Morgunblaðið - 29.01.1991, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐ.JUDAGUR 29. JANÚAR 1991
B 3
SKIÐI / HEIMSMEISTARAMOTIÐ I ALPAGREINUM
Reuter
Franz Heinzer er hér á fullri ferð í bruninu á sunnudag. Hann náði loksað sigra í fjórðu tilraun á heimsmeistaramóti.
Heinzer hafði það
í fjóiðu tilraun
Hafði þrívegis orðið í fjórða sæti í bruni á HM, en tókst nú loks að sigra
FRANZ Heinzerfrá Sviss vann heimsmeistaratitilinn íbruni í
Saalbach í Austurríki á sunnudag. Þetta var fyrsti sigur Svisslend
inga á mótinutil þessa. ítalinn Peter Runggaldier varð annar
og Daniel Mahrer, Sviss, tók bronsið.
Heinzer, sem hefur verið besti
brunmaður heimsbikarsins í
vetur, sýndi mikið öryggi í bruninu
og kom í mark 0,25 sek á undan
Runggaldier. „Ég tók á öllu sem
ég átti í neðri hluta brautarinnar.
Ég tók 120 prósent áhættu,“ sagði
Heinzer, sem er 28 ára, og hefur
fjórum sinnum tekið þátt í HM og
Olympíuleikum án þess að vinna til
verðlauna. „Ég klúðraði startinu og
gerði fleiri mistök í brautinni. En
ég hafði engu að tapa eftir að hafa
verið þrisvar sinnum í fjórða sæti
á HM,“ sagði Heinzer, sem varð
fjórði á HM 1982,1985 og 1987.
Runggaldier, sem varð annar,
vann fyrstu alvöruverðlaun í bruni
karla fyrir Ítalíu síðan á Ólympíu-
leikunum 1976. Hann sagði að
Heinzer hefði átti sigurinn fyllilega
skilið og að hann hafi sýnt það í
Saalbach og í Kitzbúhel að hann
er besti brunmaður heims í dag.
Svisslendingar geta vel við unað
því Daniel Mahrer varð þriðji og
kom þar með í veg fyrir að Aust-
urríkismenn kæmust á verðlauna-
pall í öllum greinunum á HM. „Ég
gerði of mörg mistök til að geta
unnið þannig að þriðja sætið er mér
mikils v.irði,“ sagði Mahrer.
Karlamir kepptu í bmni
tvíkeppninnar í gær. Talið er að
slagurinn muni standa milli Aust-
urríkismannanna, Gunther Mader
og Stefan Éberharter, og síðan
Marc Girardelli frá Luxemborg.
Mader hefur 0,22 sek forskot á
Girardelli og Eberharter 0,70 sek á
Girardelli fyrir svigið. Besta tíman-
um í bruninu náði Kristian Ghed-
ina, Ítalíu og Svissledingurinn, Will-
iam Besse, náði næst besta tíman-
um. Þeir koma þó ekki til með að
blanda sér í toppslaginn í tvíkeppn-
inni því svig er ekki þeirra sterk-
asta hlið.
■ Úrslit / B6
HANDBOLTI
Víatsjeslav Atawín.
Atawín
fyrir Atla
Sovéski landsliðsmaðurinn í
handknattleik, Víatsjeslav
Atawín, hefur gert þriggja ára
samning við spænska liðið Granoll-
ers. Granollers þurfti á manni að
halda í staðinn fyrir Atla Hilmars-
son, sem fer frá félaginu í lok yfir-
standandi tímabils, og tókust samn-
ingar við Sovétmanninn. Atawín,
sem verður 24 ára á næstunni og
hefur leikið 150 landsleiki, er vænt-
■ ■anlegur til -Granollers í 'ágúst n.k.
FRJALSIÞROTTIR / HASTOKK
Þórdís Gísladóttir sigraði í Skotlandi:
„Er á réttri leið
fyrir HM í Sevilla"
ÞÓRDÍS Gísladóttir, íslands-
methafi íhástökki, sigraði í
hástökki á skoska meistara-
mótinu innanhúss sem fram
fór í Glasgow í Skotlandi á
sunnudaginn.
Frá
Bill
Melville
ISkotlandi
Þórdís, sem er að undirbúa sig
fyrir heimsmeistaramótið inn-
anhúss í Sevilla í mars, stökk 1,83
metra og sigraði. Hún átti þijár
tilraunir við 1,86
metra en mistókst,
fann ekki rétta takt-
inn. Þetta var fyrsta
mót Þórdísar innan-
húss síðan í fyrra vetur.
„Þetta var ágætur árangur miðað
við að ég er að byija,“ sagði Þórdís.
„Þessi árangur sýnir að ég er á
réttri leið fyrir heimsmeistarmótið
innanhúss í Sevilla. Stökkin voru
góð, en ég þarf fleiri alvörumót."
Þórdís keppir aftur á enska
meistaramótinu innanhúss í Cos-
ford á iaugardaginn..
Þórdís Gísladóttir.
Fyrsta gull-
iðíhöfnhjá
Kronberger
Fyrst austurrískra kvenna til að vinna brun
á heimsmeistaramótinu í 13 ár
AUSTURRÍSKA skíðadrottningin Petra Kronberger vann fyrstu
gullverðlaunin íkvennaflokki á HM er hún sigrað í bruni í Saal-
bach á laugardaginn. Hún var næstum hálfri sekúndu á undan
Nathalie Bouvierfrá Frakklandi. Svetlana Gladíshíva varð þriðja
og vann þar fyrsta verðlaunapening sovéskra kvenna á stórmóti
í alpagreinum síðan á Ólympíuleikunum 1956.
að er af sem áður var hjá Kron-
berger, þegar pressan var svo
mikil að hún var að hugsa um að
hætta keppni. Nú horfír öðru vísi
við, hún hefur öðlast aukið sjálfs-
traust og vill ekkert frekar en sigur
og aftur sigur. Á laugardaginn varð
hún fyrst austurrískra kvenna til
að vinna HM í bruni frá því Anne-
marie Moser-Pröll sigraði 1978.
Kronberger sagðist ekki hafa
verið taugaóstyrk fyrir brunið því
hún vissi að hún gæti gert betur í
tæknigreinunum, ef henni tækist
ekki vel upp í bruninu. „Ég hef
þegar náð takmarkinu - að vinna
gullverðlaun á HM, allt annað er
bónus. Pressan á mér er ekki eins
mikil eftir sigurinn í bruninu. Nú
get ég hugsað um að gera mitt
besta án þess að hugsa um gullverð-
laun,“ sagði Kronberger, eftir ör-
uggan sigur í bruninu á laugardag.
En hún verður að teljast sigur-
strangleg í tvíkeppninni, risasviginu
og stórsviginu og jafnvel sviginu.
„Þetta var ekki brunbraut fyrir
minn stíl, ég kann betur við mig í
brautum sem kreíjast meiri tækni.
En mér brá óneitanlega er ég sá
millitímann hjá Gladíshívu á sjón-
varpsskermi," sagði Kronberger.
Sovéska stúlkan, sem var 16. í rás-
röðinni, hafði besta millitímann í
brautinni, en náði ekki að fylgja
því eftir í neðri hlutanum og hafn-
aði í þriðja sæti.
„Ég var hrædd í bruni á síðasta
keppnistímabili," sagði franska
stúlkan, Nathalie Bouvier, sem varð
önnur. „Mig dreymdi um að komast
á verðlaunapall og var viss um að
Petra Kronberger heldur hér fast
um gullpeninginn sem hún fékk fyrir
heimsmeistaratitilinn í bruni kvenna.
ætti möguleika á því.“ Hún hafði
áður aðeins einu sinni náð að vinna
heimsbikarmót, í stórsvigi 1989.
„Þessi verðlaunapeningur gefur
mér aukið sjálfstraust og ég mun
reyna allt til að komast aftur á
verðlaunapall."
Gladíshíva, sem er aðeins 19 ára,
kom mjög á óvart með því að ná
þriðja sæti. Hún hafði áður náð
best 14. sæti í bruni í heimsbikar-
móti í Altenmarkt í síðasta mánuði.
■ Úrslit / B7
ÍÞRÓnARAHMSÚdllR
Heilbrigðis- og rannsóknaráð ISÍ og mennta-
málaráðuneytið auglýsa hér með eftir umsóknum
um styrk vegna rannsókna á íþróttasviði.
Umsóknarfrestur rennur út 1. mars 1991.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
ÍSÍ, íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Menntamálaráðuneytið.
Heilbrigðis- og rannsóknaráð ÍSÍ.
-
Utandeildarkeppni
KSÍ 1991
Samkvæmt ákvörðun 45. ársþings KSÍ verður haldin
Utandeildarkeppni KSI á næsta keppnistímabili. Öllum
félögum/hópum innan sem utan ÍSÍ er heimil þátt-
taka. Keppnin verður svæðaskipt og leikið verður eft-
ir reglugerð KSÍ um utandeildarkeppni og knattspyrnu-
lögum og reglugerðum KSÍ. Allar nánari upplýsingar
ásamt gögnum eru veittar á skrifstofu KSÍ, íþróttamið-
stöðinni í Laugardal, sími 91-84444 og 91-84925.
Tekið skal fram að liðin verða að útvega sér völl til
afnota og skulu skriflegar samþykktir vallaryfir-
valda/eigenda fylgja umsókninni.
Skráningarfrestur er til 11. febrúar nk.
'.•á r •»’«***«