Morgunblaðið - 16.10.1990, Side 5
MORGUNBLAÐŒ) SÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1990
B 5 ‘
Haukar taka hressilega á móti Þorgils Óttar Mathiesen, þjálfara FH-liðsins, sem stjórnaði sínum mönnum til sigurs.
að var maður kvíðinn fyrir leikinn
og fyrstu mínúturnar voru menn
stressaðir. Við gerðum okkur seka
um of mikið klúður þegar við vorum
með færri leikmenn á vellinum og
mikið lá við“.
„Annars var ég ánægðastur með
að Gauji bróðir skyldi ekki skora
nema einu sinni,“ sagði Magnús en
hann er bróðir Guðjóns Arnasonar
stórskyttu FH-inga. Guðjóns var
vel gætt en Magnús sá við öðrum
skotum bróður síns nema einu; það
breytti um stefnu af varnarmanni.
FH-ingar voru ákveðnari og
einbeittari
„FH-ingarnir voru mun einbeitn-
ari og ákveðnari og lið þeirra er
mjög gott. Það vantaði aðeins upp
á einbeitingu okkar,“ sagði Petr
Baumruk, hinn svipmikli og há-
vaxni tékkneski leikmaður í
Hauka-liðinu.
„Haukarnir eru með gott lið og
ég er því óánægður með ósigurinn.
Okkur vantaði meiri ákveðni og ég
missti sjálfur einbeitinguna þegar
á leið með þeirri afleiðingu að Þorg-
ils Óttar slapp nokkrum sinnum
framhjá mér undir lokin. Þetta var
annars nokkuð góður leikur en mér
fannst þó dómararnir ekki nógu
hlutlausir. Þeir voru hliðhollari
FH-ingum og getur það hafa riðið
baggamun,“ sagði Baumruk.
Leikmenn léku drengilega
„Það var geysilega gaman að
dæma þennan leik fyrir fullu húsi
áhorfenda. Stemmningin var ótrú-
leg. En það eru allir leikir erfiðir
að dæma, sérstaklega þegar þeir
eru jafnir sem þessi og mikil spenna
bæði innan vallar og utan,“ sagði
Stefán Arnaldsson, dómari.
„Það var ánægjulegt að dæma
hér í dag því leikmenn beggja liða
léku mjög drengilega. Ég vona að
fleiri leikir verði jafn drengilegir,"
bætti Rögnvald Erlingsson, félagi
Stefáns, við.
■ Úrslit / B6
alltaf erfiðir, taka vei á móti okkur
og sýna okkur enga miskunn. Það
verður örugglega engu minni bar-
átta og spenna þegar liðin mætast
seinna í vetur," sagði Bergsveinn.
Ánægður að Gauji bróðir skor-
aði bara eitt mark
„Ég er auðvitað óánægður að við
skyldum tapa því þetta var hörku-
leikur," sagði Magnús Árnason,
markvörður Hauka sem varði eins
og berserkur í leiknum, þar af
nokkrum sinnum úr dauðafæri og
einnig eitt vítaskot.
Magnús er fyrrverandi leikmaður
með FH en sagðist hafa verið ófeim-
inn við sína gömlu félaga. „Auðvit-
MYNDIR
Júlíus Sigurjóns-
son og Einar Falur
Ingólfsson.
il leiksloka.
Gunnar Beinteinsson, hornamaður FH-liðsins, sendir knöttinn í netið hjá Haukum.