leggja mat á þá kosti sem við blöstu. Þeir sem nú um stundir þykjast snjallastir stjórnmálamenn og lagn- astir við að ná samningum sín á milli um hvers konar niðurstöður eru í mínum huga miklu frekar valdaspilarar en stjórnmálamenn. Þeir eru afar lausbeislaðir í skoðun- um og binda í raun lítinn trúnað -við þá stefnu, sem þeir hafa þó boðað, ellegar við þá fylgismenn og flokka, sem fleytt hafa þeim fram. Slikum mönnum er því mjög auðvelt að ná samkomulagi í nán- ast hvaða máli sem vera kann. Það er hægur vandi að gera kaup, ef menn eru tilbúnir til þess að greiða hvaða gjald sem er og gera ekki miklar kröfur um viðskiptasiðferði. Geir var hrein andhverfa þessa. Honum hefði reynst mjög þungbært að ganga verulega á svig við stefnu sína og sinna manna einvörðungu til þess að verða sér úti um stund- arávinning ellegar vegtyllu. Ekki svo að skilja að hann hafi gengið til samninga við aðra menn og flokka fullur þijósku og þver- móðsku hins sanntrúaða flokks- manns. Því fór fjarri. Geir átti gott með að hlusta á annað fólk og setja sig í þess spor og hann var áhuga- samur um annarra manna skoðanir og viðhorf. Honum var full ljóst að í stjórnmálum og í samskiptum við flokka og forráðamenn þeirra, rétt eins og í annarri umgengni í tilver- unni hljóta menn að koma til móts hver við annan og ná saman um niðurstöður. En það vafðist heldur aldrei fyrir honum, að við þá samn- inga, sem hann ætti aðild að, yrði' að standa og honum var óskiljanleg sú hugsun, sem nýlega hefur borið á, að menn telji ekki frágangssök að gera samninga, sem öllum megi vera ljóst að ekki sé nokkur grund- völlur til að standa við. Geir Hallgrímsson var mikill áhrifamaður í borgarmálum Reyk- víkinga og varði dijúgum hluta starfsævi sinnar í þágu þeirra. Hann var lengi borgarfulltrúi, borg- arráðsmaður og síðast borgarstjóri um 13 ára skeið. Hann settist í stól borgarstjóra um sama leyti og viðreisnarstjórnin var mynduð og hún fór með mál þjóðarinnar allan valdatíma Geirs hjá borginni að einu ári frátöldu. Hann átti því vinum að mæta í stjórnarráðinu. Þetta voru breytingatímar, alda fijáls- ræðis gekk yfir og borgin breyttist líka. Ásýnd hennar varð bjartari, snyrtilegri og líflegri. Geir tók skipulagsmálin afar föstúm tökum og samþykkt var aðalskipulag, mik- ið að vöxtum, frumsmíð, sem vakti athygli víðar en hér á landi. Gatna- kerfið breyttist á fáeinum árum úr malargötum í malbikuð stræti og heitt vatn var leitt í hvert hús í borginni. En um leið var þess vand- lega gætt, að fjárhagur borgarinnar færi ekki úr böndunum. Gunnlaug- ur Pétursson, fyrrv. borgarritari, sagði eitt sinn við mig: „Það sem Geir Hallgrímsson vissi ekki um rekstur borgarinnar og fyrirtækja hennar var ekki þess virði að vita það.“ Þessari yfirburða þekkingu kynntust borgarbúar á hverfafund- um borgarstjórans, sem urðu snar þáttur í borgarlífinu á borgar- stjóraárum Geirs. Ég minnist slíkra funda með aðdáun. Það var nánast sama hvar borið var niður, alls stað- ar var borgarstjórinn heima og öll- um spurningum svarað af sömu vandvirkninni, hver sem í hlut átti. Sem ungur maður með óbeislaða skapsmuni undraðist ég oft af hvílíkri stillingu hann svaraði jafn- vel áreitnum og ósanngjörnum spurningum. Ekki er vafi á því að borgar- stjóraárin voru Geir hugleikin og hann fylgdist grannt með þróun borgarmála alla tíð. Aðspurður sagðist hann þá hafa glaðastur orð- ið á stjórnmálaferli sínum, er Sjálf-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.