Morgunblaðið - 10.02.1991, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.02.1991, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚÁR 1991 Tökum eitt skref í einu > __ -segir Omar Benediktsson nýráð- inn framkvæmdastjóri íslandsflugs hf. OMAR Benediktsson, einn eigenda íslandsflugs hf. og nýráðinn framkvæmdastjóri félagsins, er tæplega þrítugur viðskiptafræðing- ur. Hann er búsettur í Frankfurt í Þýskalandi ásamt konu og þrem- ur börnum hvar hann á og rekur ferðaskrifstofuna Island tours, sem selur ferðir til íslands, Grænlands og Færeyja. Island tours er fimm ára gamalt fyrirtæki sem Ómar á í félagi við Skúla Þor- valdsson, Hótel Holti, og Böðvar Valgeirsson, Ferðaskrifstofunni Atlantik. Starfrækir það tvær söluskrifstofur í Þýskalandi, í Frank- furt og Hamborg og eina í Sviss. Ómar brá sér heim á dögunum til að kaupa meirihluta hlut afjár í Arnarflugi innanlands ásamt Gunnari Þorvaldssyni og til að ganga frá sameiningu fyrirtækisins við Flugtak hf. í hinu nýja íslands- flugi. Að því búnu var hann aftur rokinn til Þýskalands að selja Þjóð- veijum íslandsferðir í sumar og segir óráðið hvenær hann hann kemur albúinn til starfa hjá Is- landsflugi. Fráleitt muni þó Island tours leggja niður laupana við það, enda velti það meiru en hið samein- aða flugfélag og er í stöðugum uppgangi. Enginn samdráttur í Islandsferðum „Stríðið við Persaflóa hefur áhrif á ferðalög í Evrópu en við höfum þó ekki merkt samdrátt samanbo- rið við síðasta ár. Þá vorum við með á þriðja þúsund farþega til íslands. Eg er þess fullviss að við hefðum náð aukningu frá síðasta ári ef stríðið hefði ekki skollið á,“ segir Ómar. „Fyrirtækið verður fímm ára í apríl og það hefur verið mjög góð aukning á markaðshlutdeild okkar á þeim tíma. Markaðurinn hefur líka farið stækkandi,“ segir hann. „Það eru eingöngu Þjóðveijar sem bóka sig í ferðir í ferðaheild- sölu okkar í Þýskalandi, en við opnuðum líka litla söluskrifstofu í Sviss í vetur. Það er stöðugt verið að færa út umsvifin og höfum við nýverið keypt hlut hjá einum ís- landssöluaðila og erum að kaupa meirihlutann af öðrum þessa dag- ana í Þýskalandi. Nordland tours Ómar segist hafa byijað á skrif- stofunni í Hamborg þegar hún'var stofnuð fyrir fimm árum en hann var þá nýútskrifaður viðskipta- fræðingur. „Skrifstofan í Frankfurt var opnuð fyrir einu og hálfu ári og skrifstofan í Sviss í janúar," segir Ómar. „Við eigum annað lítið fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu í skipaferð- ir á norðurslóðum og heitir Nord- land tours. Það var stofnsett í októ- ber og fer vel af stað. Það sér til dæmis um fraktskipaferðir með Eimskip og Sambandsskipunum, flutninga með strandferðaskipum við Grænland og póstskipum í Nor- egi, auk ferða með skemmtiferða- skipum í Eystrasalti.“ Vetrarferðir til íslands „Ég leyfi mér að halda því fram, að þessi starfsemi okkar sé merki- legasta átak sem gert hefur verið í íslenskum ferðamálum," segir Ómar. „Það hefur lengi verið taiað um að lengja ferðamannatímann á ís- landi. Ferðamálaráð lét loksins verða af því á dögunum að gefa út kynningarbækling um Island en þar er ekki minnst einu orði á vet- ur á íslandi. Við drifum hins vegar í að prenta vetrarbækling um Is- land. Viðbrögðin hafa ekki verið mikil ennþá en það tekur langan tíma að byggja upp sölu á vetrar- ferðum til landsins og er ærið kostnaðarsamt. Við höfum líka ver- ið í ágætu samstarfi við Flugleiðir um að senda blaðamenn í kynning- arferðir til íslands yflr veturinn." Sniðgengu Island tours Ómar segir að þegar Island to- urs hóf sölu íslandsferða hefðu íslenskar ferðaskrifstofur, sem taka á móti erlendum ferðamönn- um, tekið sig saman um að snið- ganga fyrirtækið og skipta ein- göngu við erlenda ferðaheildsala. „Það ríkti vantrú gagnvart okkur, bara af því að við vorum með Morgunblaðið/KGA Ómar Benediktsson íslenskt fyrirtæki á erlendri grund. Þar sannaðist að íslendingar eru íslendingum verstir." Samgöngur mikilvægar Þegar Ómar tekur við fram- kvæmdastjórastarfi íslandsflugs mun hann halda tengslum við Is- land tours sem stjómarformaður fyrirtækisins en hann sagði þó eng- in áform uppi um samrana þessara fyrirtækja. — En hvað ber framtíð íslands- flugs í skauti sínu? „Við horfum til þess að til stend- ur að auka fijálsræði í innanlands- fluginu. Ég kem sjálfur af lands- byggðinni, frá Bolungarvík, og veit hvað samgöngur eru mikilvægar á Islandi. Ég gæti til dæmis vel hugs- að mér að búa úti á landi en fram- skilyrði þess væri að ég hefði góð- ar samgöngur við höfuðborgina," segir hann. „Það er ráðlegast að taka aðeins eitt skref í einu. Við munum flýta okkur hægt,“ segir Ómar. í fyrstu verða innri mál íslands- flugs tekin til rækilegrar endur- skoðunar og segir Ómar ákveðið að ljúka því fyrir mánaðamót. „Það tekur lengri tíma að marka fram- tíðarstefnuna út á við en hún á að liggja fyrir á haustmánuðum. Við munum taka alla þætti í rekstri og stefnu flugfélaganna til endur- skoðunar. — Mun íslandsflug reyna að hasla sér völl í millilandaflugi? „Ég sé það ekki fyrir mér á þess- ari stundu en maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Það er betra að einbeita sér að ákveðn- um verkefnum og gefa sér nægan tíma. Það munum við gera,“ segir Ómar Benediktsson. Rífandi gangur í við- ræðum um kaup Rarik á Rafveitu Siglufjarðar Metin á fimm hundruð milljónir kr. NÆSTI viðræðufundur milli fulltrúa Rafmagnsveitna ríkisins og bæjaryfirvalda á Siglufirði um kaup RARIK á Skeiðsfossvirkjun og dreifikerfi rafmagnsveitunnar á Siglufirði er fyrirhugaður í næstu viku. Að sögn Kristjáns Moller, forseta bæjarstjórnar Siglufjarðar og formanns viðræðunefndar bæjarins, er rífandi gangur í málinu. Kristján Moller sagði, að hann byggist allt eins við að af sölunni yrði. „Þetta er viðamikið mál og það tekur sinn tíma að leiða það til lykta,“ sagði Kristján. Hann sagði að rætt væri um að RARIK tæki yfír raforkuöflun og sölu, þar með talið dreifikerfi og háspenn- ulínur. Hann sagði að virkjunin og dreifikerfið væri metið á rúmar 500 milljónir kr. í efnahagsreikningi bæjarins. Hann sagði að söluverðið hefði verið rætt á fundum viðræðu- nefndanna en vildi að öðru _ leyti ekki tjá sig frekar um það. „Ég er sæmilega bjartsýnn um að við náum saman, það er rífandi gangur í þessu. Við gefum okkur að minnsta kosti tíma út febrúarmánuð,“ sagði Kristján. Hann taldi að einhugur ríkti um söluna innan bæjarstjórn- arinnar og að sér virtist meirihluti bæjarbúa vera sama sinnis. Ra- forkuverð frá RARIK og Rafmagn- sveitu Sigluíjarðar væri nánast hið sama og átti hann ekki von á því að raforkuverð til neytenda myndi hækka í kjölfar eigendaskipta. Hann sagði að skuldir rafveitunnar væru alls ekki óyfirstíganlegar en í sínum huga ættu sveitarfélög að hafa allt önnur verkefni en að reka orkufyrirtæki. Það ætti frekar að vera á einni stórri hendi en á mörg- um smáum og hagræðið sem af því hlytist kæmi neytendum efalaust til góðs þegar fram í sækir. Kristján Jónsson, rafmagnsveitu- stjóri ríkisins, sagði að Skeiðsfoss- virkjun tengist dreifikerfi RARIK og nýtist því mjög vel auk þess að þjóna orkuveitusvæði Rafveitu Si- glufjarðar. Ekki hefði verið farið út í þessar viðræður nema vegna þess að talið væri hagræði af kaupunum fyrir RARIK. Byggðastofnun; 15 milljónir í kostnað við þróunarverkefni STJÓRN Byggðastofnunar hefur ákveðið að veija allt að 15 milljónum kr. til að taka þátt í rekstrarkostnaði átaks- og þróunarverkefna á móti heimamönnum í einstökum héruðum landsins. Einnig að veita allt að 25 milljónum kr. til þess að styrkja undirbúningsrannsóknir vegna einstakra atvinnukosta á vegum átaksverkefna, iðnráðgjafa og atvinnuþróunarfélaga. I samþykkt Byggðastofnunar um þetta efni segir að annars vegar sé um að ræða rekstrarkostnað við átaksverkefni og ýmsa aðra starf- semi sem hefur atvinnuþróun ein- stakra héraða að markmiði. Hins vegar gefíst Byggðastofnun tæki- færi til að taka þátt í kostnaði við ýmisskonar undirbúningskannanir vegna nýrra atvinnutækifæra. Þátt- aka Byggðastofnunar í einstökum verkefnum verður metin í hveiju til- viki en reiknað er með því að hún verði um helmingur kostnaðar víðast hvar. í fámennustu jaðarbyggðum verður kostnaðarþáttakan þó allt að þremur íjórðu .en í úölmennustu byggðum ekki yfir þriðjungi. Samþykkt var á fundi Byggða- stofnunar að taka þátt í átaksverk- efnum í Mýrdalshreppi, Dalasýslu og A-Barðastrandasýslu, Þingeyjar- sýslum og A-Húnavatnssýslu ásamt hluta Skagafjarðar. Auk þess var samþykkt fjárveiting til framhalds á átaksverkefni í V-Húnavatnssýslu. Fyrir liggja beiðnir frá Snæfellsnesi og suðurfjörðum Austfjarða sem bíða afgreiðslu Byggðastofnunar. Meirihluti útsendingarefnis ís- lenzku stöðvanna óþýtt fréttaefni HLUTUR innlends efnis í dagskrá sjónvarpsstöðvanna hefur ekki verið sérlega beysinn fram að þessu. Lengi hefur verið talað um að auka þurfi hlut íslenzks dagskrárefnis til að sporna gegn erlend- um áhrifum, en hægt gengið að láta drauminn rætast. Persaflóa- striðið hefur orðið þess valdandi að innlent efni er nánast eins og ísmoli á Vatnajökli í samanburði við erlent, ótextað efni, sem allt í einu datt inn í dagskrána. CNN og Sky eru nú um 60% útsending- arefnis á báðum sjónvarpsstöðvunum. Okkar markmið er að á næsta ári verði um helmingur dag skrárinnar innlent efni,“ sagði Markús Öm Antonsson Ríkisút- varpsstjóri í samtali við Morgun- blaðið í maí á síðasta ári, og bætti því við að RÚV ætti að geta veitt erlendu sjónvarpsefni myndarlega viðspyrnu. Raunveruleikinn er sá, að í nýliðinni viku, annan til átt- unda febrúar, var erlent, óþýtt efni frá Sky sýnt í rúm- ar 96 klukkustundir í Ríkissjónvarpinu. Annað efni í 49 stundir. Þar af er innlenda efnið tæpir 22 tímar, er- lent efni með íslenzku tali, sem er einkum bamaefni, er rúmar sjö stundir og erlent efni með íslenzk- um texta 19 tímar. Staðreyndin er með öðram orðum sú að í íslenzka ríkissjónvarpinu er innlend dag- skrárgerð um 15% dagskrárinnar vikuna sem leið, samkvæmt upplýs- ingum frá RÚV. Á Stöð 2 var ákveðið á seinasta ári að skera niður innlenda dag- skrárgerð í spamaðarskyni „svo hægt verði að koma jiessari stöð á lappimar“ eins og Ami Samúels- son, stjómar- formaður Sýnar, orðaði það eftir að Sýn, Stöð 2 og íslenzka út- varpsfélagið sameinuðust. Innlenda efnið hjá Stöð 2 er enn minna en hjá Ríkissjónvarpinu þrátt fyrir lengri útsendingartíma, samkvæmt upplýsingum frá sjón- varpsstöðinni. Stöð 2 sendir út all- an sólarhringinn, 168 klukkustund- ir á viku. Þar af eru 10 klukku- stundir innlent efni, tæpir 13 tímar hljóðsett erlent efni og 51 klukku- stund af textuðu erlendu efni. Bein- ar útsendingar CNNe ru 94 kiukku- stundir í vikunni. Ekki liggur fyrir hversu margir horfa á útsendingar erlendu stöðv- anna, sem hafa lagt undir sig meiri- hluta útsendingartímans í íslenzku sjónvarpi. Það má reyndar heita undarlegt að enginn skoðanakönn- uður hafi ennþá stokkið til að at- huga „horfun“ á sjónvarpsefni eftir að Persaflóastríðið hófst. Sjón- varpsstöðvarnar sjálfar hafa heldur ekki látið gera neina könnun á því hversu margir horfa á hvað. Þó má ætla að minna sé horft á út- sendingar erlendu fréttastöðvanna en tími þeirra á dagskránni gefur til kynna. í fyrra lagi er erlenda fréttaefnið sent út á nóttunni, en þá era flestir sofandi. í seinna lagi eru fréttir CNN og Sky byggðar upp með það fyrir augum að fólk geti kveikt á sjónvarpinu og fylgzt með í klukkutíma eða svo án þess að láta sér leiðast, en dagskráin inniheldur ákaflega mikið af endur- tekningum og fáir virðast sitja lengur yfir fréttunum alla nóttina. Islenzk sjónvarpsdagskrá, sem er að meirihluta byggð upp af er- lendu, óþýddu efni, er væntanlega tímabundið fyrirbæri. íslenzku stöðvarnar hafa ekki ákveðið hvert verður framhaldið á útsendingum CNN og Sky. Engu að síður vekur núverandi ástand upp spurningar um stöðu innlendrar dagskrárgerð- ar í flóði erlends sjónvarpsefnis. Þar skipta peningar mestu máli eins og í fleiri tilvikum. Bent er á að tekjurnar, sem koma af afnota- gjöldum í tilviki RÚV og ftjálsum áskriftargjöldum hjá Stöð 2, hrökkvi skammt til dagskrárgerðar vegna þess hve fáir Islendingar eru. Ýmsar leiðir til úrbóta hafa verið nefndar, sem standa upp á ríkisvaldið, til dæmis að fé, sem fyrirtæki veija til kostunar sjón- varpsefnis, verði frádráttarbært frá skatti og að auglýsingatekjur og tekjur af kostun beri ekki virðis- aukaskatt. BflKSVlP efiir ÓlafÞ. Stephensen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.