Morgunblaðið - 10.02.1991, Page 2

Morgunblaðið - 10.02.1991, Page 2
2 FRÉTTIR/INNLENT EFNI MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1991 Karpov á heimsbikar- mót í Reykja- vík í haust FYRSTA heimsbikarmótið í skák í nýrri röð slikra móta verður haldið í Reykjavík í september eða október og er talið öruggt að Anatólíj Karpov, fyrrum heimsmeistari og margfaldur áskorandi um heimsmeistaratitil- inn, verði meðal þátttakenda. Karpov er annar sterkasti skák- maður heims, næst á eftir heims- meistaranum Kasparov. Jón Rögn- valdsson formaður Skáksambands íslands sagði í gær að segja mætti öruggt að þetta heimsbikarmót verði haldið í Reykjavík í september-okt- óber, á vegum Skáksambands ís- lands, Stöðvar 2 og kannski fleiri aðila. Einnig mætti telja öruggt að með- al þátttakenda verði Karpov, ívant- sjúk, Kortsnoj, Timman og Beljavskíj. Nýr langbylgjusendir kostar 6-8 hundruð milljónir: í leikskólanum Langbylgjusendingar eru orðnar úrelt fyrirbrigði - segir Jón Þóroddur Jónsson, yfirverkfræðingur Pósts og síma ÝMSIR tæknimenn hjá Pósti og síma draga mjög í efa að bygging nýs langbylgjumasturs, í stað þess sem hrundi á Vatnsendahæð í fárviðrinu á dögunum, sé hagkvæmasta lausnin við að koma út- varpssendingum til sjómanna og afskekktra staða á landi. Aætlað er að slíkt mastur, sem hugsanlega yrði byggt í Flóanum, muni kosta sex til átta hundruð milljónir. Þeir sem Morgunblaðið ræddi við telja mikilvægt að skoða hvort ekki finnist jafngóðar, eða betri, leiðir sem jafnframt væru ódýrari. Eyjólfur Valdimarsson, verkfræðingur hjá Ríkisútvarpinu, telur að skynsamlegast sé að byggja nýjan langbylgjusendi. Hann segir að þeir séu búnir að bíða lengi eftir því að langbylgjumöstrin hryndu. Jón Þóroddur Jónsson, yfirverk- fræðingur Pósts og síma, segir að þetta hafí verið nokkuð rætt innan stofnunarinnar. „Ég held að við séum komnir að þeim tímapunkti að langbylgjusendignar séu úrelt fyrirbæri. Það er dýrt að koma upp nýjum langbylgjusendi og því þarf að skoða alla aðra möguleika gaumgæfílega áður en það verður gert. Það er alla vega ekki skyn- samlegt að byggja langbylgjusendi á Vatnsendahæð og ég held það þurfi að athuga vel hvort Flóinn sé hentugur staður,“ sagði Jón Þóroddur. Jón Þóroddur sagði að lang- bylgjan, eins og hún var, hefði ekki verið nógu góð. Sendirinn á Vatnsendahæð hefði verið frekar lítill og staðsetning hans ekki nógu góð. Sjófarendur norður í íshafi hefðu til dæmis náð sendingum á langbylgju mjög illa. Auk þess væru kröfur um gæði útsendinga mun meiri nú til dags en fyrir tveimur áratugum þegar ákvarð- anir, sem langbylgjusendingar byggjast á, voru teknar. Jón Þóroddur sagði að athuga mætti aðra möguleika. Vel mætti hugsa sér að hafa stöðugar stutt- bylgjusendingar, en þeim var kom- ið á eftir að langbylgjumastrið hrundi. Stuttbylgjusendar væru mörgum sinnum ódýrari en lang- bylgjusendar og það væri því ódýr- ari lausn. Einnig væri vert að at- huga hvort fjölga mætti FM-send- um á fjöllum við strendur landsins. Slíkir sendar þjónuðu bæði sjó- mönnum og fólki í landi og útsend- ingin væri mun betri. Þá sagði Jón Þóroddur að gervihnattasendingar væru vel hugsanlegar og þess virði að athuga nánar. Eyjólfur Valdimarsson, verk- fræðingur hjá Ríkisútvarpinu, seg- ir að aðferðir, sem komi í stað lang- bylgjusendinga, séu á þróunarstigi og það muni skýrast á næstu árum hvaða leið verði farin í þeim efn- um. Ekki sé búið að fínna heppi- legt tíðnisvið fyrir útvarpssending- ar um gervitungl og trúlega sé um áratugur þar til það mál verði leyst. Langbylgjusending er hugsuð fyrir sjómenn á hafí úti, fyrir af- skekkta staði á landi og sem ör- yggissendir þegar FM-keðjan gef- ur sig. „Við höfum ekki getað hvatt fólk til að fá sér viðtæki með lang- bylgju vegna þess hversu slæmt ástand hefur verið í þessum mál- um. Við höfum alltaf beðið eftir því að möstrin hryndu," segir Ey- jólfur. „Það eru svæði á landinu sem ekki ná sendingum frá gervihnött- um og ekki er víst að þau svæði næðu útvarpssendingum, ef þær verða tæknilega mögulegar. Hvað viðkemur stuttbylgjusendingum þá ná þær lengra en langbylgjan en það geta verið svæði þar sem stutt- bylgjan dettur út. FM-sendingar eru háðar rafmagni frá rafveitum og auk þess næst hún ekki nema í sjónlínu og næst því ekki langt á haf út,“ segir Eyjólfur. Hann sagði að þetta væri kostn- aðarsamt og ætlunin væri að fá erlenda ráðgjafa til aðstoðar við val á stað fyrir nýjan langbylgju- sendi. Grásleppuhrogn: Útlit fyrir sölu 16 þús- und tunna Grásleppuhrognaframleiðend- ur hafa aldrei áður gert jafn marga sölusamninga áður en vertíð hefst og nú í ár. Vertíðin hefst á timabilinu 1. mars til 20. apríl og er nú gert ráð fyrir að alls verði hægt að selja milli 16 og 17 þúsund tunnur á vertíðinni. A síðasta ári voru aðeins seldar um 6.500 tunnur. Öm Pálsson, framkvæmdastjóri Félags grásleppuhrognaframleið- enda, segir útlitið mjög gott. Eftir- spurn á heimsmarkaði sé mikil og verð fari hækkandi. „Við teljum, að markaðurinn geti teidð við um 40.000 tunnum á ári. í fyrra veidd- ust aðeins um 20.000, þannig að birgðir eru mjög litlar. Eftirspumin hefur gert okkur kleift að hækka lágmarksverðið úr um 900 þýskum mörkum átunnu í 1.025 þýsk mörk.“ Inflúensan: Víðtæk bólusetning heftir útbreiðslu - segir Skúli G. Johnsen borgarlæknir „ÉG HEF fengið það staðfest að inflúensa hefur greinst á rannsóknar- stofum hér á landi undanfarið, þó ekki sé Ijóst af hvaða stofni eða undirflokki hún er. Mér þykir líklegt að mikil bólusetning undanfarna mánuði verði til þess að útbreiðsla flensunnar verði ekki eins mikil og ella,“ sagði Skúli G. Johnsen, borgarlæknir, í samtali við Morgun- blaðið. Morgunblaðið skýrði frá því í vik- unni að greinst hefðu tilfelli inflú- ensu hér á landi. „Flensan er líklega að fara af stað núna, en fólk hefur ekki hringt til okkar og leitað eftir bólusetningu undanfarna daga, enda gerir það sér sjálfsagt grein fyrir að það er of seint að bólusetja þegar flensan er komin,“ sagði Skúli. „Undanfama mánuði hafa hins vegar verið notaðir 40 þúsund skammtar af bóluefni, mest fyrir eldra fólk. Þá hafa vinnuveitendur látið bólusetja starfsmenn sína í æ ríkari mæli. Við höfum reynt að gera okkur grein fyrir áhrifum svo víðtækrar bólusetningar og teljum að hún geti komið í veg fyrir mikla útbreiðslu inflúensunnar,“ sagði Skúli G. Johnsen, borgarlæknir. Eins og fram kom í frétt blaðsins á fímmtudag eru einkenni fiensunn- ar hár hiti, beinverkir og kvefein- kenni. Meiðingar, rúðubrot og brot á umferðarlögum LÖGREGLAN í Reykjavík hafði í nógu að snúast í fyrrinótt, þó ekki leldist nóttin venju fremur erilsöm. Meðal þess, sem lögreglan fékkst við, voru fjögur útköll vegna líkamsmeiðinga og níu vegna rúðubrota. Líkamsmeiðingarnar voru ekki alvarlegar, en einhveijir voru aumir og sárir eftir áflog. Frá klukkan 20 á föstudagskvöld til klukkan 6 á laugardagsmorgun stöðvaði lögreglan 15 ökumenn fyr- ir of hraðan akstur. Af þeim óku tveir á yfir 100 kílómetra hraða á klukkustund. Fimm voru stöðvaðir, grunaðir um ölvun við akstur, fimm fóru yfir á rauðu ljósi og átta voru stöðvaðir fyrir ýmis önnur umferð- arlagabrot. A ► l-44 Fárviðri og fyrirhyggja ►Hvemig geta menn tryggt sig gegn tjóni sem verður í óveðri eins og gekk yfir landið um síðustu helgi? Og er ástæðan fyrir öllu þakplötufokinu að menn fylgja ekki stöðlum? /10 Stjórnmáiasamband við Litháen ►Eiga Islendingar að taka upp stjómmálasamband við Litháen? Fréttaskýring um tildrög og stöðu málsins. /14 Þrír f orsetar ►I þremur af fjórum æðstu emb- ættum landsins em nú konur. Hvað eiga þær sameiginlegt? /16 Ný f rönsk þjóðarbók- hlaða ►Frakka em á fjórum áram að byggja stærsta bókasafn í heimi á Signubökkum/ /18 Strí ð og fréttir ►Persaflóadeilan séð með augum Jóhönnu Kristjónsdóttur blaða- manns Morgunblaðsins.20 Bheimili/ FASTEIGNIR ► 1-28 Staða Byggung í Reykjavík ►Rætt við Benedikt Gunnarsson framkvæmdastjóra /12 ► l-32 Rokk í Ríó ►Sagtfrámestutónleikumrokk- .. sögunnar í Rio de Janeiro /1 og 15-16 Eg get ekki rifist ►Benedikt Benediktsson segir frá baráttu sinni við stamið /2 Eyðimerkurhershöfð- inginn ►Erlend hringsjá um Norman Schwarzkopf hershöfðingja og yfirmanns herliðs bandamanna í Saudi Arabíu. /4 Afríka heillar ►inga Valborg Einarsdóttir og Sveinn K. Sveinsson segja frá ævintýraferð um sunnanverða Afríku /12 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Útvarp/sjónvarp 40 Dagbók 8 Gárur 43 Hugvekja 9 Mannlífsstr. 8c Leiðari 22 Fjölmiðlar 18c Helgispjall 22 Kvikmyndir 20c Reykjavíkurbréf 22 Dægurtónlist 21c Myndasögur 26 Menningarstr. 224c Brids 26 Minningar 24-25c Stjörnuspá 26 Bíó/dans 26c Skák 26 Velvakandi 28c Fólk í fréttura 38 Samsafnið 30c Karlar 38 Bakþankar 32c INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.