Morgunblaðið - 10.02.1991, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1991
Heppni skiptir sköp-
um í fjórum einvígjum
Skák
Margeir Pétursson
Áskorendaeinvígin sjö hafa
alveg skipst í tvo flokka hvað
úrslit varðar. Þrjú þeirra hafa
unnist með yfirburðum, nú
síðast sigraði Hollendingurinn
Jan Timman Þjóðverjann Ro-
bert Hiibner örugglega, 4Vi-
2V2. í hinum fjórum hefur lengst
af hvorki gengið né rekið, og í
þremur hefur orðið að fram-
lengja og tefla tvær stuttar skák-
ir. I þeim hafa keppendur fyrst
45 mínútur á 60 leiki, en síðan
15 mínútur til að ljúka skákinni.
Gamli baráttujaxlinn Viktor
Korchnoi, sem verður sextugur
á þessu ári, knúði fram sigur á
Ungveijanum Sax í framleng-
ingu, Korchnoi vann fyrri skák-
ina en sú seinni varð jafntefli.
Sovétmennimir Jusupov og Dol-
matov unnu hvor sína úrslita-
skák. Þá var gert út um einvígið
með hraðskákum og sigraði Ju-
supov 2V2-IV2. Staðan hjá Gelf-
and og Nikolic er 4-4 og á eftir
að framlengja þar. Englending-
amir Short og Speelman standa
jafnir að vígi, 3 'A-3 'A, þar er ein
skák eftir áður en framlengt
verður.
Þegar allt veltur á einni skák
er það fremur orðin stríðsgæfa
en snilld sem skiptir sköpum.
Þeir Korchnoi og Jusupov hafa
svo sannarlega verið lukkunnar
pamfílar, eins og við sjáum í
skákunum sem hér fara á eftir.
Framan af tefldi Dolmatov af
miklu öryggi í einvíginu við
Jusupov og hafði vinningsforskot
fyrir þá áttundu. í henni stóð
hann lengst af mjög vel, en lék
hrikalegum afleik í 39. leik og
Jusupov náði að jafna. Báðar 45
mínútna skákimar unnust síðan
örugglega á hvítt.
Korchnoi virtist eiga mjög
vafasama stöðu í fyrri 45
mínútna skák sinni við Sax, en
ruglaði Ungveijann í ríminu með
sóknaraðgerðum í tímahraki og
vann. í seinni skákinni gekk á
ýmsu, fyrst fómaði Korchnoi
skiptamun fyrir peð en Ungveij-
inn lét hann aftur af hendi fyrir
hættuleg sóknarfæri. í tímahraki
datt Korchnoi niður á það snjall-
ræði að gefa drottningu og peð
fyrir aðeins riddara og hrók,
tókst að setja upp óvinnandi vígi
og hélt jöfnu.
Við skulum fyrst líta á áttundu
einvígisskák félaganna og jafn-
aldranna frá Moskvu:
Hvítt: Artur Jusupov
Svart: Sergei Dolmatov
Kóngsindversk vöm
1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3
- Bg7 4. e4 — d6 5. f3 — 0-0
6. Bg5 - c5 7. d5 - e6 8. Dd2
— exd5 9. cxd5 — h6 10. Be3 —
h5 11. Rge2
í fyrri úrslitaskákinni lék Jus-
upov hér 11. Be2 — a6 12. a4
- Rh7 13. Bdl - Rd7 14. Rge2
— Hb8 15. a5 og vann þá skák
örugglega.
11. - Rbd7 12. Rcl - Re5 13.
Be2 - Rh7 14. 0-0 - f5 15. f4
— Rf7 16. e5 — dxe5 17. Bxc5
- He8 18. Rd3 - e4 19. Rel
í skákinnní Ernst-Tal, milli-
svæðamótinu í Subotica 1987,
lék hvítur 19. Rf2 — Rf6 20.
Rfdl - b6 21. Bd4 Bb7 22. Re3
— Rd6 og staðan var u.þ.b. í
jafnvægi.
19. - Rf6 20. Rc2 - Bd7 21.
h3 - Dc7 22. De3 - b6 23.
Bd4 - b5!? 24. Hacl - Db7
25. Rb4
Þetta er eðlilegt framhald af
uppbyggingu hvíts, en Dolmatov
fínnur afskaplega sterkt svar:
25. - a5! 26. Rc6 - b4 27.
Bxf6 — Bxf6 28. Ra4 — Hac8
29. Rb6 - Bxc6! 30. Rxc8 -
Bxd5 31. Hfdl
Nú fær svartur alltof miklar
bætur fyrir skiptamuninn, en 31.
Rb6 - Bxb2 32. Rd5 - Dxd5
33. Bc4? — Bd4! var þó sízt betra.
31. - Bxb2! 32. Hc5 - Bxa2
33. Rd6 - Rxd6 34. Hxd6 -
Bf7 35. Bc4!? - Bxc4
Hlutlægt séð er þetta líklega
sterkara en 35. — Kg7 36. Bxf7
- Dxf7 37. Hxa5.
36. Hxg6+! - Bg7
Bæði 36. - Kf7 og 36. - Kh7
er svarað með 37. Hgc6! með
hótuninni 38. Hc7.
37. Hxc4 - Df7
Eftir 37. — b3 hefur hvítur
möguleika á að bjarga sér með
38. Hxg7+ - Kxg7 39. Dc3+.
38. Hcc6 - b3 39. Db6
39. - b2??
Svartur missir aðaltromp sitt
bótalaust, auk þess sem hvíta
drottningin stendur vel til bæði
sóknar og vamar á b2!. Eftir 39.
— e3 er ekki annað að sjá en
svarta staðan sé léttunnin.
40. Dxb2 - e3 41. Hcf6! - Dc7
42. Da2+ - Kh8 43. Hxf5 -
Kh7 44. He6 og svartur gafst
upp.
Þannig tefldist fyrri 45
mínútna skák Korchnoi og Sax:
Hvítt: Viktor Korchnoi
Svart: Gyula Sax
Enski leikurinn
1. Rf3 - Rf6 2. c4 - c5 3. Rc3
- Rc6 4. d4 — cxd4 5. Rxd4 —
e6 6. a3!?
Þessi hógværi leikur, sem
mnninn er undan rifjum Speel-
mans, gafst Korchnoi mjög vel
í einvíginu við Sax. í fímmtu
skákinni náði hann ívið betri
stöðu eftir 6. — Rxd4 7. Dxd4
b6 8. Df4!? Bb7 9. e4 og vann
um síðir.
6. - Be7 7. e3 - d5 8. cxd5 -
exd5 9. Bb5 - Bd7 10. Rf3 -
a6 11. Be2 - Bg4 12. h3 -
Bh5 13. Rh4 — Bxe2 14. Rxe2
- Re4 15. Rf3 - Bf6 16. 0-0
- 0-0 17. Hbl - Dd6 18. Dd3
- Hfd8 19. b4 - a5 20. b5 -
Re5 21. Rxe5 - Bxe5 22. Rd4
- Rc5 23. Ddl - Re6 24.
Rxe6— fxe6 25. Dd3 - Hdc8
26. Bd2 - Hc4 27. Hfdl - Dc5
28. Khl - Hf8 29. f4 - Bc3
30. Bcl - a4! 31. b6 - g6 32.
Kh2 - Hc8 33. Hfl - De7 34.
Ddl H8c6 35. Df3 - Bf6 36.
Khl - Dd6 37. Bd2
Hvítur hefur teflt án áætlunar
síðustu 15 leikina eða svo og Sax
hefur fyrst náð yfirráðum yfír
c-línunni og nú er peðið á b6
dæmt til að falla. Hvítur verður
því að- reyna að ná mótspili, hvað
sem það kostar. Nú hefði svartur
getað sér að meinalausu drepið
á b6, en hann vill fá annað og
mikilvægara peð.
37. - Dxa3 38. f5! - gxf5
Eftir 38. — exf5! 39. Dxd5+
- Kg7 er svartur sælu peði yfír
og með betri stöðu!
39.Dg3+ - Kf7 40. Db8 - De7
41. Bb4!
Óþægilegur leikur að fá á sig
í tímaþröng, eftir 41. — Hxb4
42. Hxb4 — Dxb4 43. Dxb7+
verður hvítur skiptamun yfír, en
gott framhald var 41. — Dd8!?
42. Dxb7+ — Kg6 og möguleik-
ar svarts era mun betri.
41. - Dd7 42. Df8+ - Kg6 43.
g4! - f4??
Taflið var orðið flókið, en hér
glatar Sax enn einu tækifæri,
eftir 43. — Bg7! 44. gxf5 — Kh6
er hann ennþá með vinnings-
stöðu!
44. exf4 - Dd8? 45. f5+ -
exf5 46. gxf5+ - Kh5 47. Df7+
- Kh6 48. Bd2+ - Bg5 49. f6
og svartur gafst upp.
Formrannsóknir
Myndlist
EiríkurÞorláksson
Eitt hið helsta sem greinir
mennina örlítið frá ættingjum
sínum í dýraríkinu er nær
óslökkvandi þorsti eftir þekkingu,
upplýsingum og kunnáttu á öllum
sviðum er tengjast lífínu og tilver-
unni. Hvert einasta mannslíf er í
raun lítið annað en samfelld leit á
þessum sviðum, því þess meiri
þekkingu, upplýsingum og kunn-
áttu sem menn ráða yfír, þeim
mun betur ætti að ganga að ráða
lífsgátuna. Eða hvað?
Undirstaða hinnar eilífu leitar
er rannsóknin, og eina vonin til
að svala ofangreindum þorsta er
að rannsóknir leiði til einhverrar
niðurstöðu um viðfangsefnið. Það
er hins vegar eðli mannlegrar við-
leitni að svörin eru -sjaldnast
einhlít, og áframhaldandi athugan-
ir leiða til sífellt fleiri og fjölbreytt-
ari lausna.
Það er stundum haft á orði um
rannsóknir og tilraunir af ýmsu
tagi, að þær séu lítið annað en
eilífar endurtekningar á því sem
þegar hefur verið gert — að menn
séu sífellt að rembast við að fínna
upp hjólið, sem þegar er til og
hefur þjónað manninum í árþús-
undir. Þetta má til sanns vegar
færa á ýmsum sviðum, þar sem
menn ættu að eiga auðvelt með
að læra af reynslu náungans; ýmis-
legt í íslenskum atvinnurekstri í
gegnum tíðina hefði vissulega ver-
ið betur látið ógert í ljósi þessa
einfalda sannleika. En margt í
mannlegri reynslu er samt sem
áður þannig, að hver einstaklingur
verður að kynnast því af eigin
raun, og þar dugir fordæmi ann-
arra ekki. Gömul sannindi segja
að brennt bam forðist eldinn, en
samt getur samanlögð reynsla allr-
ar sögunnar ekki komið í veg fyrir
að börn allra tíma halda áfram að
teygja höndina í átt að loganum,
þar til þau finna fyrir hitanum.
Þessar almennu hugleiðingar
komu upp í hugann í tilefni af
sýningu Níelsar Hafstein, sem nú
stendur yfir í Nýlistasafninu.
Myndlistin er eitt af þeim sviðum
mannlífsins, þar sem hver einstakl-
ingur fínnur sig sífellt knúinn til
að endurtaka rannsóknir sem aðrir
hafa einnig lagt fyrir sig, áratug-
um og öldum saman, til að komast
að sínum eigin, persónulegu niður-
stöðum. Hvort þær niðurstöður era
svipaðar því sem aðrir hafa komist
að eða ekki ræður síðan öllu um
hvort verk listamannsins verða
persónuleg tjáning eða falla í al-
mennan farveg, þar sem enginn
sker sig frá öðrum.
Níels Hafstein hefur unnið mik-
ið að slíkum tilraunum á sínum
ferli, og oft hafa rannsóknirnar
beinst að efnislegri tjáningu hug-
lægra viðfangsefna fremur en
formlegum þáttum þeirra. Á
síðasta sumri setti hann þannig
upp litla innsetningu um ,Vald“,
fyrir tveimur árum sýningu um
ijölkynngi/óskhyggju, og 1987
hélt Níels sýningu á Kjarvalsstöð-
um sem kallaðist „Svartir og gyllt-
ir hestar", og íjallaði um goðfræði-
leg atriði.
í efsta sal Nýlistasafnsins er nú
um að ræða „Formrannsóknir (nið-
urstöður í tré og málmi)“. í grófum
dráttum skiptist salurinn þannig
að tréverk eru á einuin vegg, mál-
uð tréform á öðrum og niðurstöður
era unnar í ýmsa 'málma á hinum
þriðja. Það er hægt að ganga hring
eftir hring í salnum og íhuga form-
in í sínu einfalda og þó flókna rými,
eða gefa þeim persónuleg eigindi
sem aðeins áhorfandinn kann að
meta. Þama birtist margt af þeim
grunni sem framhald myndsköp-
unar byggir á, og er gott að minna
stöku sinnum á þá undirstöðu með
þeim hætti sem hér er gert. — Það
er einnig notalegt að sjá næstu
kynslóð listamanna í fjölskyldunni
njóta þeirrar virðingar sem birtist
í því að formrannsóknir hinna
yngri eru sýndar sem formáli eða
aðfaraorð að sýningu föðurins.
Þetta er síðasta sýningarhelgi í
Nýlistasafninu, en sýningu Níelsar
Hafstein lýkur sunnudaginn 10.
febrúar.
MARKAÐSHUSIÐ
★ Krumpugallar 3.900 kr. ★ Gallabuxur2.700 kr. ★ Sloppar 1.990 kr.
★ Sængur2.400 kr.
MARKABSNÚSfÐ Snorrabraut 56 (2. hæð), 16131 Opið frá ki 12 -18, laugardag frá kl. 10 -16.