Morgunblaðið - 10.02.1991, Page 16

Morgunblaðið - 10.02.1991, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1991 þremur af fjórum æðstu embættum þjóðarinnar eru nú ^ konur. Forseti Islands, forseti sameinaðs þings og forseti hæsta- réttar eiga ýmis- legt sameiginlegt ef vel er að góð Forseti sameinaðs þings Guðrún Helgadóttir kom sér í öll félög þar sem einhver von var um að geta stigið á fjalirnar. Forseti hæstaréttar Guðrún Erlendsdóttir var glæsileg á sviði, en átti það til að fá óstöðvandi hlátursköst í miðjum senum. eftir Kristínu Marju Boldursdóttur/myndir Ragnar Axelsson KONUR gegna nú þremur af fjórum æðstu embættum þjóðar- innar eftir að Guðrún Erlendsdóttir tók við embætti forseta hæstaréttar í janúar sl., og mun slík staða á taflborði þjóð- mála vera einstök. í forföllum forseta Islands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, fara forseti sameinaðs þings, Guðrún Helga- dóttir, og forseti hæstaréttar, Guðrún Erlendsdóttir, með forsetavald ásamt forsætisráðherra, Steingrími Hermanns- syni. íslenska kvenþjóðin er því upp með sér þessa dagana, og hefur reyndar vel efni á því. Ekki er vitað til að svipuð staða hafi komið upp erlendis, nema ef vera skyldi í Bret- landi þegar Elísabet drottning og Margaret Thatcher forsætis- ráðherra sátu samtímis að völdum. / íðast annars stað- f . y / ar í veröldinni er lM / sá háttur á hafður, M / að varaforseti er kjör- M / inn jafnframt forseta. M / „Sú leið hefur ekki verið / / valin hér, hvað sem því veldur,“ eins og Ólafur Jó- hannesson kemst að orði í bók sinni „Stjórnskipun íslands" (1960), og hann getur þess jafnframt að vafa- samt sé hvort skipun þessi sé heppi- leg, t.d. ef þessir þremenningar ættu að fara að glíma við stjórn- armyndun. Skoðanir manna á því máli eru eflaust misjafnar, en varla kvartar kvenþjóðin meðan hún veit af „sín- um mönnum" í meirihluta. Það er ekki á hverjum degi sem konur komast til æðstu metorða, og þurfa þær örugglega að hafa ýmislegt til brunns að bera, svo sem skapstyrk, kjark og ákveðið lundar- far. Þær eru sífellt undir smásjá almennings, og eru ekki einungis dæmdar eftir orðum sínum og verk- um, heldur einnig hárgreiðslu og kiæðaburði. Karlar í sömu embætt- um geta hins vegar látið herraklipp- ingu og dökk jakkaföt duga. Margt er það sem mótar persónu- leikann og lífstílinn, eins og t.a.m. uppeldi, áhugamál og reynsla, enda varð frú Margaret Thatcher oft tíð- rætt um uppeldi sitt, og sagði að sjónarmið föðurins hafi verið henni fyrirmynd í stjórnmálabaráttunni. A þeim bæ var rík áhersla lögð á vinnusemi, þjóðrækni og aga. Með því að fletta rituðum heim- ildum og spyijast fyrir á réttum stöðum til að fá upplýsingar um uppeldi, áhugamál og reynslu for- setanna, kom í ljós, að eitt og ann- að eiga þær Vigdís Finnbogadóttir, Guðrún Helgadóttir og Guðrún Er- lendsdóttir sameiginlegt. Hvort hin- ir sameiginlegu þættir séu nú ein- mitt þeir sem þarf til að komast í framvarðasveitina, skal hér eigi um dæmt. Uppeldið Forsetamir þrír eru allir fæddir á fjórða áratugnum. Forseti Islands í Reykjavík 15. apríl 1930, forseti sameinaðs þings í Hafnarfirði 7. september 1935 og forseti hæsta- réttar í Reykjavík 3. maí 1936. Þó aldursmunurinn sé ekki mikill, þá kenndi Vigdís þó Guðrúnunum tveimur frönsku um tíma í mennta- skóla, og sagði Guðrún Helgadóttir einhvem tfma að Vigdís, sem þá var nýkomin frá námi í París, hefði verið það „flottasta" sem þær stelp- umar í MR höfðu séð. Vigdís og Guðrún Helgadóttir hófu báðar skólagöngu sína hjá kaþólskum systmm. Guðrún var í skóla St. Jósefssystra í Hafnar- firði, og Vigdís hjá systrunum í Landakotsskóla. Guðrún Erlends- dóttir sat aftur á móti í tímúm í Austurbæjarskóla, oftast hjá Ste- fáni Jónssyni rithöfundi, sem samdi sögumar um leið og hann sagði þær. Allar luku þær stúdentsprófí frá Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir ætlaði að verða skipstjóri svo hún gæti séð heimmn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.