Morgunblaðið - 10.02.1991, Síða 21

Morgunblaðið - 10.02.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1991 21 illi olíu og takmörkuðu lýðræði hvað sem öllu líður. Fátt bendir til að þar verði snögg breyting á. Ef við gefum okkur að lið íraks verði gjörsigrað, og fylgisveinar Saddams þurrkaðir út hvernig stjórn sjáum við fyrir okkur? Hafa ber í huga að stjórnarandstaða er ekki leyfð nema til málamynda. Því er hætta á að tómarúm myndist eftir að Saddam hefur verið hrakinn frá völdum er og auðheyt að banda- menn gera sér grein fýrir því. Það kann að vera þáttur í að ekki tekst að geera áætlanir um framtíðar- skipan mála. Sá möguleiki er ekki fjarri að Kúrdar og Tyrkir krefðust norður- hluta íraks. Þó flestir viðurkenni að Kúrdar hafi lengi sætt kúgun og búið við misrétti er ekki líklegt að gengið verði að kröfum þeirra. Við Tyrki verður að tala. Þeir hafa leyft bandamönnum að hafa að- stöðu í Suðaustur-Tyrklandi og verða að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Hugsanlegt er að þeir fengju sneið af Norður-írak. Það tækju Kúrdar ósinnt upp og þar með gætu brotist út alvarleg átök milli þeirra með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þar sem hinir nýju valdhafar, hveijir sem þeir verða, skilja að Sýrlendingar eiga þakkir skildar fyrir að hafa sent hersveitir til Saudi-Arabíu myndu írakar taka vel tilkalli Sýrlendinga um yfirráð jrfir vesturhluta íraks. írak er stórt land og nóg eftir samt. „Ekki er fráleitt að íranir fái í sinn hlut spild- ur í suður- og suðausturhlutanum svo framarlega sem þeim tekst að halda hlutleysisstefnunni tii streitu," segir í grein The Middle East. Syðsta hlutann fengju Saud- ar. Eftir af írak væri þá varla meiri en þriðjungur þess sem nú er. Sjálfsagt er að reikna með að furstinn í Kúveit fari heim. Hann hefur heitið að koma á lýðræði og það getur hugsast hann reyndi það. Hann hefur að vísu lofað því áður en minna orðið úr efndum. Sagt er að það muni taka áratug að reisa Kúveit úr þeim rústum sem það er nú í. 'Kúveit mun án efa njóta að- stoðar Vesturlanda í þeirri upp- byggingu. Ég leyfi mér að draga í efa réttmæti þess að furstinn fái völd sín aftur. Hann er illa þokkað- ur meðal landa sinna, þykir gráðug- ur og hrokafullur maður sem hefur einangrað sig frá löndum sínum. Hver verða laun ísraels og refsing Jórdaníu? Þá er komin röðin að ísrael. Hvað fá þeir fyrir að hafa án gagn- árása látið það yfír sig ganga að írakar skytu eldflaugum á Tel Aviv? Þó svo það aðgerðarleysi sé í þeirra þágu sjálfra fyrst og fremst. Við þurfum hvorki að vera vel að okkur um málefni heimshlutans né þekkja stefnu ísraelsku stjórnarinnar til að vita að þeir selja aðgerðarleysi sitt dýrt. Ýmsir álíta að Bandaríkja- menn hafi heitið þeim að halda áfram að beijast gegn alþjóðlegri friðarráðstefnu um Miðausturlönd þar sem lagt væri að ísraelum að skila Vesturbakkanum. Hvort önn- ur Vesturlönd fallast á þetta er svo annað mál. Hafi alþjóðleg friðarráð- stefna verið æskileg áður er hún lífsnauðsynleg nú. Margir velta vöngum yfír því hvort Hussein Jórdaníukonungi verði refsað fyrir stuðninginn við írak. Harðskeyttur áróður hefur verið rekinn upp á síðkastið gegn Jórdaníukonungi. Vesturlandaleið- togar virðast eiga mjög erfítt með að fyrirgefa honum. I fljótu bragði þykir mér ekki líklegt að Palestínu- menn á herteknu svæðunum verði reknir til Jórdaníu og skipað að gera sér Palestínuríki þar. Ég fæ ekki séð annað en það skapi fleiri vandamál en það leysir enda hefur ekki heyrst að sú „lausn“ sé við- sættanleg í augum Palestínumanna Einhveijir hafa viðrað þær skoð- anir að hvemig sem mál þróist sé harkalegt að fóma Jórdaníukon- ungi. Hann hafi verið vinur Vestur- veldanna þó hann brygðist að þeirra dómi undir lokin. Hann hafi sýnt um margt stjórnvisku í erfiðri stöðu. En við þurfum ekki að horfa langt aftur í tímann til að sjá að takist hagsmunir og hugsjónir á er undan- tekning að hagsmunum sé fórnað. Hefur málið verið leyst með því að búta írak niður og koma Saddam frá? Una allir glaðir við sitt? Ég dreg það í efa. Sautján milljónir íraka hefðu misst sjálfsforræði sitt og sætu í besta falli eftir með skika lands sem þeir gætu kallað írak. Hefði þá ekki fullveldi þjóðar verið fótum troðið. Værum við kannski komin aftur á byijunarreitinn? Hef- ur þá eitthvað unnist með þessu réttláta stríði eins og bandamenn kalla það? Furðulegur fréttaflutningur fyrstu dagana Þegar ég fylgdist með fréttum fyrstu nótt stríðsins mátti skilja að írakar hefðu enga mótspyrnu veitt. Sprengjur féllu á kórrétt skotmörk. Það var nærtækt að álykta að stríð- inu væri allt að því lokið. Hemaðar- máttur íraka sem af hefði verið gumað var eintómt plat og atfylgi bandamanna meira en þeir bjart- sýnustu vonuðu. Skotfimin var slík að í 80% tilvika lentu flaugar og sprengjur þar sem þær áttu að fara. Skilja mátti einnig að ekki svo mik- ið sem sprengjuflís hefði lent á íbúðahverfum. Sagt var að Saddam læddist dauðhræddur um í neðan- jarðarbyrgjum og það var tíma- spursmál hvenær hann yrði að gef- ast upp því frá írak heyrðist hvorki hósti né stuna. Þeir virtust ekki veita viðnám og talsmenn banda- manna sögðu að árásin hefði komið þeim á óvart og þeir héfðu ekki komið neinum vömum við. Flug- floti þeirra var greinilega ekki til lengur, flugvellir meira og minna sundurskotnir og skotpallar færan- legir sem fastir í rúst og ónothæf- ir. Og það sem var kannski best; Það tókst að skjóta höll Saddams í tætlur. Sýndar voru myndir af glaðbeitt- um bandarískum flugmönnum sem höfðu skroppið heim til búða sinna í Saudi-Arabíu að fá sér morgun- verð og svo voru þeir tilbúnir í slag- inn á ný. En áfram héldu loftárásir á endalaus og óteljandi skotmörk í írak og óneitanlega fannst mér bandamenn seinir með þessi fáu prósent sem eftir voru. Og af hveiju voru ekki gerðar loftárásir á íraska herinn í Kúveit fyrst markmiðið var að frelsa það úr tröllahöndum? Var nauðsynlegt frá hemaðarlegu sjón- armiði að sprengja írak í loft upp fyrst? En svo fóra að koma kynlegar fréttir. írakar höfðu skotið niður bandarískar flugvélar strax fyrstu nóttina. Bandarískir flugmenn voru sýndir í íraska sjónvarpinu. Þó hafði verið sagt að ekkert rafmagn væri og fjarskipti í lamasessi. Menn sögðu að Bandaríkjamennirnir hefðu verið pyntaðir. Seinna leið- réttu einhveijir sérfræðingar það og sögðu að mennirnir hefðu hugs- anlega hlotið meiðsl þegar þeir skutu sér upp úr vélum sínum eftir að loftvamarbyssur íraka — sem ekkert hafði verið minnst á fyrr — höfðu hæft vélamar. Það sem verra var; bandamenn drógu í land með árangurinn. í stað 80% prósent skothittni var hún komin niður í 60% og hefur enn minnkað síðar. Skotpallar voru margir heilir. og þar fram eftir götunum. Stríðinu var sem sagt alls ekki lokið. Bush kom fram í sjónvarpi og sagði þreyt- ulega að stríðið kynni að dragast á langinn. En ekkert í líkingu við Víetnam, bætti hann við og sagði enn og aftur að herlið fjölþjóðahers- ins yrði ekki degi lengur í Saudi- Arabíu en nauðsyn krefðist. Það vafðist fyrir vestrænum fréttamönnum í Saudi-Arabíu að skilja hvers vegna bandamenn þurftu að beijast við íraka í 30 klukkustundir til að ná bænum Khafti úr höndum íraka. Ekki síst af því að það var út í hött að írak- ar tóku mannlausan bæinn og hern aðarlegt gildi var núll og nix. Blaða- menn botnuðu heldur ekki í hvers vegna þurfti að hraða framleiðslu Patriot-flauganna fyrst hernaðar- tækni íraka var í fomeskjunni eins og forsvarsmenn bandamanna héldu fram. Þaðan af síður af hveiju beðið var með að ráðast til atlögu við úrvalssveitir íraka í Kúveit sem eftir fregnum að dæma vora ber- skjaldaðar að keyra um í eyðimörk- inni í sprengjuregni bandamanna. Þegar bandamenn voru sakaðir um að hafa sprengt í loft upp mjólk- urduftsverksmiðju í Bagdad sögðu þeir að þetta hefði verið efnavopna- verksmiðja í dulargervi mjólkur- dufts. Vestrænir fréttamenn sem þekktu til í Bagdad mótmæltu en það kom fyrir ekki. Þegar myndir voru sendar frá Bagdad af íbúðar- hverfum sem höfðu orðið illa úti í loftárásum var sagt að þetta væra falsaðar myndir og líklega teknar í íran-írak stríðinu. Það virtist svona nokkuð sama hveiju írakar héldu fram, það var ekki mark á þeim takandi. Hvers vegna lá svona mikið á að fara í stríð? Þó svo menn væru andvígir því að Saddam Hussein réðist inn í Kúveit hafa margir furðað sig á hvers vegna lá svona mikið á að fara í stríð. í fyrstu var lögð áhersla á að hermennirnir í Saudi-Arabíu væru þar til varnar ef írakar reyndu innrás í landið. Á þeim forsendum sendu Sýrlendingar hermenn til Saudi-Arabíu og sömuleiðis Mar- okkó. Sérfræðingar segja að miklu ráði hinn sálfræðilegi og mannlegi þátt- ur. Það sé óhugsandi fyrir banda- menn að halda úti mannafla af þessari stærð svo mánuðum skiptir, þjálfa hann og láta hann æfa árás- ir á óvininn en leyfa honum ekki að heyja alvöra stríð. Fram til þessa hafa Saudar einir araba á svæðinu, ásamt hermönn- um frá Qatar, tekið þátt í átökum við íraka. Vafalítið er reynt að draga eins lengi og kostur er að láta Egypta, Sýrlendinga og Mar- okkóa beijast við þá enda á allra vitorði að meðal almennings í öllum þessum löndum er vaxandi stuðn- ingur við íraka. Mörgum arabaþjóð- um finnst svívirðilegt hversu heift- úðugar loftárásir hafa verið gerðar .á íraka án sannana um að þær hafi alltaf beinst að hernaðarskot- mörkum. Það er umhugsunarefni hvernig leiðtogar þessara ríkja veija fyrir þjóðum sínum að standa með Vest- urlandaþjóðum gegn arabískri bræðraþjóð. Og þá ræður úrslitum að hér er arabísk þjóð að úthella blóði í stríði við Bandaríkjamenn og Breta sem auk ísraela eru einna hötuðustu Vesturlandaþjóðirnar i mörgum arabaríkjum. Margir telja að það hefði átt að gefa arabaleiðtogum færi á að leysa mál svæðisins án þess að til Vestur- veldin gripu strax til íhlutunar. Hefði það ekki tekist er ekki vafi að aröbum hefði þótt bærilegra að herliðið hefði verið undir beinni stjórn Sameinuðu þjóðanna, hefði verið varnar- en ekki árásarsveit. Bíða hefði mátt í nokkra mánuði uns áhrif efnahagsþvingana hefðu komið skýrar í ljós. Það hefði veikt stöðu Saddams innanlands í stað þess að í stríði er líklegra að marg- ir landar hans sem eru andvígir ógnarstjórn hans standi með honum af mjög augljósum ástæðum. Kúveit var ekki lýðræðisríki Um þennan harmleik við Flóann má skrifa langt mál, velta fyrir sér því lýðræðisleysi sem var í Kúveit, benda á að í Saudi-Arabíu er ekki lýðræði. Margir hafa sagt að Saddam hafí gert sér ljóst að hann yrði fyrr eða síðar að skila Kúveit. Hann hafi ákveðið að skilja við það í eins slæmu ástandi og hægt var og fjar- lægt öll verðmæti, hvort sem voru dýr rannsóknartæki, matvæli á mörkuðum og ljósastaurar á götum. Fráleitt sé að hann hefði fyrirskipað þetta ef hann hefði reiknað með að Kúveit yrði til frambúðar 19. fylki íraks. Vegna skelfíngar Sauda og bráð- lætis Bandaríkjamanna verður ekk- ert sannað eða afsannað hér um. Og þegar stríðinu lýkur tekur við annað stríð. Að græða sár þjóða og landa. NTJA BLIKKSMIÐJAN Hjólbörur Rennur og niðurföll Sorprör Loftræstingar Lofttúður Sérsmíði Póstkassar Kantar Þakgluggar Hurðastál Loftræstiþjónusta Hönnun Gerum tilboð í loftræstilagnir Ármúla 30, s. 681104 - 681172. Fax. 681207 DAGVIST BARIVA Laus staóa Staða umsjónarfóstru við dagvistarheimili Dagvistar barna er laus til umsóknar. Umsækjandi skal hafa lokið fóstru- prófi. Framhaldsmenntun eftir fóstrunóm óskilin. Umsókn ósamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist til skrifstofu Dagvistar barna fyrir 23. febrúar næst- komandi. Upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri fagdeildar ó skrifstofu Dagvistar barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, simi 27277. Enn meiri verðlækkun Kringlunni. 0.7] RANNS0KNARAD RIKISINS auglýsir styrki til ronnsókna og tilrauna árið 1991 Umsóknarfreslur er til 1. mars nk. Umsóknareyóublöð fást á skrifstofu ráósins, Laugavegi 13, sími 21320. • Um styrk geta sótt fyrirtæki, stofnanir eða einstaklingar. • Styrktarfé skal varið til rannsókna og þróunar á nýrri tækni og afurðum, sem talin er þörf fyrir næsta áratug. • Mat á verkefnum, sem sótt er um styrk til, skal m.a. byggt á; — líklegri gagnsemi verkefnis, m.a. markaósgildi niðurstaðna, sem sóst er eftir, — gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina hér á landi, — hæfni umsækjenda/rannsóknamanna. Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni, sem svo háttar um að; — fyrirtæki leggja umtalsvert framlag til verkefnisins, — samvinna fyrirtækja og stofnana innanlands er mikilvægur þáttur í framkvæmd verk efnisins, — samstarf vió erlend fyrirtæki og rannsókna- og þróunarstofnanir er mikilvægt, — líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri fyrir atvinnurekstur. Heimilt er einnig að styrkja verkefni, sem miða að uppbyggingu þekkingar og færni á tæknisviðum, sem talin eru mikilvæg fyrir atvinnuþróun hér á landi í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.