Morgunblaðið - 10.02.1991, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 10.02.1991, Qupperneq 15
hermenn létu til skarar skríða í Vil- nius. Eins og fyrr lagði Landsbergis áherslu á að tekið yrði upp fullt stjórnmálasamband milli landanna. Hann ítrekaði, einn leiðtoganna, mik- ilvægi þessa meðan á heimsókn Jóns Baldvins stóð. Jón Baldvin lýsti því yfir að enginn ágreiningur væri milli sín og forsvarsmanna Eystrasalts- landanna um hvemig stíga skyldi næstu skref í átt til formlegs stjórn- málasambands. Samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins var það mat Lit- háa að þeim væri ekki fært að gera athugasemdir við fyrirætlanir ráð- herrans þótt þeir teldu brýnt að fuilu' stjórnmálasambandi yrði komið á hið fyrsta. Fullt stjómmálasamband væri í raun það eina sem þeir byndu vonir við að Islendingar gerðu. Landsbergis forseti hefur aldrei slak- að á þrýstingi um að fullt stjórnmála- samband yrði tekið upp eins fljótt og auðið væri og virðist þess fullviss sem fyrr að aðeins með skjótri viður- kenningu vestrænna ríkja verði dreg- ið úr líkum á því að Sovétstjórnin láti sverfa til stáls. Gáfu Litháar rangar upplýsingar? íslensku þingmennimir sem síðar komu höfðu eftir Landsbergis að í kjölfar íslendinga mundu aðrar þjóð- ir fýlgja og í því sambandi var sérs- taklega fullyrt að fyrir lægju loforð Pólveija og handsal Tékka auk þess sem.líkur bentu til að Danir fylgdu í kjölfarið. I framhaldi af þessum yfirlýsingum lét utanríkisráðherra svo ummælt í viðtali við Morgunblað- ið að komið hefði í ljós að Litháar hefðu gefíð íslendingum rangar upp- lýsingar. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins styðjast þessi um- mæli ráðherra við orð manna sem vora viðstaddir fundi Landsbergis með þjóðhöfðingjum viðkomandi landa. Vonir þær sem Litháar bindi við Dani eigi sér ekki stoð, að mati ráðherra. Engu að síður sögðu þeir viðmælendur blaðsins, sem töldu að ráðherra hefði þarna gengið of langt, að ekki væri við því að búast að þeir, sem kynnu að hafa gefið loforð af þessu tagi í trúnaðarviðræðum við Litháa, væra reiðubúnir til að standa við þau orð hvar og hvenær sem er, þótt alvara hefði fylgt orðunum. Þar bæri að hafa í huga þann ugg sem A-Evrópumenn, sem enn hafa fjöl- mennt sovéskt herlið í sínum löndum, bæru í bijósti vegna atburða í Eystrasaltslöndunum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur það einnig komið fram í viðræðum forsvarsmanna Lettlands við íslendinga að þeir telji ekki að stjómmálasamband geti undir nein- um kringumstæðum skaðað málstað þeirra. Landsbergis hefur hins vegar sætt gagnrýni í Eistlandi og Lettl- andi og er sakaður um að hafa skað- að sjálfstæðisviðleitni þjóðanna með því að knýja á um stofnun sjálfstæðs ríkis í stað þess að láta nægja að lýsa því yfir sem markmiði, líkt og Eistland og Lettland. Talsmenn þess- arar skoðunar er einnig að fínna í Litháen þótt árás Sovéthersins hafi þjappað mönnum þar saman og eytt deilum. Pranskiene forsætisráð- herra, sem sagði af sér, að því er sagt var, vegna ágreinings um verð- lagsmál, var leiðtogi þeirra Litháa, sem leggja vildu áherslu á samstöðu þjóðanna þriggja og er afsögn henn- ar tengd ágreiningi við Landsbergis um sjálfstæðismálið. Rússar viðurkenni sjálfstæði Litháens Jón Baldvin lýsti því yfír við lok dvalarinnar í Eystrasaltslöndunum að aðstæður gæfu nú tilefni til að íslenska ríkisstjórnin og ríkisstjórnir Vesturlanda endirmætu þau skilyrði sem sett hefðu verið fyrir formlegu stjómmálasambandi. Markmið Is- lendinga með stuðningi umfram aðra við Litháa hefði ávallt verið að auka þrýsting frá Vesturlöndum á Sovét- stjómina um að ganga til samninga um pólitíska lausn. Menn vildu ekki troða illsakir við Kreml eða gera nokkuð það sem skoða mætti sem ögrun og spillt gæti fyrir möguleik- um á samningum. Þau atriði sem ráðherra taldi hafa breytt forsendum vora þau að þrátt fyrir að ítrekaðar óskir Eystrasalts- ríkjanna, einkum Litháens, um samningaviðræður án fyrirframskil- yrða við Kremlarstjórnina til að slíta sambandi ríkjanna hefðu aðeins farið fram tveir málamyndafundir. Ekki einasta hefði Sovétstjórnin með þessu gengið á bak fyrri yfirlýsinga sinna, sem vonir um árangur hefðu byggst á, heldur hefði nú verið beitt hernaðarlegu ofbeldi gegn Litháum. Loks lægi fyrir Tallinn-samkomulag- ið svokallaða og með því hefðu orðið straumhvörf í málinu. Jón Baldvin sagði í samtali við Morgunblaðið að áhersla hans á þessu stigi á efni Tallinn-samkomulagsins hefði al- gjörlega byggst á einróma mati for- svarsmanna Eystrasaltsþjóðanna þriggja. í Tallinn-samkomulaginu, sem Jeltsín, forseti rússneska þingsins, Rúiitel Eistlandsforseti og Gor- bunovs, forseti Lettlands, gerðu þann 13. janúar, viðurkennir hvert þessara þriggja Sovétlýðvelda fullveldi hinna og ákveðið er að stefna að stjórn- málasambandi með því að skiptast á sendimönnum. Einnig er því lýst yfír að verði ráðist á eitthvert ríkjanna muni hin líta á það sem árás á sig og koma til varnar. Litháar gerðust ekki aðilar að þessum samningi, þott sendimaður þeirra staðfesti yfirlýs- inguna um almenna viðurkenningu, og var Morgunblaðinu tjáð að það væri vegna þess að staða landsins væri ólík stöðu hinna að þjóðarrétti. Litháar einir hefðu lýst yfir stofnun sjálfstæðs ríkis en ekki einungis sagst steftia að stofnun slíks ríkis. Helstu breytingar sem litháísk stjómvöld teldu sig þurfa að fá fram fælust í tilvísun til samnings landsins við Rússland árið 1920 þar sem lýð- veldin tvö viðurkenndu ævarandi sjálfstæði og fullveldi hvert annars. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins var þetta talin minniháttar hindr- un á vegi samningsins og var gengið út frá að endanleg útgáfa yrði undir- rituð í vikunni 20. - 27. janúar og hún svo fljótlega borin undir stað- festingu í þingum þjóðanna. A þess- ari stundu er fullyrt að samkomulag hafi tekist og að Jeltsín og Lands- bergis muni staðfesta samninginn i Jaeirri viku sem nú er að hefjast. Þótt hvergi nærri sé talið öraggt að samningurinn fái tilskilinn meiri- hluta tveggja þriðju atkvæða, í rúss- neska þinginu var á þessum tíma ríkjandi mikil bjartsýni á að þingið stæði þétt að baki Jeltsíns enda þótt ljóst væri þá þegar að Gorbatsjov og Kremlarstjórnin legðu ofuráherslu á að samningurinn yrði felldur. Á hinn bóginn hafa ekki heyrst efa- semdir um að í þingum Eistlands, Lettlands og Litháens njóti þessi samningur yfírburðastuðnings. Nán- ast sé formsatriði að um hann sé þar fjallað. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins greindi Jón Baldvin Litháum frá því að næsta skref í stjórnmála- sambandi þjóðanna yrði ekki stigið fyrr en Litháar og Rússar hefðu IV. kafli Lokayfir- lýsingar Helsinki- sáttmálans Þátttökuríkin munu virða landá- mærahelgi hvers einstaks þátt- tökuríkis. í samræmi við þetta munu þau ekki grípa til neinna að- gerða, sem eru í ósamræmi við markmið og meginreglur stofn- skrár Sameinuðu þjóðanna gegn Iandamærahelgi, stjómmála- sjálfstæði eða einingu nokkurs þátttökuríkis, og sérstaklega munu þau ekki grípa til neinna aðgerða, sem fela í sér hótun um valdbeitingu eða beitingu valds. Þátttökuríkin munu ekki heldur hemema landsvæði hvers annars eða grípa til annarra beinna eða.óbeinna ofbeldisað- gerða í andstöðu við alþjóðalög eða slá eign sinni á það með slíkum aðgerðum eða hótun um beitingu þeirra. Ekkert slíkt hernám né landvinningur verður viðurkenndur sem löglegur. gengið frá samningum sín í milli. Á meðan yrði unnið á lögfræðilegum og þjóðréttarlegum grandvelli að málinu og samráð haft við Saudarg- as. Þau gögn sem sagt var — eftir að nefnd þiggja íslenskra þingmanna var komin til Vilnius, og var þar tek- ið fagnandi sem boðberum fullra stjórnmálasamskipta — að þyrftu að berast og sú vinna sem Litháar þyrftu að ljúka áður en stjórnmála- samband yrði staðfest formlega var því aðild þeirra að samningi eins og þeim í Tallinn. Einnig hafði verið rætt um að í samvinnu þjóðréttar- fræðinga beggja aðila, þyrfti að yfír- fara sjálfstæðisyfírlýsingu og stjórn- arskrá Litháens. Jón Baldvin hafði engan fyrirvara haft um þessar for- sendur þegar hann á blaðamanna- fundi í Vilnius sagði að það væri ekki spurning lengur hvort, aðeins hvenær, formlegum stjómmálasam- skiptum yrði komið á milli þjóðanna og þar komu slíkar forsendur ekki til umræðu. í yfirlýsingu ríkisstjóm- arinnar 23. janúar var ekkert vikið að Tallinn-samkomulaginu og það mál kom ekki opinberlega upp fyrr en í framhaldi af heimsókn þing- mannanefndarinnar til Vilnius. Samningur Rússa og Litháa ekki forsenda Jón Baldvin neitar því að hafa gert þennan samning Litháa og Rússa forsendu eða skilyrði form- legra stjórnmálasamskipta Litháa og íslendinga. Hann segir áherslu sína á mikilvægi þess samnings byggjast á því að skjóta rótum undir málsvörn íslendinga gagnvart Sovétríkjunum í eftirleik ákvörðunar um formlegt stjórnmálasamband. Það hefði verið sameiginlegt mat forsvarsmanna allra Eystrasaltsríkjanna að Tallinn- samningurinn skipti sköpum varð- andi samskipti aðildarlýðveldanna við Sovétríkin. Fjögur lýðveldi Sov- étríkjanna, ef Litháen er meðtalið, og þeirra á meðal móðurlýðveldið Rússland, gerðu með sér fullgildan milliríkjasamning um stjórnmálalega viðurkenningu, stjórnmálasamband og gagnkvæmar vamaraðgerðir. „Þennan samning við Rússland töldu þeir að mundi skipta sköpum um að draga úr hættu á hemaðaraðgerðum, jafnframt því sem þetta styrkti þjóð- réttarlega stöðu ríkjanna og væri í raun lykilatriði um framhald máls- ins. Eg var sammála þessu mati og þegar kemur að rökræðum okkar við Sovétstjórnina um þjóðréttarlegan grann þess gernings að taka upp formlegt stjórnmálaamband við Lit- háen er málsvörn okkar allt önnur ef þessi samningur er orðinn fullgild- ur milliríkjasamningur," sagði ráð- herrann. Eyjólfur Konráð Jónsson alþingis- maður hefur verið í fararbroddi stjómmálamanna hér sem gagnrýnt hafa það að samningi milli Litháa og Rússa sé blandað inn í stjórnmála- samband íslands og Litháens. „Ég tel enga ástæðu til að bíða. Ég hef engin rök heyrt fyrir því, sem ég tel nokkurs virði,“ sagði Eyjólfur Konr- áð við Morgunbiaðið. „Það er auðvit- að gífurlega mikilvægt að önnur ríki fylgi í kjölfarið, og það má telja víst, að ekki einungis Rússar, heldur önn- ur ríki muni viðurkenna Litháen ef við ríðum á vaðið.“ Innanrikismál eður ei? Kjarni ágreinings íslendinga og Sovétmanna er það hvort líta beri á mál Eystrasaltsríkjanna sem inn- anríkismál Sovétríkjanna eða ekki. Sovétmenn vísa meðal annars til þess að með undirskrift lokaskjals Helsinkisáttmálans 1975 hafi Vest- urlönd, þar á meðal ísland, gengist inn á forsendur IV. kafla yfírlýsing- arinnar um það sem kallað hefur verið landamærahelgi ríkja (territor- ial integrity). Þar með hafí ísland ekki aðeins í raun — með samskiptum við Sovétríkin — heldur einnig að lögum, viðurkennt innlimun Eystra- saltsríkjanna í Sovétríkin. Þessum skilningi á IV. kafla lokayfírlýsingar Helsini-sáttmálans, sem undirrituð var 25. júlí 1975, er hafnað af hálfu íslands og annarra Vesturlanda. Jón Baldvin Hannibalsson áréttar í þessu sambandi að mál Eystrasaltsríkjanna sé með sama hætti arfur seinni heimsstyijaldarinnar og skipting ^Þýskalands var. Það sé grandvallar- regla að hernám og innrás geti ekki myndað rétt. Við þá grundvallarreglu styðjist Vesturlönd. „Hártogun Sov- étmanna á Helsinki-sáttmálanum hefur enga þýðingu. Engin af þessum alþjóðareglum getur gilt um innlimun og ofbeldi. Það er meginregla þjóðar- réttar að þjóðir búi við það stjómar- far sem þær sjálfar velja sér,“ segir Eyjólfur Konráð Jónsson um þetta atriði. Til viðbótar hefur þeim rökum verið beitt gegn fullyrðingum um að málefni Eystrasaltslandanna séu inn- ananríkismál Sovétríkjanna að þing Sovétríkjanna hafí þann 4. desember 1989 lýst ólöglegan og ógildan griða- samning þann sem utanríkisráðherr- arnir Mólotov og Ribbentrop gerðu fyrir hönd Hitlers og Stalíns 23. ágúst 1939. Sá samningur varð grandvöllur þess að Sovétríkin töldu sér heimil yfirráð yfir Eystrasalts- ríkjunum. Sovétmenn hafa svarað þessum röksemdum með því að segja ,að innganga Eystrasaltsríkjanna í , Sovétsambandið hafi verið sérstakur atburður óháður samningi Rib- 'bentrops og Mólotovs. Vesturlönd vísa á móti til þess að sá sérstaki atburður hafí aðeins byggst á her- námi landanna, ógnarstjórnum ieppa og gervikosningum og veiti því engan rétt. Þótt Jón Baldvin hafi talið marg- nefndan samning milli Litháa og Rússa mikilvægan hefur hann að- spurður sagt að þótt sá samningur verði ekki staðfestur í rússneska þinginu þýði það ekki að forsendur séu brostnar fyrir formlegu stjóm- málasambandi Iandanna. Hann ftrek- aði í samtali við Morgunblaðið að áhersla sín á samninginn hefði alfar- ið byggst á mati forystumanna Eystrasaltsríkjanna, jafnt Lands- bergis sem annarra, um að þessi samningur skipti sköpum. Hefðu þeir ekki lagt svo, mikla áherslu á mikilvægi þessara samninga í við- ræðunum hefðu þeir aldrei komist á dagskrá. Komi á daginn að enginn samningur fari í gegnum þing Rúss- lands þurfí hins vegar að horfast í augu við breyttar forsendur frá ákvörðun ríkisstjórnarinnar 23. jan- úar en þar hafi fundargerðir frá við- ræðum sínum við Eystrasaltsmenn legið til grandvallar. Helsinki-sáttmálinn og innlimun Eystrasaltsríkjanna: „ Afstaða fslands við undirritun 25. júlí 1975 BJÖRN Bjarnason, aðstoðarrit- stjóri Morgunblaðsins, var starfsmaður í forsætisráðuneyt- inu 1975, þegar Helsinki-ráð- stefnan var haldin og sótti liana ásamtþeim Geir Hallgrímssyni forsætisráðherra, Pétri Thor- steinssyni ráðuneytisstjóra, Ein- ari Ágústssyni utanríkisráð- herra, Einari Benediktssyni sendiherra og Kurt Juuranto ræðismanni. Björn var spurður, hvort afstaðan til Eystrasalts- rikjanna hefði verið rædd sérs- taklega af hálfu Islendinga á ráðstefnunni. Fyrir og eftir ráðstefnuna og þegar unnið var að gerð loka samþykktarinnar sem er kennd við Helsinki var mikið rætt uin það, hvort Vesturlönd ætluðu með þess- ari sameiginlegu yfirlýsingu að fallast á óbreytt landamæri í Evr- ópu og þar með leggja endanlega blessun sína yfir áhrif og yfírráð Sovétmanna í austurhluta álfunn- ar. Vitanlega vakti ekkert slíkt fyrir vestrænum leiðtogum. I loka- samþykktinni felst ekki brotthvarf frá þeirri stefnu ríkisstjórnar ís- lands, að Eystrasaltsríkin hafí ver- ið innlimuð í Sovétríkin með ólög- mætum hætti. Ef ríki hefðu verið að skuldbinda sig til að hafa óbreytt landamæri í Evrópu um aliiur og ævi, hefði sameining Þýskalands átt að stranda á Hels- inki-lokasamþykktinni. Man nokk- ur eftir því að hún hefði verið tal- in þröskuldur þar? Settu Sovét- menn ákvæði hennar fyrir sig þá eða þegar þeir misstu áhrif sín í ríkjunum í Mið- og Austur-Evrópu? Ég hef heyrt, að íslenska ut- anríkisráðuneytið vitni til orða Geralds Fords Bandaríkjaforseta, þegar það hafnar túlkun sovéskra stjómvalda á Helskinki-lokasam- þykktinni vegna stjómmálasam- bands okkar við Litháen. Það má einnig vitna í ræðuna, sem Geir Hallgrímsson flutti í Helsinki 30. júlí 1975. Hann sagði meðal ann- ars: „Það ætti að vera sameigin- legt áhugamál okkar að vernda sjálfstæði þjóða, hversu fámennar, sem þær kunna að vera, því að þannig er best tryggt, að þær geti varðveitt sérkenni sín og menning- ararfleifð og þar með frjóvgað og aukið fjölbreytni í menningarlegu samfélagi okkar." Ég tel, að þessi orð verði að lesa með afstöðu Geirs tit Eystrasaltsríkjanna i huga en hann féllst aldrei á, að þau væru hluti Sovétríkjanna, heldur væri þar um fámennar sjálfstæðar þjóð- ir að ræða, sem hefðu verið innlim- aðar í Sovétríkin á ólögmætan hátt. Geir sagði einnig í ræðu sinni: „Hér erum við ekki að reisa nein Potemkin-tjöld. Við ættum hvorki að blekkja sjálfa okkur né aðra.“ Ég man eftir að þessi síðustu orð vöktu athygli margra sem á fundinum sátu og töldu menn þau sneið til Sovétmanna. í þeim felst auðvitað, að íslenska ríkisstjórnin var ekki að stuðla að sjónhverfíng- um með aðild að Helsinki-sam- þykktinni, hún var ekki að sætta sig við blekkingar eins og þær, að Eystrasaltsríkin væra óaðskiljan- legur hluti af Sovétríkjunum." Yfirlýsing Geralds Fords Bandaríkja- forseta í ræðu við undirritun lokayfir- lýsingar Helsinki-sáttmálans, 25. júlí 1975, vék Gerald Ford, Bandaríkjaforseti, eftirfar- andi orðum að innlimun Eystrasaltsríkjanna. Er ég nefni hér sérstaklega eðlilegar áhýggjur af þeim áhrifum sem Helsinki-samþykkt- irnar geti haft á málefni Eystra- saltsþjóðanna get ég, sem lengi hef haft áhuga á þeim málum, fullvissað yður um að Bandaríkin hafa aldrei viðurkennt innlimun Litháens, Lettlands og Eistlands i Sovétríkin og gera það heldur ekki núna. Þessari opinberu stefnu okkar, að viðurkenna ekki innlimunina, verður ekki breytt hvað sem líður niðurstöðum ráð- stefnunnar um öryggi í Evrópu. í yfirlýsingunni um þau atriði sem lögð eru til grundvallar þegar lagt er bann við því að ríki hrófli við landamærum annars ríkis er sett það skilyrði að hernám eða taka landsvæða með aðferðum sem stríði gegn alþjóðalögum muni aldrei verða viðurkennd sem lögleg. Með þessu er ekki verið að vekja vonir um að breytingar verði fljótlega gerðar á landakorti Evrópu en Bandaríkin hafa ekki fallið frá þessu grundvallaratriði sem þau hafa lengið haldið í heiðri og vilja ekki sættast á málamiðlun í þeim efnum. .. “

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.