Morgunblaðið - 10.02.1991, Side 14

Morgunblaðið - 10.02.1991, Side 14
14 MORGUNBLADIf) SUNNUDAGU.R .10. FEBRÚAR.1991 TAKA ISLENDIIMGAR UPP STJORNMALASAMBAND VIÐ LITHAEN? UT ANRIKISM ALANEFND al- þingis hefur náð samkomulagi um að flytja þingsályktunartillögu þar sem ítrekuð verði viðurkenn- ing íslendinga frá 21. janúar 1922 á sjálfstæði Litháens. Jafnframt verði ríkisstjórninni falið að verða við þeirri ósk litháískra stjórn- valda að koma á stjórnmálasam- bandi ríkjanna. Þar með virðist samstaða hafa myndast á alþingi um að hörfa ekki frá fyrri afstöðu um einarðan stuðning við sjálf- stæðisbaráttu Litháa og annarra Eystrasaltsríkja. Ýmislegt hafði þó bent til að samstaðan væri að bresta. Nefnd þriggjaþingmanna sem kom frá Litháen í byijun vik- unnar bar allt önnur skilaboð frá Landsbergis forseta Litháens en þau sem Jón Baldvin Hannibalsson hafði sagt að verið hefðu megin- niðurstaða viðræðna sinna við for- setann rúmri viku fyrr. Um leið og sjálfstæðismenn héldu í fyrri kröfur um að þegar yrði gengið fráformlegu stjórnmálasambandi við Litháen virtist forsætisráð- herra heldur draga í land og vé- fengja að gagn væri að því að aðhafastfrekar. Auk þessa hafði Sovét- stjórnin kallað íslenska sendiherrann í Moskvu á sinn fund og afhent formleg mótmæli við afskiptum íslands af málefnum Eystrasaltsþjóðanna. Fyrir helgina fór sendiherra Sovétmanna hér, Krasavin, til Moskvu til skrafs og ráðagerða við stjóm sína. Þá var getum leitt að því að bakslag sem kom í viðskiptaviðræður Álafoss við sovéska viðsemjendur ætti fremur rætur að rekja til Litháensmálsins en viðskiptalegs ágreinings. En sam- komulag náðist og Jón Baldvin Hannibalsson sagði í framhaldi af því að sér hefði verið veittur tími til þess að reyna samkvæmt skuldbind- ingum ROSE (Ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu) að leysa ágreining við Sovétmenn með viðræðum og einnig til að skýra sjón- armið íslendinga á Norðurlöndum og í Atlantshafsbandalaginu. Slíkt mundi styrkja stöðu íslands og rök- stuðning fyrir því að koma á stjóm- málasambandi. Mikilvægt væri að helstu bandalagsþjóðir gætu fellt sig við þá ákvörðun. Þar með virðast menn reiðubúnir að stíga skrefi lengra en samstaða náð- ist um eftir ríkisstjómarfund þann 23. janúar síðastlið inn. Þar var ferð Jóns Baldvins til Eystrasaltsland- anna tii umræðu og samþykkt álykt- un í níu liðum um aðgerðir vegna ástands mála þar. í tilkynningu ut- anríkisráðuneytisins af þessu tilefni kemur meðal annars eftirfarandi fram: „Staðfestur var sá skilningur ríkisstjórnarinnar að með heimsókn utanríkisráðherra til allra Eystra- saltsríkjanna í síðustu viku hafí framkvæmd stjórnmálasambands við Litháen verið staðfest. Ákveðið var að ósk stjómvalda í Litháen að taka upp viðræður milli ríkjanna um frek- ara stjómmálasamband." Formlegt stjómmálasamband er talið eðlilegt framhald í samskiptum ríkja, sem hafa viðurkennt sjálfstæði og fullveldi hvort annars. Strax eftir að Litháar lýstu yfir stofnun sjálf- stæðs ríkis þann 11. mars 1990 hafði alþingi einróma ámað Iitháísku þjóð- inni heilla. Alþingi fagnaði endur- heimt sjálfstæðisins og kvaðst vænta góðrar samvinnu við lýðræðislega kjöma fulltrúa landsins. Þessa viður- kenningu hefur alþingi síðan ítrekað. Formlegt stj órnmálasamband ekki það sama og sendiherraskipti strax Upptöku formlegs stjórnmálasam- bands ríkja sem viðurkenna hvort annað þurfa venju samkvæmt ekki þegar í stað að fýlgja skipti á sendi- mönnum. Viðmælendur Morgun- blaðsins telja að ekki þurfi að teljast óeðlilegt þótt nokkur misseri líði frá upphafi formlegs stjómmálasam- bands þar til skipst er á skilríkjum sendimanna eða ræðismannatengsl- um er komið á. Átti að undirstrika einhug Auk þess sem að framan greinir um niðurstöðu fundar ríkisstjómar- innar þann 23. janúar var þar ákveð- ið að fela Ólafi Egilssyni sendiherra íslands í Moskvu að afhenda sovéska utanríkisráðuneytinu í Moskvu orð- sendingu. Þar er krafíst upplýsinga og skýringa á athæfi sovéska hersins gegn lýðræðislega kjörnum ríkis- stjómum og þegnum Eystrasaltsríkj- anna. Þessi krafa var gerð með til- vísun til þess kafla í lokaskjali Vínar- fundar RÖSE frá 1986 sem fjallar um hinn mannlega þátt og ákvæða sem samþykkt vom á fundi um sama efni í Kaupmannahöfn 1990. Þá er í tilkynriingu um ákvörðun ríkis- stjórnarinnar greint frá ýmsum að- gerðum sem gripið verði til á vett- vangi alþjóðlegra stofnana, sem ís- land á aðild að, svo sem Evrópu- ráðsins, stjómmálanefndar NATÓ og Sameinuðu þjóðanna. Hlutast verði til um að Öryggisráðið verði kallað saman komi til frekari ofbeldisað- gerða í Eystrasaltslöndunum af hálfu Sovéthersins. Einnig er hvatt til sam- stöðu Norðurlandaþjóða óskað eftir skýrri afstöðu forsætisn'efndar Norð- urlandaráðs með sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna og almennt skor- að á vestrænar þjóðir að sýna Eystra- saltsþjóðum stuðning. Fréttatilkynn- ing utanríkisráðuneytisins var ítarleg og harðorð í níu liðum en fréttatil- kynning forsætisráðuneytisins af sama tilefni greindi í stuttu almennt orðuðu máli frá ákvörðunum sem teknar hefðu verið í sex liðum án þéss að fullyrt væri að stjórnmála- samband hefði í reynd verið stað- fest. Þótt freistandi gæti þótt, ekki síst í Ijósi atburða liðinna viku, að álykta að þessi munur á fréttatil- kynningum endurspeglaði skoðana- mun innan ríkisstjómarinnar, telja viðmælendur Morgunblaðsins sem til þekkja ekki að fyrir því sé fótur heldur hafi þama verið einhugur meðal þeirra flokka sem standa að ríkisstjóminni. Ætlun forsætisráð- herra, sem boðaði til nefnds frétta- mannafundar, hafi verið að undir- strika þennan einhug og eigin at- beina að þeim áfanga sem náðst hefði. Mismunur á fréttatilkynning- um skýrðist annars vegar af skömm- um undirbúningstíma og hins vegar af því að í 6. lið fréttatilkynningar utanríkisráðuneytisins, þar sem heimsókn Jóns Baldvins var jafnað til staðfestingar á stjómmálasam- bandi, hefði verið um túlkun Jóns Baldvins að ræða. Sú túlkun hafí verið studd þeim rökum að það eitt að utanríkisráðherra þægi boð ríkis- stjórnar um opinbera heimsókn væri að minnsta kosti jafngilt staðfestingu á stjómmálasambandi. Viðibrögð í Litháen og Kreml Samkvæmt ákvæðum í lokaskjali Vínarfundar RÖSE 1986 og sam- þykkt Kaupmannahafnarfundarins um sama efni 1990 ber að verða við skriflegum beiðnum um upplýsingar, sem fram em bomar og lúta að hin- um mannlega þætti, innan fjögurra vikna. Fram kom að með orðsend- ingu íslendinga til Sovétstjómarinn- ar væri í fýrsta skipti látið reyna á framkvæmd þessara alþjóðlegu skuldbindinga. í kjölfar fréttatil- kynningar utanríkisráðuneytisins tóku að berast inn á ritstjóm Morg- unblaðsins fyrirspurnir erlendis frá um hvort komið hefði verið á form- legu stjórnmálasambandi við Litháen og viðmælendur Morgunblaðsins töldu ýmist hugsanlegt eða líklegt að framsetning og orðalag í 6. lið fréttatilkynningar utanríkisráðu- neytisins hefði verið til þess fallin að ýta undir vonir Litháa um að formlegt stjórnmálasamband væri á næsta leiti. Jafnvel gæti þessi frétta- tilkynning hafa getið af sér þann misskilning, sem mætti íslensku þingmannanefndinni í Vilnius, að málið væri þegar í höfn, þótt einnig væri leitt líkum að því að þar hefði verið á ferðinni örvæntingarfull túlk- un Landsbergis. Viðbrögð Kremlstjórnarinnar við erindi sendiherra íslands í Moskvu vom fyrst þau að yfirmaður evrópu- deildar utanríkisráðuneytisins kallaði Ólaf Egilsson sendiherra á sinn fund, skömmu eftir að hann kom sam- þykkt ríkisstjómarfundarins á fram- færi, og bar fram nokkrar spuming- ar. 5. febrúar kallaði aðstoðamt- anríkisráðherra Sovétríkjanna, Júlí Kritsinskíj, sem var aðalsamninga- maður Sovétríkjanna við gerð INF- samkomulagsins um fækkun skamm- og meðaldrægra kjama- flauga í Mið-Evrópu, sendiherrann svo á sinn fund, las honum svar Sovétmanna og mótmæli við því sem þeir telja óþolandi ihlutun í sín inn- anríkismál. Aðeins hluti andsvars Sovétmanna hefur verið gerður opinber en Morg- unblaðið hefur upplýsingar um að efni hennar sé því sem næst eftirfar- andi: í fyrsta lagi telja Sovétmenn framkomu íslensku ríkisstjómarinn- ar bera vott um pólitíska hlut- drægni, sem ekki samræmist eðlileg- um og, þar til nýlega, vinsamlegum samskiptum íslands og Sovétríkj- anna. Þá segir að Gorbatsjov hafi þann 22. janúar lýst afstöðu Sovét- stjórnarinnar til „atburðanna" í Eystrasaltslöndunum, þau mál beri að leysa að lögum innan stjómar- skrárramma Sovétríkjanna. Fullyrt er að Sovétríkin hafí staðið við skuld- bindingar sínar samkvæmt RÖSE. Sovétstjómin undrast einhliða mál- flutning ríkisstjómar íslands þar sem ekki sé að merkja áhyggjur af stöðu þjóðemisminnihluta í Eystrasalts- löndunum. Því er mótmælt af hálfu Sovétmanna að unnt sé að túlka ferð Jóns Baldvins Hannibalssonar til Eystrasaltsríkjanna sem staðfest- ingu á stjómmálasambandi við Lithá- en og beita Sovétmenn þeim rökum í því efni að ráðherrann hafi ferðast til landsins á sovéskri vegabréfsárit- un. Sovétstjómin andmælir því að tilefni sé til að boða til ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um málefni Eystrasaltslandanna. Þá mótmæla Kremlveijar misnotkun íslendinga á „eðlilegum samskiptum þjóðþinga" en í ályktuninni hafði verið vikið að nauðsyn þess að koma samskiptum alþingis og þingsins í Vilnius á form- legan grunn. Talið mun í utanríkis- ráðuneytinu að þetta síðasta beri einnig að skoða sem viðbrögð við því að þing Ungveijalands, Póllands og Tékkóslóvakíu, hafa skipað tvo fastafulltrúa hvert við þingið í Vil- nius. Þá segjast Sovétmenn vænta þess, og verða þakklátir fyrir, gefnar skýringar á því að hveiju íslendingar stefni í samskiptum sínum við Sov- étríkin. Loks er þess getið að Sam- bandsráð Sovétríkjanna, ráðgjafaráð Gorbatsjovs, hafi skipað nýjar nefnd- ir til viðræðna við „sovétlýðveldin Eistland, Lettland og Litháen." Hér á landi voru það einróma við- brögð þeirra stjómmálamanna sem tjáðu sig um svar Sovétmanna að viðbrögðin væru hvorki harðari né fyrr á ferðinni en búast hefði mátt við í framhaldi af framangreindri afstöðu ríkisstjómar íslands. Eftirleikur Eystrasaltsferðar Það sem gerst hefur í Litháenmál- inu frá 23. janúar er í raun eftirleik- ur heimsóknar Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra til Eystrasaltsríkjannaþriggja, 18. - 21. janúar síðastliðinn og viðræðna hans við forystumenn þeirra. í Litháen voru viðmælendur Jóns þeir Landsbergis, forseti, Bogdanas, helsti ráðgjafí forsetans, svo og emb- ættismenn utanríkisráðuneytis landsins undir forystu Katkus, stað- gengils Saudargas utanríkisráðherra landsins. Saudargas hefur verið er- lendis og undibúið stofnun útlaga- stjórnar frá 13. janúar er sovéskir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.